Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977
13
Sjómenn heiðraðir. Frá vinstri: Garðar Þorsteinsson, ritari Sjðmannadagsráðs, Einar Thoroddsen, Viktor
Þórðarson, Pálina Árnadóttir, sem tók við merkinu fyrir hönd manns sfns, Jónasar Sigurðssonar, Fanney
Guðmundsdóttir, sem tók við merkinu fyrir hönd Finns Bjarnasonar, eiginmanns sfns, Ásgeir Magnússon
og Guðmundur Ingvarsson, bróðir Páls Ingvarssonar, sem fékk Fjaiarbikarinn 1977.
ríkisstjórnarinnar talaði
Matthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra, full-
trúi útgerðarmanna var
Jónas Haraldsson, skrif-
stofustjóri L.I.Ú., og full-
trúi sjómanna var Pétur
Sigurðsson. Þá heiðraði
Garðar Þorsteinsson, ritari
Sjómannadagsráðs, sjó-
menn með heiðúrsmerkj-
um dagsins, en það voru 5
sjómenn. Þeir voru Ásgeir
Magnússon, fyrrverandi
yfirvélstjóri, Finnur
Bjarnason, matsveinn,
Jónas Sigurðsson, skip-
stjóri, nú skólastjóri Stýri-
mannaskólans, Viktor
Þórðarson, sem lengi starf-
aði hjá Landhelgisgæzl-
unni, en hefur nú síðari ár
verið á ýmsum mótorbát-
um og Einar Thoroddsen
fyrrum skipstjóri og nú
yfirhafnsögumaður í
Reykjavík.
Þá afhenti Garðar
Þorsteinsson einnig svo-
nefndan Fjalarbikar, en
vélasölufyrirtækið Fjalar
h.f. gaf hann. Er það
farandbikar og hlýtur
hann sá sem nær beztum
árangri í vélfræði 3. stigs í
Vélskóla íslands, og fær sá
hinn sami jafnframt silfur-
pening til eignar. Páll
Ingvarsson hlaut að þessu
sinni bikarinn, sem nú er
veittur í 18. sinn og er
þetta í 3. sinn, sem
Akureyringur hlýtur
hann. Það var bróðir Páls,
Guðmundur Ingvarsson,
sem veitti bikarnum við-
töku fyrir hönd bróður
síns.
Síðan hófst keppni í
íþróttum, siglingum,
koddaslag og róðri og þyrla
Landhelgisgæslunnar
sveimaði yfir Nauthólsvík-
inni.
viðtali við Mbl. að það væri
nú gleðilegt að mun færri
sjómenn hefðu látizt við
störf en áður og mætti
þakka það góðu tíðarfari í
vetur leið og einnig því að
mörg skip væru betur búin
og öryggisþjónusta sífellt
efld.
í Nauthólsvík var síðan
haldið áfram hátíðahöldum
og þar lék Lúðrasveit
Reykjavíkur í upphafi og
var síðan mynduð fána-
borg með fánum stéttar-
félaga sjómanna og íslenzk-
um fánum. Að því loknu
voru flutt ávörp. Af hálfu
ijósm. Kax.
Meöal skemmtiatriða sjómannadagsins I Nauthólsvik var koddasiagur.
Frá kappróðrinum i Nauthólsvlk
Luxembourg er friðsæll töfrandi ferðamanna-
staður, mótaður af frönskum og þýskum
menningaráhrifum - þar sameinast franska
glaðlyndið og þýska nákvæmnin. Þar sem landið
er lítið, er stutt að skjótast til ýmissa stórborga
í nágrannalöndunum.
Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar
Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til
Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta-
héruð Evrópu sameinast, á mótum Mosel og
Rínar.
Luxembourg — einn fjölmargra
staða í áætlunarflugi okkar.
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIfí
/SLAJVOS