Morgunblaðið - 29.03.1977, Qupperneq 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
Aóalfundur Samvinnubankans:
Innlánsaukning nam
Aðalfundur Samvinnubankans
var haldinn að Hótel Sögu laugar-
daginn 19. marz s.l.
Fundarstjóri var kjörinn Ragn-
ar Ólafsson, hrl., en fundarritari
Margeir Daníelsson, hagfræðing-
ur.
Formaður bankaráðs, Erlendur
Einarsson, forstjóri, flutti itar-
lega skýrslu um starfsemi bank-
ans á s.l. ári og rakti í stuttu máli
fjármálaþróunina almennt séð.
Kom þar meðal annars fram, að
þróun peningamála hjá innláns-
stofnunum hefði einkennst af
meiri þenslu en á árinu 1975, þótt
mikið drægi úr henni tvo síðustu
mánuði ársins. Heildarinnlán inn-
lánsstofnana hefðu aukist um
33.0%. Þar af jukust spariinnlán
um 36.1%, en veltiinnlán um
23.7%. Verður þróun innlána að
teljast hagstæð, sérstaklega með
tilliti til spariinnlána. Útlán inn-
lánsstofnana í heild hækkuðu um
29.6%, sem er heldur meiri aukn-
ing en árið áður, þá var hún
26.0%. Fóru útlán því nokkuð
fram úr útlánasamkomulagi inn-
lánsstofnana við Seðlabankann.
Lausaf járstaða innlánsstofnana
gagnvart Seðlabanka batnaði
einnig lítilsháttar á árinu.
Þessu næst vék Erlendur að
starfsemi Samvinnubankans. Ár-
ið 1976, var ár mikilla umsvifa.
Heildarveltan óx um 34.6% og
fjárfestingar og framkvæmdir á
vegum bankans voru allmiklar.
FRAMKVÆMDIR
Á árinu tókust samningar við
Samvinnutryggingar um kaup á
öllum fasteignum þeirra, er bank-
inn hefur haft til afnota fyrir
starfsemi sína, en þessar eignir
eru á Akranesi, Patreksfirði,
Húsavik, Egilsstöðum og í
Grundarfirði. Bankinn hefur þeg-
ar yfirtekið tvær af þessum eign-
um, á Akranesi og Egilsstöðum,
en hinar verða afhentar á þessu
og næsta ári. Lokið var við bygg-
ingu bankans á Stöðvarfirði, og
var húsnæðið tekið í notkun í
ágústmánuði s.l. Einnig var að
mestu lokið byggingu bankahúss i
Hafnarfirði og flutti útibúið starf-
semi sína í það í nóvember s.l.
EILDARVELTA
Eins og áður sagði óx heildar-
veltan eða fjármagnsstreymið
gegnum bankann um 34.6% og
nam í árslok 109 milljörðum kr.
Færslu- og afgreiðslufjöldi varð
um 1.9 milljón og hafði vaxið um
17.3%. í árslok voru viðskipta-
reikningar 48.487 og fjölgaði
þeim um 4.025 eða 9.1 %
Fjöldi starfsmanna bankans var
í lok ársins 108 og fjölgaði þeim
um 3 á árinu. Skipting milli kynja
var þannig: 56 konur, 52 karlar.
ÚTIBU
Samvinnubankinn starfrækti
11 útibú úti á landsbyggðinni og
eitt í Reykjavík. Hafði þeim fjölg-
að um eitt á árinu við opnun nýs
útibús að Egilsstöðum í maí s.l.
Auk útibúa rekur bankinn tvær
umboðsskrifstofur þ.e. á Stöðvar-
firði og Króksfjarðarnesi. Niu úti-
búanna auk umboðsins á Stöðvar-
firði hafa samhliða bankastarf-
seminni á hendi umboðsstörf fyr-
ir Samvinnutryggingar og And-
vöku.
Kristleifur Jónsson, banka-
stjóri lagði siðan fram endurskoð-
aða reikninga bankans og skýrði
einstaka þætti þeirra.
INNLÁN
Heildarinnlán bankans námu
4.630 millj. kr. i lok árs 1976 og
höfðu aukist um 1.053 millj. kr.,
eða um 29.4%. Samsvarandi
aukning árið 1975 var 980 millj.
kr. eða 37.7%. Hlutdeild Sam-
vinnubankans i heildarinnlánum
bankanna í árslok 1976 var 8.2 %.
Innlán í árslok skiptust þannig
að spariinnlán voru 3.704 millj.
kr., eða 80% af heildarinnstæðum
og höfðu hækkað á árinu um 901
millj. kr., eða 32.1%. Af spariinn-
Iánum voru vaxtaaukainnlán 885
millj. kr. Veltiinnlán voru 926
millj. kr. og jukust um 152 millj.
kr. eða 19.6%.
UTLÁN
Heildarútlán Samvinnubank-
ans voru í lok ársins 3.964 millj.
kr. og höfðu hækkað um 1245
millj. kr., eða 45.8%, sem er hlut-
fallslega mesta útlánsaukning frá
stofnun bankans. Ástæðan er
fyrst og fremst stórfelld aukning
afurðalána, sem að stærstum
hluta eru endurkeypt af Seðla-
bankanum. Séú afurðalánin
undanskilin varð aukningin
28.1%. Til viðbótar þessu varð
einnig veruleg aukning útlána til
sérstakra verkefna vegna innlána
frá stofnlánasjóðum. Sé tillit tek-
ið til þessa varð hin almenna út-
lánsaukning 24.7%.
Skipting útlána eftir útlána-
formum var þannig í árslok 1976:
Vixillán 35.6%, yfirdráttarlán
17.3%, alm. verðbréfalán 21.5%,
vaxtaaukalán 9.5% og afurðalán
16.1%.
STOFNLÁNADEILD
Á árinu 1976 afgreiddi deildin 9
lán að upphæð 65 millj. kr. Hefur
deildin frá stofnári sínu 1972, þar
með afgreitt 28 lán samtals að
fjárhæð 143 millj. kr.
Tekjuafgangur varð 3.9 millj.
kr. og eigið fé Stofnlánadeildar-
innar var 6.3 millj. kr. i árslok
1976.
STAÐAN GAGNVART
SEÐLABANKA
Strax í upphafi árs komst bank-
29,4%
inn í yfirdráttarskuld við Seðla-
bankann. Einkum var staðan erf-
ið síðari hluta ársins. Var skuld á
viðskiptareikningi í lok ársins
241.9 millj. kr. Á bundnum reikn-
ingi hækkuðu innstæður um 217.5
millj. kr. og námu 982.5 millj. kr. i
árslok.
REKSTUR BANKANS
Tekjuafgangur til ráðstöfunar
var 33 millj. kr., sem er nokkru
lægri upphæð en árið 1975, en þá
var hann 43 millj. kr. Til afskrifta
var varið 6 millj. kr. í varasjóð
voru lagðar 9 millj. kr. og i aðra
sjóði 18 millj. kr.
Aðalfundur samþykkti að
greiða hluthöfum 13% arð fyrir
árið 1976.
Hlutafé bankans var óbreytt að
upphæð 100 millj. kr. Varasjóður
í árslok varð 89 millj. kr. Á árinu
voru fasteignir bankans endur-
metnar og nam hækkunin 96
millj. kr. Annað eigið fé'var 17
millj. kr. Heildarfjárhæð eigin
f jár í árslok var 302 millj. kr.
Samþykkt var tillaga frá banka-
ráði þess efnis að gefin, verði út
jöfnunarhlutabréf að upphæð 100
millj. kr. og hlutafjáreign hlut-
hafa þar með tvöfölduð.
Einnig samþykkti aðalfundur-
inn heimild til bankaráðs um
aukningu hlutafjár allt að 300
millj. kr., þannig að heildarupp-
hæð hlutafjár bankans verði 500
millj. kr. Hluthafar hafa for-
kaupsrétt til þessa hlutafjárauka
til 1. september 1977.
STJORNARKJÖR
Endurkjörnir voru i bankaráð
þeir Erlendur Einarsson, for-
stjóri, Hjörtur Hjartar, frkvstj. og
Vilhjálmur Jónsson, frkvstj. Til
vara voru kjörnir Hallgrímur Sig-
urðsson frkvstj., Hjalti Pálsson,
frkvstj. og Ingólfur Ólafsson
kfstj. Endurskoðendur voru
kjörnir þeir Óskar Jónatansson,
aðalbókari og Magnús Kristjáns-
son, fyrrv. kfstj., en Ásgeir G.
Jóhannesson er skipaður af ráð-
herra.
— Aukning
framleiðslu
Framhald af bls. 37
munun, sem viðgengst hefur
gagnvart iðnaðinum, væntum við
þess að ríkisstjórnin sæki um
framlengingu. Ég vara þó við að
láta þar við sitja — framlengingin
ein er lítils virði, ef ekki verður
jafnframt haldið markvisst áfram
á þeirri braut að lagfæra aðbúnað
iðnaðarins og aðlaga efnahags-
kerfið nýjum aðstæðum opinnar
samkeppni og fríverzlunar.
Jafnrétti —
engin sérréttindi.
Ég vil enn einu sinni rifja upp
að við förum ekki, og höfum
aldrei farið fram á, nein sér-
réttindi okkur til handa, en við
krefjumst:
— Sömu starfsskilyrða og aðrir
höfuðatvinnuvegir þjóðarinnar
njóta.
— Sömu starfsskilyrða og
erlendir keppinautar njóta hver i
sinu landi.
— Sömu starfsskilyrða og út-
lendingar njóta á tslandi.
Ég álít þetta mun vænlegra til
árangurs, heldur en hugmyndir
og frumvörp um athuganir eða
stofnsetningu einstakra verk-
smiðja hér og þar, þótt góðar geti
verið.
Verði séð um nauðsynlegar
lagasetningar og framkvæmd
þessara grundvallaratriða er ég
sannfærður um að leysast mun úr
læðingi sá skapandi kraftur, sem
með þjóðinni býr, en fær ekki að
njóta sin við núverandi skilyrði.
En ekki er nóg að gera ein-
göngu kröfur til annarra. Allir
stjórnendur iðrifyrirtækja verða
ætið að gera ýtrustu kröfur til
sjálfra sín, um vöruvöndun, út-
sjónarsemi og hagkvæmni I
rekstri, og fullvist er að það eru
ótal mörg atriði, sem þarf að
breyta og bæta í stjórn iðnfyrir-
tækja á Islandi, þótt margt hafi
áunnist á þessum sviðum síðan
við gengum i EFTA.
Uppbyggingarstjórn
Við höfum gegnum árin gefið
rikisstjórnum okkar ýmis nöfn og
gjarnan kennt þær við stærstu
málin sem þær hafa barist fyrir.
Það, sem þjóðin þarfnast nú,
mætti kalla uppbyggingarstjórn.
Allir, hvar i flokki sem þeir
standa þurfa að sameinast i þeim
einlæga ásetningi, að auka fram-
leiðsluna á öllum sviðum og bæta
lífskjörin með öllum tiltækum
ráðum.
Þjóðarheill krefst þess, að
leiðtogarnir leggi niður dægur-
þras og sameinist um að hefjast
nú þegar handa. Vinni saman að
því i einlægni að móta og fram-
kvæma nýja uppbyggingarstefnu,
með þau megin markmið fyrir
augum, að sjálfstæði og áfram-
haldandi búseta þjóðarinnar I
landinu sé tryggð um ókomin ár,
með sí batnandi lifskjörum.
— Enginn
uppgjafatónn
Framhald af bls. 10
lega að þarna færi konungborinn
maður. Var Bóni enda klæddur eins
og kóngi sæmir, I sjakket. flibba-
skyrtu og með hvltan staf til að auka
á veldi sitt. Var þetta olnbogabarn
mannllfsins frægt fyriri tilsvör sln og
sögur af hirðlífinu meðal háaðals
Evrópu Sagðist hann vera giftur
Viktorlu Bretlandsdrottningu og þó
töluverð timaskekkja komi þar fram
hjá Bóna kallinum, þá er saga hans
eigi að slður góð Hafa reyndar
mætari menn en undirritaður sett
sögur af honum á prent og skal þar
aðeins tilnefndur Nóbelskáldið Hall-
dór Laxnes
Marga fleiri menn bar á góma I
spjallinu við bændurna á Gunnars-
stöðum, t.d Drauma Jóa, en sögur
af þessu fólki verða að blða betri
tima.
Félag löggiltra raf-
verktaka 50 ára
FÉLAG löggiltra rafverktaka í
Reykjavík (F.L.R.R.) er 50 ára
29. marz 1977.
Félagið stofnuðu 5 rafverk-
takar 29. marz 1927, en þeir
voru Jón Ormsson, Júlfus
Björnsson, Jón Sigurðsson
Eiríkur Hjartarson og Edward
Jensen.
Fyrsti formaður félagsins
varð Jón Ormsson, Július
Björnsson ritari og Jón Sigurðs-
son gjaldkeri.
Upphaflegt nafn félagsins
var „Félag rafvirkjameistara í
Reykjavík" en þvl var breytt
1934 i „Félag löggiltra raf-
virkjameistara í Reykjavík" og
1967 var nafninu enn breytt og
heitir félagið síðan „Félag
löggiltra rafverktaka í Rvík“.
Fljótlega eftir að félagið var
stofnað voru gerðir samningar
við sveinafélagið, sem hét þá
„Rafvirkjafélag Reykjavíkur"
og hafði verið stofnað í júní
árið áður (1926).
Árið 1936 gerðist F.L.R.R. að-
ili að Vinnuveitendasambandi
íslands og nokkrum árum
seinna að Landssambandi
iðnaðarmanna, en árið 1949 var
Landssamband íslenzkra raf-
verktaka L.Í.R. stofnað og er
F.L.R.R. nú eítt sjö félaga raf-
verktaka innan þess sambands.
Þótt F.L.R.R. og rafvirkja-
félagið hafi um áraraðir tekist
á um kaup og kjör hefur á
liðnum árum og verið unnið
sameiginlega að jákvæðum
verkefnum og má þar nefna
gerð einna timanælda ákvæðis-
taxtans í byggingariðnaði og
samvinnu á sviði eftirmenntun-
ar, sem L.Í.R. hefur annast af
hálfu rafverktaka.
í nokkur ár á milli 1960 og
1970 gaf F.L.R.R. út timaritið
„Ráfverktakann" ásamt L.Í.R.,
en útgáfa hans hefur nú legið
niðri í nokkur ár. Hátíðarblað
mun nú koma út í tilefni af 50
ára afmælinu.
Árið 1963 festu rafverktaka-
samtökin kaup á hálfri húseign-
inni Hólatorgi 2 og hafa skrif-
stofur samtákanna verið þar
síðan.
Þar reka samtökin einnig
heildsölu til stuðnings félags-
starfseminni. Samtökin hafa nú
alveg nýlega fest kaup á allri
húseigninni að Hólatorgi 2.
Núverandi formaður F.L.R.R.
er Gunnar Guðmundsson og
með honum í stjórn eru Hannes
Vigfússon, Guðjón Á. Óttósson,
Þórarinn Helgason og Ástvald-
urJónsson. (Frá F.L.R.R.)
Núverandi stjórn Félags löggiltra rafverktaka í Reykjavfk.