Morgunblaðið - 29.03.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977
45
u w ~
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
v i/jAjr-n^aa'v n
MISNOTKUN FRELSIS AF
HÁLFU EINS AÐILA GETUR
EKKI MEÐ NOKKRU MÖTI
RÉTTLÆTT ARASIR ANNARS
AÐILA A ALMENNT
TJANINGARFRELSI.
Fullorðnum ber vissulega
skylda til að vera fyrirmynd
þeirra sem yngri eru í málefna-
legum rökstuðningi í ræðu og riti
og hvetja þá á þann hátt til
heiðarlegrar þátttöku þjóðmál-
anna. Skammir og háðsyrði um
tilfinningavæmni unglinga gagn-
vart framtíð lands og þjóðar eru
hvorki réttlát né stórmannleg
framkoma og lítt sæmandi þrosk-
uðum mönnum, sem veljast til
ábyrgðarstarfa.
Virðingarfyllst,
Elfn Eggerz-Stefánsson."
Aths. ritstj.
Morgunblaðið hefur aldrei
haldið því fram, hvorki í Reykja-
víkurbréfi því, sem höfundur
vitnar til, eða annars staðar, að
allir andstæðingar stóriðju á Is-
landi séu kommúnistar. Þvi fer
fjarri.
I umræddu Reykjavikurbréfi
var hins vegar sérstaklega fjallað
um samræmdar aðgerðir
kommúnista í V-Evrópu gegn
stóriðjufyrirtækjum og rök leidd
að þvi, að skyndileg áherzla
kommúnista hér á stóriðjumálin
væri i beinum tengslum við niður-
stöður fundar, sem evrópskir
kommúnistaleiðtogar efndu til í
Dtisseldorf i desember.
I umræddu Reykjavíkurbréfi
var ekki staðhæft, að andstaða
einhverra islenzkra námsmanna
við stóriðju væri runnin undan
rifjum kommúnista. Hins vegar
var bent á, og við það er staðið, að
þegar herferðir af þessu tagi fara
í gang hlýða hinir trúuðu kallinu,
hvar sem þeir eru.
Að lokum þetta: Morgunblaðið
hafði hvorki uppi skammir eða
háðsyrði um unglingana í Hamra-
hliðaskóla. En óski þeir eftir að
leggja orð í belg í opinberum um-
ræðum verða þeir að taka því, að
gerðar séu sömu kröfur til þeirra
um máltilbúngaenarra. grein
þeirra var tilfinningahitinn
rökunum yfirsterkari.
% Meira um bjórinn
„Undirritaður skorar hér með á
þingflokk sjálfstæðismanna sem
forystuflokk íslenzkra stjórnmála
að fella breytingartillögu Jóns G.
Sólness (þingskj. 320) við frum-
varð nr. 82, 2. júli 1969. Ég ætla að
nefna eitt dæmi úr atvinnulffi
Danmerkur til áréttingar máli
mfnu. Skipasmiðastöðin
Burmeister og Wain rambaði á
barmi gjaldþrots kringum 1960.
Orsakanna var lengi leitað, því að
þetta þótti með ólikindum. Loks
fundu menn bölvaldinn. Það var
bjórdrykkja starfsmanna i vinnu-
tímanum, sem var þess valdandi
að afköstin minnkuðu svo mjög að
fyrirtækið hætti að bera sig og
gjaldþrot blasti við.
En til að forðast slika hneisu
hljóp danska ríkið undir bagga i
þetta sinn með stórum fjárfúlg-
um. Þið bjórvinir sjáið aðeins
björtu hliðarnar á bjórnum, sem
að ykkar dómi eru margar, en ég
fullyrði að skuggahliðarnar eru
margfalt fleiri og mæli ég þar af
nokkurri reynslu.
Arthur Aanes.“
f>essir hringdu . . .
0 Málsmekkur
— málvenjur
„Morð er — auk þess að vera
glæpur — ljótt orð og gróft, en
engu að siður notað í tíma og
ótíma. Til dæmis er talað um
sjálfsmorð i stað hins, að einhver
hafi fyrirfarið sér eða svipt sig
lífi. Slíkt gera yfirleitt aðeins sár-
þjáðir, geðsjúkir menn eða undir
óþolandi kringumstæðum öðrum
og er ekki sambærilegt morðum
frömdum með köldu blóði oftast
til að auðga sjálfa sig eða halda
völdum, mafían, Amin, o.s.frv.
Nóg um þetta, en annað orð og
óskylt veður uppi, náttúrulegt i
stað náttúrlegt. 1 einstaka tilfell-
um á það við að talað sé um
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Dnepropetrovsk í
Rússlandi i júlí síðastliðnum kom
þessi staða upp I skák þeirra
Vitolins, sem hafði hvftt og átti
leik, og Pavlenko:
• b c d • t b h
14. Bxh7 + ! Khx7 15. He3 Dd8
(Eða 15. ... Kg8 16. Hg3 g6 17.
Be5) 16. Hg3 g6 (16. ... Df6 gekk
ekki vegna 17. Dh5+ Kg8 18. Be5)
17. Be5 Kg8 18. Hh3 og svartur
gafst upp. Urslit mótsins urðu
þessi: 1. Kozlov (Ai'khangelsk)
12'á v. af 16 mögulegum. 2. Gure-
vich 11 v. 3. Ljubarski IO'á v.
o.s.frv. Þátttakendur I mótinu
voru allir áhugamenn frá Norður-
Rússlandi.
náttúrulega hluti, en oftast er
réttnefninu náttúrlegt, sem auk
þess er miklu fallegra, breytt i
náttúrulegt að óþörfu. Takið bara
eftir — það er ógerlegt að taka
dæmi — og sjáið að ykkur.
Aðeins eitt í viðbót. Ungabarn
var mikið í tizku að tala og skrifa
um. A það að vera ungbarn og
hefur sú málvenja lagazt síðan
hún var gagnrýnd i daglegu máli
ríkisútvarpsins fyrir nokkru sam-
kvæmt beiðni undirritaðs og með
stuðningi flutningsmanns þátt-
arins daglegs máls.
Margrét Jóhannesdóttir."
HOGNI HREKKVÍSI
Hesta-
menn
Hringamél Beizli
verð frá 2.331. - verð frá kr. 7.847.
Spaðahnakkar
Verðfrá 24.800 -
Reiðstígvél
Verð frá 4552,
Leðurfeiti
Laugavegi 13,
sími 13508
Istöð
Verðfrá 2.523 -
Verzlið-’ þar sem
hagkvæmast er
Verzlið þar sem úr-
valið er mest.
Póstsendum
Tungu-
gúmmí
Hnikkingatangir
Nylongjarðir
Hófhlífar
©s=€>
Koparlásar
0
Istaðsólar