Morgunblaðið - 29.03.1977, Síða 15

Morgunblaðið - 29.03.1977, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 15 skrifa um tónlist Slag- verkstón- leikar ÁSKELL Másson er „virtúós" á vissa tegund slaghljóðfæra, t.d. á bongó og á pákutrommur. Það er greinilegt að með honum blundar þörf fyrir að skapa og eftir því sem undirritaður hefur vit á og hægt er að staðhæfa, þá bendir margt til þess að hann eigi erindi við nótnapappírinn. Vegna augljósra hæfileika Áskels Más- sonar og svo vegna þeirra mörgu ungu hæfileikamanna sem beina sköpunarþrá sinni I fafveg popps eða jasslistar og telja improvisation markmið og ein- hverja nýstefnu, langar undir- ritaðan til að reyna að gera örlitla grein fyrir hugmyndum manna á svonefndri improvisation. Improvisation er upprunalegust allra athafna á sviði tónlistar og meðferð hljóðfæra er einsamfelld improvisation, þar til farið er að rita fyrir hljóðfæri, að því að talið er á 12. og 13. öld eða um sama leyti og menn kunnu að rita bæði lengd og hæð tóna. Um leið og skrásetning hefst þá breytast við- horf manna til hljóðfæraleiks og þá hefst sú þróun i hljóðfæra- tækni, sem að því er virðist, er nú komin að endamörkum sem ekki verða sniðgengin nema með al- gerri uppstokkun á hljóð- myndunartækni. Þessi tækniþró- un var því aðeins möguleg að hægt var að skrá niður tónhug- myndir og átti hvert tímabil sín tæknisérkenni, sem bæði breytt- ust með tilkomu nýrra hljóðfæra og vegna sifelldra endurtekninga, sem mögulegar voru vegna þess að tónverkin voru skráð. Nútíma- tónlistarmaður stendur andspæn- is þeim vanda að þurfa að fara í gegnum alla þessa tækniþróun til að teljast nægilega menntaður. Margir ungir fullhugar vilja snið- ganga allan skólalærdóm og reyna að skapa tónlist, sem ekki hefur verið kennd eða lærð. í ákafanum gleymist þýðingarmikið atriði og það er þjálfunin, sem án leiðsagn- ar getur og verður því miður oft- ast ómarkviss og tímanum eytt 'i óþarfar endurtekningar. Það hef- ur margsinnis gerzt, að tóntak alþýðutónlistar hefur verið nýtt til svo nefndrar tónsköpunar, bæði af menntuðum tónlista- mönnum eins og t.d. Grieg og Liszt og einnig af alþýðutónskáld- um, sem ékki höfðu notið tón- listarmenntunar eins og t.d. Gerswin. Hann reynir að færa tóntak jassins yfir í stærri form en lagasmíði og tekst það, en jafn- framt gerir hann sér grein fyrir þekkingarfræðilegum takmörk- um sínum og leitar sér mennt- unar. Menntun getur verið á margan hátt mótandi, en eitt af því sem gerir hana dýrmæta, er sá tímasparnaður sem kennsla getur verið, í stað þess að leita að lausn vandamála án leiðsagnar eða hjálpar. Fyrst Gerswin hafði hæfileika til sköpunar, hvað var það þá sem hann þurfti að læra. Hann bjó yfir tónhugmyndum, sem menntaðir tónlistarmenn þekktu varla og augljóst er að listsköpun hans tæki harla lltið mið af þekktum hugmyndum í tónferii, stíl og efnismeðferð. Var ekki nóg fyrir hann að „impróvisera". öll tónsköpun hefst á improvisation, að meira eða minna leyti, en improvisation á staðnum er að því leyti ólík þeirri sem tónskáldið fæst við, að á staðnum verður ekkert leiðrétt eða endurskapað, en tónskáldinu gefst aftur á móti tlmi til yfirveg- unar og rækilegrar könnunar á mörgum möguleikum. Eitt af því sem talið er að hafi staðið þróun jassins fyrir þrifum, er það fyrsta sú árátta að halda sig við dægur- lagið, sem bindur tónhugsunina i fjötra venjubundinna lagforma, og I öðru lagi að lögð hefur verið aðaláherzla á impróvisation, sem i allri gerð er háð getu hvers hljóð- færaleikara, án þess að höfundur Framhald ð bls. 36 Athyglisvert framtak Á siðast liðnu ári flutti FOLKET, blað bindindishreyf- ingarinnar í Noregi, merkilega frétt um stórathyglisvert framtak sem hér virðist hafa farið fram hjá mörgum. Verður hér vikið með nokkrum orðum að framtaki þessu og hver tildrögin voru. Eins og mörgum íslendingum er kunnugt hefur félagsmála- starfsemi Norðmanna á ýmsum sviðum verið einkar fjölþætt og þróttmikil um langt árabil. Nægir í því sambandi að nefna ung- mennafélögin, lýðháskóla- hreyfinguna, góðtemplarara- regluna og ýmis önnur bindindis- samtök. En á síðari árum allmörgum, þegar gjörbreyttir þjóðlífshættir tóku að festa rætur, dró smám saman úr félagslegum áhuga þar í landi eins og raunar víða annars staðar. Kom þetta m.a. niður á starfi bindindishreyfingarinnar, öllum deildum hennar, svo að til mikilla vandræða horfði að dómi allra þeirra sem þar voru í farar- broddi. Var þeim ljóst að gera þurfti stórt og samstillt átak ef takast ætti að rétta við á ný. Ann- ars mundu margar félagadeildir ekki eiga viðreisnar von og hverf a að fullu af sjónarsviði. Á landsþingi norskra bindindis- samtaka sem haldið var í Rörás i nóvember 1972 var þetta mál rætt rækilega og einhuga samþvkkt tveggja ára sóknaráætlun sem öll bindindissamtökin stóðu að. Tak- markið var að tryggja stöðu bind- indishreyfingarinnar í þjóðlífinu svo sem verða mætti á þeim tíma og endurvekja og stofna 1000 félagsdeildir á vegum hinna ýmsu bindindssamtaka. Voru siðan nokkrir traustir menn kosnir til að kynna og skipuleggja þessa stórsókn sem hófst tæpu ári síðar, 1. október 1973. I þessari smágrein, sem aðeins er ætlað að vekja athygli á merku framtaki norskra bindindis- samtaka, verður hin mikla sókn þeirra ekki frekar kynnt heldur aðeins skýrt frá niðurstöðum. Þar sem allir fulltrúar lands- þingsins voru einhuga um að hefja þessa sókn og hétu að gera sitt bezta, hver innan sinna sam- taka, varð árangur næstum ótrú- lega góður. Því háleita marki að endurvekja og stofna 1000 nýjar félagsdeildir varð að vísu ekki náð. Mörg Félagasamtökin náðu þó alveg furðu hárri tölu nýrra deilda og skulu hér aðeins nefnd um það nokkur dæmi. Blái krossinn sem er mjög öflugur í Noregi náði hæstri tölu nýrra deilda eða 117, Bindindis- félag ökumanna 71, Góðtemplara- reglan 57, Norskir untemplarar 53, Hvíta bandið 49 og ýmis önnur samtök nokkru færri. Öllum oddamönnum norskra bindindismála ber saman um að þessi tveggja ára sókn hafi haft margvísleg áhrif til góðs og treyst stöðu bindindishreyfingarinnar að miklum mun. Mér virðist að hér sé um að ræða fordæmi sem forystumenn íslenskra bindindismála ættu að kynna sér vel og taka til gaum- gæfilegrar athugunar. Sigurður Gunnarsson. Tilbúinn undir tréverk Hann er þess virði að þú lítir á hann tvisvar, nýi Volvoinn. Nýjungar, eins og ”hrein grind” með völsuðum langböndum, rafkerfi tengt í einum aðgengilegum töflukassa, lofthemlakerfi í nylon- leiðslum, 50 gráðu snúningsgeta, þrátt fyrir aðeins 3,8 metra lengd milli hjóla, koma þér skemmtilega á óvart. Eins og allt annað í sambandi við Volvo N. Volvo N er fangt á undan öðrum í tækni og útliti. Volvo N er vörubíll framtíðarinnar orðinn að raunveruleika. Volvo N nýtir hvern einasta mögu- leika til hins ýtrasta í þágu eigandans. Allar tækni- legar upplýsingar um Volvo N eru ávallt til reiðu í Volvosalnum við Suðurlandsbraut. Hafið samband við Jón Þ. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.