Morgunblaðið - 29.03.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
3
Aðalfundur Verzlunarbankans:
Innlánsaukning
nam 35,9%
AÐALFUNDUR Verzlunar-
bankans var haldinn að Hðtel
Sögu s.l. laugardag, 26. marz.
Fundarstjóri var kjörinn Hjört-
ur Hjartarson, en fundarritarar
voru Gunnlaugur J. Briem og
Magnús Finnsson.
Þorvaldur Guðmundsson, for-
stjóri, formaður bankaráðs,
flutti ftarlega skýrslu um rekst-
ur bankans og þróun efnahags-
mála á sfðast Iiðnu ári og verða
hér á eftir rakin heiztu atriði
úr ræðu hans.
Þróun efnahagsmála
Ef við leiðum hugann að þró-
un efnahagsmáía á s.l. ári, verð-
ur fyrst vart, að hægt hefur á
verðbólgu frá fyrri árum, þótt
engan veginn hafi náðst sú þró-
un sem að hefur verið stefnt og
æskilegt heföi verið að ná. Enn
er við alvarlegan verðbólgu-
vanda að stríða.
Gangráða þessarar þróunar
hafa verið hvoru tveggja, af er-
lendum toga spunnir og inn-
iendum. Seint á árinu 1975 tók
að rofa til í efnahagslífi heims-
ins eftir mikla erfióleika, sem
einkenndust helzt af mikilli
verðbólgu viða um lönd, sam-
hliða miklu atvinnuleysi í
helztu iðnrikjunum. Við Islend-
ingar höfum verið blessunar-
lega lausir við atvinnuleysið en
haft þeim mun meira af verð-
bólgunni að segja.
Vaxandi framleiðsla og
einkaneyzla samhliða minnk-
andi verðbólgu I iðnríkjunum
voru einkenni bata i efnahags-
lifinu. Bjartsýni hins almenna
neytanda og trú framleiðenda á
batnandi tima voru hvatinn að
þessari þróun. Stjórnvöld hafa
víðast hvar verið mjög treg til
aðgerða, sem leiða til vaxandi
eftirspurnar af ótta við verð-
bólguaukandi áhrif þeirra.
Efnahagsbatinn I heiminum á
s.l. ári varð þvi mun hægari en
almennt var vonast eftir og
skiptar skoðanir eru á varan-
leika hans. Að margra dómi er
hæg þróun varanlegri en ör, en
að mörgu öðru þarf einnig að
hyggja eigi efnahagsbatinn að
haldast og hagvöxtur að verða
með æskilegum hætti. Nú ný-
verið hafa stjórnvöld í mesta
iðnveldi heims ákveðið veruleg-
ar eftirspurnaraukandi aðgerð-
ir, sem án vafa munu hafa veru-
leg áhrif um allan heim. Vænta
má því vaxandi milliríkjaverzl-
unar á komandi mánuðum um-
fram þá aukningu, sem varð á
s.l. ári, en hún hafði mjög dreg-
ist saman á erfiðleikaárunum.
Megin stefna íslenzkra
stjórnvalda í efnahagsmálum
er að draga úr verðbólgu, draga
úr greiðsluhalla við útlönd,
tryggja útflutningsatvinnuveg-
um þolanlega afkomu og koma i
veg fyrir atvinnuleysi.
Með minnkandi verðbólgu í
Frá aðalfundi Verzlunarbankans.
helztu viðskiptalöndum okkar
hefur dregið úr verðhækkun-
um innflutningsvara okkar.
Jafnframt hafa verðhækkanir
orðið mun meiri á helztu út-
flutningsvörum okkar, þannig
að þróun viðskiptakjara varð
Islendingum hagstæð á s.l. ári
þó þau hafi verið mun lakari en
þegar þau voru hagstæðust á
árinu 1973. Á s.l. tveim árum
hafa þjóðarútgjöld minnkað á
föstu verðlagi. Samdráttur í
einkaneyzlu varð 1975 en fjár-
munamyndun minnkaði 1976. í
stórum dráttum má segja að
útflutningur okkar á s.l. ári
hafi vaxið bæði að magni og
verði á meðan innflutningur
hafi nánast staðið í stað að
magni og verðhækkanir orðið
mun minni en á útflutningi.
Þessi þróun hafði eðlilega já-
kvæð áhrif á gjaldeyrisstöðu
bankanna nettó og var bati
hennnar verulegur en hafði
stefnt svo mjög i neikvæða átt
árin áður, að þrátt fyrir allt er
hún enn neikvæð.
Innlánsbinding og
áhrif hennar
Flutningur lánsfjármagns
milli atvinnugreina hefur með-
al annars átt sér stað með þeim
hætti, að Seðlabankinn hefur
skyldað innlánsstofnanir að
eiga inni á bundnum reikningi
hjá honum ákveðinn hluta af
innlánum með mánaðarlegum
hreyfingum eftir hreyfingum
innlána. í fyrstu var bindi-
skyldan 10% af innlánum en
hefur farið hækkandi, hækkaði
siðast um 2% 1. mai s.l. i 25%.
Hér eru miklar fjárhæðir tekn-
ar af innlánsstofnunum og
dregið úr frjálsri útlánagetu
þeirra að sinna þeirri atvinnu-
grein, sem gert var ráð fyrir að
þær þjónuðu með stofnun
þeirra. Fjárhæðir þessar koma
þó aftur til innlánsstofnana í
formi endurlána til atvinnueg-
anna, en i allt öðrum hlutföll-
um en af þeim er tekið. Fyrst
og fremst sjávarútvegur og
landbúnaður en einnig iðnaður
njóta þessara endurlána, en
verzlunin er utangarðs. Þessi
útlán fara fyrst og fremst fram
í rikisbönkunum. Þeir lána því
út i gegnum þetta kerfi miklar
fjárhæðir af innlánum einka-
bankanna og njóta þar af nokk-
urra vaxtatekna, sem þeir eru i
sjálfu sér ekki of saddir af. Hitt
er öllu verra, að þeir sem inn-
lánin hafa, njóta aðeins 1.25%
Framhald á bls.46
Þorvaldur Guðmundsson, formaður Bankaráðs flytur ræðu á aðal-
fundinum.
Borun að Lauga-
landi gengur vel
Aukakostnaður vegna tafa orðinn 35 milljónir
BORUN sfðustu holunnar að
Laugalandi í Eyjafirði hefur
gengið vel undanfarna daga að
sögn lsleifs Jónssonar, forstöðu-
manns Jarðborana rikisins, en
eins og fram hefur komið i
fréttum gekk borun holunnar
mjög brösuglega um tfma og sat
borinn Jötunn meira að segja blý-
fastur I holunni I nokkra daga.
Að sögn ísleifs virðist sem
mestu erfiðleikarnir séu yfir
stignir. Gripið var til þess ráðs
eftir að borinn var búinn að fest-
ast þrisvar sinnum, að fara út úr
fyrri holunni á um 200 metra dýpi
og bora þar nýja holu. Hefur það
tekizt bærilega og er Jötunn nú
kominn niður á 700 metra dýpi en
borinn festist á sinum tíma á
450—460 metra dýpi. Sagði ísleif-
ur að líklega yrði borað niður í
1500—2000 metra dýpi. Reiknað
er með því að holurnar að Lauga-
landi gefi af sér 150 sekúndulítra
af heitu vatni. Það nægir ekki
fyrir hitaveitu á Akureyri. Þarf
því að bora tilraunaholur í Eyja-
firði í sumar og verður það gert
a.m.k. á tveimur stöðum, við
Brúnalaug og Grísará.
í Akureyrarblaðinu Degi er
viðtal við Ingólf Árnason, for-
mann hitaveitunefndar Akureyr-
arbæjar. Samkvæmt upplýsingum
hans er kostnaður við borun síð-
ustu holunnar að Laugalandi
orðinn 85 milljónir króna. Þar af
eru 35 milljónir beinn auka-
kostnaður vegna þeirra erfiðleika
og tafa, sem orðið hafa við borun-
ina. Hafa farið fram viðræður
milli Akureyringa og Orkustofn-
unar um það hver greiða eigi
þennan mikla aukakostnað.
Endurskoðun lokið
á bókhaldi Vængja
ENDURSKOÐUN á bókhaldi
Flugfélagsins Vængja hf er lokið,
en hana framkvæmdi Gunnar R.
Magnússon, löggiltur endurskoð-
andi. Er greinargerð hans um
endurskoðunina birt I heild á bls.
31 i blaðinu í dag. Aðalfundur
félagsins hefur verið ákveðinn 22.
aprfl n.k. og f framhaldi af
honum áformar félagið að halda
fundi með umboðsmönnum
sfnum.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar i gær hjá Vængjum hf., að
stjórn félagsins hefði samþykkt
einróma á fundi sínum í gær að
stefna ábyrgðarmanni Dagblaðs-
ins vegna greinar á forsiðu blaðs-
ins síðastliðinn föstudag fyrir
meiðyrði, atvinnuróg, til ómerk-
ingar ummæla, til greiðslu skaða-
bóta og refsingar. Formaður
félagsins, Guðjón Styrkársson hrl,
hefur áður stefnt blaðinu tvisvar
vegna ummæla, sem þar komu
fram.
Þá ákvað stjórnin ennfremur í
gær að hætta að flytja Dagblaðið
með flugvélum félagsins. Að sögn
félagsins er ástæðan langvarandi
vanskil blaðsins á ^flutnings-
gjöldum.