Morgunblaðið - 29.03.1977, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
39
Lánasjóður sveitarfélaga 10 ára:
Lánveitingar
s jóðsins nema
rúmlega 1700
milljónum kr.
f rá upphaf i
Veitir stofnlán til meiriháttar framkvæmda
Hinn 1. febrúar s.l. voru liðin
tíu ár frá því að Lánasjóður
sveitarfélaga tók til starfa. í
tilefni af því hefur sjóðurinn
gefið út afmælisrit þar sem
rakinn er aðdragandinn að
stofnun sjóðsins og greint frá
starfsemi hans liðinn áratug.
Hugmyndin að stofnun sér-
stakrar lánastofnunar fyrir
sveitarfélögin kom fyrst fram
árið 1953, og var Jónas heitinn
Guðmundsson, ráðuneytisstjóri
og formaður Sambands
islenzkra sveitarfélaga, helzti
hvatamaður málsins. Lög um
Lfnasjóð sveitarfélaga voru
sett vorið 1966 fyrir forgöngu
Gunnars Thoroddsen, þá-
verandi fjármálaráðherra. I
fyrstu stjórn sjóðsins áttu sæti:
Jónas G. Rafnar, formaður,
Gunnlaugur Pétursson Jónas
Guðmundsson Magnús E.
Guðjónsson og Sigurður I. Sig-
urðsson. Núverandi stjórn
sjóðsins skipa: Jónas G. Rafnar,
formaður, Gunnlaugur Péturs-
son, Bjarni Einarsson, Ölafur
G. Einarsson og ölvir Karlsson.
Framkvæmdastjóri sjóðsins
frá upphafi hefur verið Magnús
E. Guðjónsson.
Sjóðurinn hefur frá upphafi
haft sameiginlega fram-
kvæmdastjórn og skrifstofu-
hald með Sambandi Islenzkra
sveitarfélaga og Bjargráða-
sjóði.
Megintilgangur Lánasjóðs
sveitarfélaga er að veita
sveitarfélögum landsins stofn-
lán til meiriháttar fram-
kvæmda. Fyrstu árin veitti
sjóðurinn einkum lán til vatns-
veituframkvæmda og skóla-
bygginga i dreifbýli. Hin síðari
ár hafa lánveitingar sjóðsins til
annarra framkvæmda farið
vaxandi s.s. til gatnagerðar i
þéttbýli og til hitaveitufram-
kvæmda.
Tekjur sjóðsns hafa verið
vextir af eigin fé, framlög frá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og
ríkissjóði. Fyrstu átta starfs-
árin var framlag frá Jöfnunar-
sjóði 15 millj. kr. á ári og fram-
lag ríkissjóðs frá 4,5 millj. kr.
til 8,0 millj. kr. á ári en frá og
með árinu. 1975 hefur framlag
frá Jöfnunarsjóði numið 5% af
tekjum þess sióðs og framlag
Stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga:
Talið frá vinstri: ölvir Karlsson, Jónas G. Rafnar, sem verið hefur formaður frá upphafi, Ólafur G.
Einarsson, Gunnlaugur Pétursson og Bjarni Einarsson.
ríkissjóðs hefur verið
helmingur þeirrar fjárhæðar.
Heildartekjur Lánasjóðs
sveitarfélaga á árinu 1976
námu tæpum 445 millj. kr., en
tekjur umfram gjöld voru 342,2
millj. kr. Höfuðstóll sjóðsins í
árslok 1976 var 769,7 millj. kr.
Rekstrarkostnaður sjóðsins
siðastliðið ár var 6,6 millj. kr.
Til viðbótar eigin
ráðstöfunarfé hefur sjóðurinn
árlega tekið lán hjá Fram-
kvæmdasjóði íslands til að
endurlána sveitarfélögunum.
Samanlagt hafa þær lántökur
numið 960 milij. kr.
Lánveitingar sjóðsins fyrsta
starfsár hans, 1967 námu rúm-
lega 24 millj. kr., en á síðasta
ári námu lánveitingar 712,5
millj. kr., en lánveitingar
sjóðsins frá upphafi hafa
numið 1,738 millj, kr.
Samanlögð útlán sjóðsins frá
upphafi hafa skiptzt þannig
eftir kjördæmum:
Kjördæmi: Þús. kr. %
Reykjanes 190.400 10,95
Reykjavík 135.840 7.81
Vesturland 136.900 7.88
Vestfirðir 228.215 13,13
Norvesturl. 342.275 19,69
Norðausturl. 194.919 11,21
Austurland 207.293 11,92
Suðurland 302.550 17,41
Samtals 1.738.392 100%
Eftir tegundum framkvæmda
skiptast heildarútlán sjóðsins
þannig:
Tegundir framkv.: Þús.kr. %
Hitaveitur 615.950 35.43
Gatnagerð 442.675 25,46
Vatnsveitur 436.080 25,09
Skólar 216.537 12,46
Annað 27.150 1,56
Samtals 1.738.392 100%
Alls hafa 165 sveitarfélög og
fyrirtæki þeirra fengið lán úr
sjóðnum frá upphafi þ.e. allir
kaupstaðir landsins, 21, og 144
hreppar.
Ef heildarlánveitingar
sjóðsins frá upphafi 1.738 millj.
kr., væru framreiknaðar
mundu þær jafngilda 3.893
millj. kr. á verðlagi i árslok
1976.
Fréttatilkynning
Barþjónarnir enn
FRÁ félagi framreiðslumanna
hefur blaðinu forist eftirfarandi:
í tilefni af yfirlýsingu Sigur-
laugar Bjarnadóttur, alþingis-
manns, í Morgunblaðinu þann 10
þ.m. vill stjórn og túnaðarráð
Félags framreiðslumanna beina
eftirfarandi til þingmannsins:
I yfirlýsingu sinni telur
alþingismaðurinn sig ekki þurfa
að standa framreiðslumönnum
reikningsskil vegna þeirrar til-
gátu sinnar í sjónvarpsþætti að
barþjónar væru líklega tekju-
hærri en ráðherrar og bætir siðan
við, að athugasemdir Félags
framreiðslumanna við ummæli
hennar gætu orðið henni sérstakt
tilefni til að kanna nánar, hver
séu launakjör barþjóna á Islandi.
Þetta síðasta er væntanlega til
þess ætlað að fullvissa almenning
um að þingmaðurinn hafi ekki
skipt um skoðun á þvi að barþjón-
ar séu tekjuhærri en ráðherrar.
Einkaskoðanir þingmannsins
eru að sjálfsögðu hennar mál, en
þegar farið er að viðra þær á
almennum vettvangi er að fleiru
að hyggja. Hér er nefnilega verið
að lauma því inn hjá almenningi
að tiltekinn hópur launþega, sem
nú er að búast til kjarasamninga,
ásamt öðrum launastéttum, sé há-
tekjustétt, en slíkt er beinlinis til
þess fallið að skaða hagsmuni
framreiðslumanna í þeim stéttaá-
tökum, sem framundan eru.
Það er mannlegt að skjátlast og
hefði þingmaðurinn, af gefnu til-
efni frá okkur, leitað upplýsinga
um hverjar tekjur barþjóna eru I
raun og síðan beðist afsökunar á
fraumhlaupi sínu, hefðum við tal-
ið hana mann að meiri, en því var
ekki að heilsa.
Þar sem við viljum enn trúa
því, þrátt fyrir það sem á undan
er gengið, að þingmaðurinn vilji
fremur hafa það sem sannara
reynist, býður Félag framleiðslu-
manna þingmanninum til sam-
starfs um að fá hlutlausan og
ábyrgan aðila, og þá væntanlega
helst þjóðhagsstofnun, til að
kanna tekjur barþjóna þannig að
rétt heildarmynd fáist. Niður-
stöður yrðu síðan birtar í fjölmiðl-
um svo öllum geti orðið ljóst
hvort ágiskun þingmannsins er
nærri lagi eða ekki.
f.h. Félags framreiðslumanna,
Haraldur Tómason, formaður.
Mikið flogið
til Húsavíkur
Mikil aukning hefur i vetur verið
á flugleið Flugfélagsins milli
Reykjavíkur og Húsavikur.
Verður því ferðum á þessari leið
f jölgað I sumar í 9 og er jafnvel til
umræðu að opna þar sjöttu skrif-
stofu félagsins utan Reykjavikur.
AIOLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
Pú gerir hvergi
mest seldi bíll 1976
□
1
□
1111
AMIGO 105 - kr. ca. 860.000.-
AMIGO 120 L - - - 960.000,-
AMIGO 120 LS - - - 1010.000-
Skoda Amigo er mjög falleg og stílhrein bifreió. Hún er
búin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggió hefur verió
aukió til muna. Komió og skoóió þessa einstöku bifreió.
JÖFUR HF.
Tékkneska bifraóaumboóió ó (sbndi
AU06R6KKU 44-44 - KÓRAVOGI - SÍMI 42600