Morgunblaðið - 28.04.1977, Qupperneq 1
48 SIÐUR
94. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 28 APRÍL 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Reyndu að hindra
útkomu Berlings
3ja daginn í r öð
Kaupmannahöfn, 27. apríl. NTB
LÖGREGLA var kölluð út þriðja daginn f röð í Kaupmannahöfn f
dag til að fjarlægja prentiðnaðarmenn og stuðningsmenn þeirra
sem reyndu að koma f veg fyrir dreifingu Berlingske Tidende.
Um það bil þrjú þúsund voru
færðir burt, en þó kom ekki til
átaka eins og daginn )Sður og
daginn þar áður. Anker Jörgen-
sen forsætisráðherra hefur
harðlega fordæmt mót-
mælaaðgerðirnar og sagt að
hann sé viss um að það séu ekki
prentiðnaðarmenn sem hafi
staðið fyrir ofbeldisverkum
heldur „atvinnuæsingamenn."
Þrfr vörubílar hlaðnir nýjum
eintökum af Berlingske
Tidende óku frá húsi blaðaút-
gáfufyrirtækisins um klukkan
átta þegar tvö hundruð
lögreglumenn búnir hjálmum
og kylfum höfðu ráðizt gegn
mótmælaaðgerðarfólki, sem
Framhald á bls. 26
jafna þrýstinginn frá oliulindinni
undir hafsbotninum, loka leiðsl-
unni og koma fyrir nýjum ör-
yggisloka.
Odvar Nordli forsætisráðherra
sagði í dag að Norðmenn hefðu
ekki búið sig nógu vel undir að
mæta olíumengun á við þá sem nú
hefur átt sér stað og kvað slysið
sýna nauðsyn þess að bæta að-
ferðir við að berjast gegn meng-
un. En hann sagði að oliufram-
leiðslunni yrði haldið áfram þrátt
fyrir alla erfiðleika.
Norska stjórnin kvaddi í kvöld
sérfræðinga á sinn fund til að
ræða leiðir til að berjast gegn
oliuflákanum sem breiðist út frá
slysstaðnum. Frú Gro Harlem
Framhald á bls. 26
ökumaður útburðarbifreiðar Berlingske Tidende reynir að aka
gegnum hring sem mótmælaaðgerðarfólk sló um Berlingske Hus
til að koma f veg fyrir eðlilega dreifingu blaðsins f fyrsta skipti
sfðan útgáfa þess stöðvaðist fyrir tólf vikum.
Ráöherra vart
lifandi lengur
San Salvador, 27. april. Reuter
FRESTURINN sem ræningjar
utanrikisráðherra E1 Salvador
settu rann út i dag og lftil von er
talin til þess að ráðherrann sé
ennþá á lffi.
Enn hefur ekkert heyrzt frá
skæruliðunum sem rændu honum
og lögreglan gengur út frá því að
hann hafi verið myrtur og að
skæruliðarnir hafi dreift sér.
Lögreglan segir þó að enn sé
veik von til þess að nýjar fréttir
berist um afdrif utanríkisráð-
herrans, Mauricio Borgonovo
Pohl.
Skæruliðarnir höfðu hótað að
taka Borgonovo af lífi á miðnætti
(kl. 6 f.h. isl. tími) og stjórnin
gerði engar ráðstafanir til að
ganga að kröfu þeirra um að póli-
tískir fangar yrðu látnir lausir.
Kaþólskir biskupar buðust til
að miðla málum en boðinu var
hafnað. Hermenn gerðu árangurs-
lausa lokatilraun til að finna
skæruliðana og fanga þeirra með
leit i nokkrum hverfum höfuð-
borgarinnar.
Skæruliðarnir sögðust ekki
mundu sleppa Borgonovo utan-
ríkisráðherra fyrr en að minnsta
kosti nokkrir pólitískir fangar af
37 sem þeir sögðu að væru i haldi
yrðu látnir lausir. Arturo Molina
forseti sagði að aðeins þrír póli-
tískir fangar væru i haldi.
Ef Borgonovo utanríkisráð-
herra er látinn geta liðið vikur
eða mánuðir þangað til likið
finnst. Þegar aðrir skæruliðar
rændu yfirmanni ferðamála,
Roberto Poma, fyrir tveimur
mánuðum, földu þeir líkið í auðu
húsi.
Brezk
hótun
London, 27. april. Reuter
1 BRUCE MiIIan Skotlandsmála-
ráðherra varaði við þvl I dag að
Bretar mundu ekki samþykkja
tillögur Efnahagsbandalagsins
um verndun sfldarstofnsins I
Norðursjó nema þvf aðeins að
verulegar breytingar yrðu gerðar
á þeim og gaf f skyn að Bretar
mundu grípa til einhliða ráð-
stafana.
Millan sagði á þingi að ráð-
herranefnd EBE mundi bera
fram endurskoðaðar tillögur í maí
og Bretar mundu einnig bera
fram tillögur. Hann sagði að ef
tillögur EBE yrðu ekki verulea
Framhald á bls. 26
Markið
hækkað?
París, 27. apríl. Reuter.
VESTUR-ÞÝZK yfirvöld munu
ekki leggjast gegn nýrri hækkun
vestur-þýzka marksins á erlend-
um gjaldeyrismörkuðum sagði
næsti bankastjóri vestur-þýzka
seðlabankans, dr. Otmar Emm-
inger, f viðtali sem var birt f dag.
Dr. Emminger sagði að þar með
yrði ýtt undir innflutning til
Vestur-Þýzkalands og út-
flutningsatvinnuvegum annarra
ríkja rétt hjálparhönd. Hann
sagði að gert væri ráð fyrir að
greiðsluafgangur Vestur-
Þjóðverja á þessu ári yrði helm-
ingi minni en i fyrra þegar hann
nam þremur milljörðum dollara.
BRAVA — Sérfræðingar og aðstoðarmenn þeirra
færa lokann sem á að stöðva oliuútstreymið frá
borpallinum Bravo.__________________________
Herinn í Zaire
á hraðri sókn
Kolwezi, 27. apríl. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Nígerfu, Joseph Garba sagði f dag
að tilraunir sfnar til að draga úr
spennunni f sambúð Zaire og
Angóla gengju vel. Hann neitaði
að segja blaðamönnum hvort
hann færi einnig til Luanda, höf-
uðborgar Angola.
Garba hershöfðingi svaraði
spurningum blaðamanna í kopar-
bænum Kolwezi austan við
bardagasvæði Zairehermanna og
innrásarmanna. Her Zaire-
stjórnar sótti hratt vestur á
bóginn til bæjarins Dilolo á landa-
mærum Angola í dag og mætti
sáralítilli mótspyrnu.
Mobutu Sese Seko forseti sýndi
Garba 15 kassa af vopnum sem
hann sagði að væru sovézk og
hefðu verið tekin herfangi af upp-
reisnarmönnum. Þar með er sýnt
að Mobutu hvikar hvergi frá
þeirri ásökun að Rússar standi á
bak við uppreisnina í Shaba-
héraði sem áður hét Katanga.
Ekkert liggur fyrir um niður-
stöður viðræðna Mobutu og
Garba, en Agostinho Neto
Angolaforseti hefur neitað að
ræða innrásina í Zaire og aðeins
tjáð sig fúsan til viðræðna um
meintan stuðning Zairemanna við
skæruliða sem berjast gegn her
Luanda-stjórnar í Norður-Angola.
Næsta takmark Zaire-hers í
sókninni til Dilolo er bærinn
Framhald á bls. 26
ZAIRE-hermaður hjálpar Kat-
anga-hermanni sem var sýndur á
blaðamannafundi.
Olíustraumurinn
stöðvaður í dag?
Stafangri, 27. apríl. NTB. Reut-
er,
TILRAUNUNUM til að stöðva út-
streymið frá borpallinum Bravo
miðaði vel áfram f dag, en hlé var
gert á þeim sfðdegis svo að sér-
fræðingarnir og aðstoðarmenn
þeirra gætu hvílt sig eftir átta
stunda erfitt starf sem krefst
mikillar einbeitingar.
Starfið hefst aftur í fyrramálið
og því hefur miðað svo vel áleiðis
að gangi allt að óskum getur verið
að takast megi að ljúka því á
morgun.
Ellefu menn tóku þátt i starfinu
í dag undir forystu sérfræðing-
anna Boots Hansens og Richard
Hatterbergs. Þeir munu reyna að
dæla leðju niður leiðsluna til að