Morgunblaðið - 29.03.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
17
Stjórn M.R. og framkvæmdastjóri, talið frá vinstri: Jón M. Guðmunds-
son, Einar Tönsberg, Sigsteinn Pálsson, Leifur Guðmundsson, Ólafur
Andrésson og Sigurður Sigurðsson.
FÓÐURFLUTNINGABIFREIÐ félagsins, sem flytur laust fóður, losar
i fóðurturn hjá svínabúinu Grisabóli f Mosfellssveit. Ljósm. Mbi.
Friðþjófur.
Skrifstofur og verzlun M.R. hafa frá árinu 1955 verið að Laugavegi 164.
mjólkursölumál. Starfrækir
Mjólkurfélagið þá áfram mjólkur-
stöö sína en i marz 1936 selur
félagið Mjólkursamlagi Kjalar-
nesþings stöðina og er hún þá
rekin undir yfirumsjón Mjólkur-
félagsins samkvæmt samningum
milli stjórna Mjólkursamlagsins
og Mjólkurfélagsins. Þann 8. júli
1936 gefur rikisstjórnin út bráða-
birgðalög, sem heimila að taka
mjólkurstöðina við Hringbraut
leigunámi og var það gert. Þar
með var afskiptum Mjólkurfélags-
ins af sölu- og dreifingu mjólkur i
Reykjavík lokið.
Mjólkurfélagið einbeitir sér hér
eftir að verzlunarþjónustu í þágu
félagsmanna sinna og annarra
bænda. Á árunum 1952 — 1955
byggir félagið að Laugavegi 164
og var þar komið upp fóður-
blöndunarstöð og öil starfsemi
félagsins flutt þangað. í þessu
húsnæði eru enn til staðar skrif-
stofur félagsins og verzlun þess.
Fóðurblöndunarstöð félagsins var
árið 1965 flutt í nýtt húsnæði á
samliggjandi ióð við Brautarholt
og eru þá keyptar mjög fullkomn-
ar blöndunarvélar. Ári síðar byrj-
aði félagið fyrst allra hériendis að
framleiða fóðurköggla. Sala á
fóðurkögglum jókst mjög ört og
árið 1969 kaupir félagið korn-
dælubíl, þann fyrsta sem notaður
var hér á landi, og hefur sölu á
lausu kjarnfóðri.
Þá er á árinu 1969 hafinn undir-
búningur að byggingu korn-
geymsluturna og uppskipunarað-
stöðu á lausu korni í Sundahöfn
en að þessum framkvæmdum
stóðu auk Mjólkurfélagsins
Fóðurblandan h.f. og Samband
íslenzkra samvinnufélaga. Tók
fyrirtækið Kornhlaðan til starfa i
ágúst 1971 en eignaraðild M.R. að
því er H. Við lok ársins 1971 eru
hafnar á vegum Mjólkurfélagsins
byggingarframkvæmdir við nýja
fóðurblöndunarstöð við hlið
Kornhlöðunnar í Sundahöfn og
var sú blöndunarstöð tekin í notk-
un seint á árinu 1972 en
blöndunarsamstæður og korn-
mylla voru þá fluttar úr verk-
smiðju félagsins við Brautarholt.
Mjólkurfélag Reykjavikur selur
nú milli 17% og 18% af heildar-
fóðurbætissölunni í landinu en
félagið dreifir vörum sínum allt
norður í Húnavatnssýslu, vestur í
Dali og austur i Árnes- og Rangár-
vallasýslu.
Leifur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Mjólkurfélagsins,
sagði í samtali við blaðið, að starf-
semi félagsins hefði í raun breytzt
i samræmi við þær breytingar,
sem orðið hefðu á búskap í
nágrannasveitum Reykjavíkur.
Kúabúskapur hefði lagzt af að
miklum hluta og sagði Leifur, að
félagið hefði breytt sinni fóður-
vörusölu í samræmi við þetta yfir
í hænsna- og svínafóður og þjón-
ustu við þessar búgreinar eftir
því, sem mjólkurframleiðendum
hefur fækkað. Nefndi Leifur, að
þegar hann hóf störf hjá félaginu
fyrir 12 árum hefði kúafóður
numið um 70% af fóðurvörusöl-
unni en hænsna- og svínafóður
30%. Nú hefði þetta hlutfall
snúizt við.
—Margur gæti haldið að starf-
semi félagsins væri að dragast
saman, vegna breyttra búskapar-
hátta í nærsveitum Reykjavíkur,
en svo er ekki. Félagið hefur
haldið sínum hlut i heildar fóður-
vörusölunni og farið hefur verið
inn á nýja brautir. Félagið er vel
stætt fjárhagslega og á verulega
miklar eignir en meginmarkmið
félagsins hverju sinni er að reyna
eins og kostur er að auðvelda
þeim bændum, sem mynda félag-
ið, útvegun rekstrarvara fyrir bú
sín og á sem hagstæðustu verði
hverju sinni. Mjólkurfélagið hef-
ur alltaf sett gæði þeirra vara,
sem það hefur selt, í öndvegi, því
gæði fóðursins hafa afdrifarík
áhrif á hvernig til tekst hjá bænd-
um með fóðrun bústofnsins, sagði
Leifur að lokum.
Fyrsti formaður Mjólkurfélags-
ins var eins og áður sagði Jón
Kristjánsson en árið 1919 tekur
Þorlákur V. Bjarnar, Rauðará, við
formennsku í félaginu en aðrir
formenn félagsins hafa verið:
Björn Ólafs, skipstjóri, Mýrar-
húsum, 1924 — 1934, Guðmundur
Ólafs, bóndi Nýja-Bæ, 1934 —
1954, Ólafur Bjarnason, bóndi
Brautarholti, 1954 — 1970, Jónas
Magnússon, bóndi Stardal, 1970
og núverandi formaður er Ólafur
Andrésson, bóndi Sogni. Aðrir i
stjórn félagsins nú eru Sigsteinn
Pálsson, Blikastöðum, varafor-
maður, Sigurður Sigurðsson,
Stóra-Lambhaga, ritari, og með-
stjórnendur Einar Tönsberg,
Reykjavik, og Jón M. Guðmunds-
son, Reykjaum.
Jón Kristjánsson var eins og
áður sagði einnig fyrsti fram-
kvæmdastjóri félagsins en hann
lézt 1918 og tók þá Eyjólfur
Jóhannsson frá Sveinatungu við
starfi framkvæmdastjóra og
gegndi því til ársins 1945. Þó tók
við Oddur Jónsson og gegndi því
til ársloka 1964 en þá tók núver-
andi framkvæmdastjóri, Leifur
Guðmundsson, við. Fulltrúi og
skrifstofustjóri félagsins í yfir 40
ár var Yngvi Jóhannesson, því
starfi gegnir nú Sigurður Eyjólfs-
son. Starfsmenn Mjólkurfélagsins
eru nú 35.
Það þarf að gæta ftrustu nákvæmni
þegar fóðri er blandað. Hér er það
Sigurjón Jónsson, sem blandar.
Hiidur Helgadóttir lokar hér fyrir
fóðurbætispoka.
M 9 matvælakynning
Opnuð í dag kl. 2 e.h. í Iðnaðarhúsinu við Hallveigarstíg.
25 fyrirtceki sýna:
Kjötvörur - lagmeti - mjólkurvörur þ.á.m. is, smjör og osta
brauðvörur - smjörlíki - drykkjarvörur - súpur - kex og scelgceti.
Opið daglega kl. 12 - 22. Kymingurmi lýkur á
surmudagskvöld.
Gestahappdrcetti, dregið daglega. - Okeypis aðgangur.
Þér býðst að bragða á - ókeypis.