Morgunblaðið - 28.04.1977, Side 39

Morgunblaðið - 28.04.1977, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28, APRÍL 1977 39 — Engin samstaða — Ræða borgarst jóra Framhald af bls. 17. ^ ekki staðizt. Ég nefni t.d. höfnina, hafnarsvæðið, og þær áætlanir, sem uppi eru um mikla fjölgun atvinnu- tækifæra þar með aukningu á hvers konar útgerðar- starfsemi og alls kyns þjónustustarfsemi í tengslum við útveginn. Þar hljóta að skapast verulega mörg ný atvinnutækifæri I borginni. Ég minni á Háskólann, sem er inni á þessu svæði, háskóli í örri uppbyggingu, sem hlýtur að skapa mörg ný atvinnutækifæri. Ég minni á Landspítalann, sem er ennfremur í mikilli uppbyggingu og að því er stefnt, að þar byggist mun meira magn, og auðvitað hljóta að koma þar mörg ný atvinnutækifæri. Ég minni reyndar líka á Borgarspitalann, þó að hann sé austan við Kringlu- mýrarbraut, þ.e. starfsemi, sem er i örri uppbyggingu og hlýtur að skapa ný atvinnutækifæri. Þessar stofn- anir og þessi svæði, sem þeim eru tengd, nefni ég aðeins til þess að sýna, að það er fráleitt að ætla sér með markvissum aðgerðum að draga úr vexti nýrra atvinnutækifæra inni á þessu svæði. Þar eru komnar slikar kjarnastofnanir, sem eru mikilvægar fyrir þjóð- félagið og borgarsamélagið, að að þvi ber að stuðla, að þær geti haldið sinum eðlilega vexti. Það ber jafn- framt að stuðla að því, að framkvæmdir geti átt sér stað á þeim svæðum, sem sérstaklea eru ætluð sem framkvæmdasvæði, og þar geti vaxið upp bæði at- vinnustarfsemi, svo og að þar geti komið nýjar íbúðir, sem fólk geti fest sér búsetu i. Þessi markmið og þessa þróun verður að horfast i augu við. Ef ekki á að stuðla gagngert að hægfara dauða miðbæjarins verður að grípa til ráða eins og þeirra, sem þetta aðalskipulag gerir ráð fyrir. Auðvitað verður að horfast i augu við þá þróun og það verður að haga umferðarkerfi borgarinnar þannig, að hún geti átt sér stað. En menn mega ekki vera svo skammsýnir að einblína á umferðarkerfið i þessu efni, og láta það leggja grundvöll að skipulagningu. Umferðarkerfið verður að þjóna þeim markmiðum, sem við viljum stefna að, og þess vegna finnst mér sú kenning Alþýðubandalagsins, að vegna þess, að þetta muni hafa í för með sér aukna umferð inn á svæðið og þar með aukin umferðarmannvirki, að þá beri að leggja þessa tillögu til hliðar. Þessi kenning finnst mér vera röng. Andvígur stöðvunarstefnu Atþbl. Sannleikurinn er sá, að í öllum þeim borgum, þar sem ég þekki til a.m.k., — ég reikna með að sama megi segja um flesta þá borgarfulltrúa, sem hér eru inni, — i öllum þeim borgum, þar sem tekizt hefur að skapa miðbæjarkjarna, sem dregur fólk til sín, þannig að þar er litríkt mannlíf. 1 öllum þeim borgum er tiltölulega há nýting og þétt byggð i kringum slíka kjarna. Við skulum taka nærtækasta dæmið, sem við þekkjum, Kaupmannahöfn. Þegar við komum til Kaupmanna- hafnar, liggur leið okkar flestra i gegnum Strikið, þ.e.a.s. þær götur sem liggja milli Ráðhústorgsins og Kóngsins Nýjatorgs, Þar finnst okkur vera skemmti- legt mannlif. Þangað kemur fólk hvaðanæva að, bæði ferðamenn og ekki síður þeir, sem borgina byggja. En ef við skoðum þessa götu, þá er byggt við hana hús, 4—6 hæðir, og þar er þétt byggð, og þar er mikil nýting. Sama má segja um aðalmiðbæjarsvæðið i Oslo, svæðið í kringum Karl Jóhanns-götu þar er það sama uppi á teningnum. Þetta eru dæmi, sem ég nefni en þau mætti taka ótal fleiri, t.d. úr mörgum borgum bæði í Þýzkalandi og Englandi. Það er einkenni þessara svæða, að þau draga fólk til sin, þar á fólk völ á fjölbreyttri þjónustu i ýmsu formi, og þangað safnast menn til að reka sin erindi, en e.t.v. ekki siður til að sýna sig og sjá aðra og njóta þess að vera innan um fjölmenni. En til þess að geta skapað slíka kjarna, slikt miðbæjarlif, sem mörgum finnst eftirsóknarvert, þarf að byggja þétt og taka afleiðingunum, sem það hefur fyrir umferðarkerfi borganna. Mér finnst alltaf, að borg, sem vanti líflegan miðbæjarkjarna, að sú borg sé sálarlaus. Við myndum drepa sálinsa úr Reykjavik, ef við reynum ekki að snúa þeirri þróun við, sem undanfarið hefur gert vart við sig, að því er snertir miðbæinn i Reykjavík. Þess vegna er ég á móti tillögu Alþýðubandalagsins. Ég er á móti þeirri stöðvunarstefnu, sem þar kemur fram. Sú stefna myndi hafa i för með sér hægfara dauða fyrir miðbæinn. Sú stefna myndi draga sálina úr miðborg Reykjavikur og þar með borginni í heild. Umferðarkerfið 1 þeim tillögum sem hér liggja nú fyrir um um- ferðarkerfi borgarinnar, eru allmiklar breytingar frá þvi sem gildir um umferðarkerfi, samkv. aðalskipu- laginu frá 1965. Allar þær breytingar, sem nú eru lagðar til, eru til bóta, áð mínu mati, og í þeim breytingum er mjög komið til móts við ýmis um- hverfissjónarmið, sem eiga vaxandi fylgi að fagna, einkum varðandi umferðaræðar um og við gamla miðbæinn. Niður er felld framlenging Suðurgötu yfir Grjótaþorp, svo og sú gata, sem gert var ráð fyrir að hefði mikinn umferðarþunga og átti að liggja um Túngötu, Kirkjustræti, upp Amtmannsstíg og upp i Grettisgötu. Þá er gert ráð fyrir frestun brúar yfir Geirsgötu a.m.k. þetta skipulagstímabil. í þeim tillögum, sem hér nú liggja fyrir, er ekki tekin afstaða til hinnar umdeildu Fossvogsbrautar, þ.e.a.s. lega hennar er sýnd á umferðarkerfinu, enda sjálfsagt að ekkert sé framkvæmt, sem spilli fyrir því að hún gæti komið, ef nauðsyn ber til, en hún stendur inni með þeim fyrirvara, að endanleg ákvörðun um hana verður tekin i samráði við Kópavog, samkvæmt sérstökum samningi, sem gerður var við Kópavog um það mál fyrir nokkrum árum. Vafalaust mun taka einhvern tíma að komast að sameiginlegri niðurstöðu um það efni, enda bráðliggur ekki á þeirri fram- kvæmd, né öðrum ráðstöfunum, sem kæmu í stað hennar, ef hún félli út. Afstaða Alþýðubandalagsins í þessu máli er eins og reyndar um ýmsa aðra þætti skipulagsins, að þar er gerð tilraun til að einfalda vandamálin allt of mikið fyrir sér. Grunntónninn í málflutningi og afstöðu Alþýðubandalagsins varðandi aðalumerðarkerfið er sá að um sé að ræða tvo valkosti varðandi umferðina, þ.e.a.s. annars vegar almenningsvagna eða hins vegar einkabíla. Og þessa valkosti eigi báða að skoða og sfðan megi velja og hafna, eins og Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi, komst að orði i grein.sem hann skrifaði i Þjóðviljanum 13. marz s.l., og reyndar hefur þessi skoðun endurspeglast í málflutningnum hér í dag. Sannleikurinn er sá, að þvi fer fjarri, að málið sé svo einfalt. Auðvitað verður að gera ráð fyrir því, að báðir þessir kostir séu fyrir hendi. Reynslan er ótvírætt sú, hvert sem leitað er, að með batnandi efnahag þá er einkabillinn ein af þeim lifsgæðum, sem menn :^ekjast eftir að njóta. Það sýnir reynslan hér. Fjölgun einkabíla hefur verið með miklum hraða undanfarin ár og sama er annars staðar. Þegar menn hafa eignast sinn bíl, þá vilja menn nota hann, ekki aðeins sem tæki til þess að fara út úr bænum um helgar og í frítimum, heldur einnig til praktiskra nota að og frá vinnustað og til ýmis konar erinda, sem menn þurfa að fara innan borgarinnar. Þetta atriði verða menn að horfast i augu við. Á hinn bóginn er ljóst, að innan borgarinnar verður að vera gott almenningsvagnakerfi einnig. Og ég er sammála því að almenningsvagnakerfið sé það gott, að menn noti það, t.d. til að fara að og frá vinnu, frekar en að nota sinn bíl. T.d. væri það mjög æskilegt, að þeir, sem stunda vinnu hér í miðborginni, þar sem ekki er um of mörg bílastæði að ræða, að þeir fari frekar í almenningsvögnum í sína vinnu og noti þá siðan heim aftur. Og sannleikurinn er sá, að almenningsvagnakerfið i borginni er það gott nú í dag, að ef menn kjósa þennan kostinn eiga þeir kost á góðri lausn á sinum umferðarmálum. Hugsunarháttur manna er hins vegar enn sá að nota frekar sinn bíl, þó að ég hyggi, að það sé að breytast i einhverjum mæli. Reynslan sýnir, að hversu fullkomið almennings- vagnakerfi, sem menn eiga völ á, þá reyna menn í eins ríkum mæli og mögulegt er að nota sinn einkabíl. Ég minnist þess t.d. þegar ég ásamt borgarráðsmanni Sigurði Péturssyni var i Moskvu. Þá skoðuðum við almenningsvagnakerfi í Moskvu, sem ég tel vera eitt það fullkomnasta, sem völ er á, a.m.k. hef ég ekki séð fullkomnara almenningsvagnakerfi í nokkurri borg. Þrátt fyrir þetta er mikil eftirsókn í Moskvu eftir þvi að kaupa sér bifreið. Bifreiðaeign borgarbúa hefur hins vegar verið haldið niðri með valdboði. Það er ekki leyfilegt að kaupa bil, nema að fá til þess sérstakt leyfi stjórnvalda. Og þegar auglýst er, að slik leyfi verði veitt, þá myndast langar og strangar biðraðir við þá staði, þar sem slik leyfi er hægt að fá. Við Sigurjón Pétursson vorum líka næstum því orðnir of seinir i Bolshoi-leikhúsið, þegar okkur var boðið þangað. Ástæðan fyrir því var sú, að umferðaröngþveiti var svo mikið i námunda við leikhúsið. Allir kepptust um það að komast sem næst dyrunum á sínum einkabíl- um, þrátt fyrir það, að á næstu grösum var biðstöð, þar sem almenningsvagnar komu næstum þvi úr öllum borgarhlutum i námunda við leikhúsið. Við getum lika tekið annað dæmi. Þegar olíukreppan stóð sem hæst í Sviþjóð minnkaði notkun einkabíla mjög. Það merki- lega var þó að notkun almenningsvagna jókst mjög lítið. Menn leituðu annarra úrræða. Þannig að þvi fer fjarri að unnt sé að leggja málið fyrir sér á jafn einfaldan hátt og þeir Alþýðubanda- lagsmenn gera. Ég held, að sú stefna.sem skipulags- nefnd hefur mótað í sínum tillögum, sé skynsamleg, en nefndin telur, að gott gatnakerfi sé forsenda góðra fólksflutninga í borginni, hvort sem þeir fari fram með einkabíl eða almenningsvögnum, og ber að sam- ræma þarfir þeirra við skipulagningu. Þess vegna er sú tillaga, sem Alþýðubandalagið flytur hér, þess efnis að fela stjórn S.V.R. að gera rækiiega áætlun um fjölgun farþega S.V.R. miðað við að fjölgun verði 50% á 5 ára tímabili og skulu tilgreindir þeir nýir hópar fólks, sem aukningin á einkum að ná til, auk magns og tegundar nauðsynlegrar fjárfestingar í þessu skyni. Þessi tillaga er að minu mati alveg út I hött og sýnir ótrúlega grunnhyggni, að ætla sér að unnt sé að skipuleggja málin á þennan veg og ber vott um þá trú, sem Alþýðubandalagið hefur á þvi að unnt sé að skipuleggja lif og athafnir fólks, jafnvel niður i smæstu smáatriði með aðgerðum valdhafa. Því hefur verið haldið fram, að umferðarkerfi til- lögunnar hafi i för með sér mikla skattlagningu á borgarbúa — 7 milljarða króna á skipulagstimabilinu. Jafnframt hefur því verið haldið fram, að lítið sem ekkert hafi verið gert í stofnbrautar- og tengibrautar- framkvæmdum. Ég vil vekja athygli á tveimur atriðum i þessu sambandi: 1. Gatnakerfi þessarar tillögu er umfangsminna en gatnakerfi skv. núgildandi aðalskipulagi. Dregið er úr í mörgum greinum frá því sem nú gildir. 2. Gatnadeild hefur reiknað til núvirðis þær fjár- veitingar, sem á árunum 1962—1976 hafa farið í þessi umferðarmannvirki. — Samtals um 4 milljarðar króna. Alþýðubandalagið stóð að núgildandi aðalskipulagi. Alþýðubandalagið stóð að samþykkt þess umfangs- mikla umferðarkerfis sem nú er i gildi. Voru stéttar- átökin eitthvað minni þá, að dómi Alþýðubanda- lagsins, eða skörpu stéttarandstæður eitthvað minni. Nei. Þá voru raunsærri forystumenn. Menn sem stóðu báðum fótum á jörðinni og þurftu ekki að hjúpa vanmátt sinn í skipulagsmálum með gömlum upphróp- unum og slagorðum. — Umhorf Framhald af bls. 33 náms t.d i menntaskóla þar sem sá sem fékk 5.9° varð að hætta en hinn sem fékk 6.0 komst áfram hafi ekki verið það ágæti, að þess beri stórlega að sakna. Þar held ég að ein- staklingnum hafi oft verið rangt gert, og líklega verður erfitt að finna nokkurn algild- an, mælikvarða á manneskjuna hvort sem er í tilliti til náms eða annarra starfa í þjóðfélag- inu, hvaða aðferðum svo sem verður beitt. Einstaklingurinn er þýðingarmikill hlekkur Einstklingurinn verður alltaf að treysta á sjálfan sig, gera sitt bezta, og þá nær hann því marki, sem þroski hans leyfir, a.m.k. ef þjóðfélagið heldur leiðunum hæfilega opnum. Ef til vill er það okkar aðal meinsemd i þjóðfélaginu í dag, að við gerum vaxandi kröfur til samfélagsins á sama tima sem við viljum sem minnst til þess leggja. Eins og áður held ég, að ekkert bjargi þessu litla samfél- agi nema atorka einstaklings- ins, og að hann finni sin þörf og skilji að hann er þýðingarmikill hlekkur í þessari litlu keðju. Stundum heyrast raddir um, að ekki megi treysta á mennta- menn sem hlotið hafa sina menntun erlendis og miði að- gerðir sinar við þá þekkingu, og hugmyndir er þeir hafa þar fengið og taki þær siðan full hráar upp í okkar samfélagi. En mér er spurn. Hvert eiga is- lendingar að sækja sínar hug- myndir og sína menntun í upp- eldis og fræðslumálum? Og hverjir eiga þá að leiða skólana i okkar ört breytilega þjóðfélagi? Vantar fé til skólarannsókna Hjá skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins og i störfum hinna ýmsu fagnám- stjóra eru að mínu mati allt hinir hæfustu skólamenn, flest- ir með haldgóða þekkingu á is- lenskum skólamálum og reynslu af skólastarfi. Ég tel, að eftir að sú starfs- semi hófst hafi orðið miklar og jákvæðar breytingar á störfum skólanna, þó að starfssemin hafi því miður allt of litið fé til ráðstöfunar, og geti því ekki unnið nærri þvi eins mikið I þágu skólanna eins og vert væri og brýn þörf er á. Við virðumst ekki hafa nokk- urt fé til að framkvæma brýnar rannsóknir I þágu íslenska skól- ans, og höfum tiltölulega litlar upplýsingar eða mat á störfum hans um áratugi. Það er ekki fráleitt að vikja í þessu sam- bandi að fréttabréfi mennta- málaráðuneytisins nr. 21 bls. 3—5, þar sem beiðni mennta- málaráðuneytisins til alþingis um fjárveitingu til þriggja að- kallandi verkefna i skólamálum er með öllu hafnað m.a. fjár- magni til rannsókna á áhrif lengri eða skemmri skólaskyldu á nemendur og þjóðfélagið, mál, sem alþingi sjálft deildi hart um árið 1974, við sam- þykkt grunnskólalaganna, og endurskoða á af sama aðila vor- ið 1978 eða eftir rúmt ár. á meðan við veitum litlu sem engu fjármagni til innlendra rannsókna á sviði skólamála, er hastarlegt að deila á menn sem nota sér reynslu grannþjóða sem stuðning i baráttu sinni fyrir bættu ástandi í íslenskum skólamálum. Að lokum Ég er sá bjí.rtsýnismaóur, að vona að með skynsamlegum vinnubrögöum takist okkur að bæta skólann á komandi árum, gera hann sveigjanlegri með betra innra skipulagi, þar sem höfuðáherzlan er lögð á mann- inn sem einstakling, virkan og ábyrgan þátttakanda i lýðræðis- legu þjóðfélagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.