Morgunblaðið - 29.03.1977, Page 43
23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
hennar, en þar sem hún er mjög
ung að árum er nægur tími til að
lagfæra þennan taktiska galla.
I sveitakeppninni, en keppt er i
þriggja, fimm og tiu manna sveit-
um í öllum flokkanna, voru FH-
ingar sigursælir. Unnu þeir alla
bikara í telpna-, sveina- og
drengjaflokkum, og hlutu tvo i
piltaflokki, eða samtals 8 bikara.
ÍR-ingar hlutu alla sveitabikara I
karlaflokki, að bikar elztu sveitar
undanskildum, eða þrjá alls.
HSK-hlauparar hlutu báða bikara
i kvennaflokki, en þar var engin
10 kvenna sveit. Hlaut þetta sam-
band einnig bikar elztu sveitar,
en kempur þær voru allar mjög
sporléttar, og létu það lítið á sig fá
að „rúlla“ rúma 6 kílómetra. Ung-
ir og efnilegir hlauparar úr UBK
unnu bikar þriggja manna sveitar
piltaflokks.
Hlaupið fór í alla staði vel fram,
og var framkvæmdaraðiluin,
stjórn Frjálsiþróttasambandsins,
til mikils sóma. Það óeigingjarna
starf sem þessir menn vinna virð-
ist ætla að bera gifturíkan ár-
angur, en telja verður að hin
mikla aukning þátttakenda i
hlaupi þessu endurspregli vax-
andi vinsældir frjálsíþróttanna
hérlendis. — ágás.
Margir hlaupararnir voru orðnir aðframkomnir er 1 marklð kom, og
þvf var hjálp og aðstoð félagsmanna vel þegin.
Pétur Grétarsson Leikni
Pétur Hrafnsson Leikni
Þorkell Gfslason Leikni
Samtals 125 hlauparar
3m sveit
UBK
FH
15 stig
19 stig
5 m sveit
FH 41 stig
IR 68 stig
lOm sveit
FH 199 stig
HSK 261 stig
Elzta 5 m sveit var HSK og elzti þátttak-
andinn Stefán Jasonarson HSK, 62 ára.
Flemming Delfs og Lene Köppen — dönsku badmintonsnillingarnir sem létu mikið
að sér kveða í „All England“ keppninni. Þessa mynd tók Friðþjófur eftir Norður-
landameistaramótið f haust.
DELFS SIGRAÐIKINGI
GLÆSILEGUM ÚRSLITALEIK
DANSKI badmintonsnillingurinn
Flemming Delfs bar sigur úr
býtum I hinni árlegu „All
England" badmintonmóti, sem til
þessa hefur verið óopinber heims-
meistarakeppni. Lék Delfs til úr-
slita við Indónesann Liem Swie
King, og var leikur þeirra einn
eftirminnilegasti úrslitaleikur
sem fram hefur farið i „All
England" keppninni til þessa, og
að mati þeirra, sem fylgzt hafa
með mótum þessum, einn sá
bezti. Stóð leikurinn 1 röska
klukkustund og lyktaði sem fyrr
greinir með sigri Dlefs 15—17,
15—11 og 15—8. Hefndi Delfs þar
með fyrir tap sitt fyrir King á
opna sænska meistaramótinu fyrr
í vetur, en þá lék Indónesinn
Danann sundur og saman og
sigraði 15—4 og 15—8 í úrslita-
leiknum.
— Ég hafði þann leik sannar-
lega í huga, sagði Delfs, eftir
keppnina að þessu sinni. Síðan ég
tapaði svo illa fyrir King hef ég
æft mjög vel og hér ætlaði ég mér
ekkert annað en sigur. Og ég ætla
mér líka að fylgja honum eftir og
sigra i heimsmeistarakeppninni í
Svíþjóð.
Indónesar bundu miklar vonir
við King i mótinu að þessu sinni
en hann er arftaki hins fræga
Rudy Hartono sem sigraði i „All
England“ keppninni i átta skipti
af þeim níu sem hann var þar
meðal þátttakenda.
Flemming Delfs náði fljótlega
3—0 og 5—2 forystu í úrslita-
leiknum, en King náði síðan að
jafna 5—5 Aftur tók Delfs
forystu og komst i 12—6 og siðan i
14—10 þannig að hann vantaði
aðeins einn punkt til þess að sigra
i fyrstu lotunni. En King var ekki
á því að gefa sig. Náði að jafna
14—14 og í hækkuninni hafði
hann siðan betur og vann 17—15.
í annarri lotunni hóf Delfs
leikinn af miklum krafti og komst
á skammri stundu í 6—3 og siðan
10—4. Þar með hófst gífurleg bar-
átta og i langan tíma vann hvorug-
ur kappanna punkta. Þar fór að
lokum að Delfs komst í 14—7 og
eftir að King mistókst sending
náði Delfs þeim eina punkti sem
vantaði til sigurs.
í úrslitalotunni var síðan barizt
upp á lif og dauða. Stórkostleg
„smöss“ Delfs færðu honum 8—3
forystu, og síðan urðu King á hver
mistökin af öðrum og Delfs komst
i 12—6. En þá upphófst sami
slagurinn og i annarri lotunni.
Hvorki'gekk né rak, og báðir voru
badmintonkapparnir gjörsamlega
útkeyrðir er Delfs tókst að vinna
þá punkta sem vantaði til sigurs.
í úrslitaleik kvenna mættust
japanska stúlkan Hiero Yuki og
danska stúlkan Lene Köppen. Þar
var einnig um mjög jafna og
harða viðureign að ræða, sérstak-
lega til að byrja með. Köppen
vann fyrstu lotuna 11—7, en þá
náði Yuki sér verulega á strik og
vann síðan 11—3 og 11—7. Var
þetta í fjórða sinn sem Yuki sigr-
ar í einliðaleik kvenna i „AIl Eng-
land“-keppninni. Hún varð einnig
sigurvegari 1969,1974 og 1975.
í tviliðaleik kvenna sigruðu
Etsuko Toganoo og Emiko Ueno
frá Japan þær Margaret Lock-
wood og Nora Perry í úrslitaleik
15—3 og 15—10. Sigurvegarar í
tvíliðaleik karla urðu Tjun Tjun
og Johan Wahjudi frá Indónesíu,
en þeir mættu löndum sínum
Christian og A.A. Chandra i úr-
slitaleik. 15—7 og 18—15 urðu
úrslit leiksins. Sigurvegarar i
tvenndarleiknum urðu svo Derek
Talbot og Gillian Gilks frá Eng-
landi. Unnu þau landa sína Mike
Tredgett og Nora Perry í úrslita-
leik 15—9 og 15—9.
VON RANGERS ÚTI
GLASGOW Rangers missti
endanlega vonina um sigur f
skozku úrvalsdeildarkeppninni á
laugardaginn, er liðið tapaði
mjög svo óvænt fyrir neðsta
liðinu i deildinni, Kilmarnock.
Var það fyrirliði Kilmarnock,
Alan Robertson, sem skoraði eina
mark leiksins.
Celtic heldur hins vegar sinu
striki og hefur nú svo gott sem
tryggt sér sigurinn í úrvalsdeild-
inni — er með 5 stigum meira en
næsta lið og hefur samt Ieikið
einum leik færra. Á laugardaginn
vann Celtic öruggan sigur yfir
helzta keppinaut sinum, Dundee
Utd. Voru það Joe Craig og
Ronnie Galvin sem skoruðu
mörkin. Staðan í skozku úrvals-
deildinni er þessi:
Celtic
Dundee Utd.
Rangers
Aberdeen
Hibernian
Partick
Motherwell
Ayr Utd.
Hearts
Kilmarnock
27 18 6 3 64:31 42
28 15 7 6 48:32 37
29 12 10 7 44:30 34
28 12 9 7 44:30 33
28 7 14 7 28:28 28
28 8 9 11 31:39 25
25 8 7 10 39:42 23
28 8 6 14 35:54 22
28 5 1013 37:50 20
29 4 6 19 26:60 14
FRIÐRIK ÞÓR BÆTTI
LANGSTÖKKSMETIÐ
FRIÐRIK Þór Óskarsson, IR,
setti nýtt islandsmet f langstökki
innanhúss, er hann stökk 7,15
metra á Reykjavlkurmeistara-
mótinu sem fram fór um helgina.
Sjálfur átti Friðrik eldra metið,
sem var 7,10 metrar. Sýndi Frið-
rik Þór mikið öryggí f keppninni
og voru öll stökk hans lengri en 7
metrar. Bendir þetta afrek Frið-
riks Þórs til þess að hann eigi að
geta höggvið nærri islandsmetinu
f langstökki f sumar, en það er
7,46 metrar.
Fremur litil þátttaka var i
Reykjavíkurmeistaramótinu, en
hins vegar skemmtileg keppni í
mörgum greinum. Þannig vann
t.d. Elias Sveinsson 50 metra
grindahlaupið á 6,9 sek., en bæði
Valbjörn Þorláksson og Björn
Blöndal hlupu á 7.0 sek.
Aðrir Reykjavíkurmeistarar
urðu:
50 metra hlaup: Björn Blöndal,
KR, 5,8 sek.
800 metra hlaup: Karl Blöndal,
ÍR, 2:35,0 mín.
Kúluvarp: Elias Sveinsson, KR,
14,34 metrar
Hástökk: Elías Sveinsson, KR,
1,85 metrar
50 metra hlaup kvenna: Ingunn
Einarsdóttir, ÍR, 6,4 sek.
50 metra grindahlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir, ÍR, 7,3 sek.
Hástökk kvenna: Þórdís Gisla-
dóttir, ÍR, 1,60 metrar
Kúluvarp kvenná: Ása Halldórs-
dóttir, Á, 11,76 metrar
Langstökk kvenna: Lára Sveins-
dóttir, Á, 5,64 metrar
800 metra hlaup kvenna: Brynja
Bjarnadóttir, ÍR, 2:52,3 mín.