Morgunblaðið - 28.04.1977, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRIL 1977
21
í SKÝRSLU sem Amnesty International
hefur sent frá sér segir að pyndingar í
fangelsum í Tyrklandi séu daglegt
brauð, meðal annars á helztu lögreglu-
stöðvum og í fangelsum í Istanbul og
Ankara. Nefnd eru högg undir iljar og
rafmagnslost sem venjulegar
pyndingaraðferðir.
í skýrslu Amnesty International um
brot á mannréttindum í Tyrklandi er
einnig bent á, að ýmis ákvæði i tyrk-
nesku hegningarlöggjöfinni standi i
hróplegri mótsögn við mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
Kerfisbundnar pyndingar og
fangelsanir á pólitískum andstæðing-
um hefur orðið nánást sjálfsagður hlut-
ur í Tyrklandi eftir að herinn tók völdin
árið 1971 Þegar Bulent Ecevit varð
forsætisráðherra árið 1974 hét hann
því að flokkur hans myndi tryggja
mannréttindi borgara og rannsaka iðju
lögreglunnar sem mjög sætti gagnrýni.
Var rannsóknarnefnd sett á laggirnar f
því skyni. Síðan brauzt Kýpurstríðið út
það hið sama ár og síðan komu
kosningar í landinu og Ecevit varð að
segja af sér Nú stjórnar samsteypu-
stjórn hægriflokka í landinu undir
forystu Suleymans Demirels.
Og enn er fólk hneppt í fangelsi
vegna stjórnmálaskoðana. Hópur
þeirra sem situr fangelsaður nú —
samans líklega um 700 manns — er
ungt fólk sem er úr ýmsum vinstri
öfgaflokkum og samtökum. En
mörgum fleiri, öðru og eldra fólki —
menntamönnum, rithöfundum, blaða-
mönnum og fleiri — hefur verið sleppt
með skilyrðum á meðan mál þeirra eru
rannsökuð nánar og siðan mun verða
höfðað mál á hendur þeim.
Flestir verða ákærðir fyrir brot á
greinum 141 og 142 i hegningarlög-
Demirel
gjöf landsins og þar er hámarksrefsing
allt að 1 5 árum og i vissum tilvikum
dauðarefsing. Formlega á greinin við
hvort sem er kommúnista eða nazista,
en í reynd eru það að meirihluta
vinstrimenn sem sæta ofsóknum
Lögreglan hefur lítið aðhafzt til að
finna þá seku og brjóta málið til
mergjar, en upp á síðkastið hafa menn
í ákveðnum hópum reynt að hefna fyri
aðgerðir þessar.
Drepur stúlkur með brúnt, sítt hár
GEOSJÚKUR fjöldamorðingi leikur lausum hala I New
York. Og þó svo aS lögreglan leggi sig alla fram heldur
hann uppteknum hætti að breiða skelfingu út I betri
hverfum New York borgar — einkum t borgarhlutanum
Queens og Bronx. Sex manns hefur hann myrt, tveir eru
alvarlega særðir og einn lamaður fyrir lifstíð.
Nær öll fórnarlömb hans hafa verið ungar stúlkur
með sltt brúnt hár. Eini pilturinn, sem myrtur hefur
verið. var ásamt með ungri stúlku með þetta útlit,
þegar hann var myrtur. Annað sem hinar myrtu hafa átt
sameiginlegt er að flestar hafa þær setið i skemmti-
görðum eða inni I bílum ásamt vini sínum þegar
morðinginn hefur skotið upp kollinum. Hann skýtur þá
bara miskunnarlaust á bilrúðuna án þess að mæla orð
af vörum.
Síðasta fórnardýr hans var Valenttna Suriani, 18 ára
gömul. Hún sat I btl með vini stnum úti fyrir heimili sinu
t virðulegri einbýlishúsagötu i Bronx. Vinurinn lézt
einnig af sárum sem hann hlaut. Valentina var dæmi-
gerð fyrir fórnarlömb hans: Hún var úr miðstéttarfjöl-
skyldu og nemandi t menntaskóla. Einnig t þetta skipti
beitti morðinginn byssu af óvenjulegri gerð og lögreglu-
sérfræðingar eru sammála um að sama vopni hafi verið
beitt við hin morðin.
En þarna stðast skildi morðinginn eftir sig nokkur
spor. Rétt við morðstaðinn fann lögreglan handskrifað
bréf sem var sttlað til lögreglustjórans t Queens. Ekki
hefur verið sagt frá þvt hvað í bréfinu stóð. en lögreglan
hefur upplýst að það sé bersýnilega skrifað af geðsjúk-
um manni sem hóti að leggja enn til atlögu. Lögreglan
telur þó að nú sé ekki nema tímaspurning hvenær
maðurinn náist enda hafi ýmsir sjónarvottar gefið á
honum allgóða lýsingu.
Þátttakendur f Askorendamóti f Júgóslavfu 1959. Talið frá vinstri: Fischer, Friórik, Tal, Keres,
Smyslov, Gligoric, Petrosjan og Benkö. Sigurvegari varð Tal, sem ári seinna vann Botwinnik og varð
heimsmeistari.
mikla varfaerni og skort á
dirfsku og þvi of mörg jafntefli
samín. Ef litið er á úrslitin t.d. í
einvíginu Mecking — Poluga-
jevsky gera þeir félagar 11
jafntefli en Polugajevsky
vinnur eina skák sem ræður
úrslitunum. I einvigi þeirra
Spasskys — Horts gera þeir í
fyrstu setu 10 jafntefli en vinna
hvor sína skákina. I einvígi
þeirra Kortsnojs — Petrosjans
gera þeir jafntefli i 9 skákum
en Kortsnoj vinnur 2 og Petro-
sjan 1. Hins vegar lauk einvígi
þeirra Larsens — Portisch eftir
einungis 10 skákir en þá hafði
Portisch tryggt sér sigur með
6,5 vinning á móti 3,5 vinningi
Larsens. Þeir gerðu einungis 3
jafntefli, Portisch vann 5 skák-
ir en Larsen 2.
Öneitanlega á þvi þessi gagn-
rýni við talsverð rök að styðjast
Eftir að Polugajevsky vinnur
sigur í 2. skákinni teflir hann
meira og minna til jafnteflis í
öllum skákunum sem eftir er.
Að vísu er ekki hlaupið að því
að gera jafntefli í skák og oft er
aðferðin sú að tefla til vinnings
árangursríkust. Hið sama gerir
Spassky eftir að hann fær sigur
i 3. skákinni en Hort tókst að
brjóta niður þessa aðferð i 10.
skákinni þegar honum tekst að
sigra. þegar Kortsnoj var kom-
inn með einn vinnig yfir í ein-
víginu eftir annan sigur sinn i
8. skákinni tefldi hann einungis
til jafnteflis i 4 siðustu skák-
unum. En það var athyglisvert
hversu máttlítill Petrosjan var I
tilburðum sinum til að jafna
metin. Honum virtist allur
kraftur þrotinn og enda ekki
við mann að eiga þar sem Korts-
noj var, sem virtist tefla af
geysilegum krafti og þrótti og
tvíeflast við það mótlæti sem
hann átti við að striða sem var
hin þögla barátta Sovétmanna
gagnvart honum á Italíu, en
þeir virtu hann ekki viðlits og
neituðu að skiptast á orðum við
hann. Sigur Kortsnojs hlýtur að
hafa verið honum óvenju kær-
kominn eins og hann hefur ef-
laust verið Petrosjan þungur
biti að kyngja.
Larsen var að vonum ekki
ánægður með sina frammistöðu
og taldi sig hafa teflt langt
undir venjulegum styrkleika og
gert marga grófa afleiki. Hann
taldi sig aldrei hafa getað ein-
beitt sér við skákina, enda hafi
hljómleikar Hjálpræðishersins
sífellt angrað keppendur. Eftir
sigur Larsens í hinu geysi-
Sterka skákmóti I Genf má vera
að Larsen hafi ekki komist i hið
rétta keppnisskap I Amster-
dam. Hins vegar verður að telja
Portisch vel að sigrinum kom-
inn og hann sýndi alla vega
betri og heilsteyptari tafl-
mennsku — og að sjálfs;gðu
komst hann ekki hjá að heyra
hljómlist Hjálpræðishersins!
Kjólar —
Kjólar
Kjólar i stærðum 36 til 50 og 37
til 49. Gott verð.
Opið laugardaga 10— 1
Dragtin,
Klapparstíg 37.
Alþýðusamband íslands
er flutt af Laugavegi 18 að Grensásvegi 16 (á
horni Grensásvegar og Fellsmúla).
Athugið að símanúmerið er breytt og verður hér
e,,r 83044.
Félag íslenskra
símananna
Tilkynning:
Umsóknir um dvöl í sumarbústöðum F.Í.S.
sumarið 1977 þurfa að hafa borist til skrifstofu
félagsins, Thorvaldsensstræti 4, Reykjavík fyrir
1 5. maí n.k.
Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu F.Í.S.,
svo og í Símablaðinu, sem kemur út á næstu
dögum. Stjórnin.
_ V
’Jiiumjih
.i 86677
Undirfötin
eru heimsþekkt
gæðavara
ÁGÚST ÁRMANN hf.
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN - sunq*»o»g - hykmvik