Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977
+ Móðir okkar SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR frá Bakkaseli lézt I Vifilsstaðaspltala fimmtudaginn 2. júnl. Marla og Ingibjörg Kristjánsdætur.
+ Sonur minn, bróðir okkar og mágur ERLINGUR GUOMUNDSSON húsgagnasmlðameistari Brávallagötu 16. Reykjavlk. andaðist laugardaginn 4 júnl. Þorgerður Bogadóttir Sigrún Guðmundsdóttir. Kristján Ágústsson Guðrlður Jónasdóttir, Magnús Guðmundsson.
+ Sonur minn PÁLL SNORRASON Unufelli 44, lést 25 mai. Jarðarförin hefur farið fram Ragnhildur Pálsdóttir, systkini og aðstandendur.
+ Eiginkona min, móðir tengdamóðir og amma KATRÍN S. HANSEN andaðist að Landspltalanum, að morgni 6 júní. Fyrir hönd vandamanna, Leifur Guðmundsson.
+ Eiginmaður minn, sonur minn og faðir okkar SIGURÐUR SIGURJÓNSSON Drápuhllð 1 7. Reykjavlk lézt aðfaranótt 3. júnl s I. Unnur Bjarnadóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigriður Marfa Sigurðardóttir, Þorbjörg Sigurðardóttir.
+ Konan mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA ÁGÚSTSDÓTTIR. verður jarðsungin frá Frikirkjunni miðvikudaginn 8. júní kl. 1.30 e.h. Blóm vinsamlegast af þökkuð. Karl Ó. Jónsson Ingigerður Karlsdóttir , Hjalti Pálsson Valdimar Karlsson Karl Karlsson Anna Maria Valsdóttir Jón Þór Karlsson Unnur Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
+ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi. SIGURÐUR Þ. GUOMUNDSSON frá Háhóli, heima Völvufelli 48 sem lézt i Borgarspitalanum 26. mal, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 9. júnl kl. 1 30 Blóm og kransar afþakkað. en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið Aðalbjörg Bjarnadóttir Gunnar Kristofersson, Guðrún Sigurðard. Kristinn Pálsson Ólöf Sigurðard. Hildur Hrönn Hreiðarsd. Guðmundur Sigurðsson Jóhanna Erlingsd. Sigmundur M. Sigurðsson Dlana Bára Sigurðard. og barnabörn.
+ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi MAGNÚSMAGNÚSSON bifreiðastjóri Ljósheimum 4 R.v.k. andaðist I Landspitalanum 6 júni Indiana Katrín Bjarnadóttir Inga Magnúsdóttir Karl Ásgeirsson Erla S. Guðmundsdóttir Þorbjörn Pétursson Albert Guðmundsson Brynhildur Jóhannsdóttir Gisli Guðmundsson Guðjón Guðmundsson Gunnþórunn Sigurjónsdóttir Skarphéðinn Guðmundsson Guðbjörg Axelsdóttir Valentinus Guðmundsson Hafdis Eggertsdóttir barnabörn. barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Ingunn Á rnadóttir
—Minningarorð
Ég var staddur í Lagos i Nígeríu
þegar mér barst í hendur af
hreinni tilviljun Morgunblaöið,
sem tilkynnti andlát frú Ingunnar
Árnadóttur frá Stóra-Hrauni.
Ég komst því miður ekki heim
nógu snemma til þess að fylgja
henni hinn hinsta spöl.
Þess vegna eru þessar hug-
leiðingar seint á ferðinni.
Inga, eins og allir vinir og
frændur kölluðu hana, var stór-
brotin persónuleiki, eins og hun
átti kyn til, afburða kona, gáfuð
og hjartahlý.
Það var árið 1938, sem ég kom
fyrst inn á heimili þeirra hjóna,
Ingunnar Árnadóttur og
Kristjáns Einarssonar, fram-‘
kvæmdastjóra Sölusambands
íslenzkra fiskframleiðenda, þess
bezta manns sem ég hefi kynnzt á
lífsleiðinni. Kristján Einarsson
var óviðjafnanlegur maður, hans
hjarta var gulli slegið.
Ég var ráðinn sem heimilis-
kennari hjá þeim hjónum og
þegar ég kom sem ungur sveinn
til þeirra tóku þau hjónin á móti
mér opnum örmum og buðu mig
hjartanlega velkominn.
Ég gleymi því aldrei hversu
mér þótti vænt um þessar mót-
tökur. I,aunin fyrir kennslustörf-
in urðu miklu meiri en samið var
um, því heimili þeirra hjóna, Ingu
og Kristjáns, stóð mér opið allt frá
þeim tíma og einnig fjölskyldu
minni síðar.
Heimili Ingu og Kristjáns var
rausnarheimili og þar sem hjarta-
rúm sat I öndvegi. Þar kynntist ég
hinum stóra og gáfaöa systkina-
hópi frá Stóra-Hrauni, en Inga
var elzt 11 barna þeirra hjóna.
Árna prófasts Þórarinssonar og
frú Elísabetar Sigurðardóttur.
Þegar ég settist að kennslu-
störfum í Bárugötu 5, bar það oft
við að Árni prófastur vatt sér inn
í stofu og hóf að rekja úr mér
garnirnar og spurði fyrst, hvaðan
ég væri og hverra manna. Aðrar
spurningar um ýmis efni fylgdu
fast á eftir. Var mér ljóst að
prófasturinn var að spyrja mig út
úr og vildi komast að raun um
t
Eiginmaður minn, faðir og son-
ur,
GESTUR REYNIR
GUÐJÓNSSON.
Bogahifð 7,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 8 júni kl
10,30
Jóna M. Sigurðardóttir
Sólveig Reynisdóttir
Guðjón Jóhannesson
Lokað
vegna jarðarfarar
ODDSTEINS
ALMARS
JÓNSSONAR,
frá kl. 9— 1.
Verzlunin Baugalfn,
Miklubraut 68.
S. Helgason hf. STEINIOJA
Clnholti 4 Slmar 26677 og 14254
hvers konar fugl kennarinn væri.
Urðum við Árni prófastur góðir
vinir. Tefldum við margar skákir
þvi prófastur hafði yndi af þeirri
iþrótt og lagði ég nokkra stund á
skákina á þeim árum.
Þegar Ragnheiður, kona min,
og ég gengum í hjónaband þá
voru það Ingunn og Kristján, sem
héldu okkur brúðkaupsveizlu að
Bárugötu 5, og Árni prófastur
Þórarinsson gaf okkur saman.
Munum við hafa verið hin næst-
siðustu hjón, sem hann gifti.
Það er margs að minnast frá
þessum tíma, en mest um vert var
órofa vinátta, fádæma gestrisni
og hlýtt hjartalag, sem við hjónin
og börn okkar siðar nutum í full-
um mæli.
Sérstaklea viljum við hjónin
færa Ingu kærar þakkir fyrir
samúð hennar og kærleika til
ungs sonar okkar í veikindum
hans. Það var okkur hjónum
ógleymanlegur styrkur.
Á heimili Ingu og Kristjáns
dvaldi síðustu ár ævi sinnar
móðir Kristjáns, Elín Ólafsdóttur
frá Stakkadal. Hún var ógleyman-
leg kona. Fegurra samband
móður og sonar hefi ég ekki
kynnst. Verður sú góða kona mér
æ hugstæð. Samband Ingu og
Elínar var frábært og átti Elín
góða elli hjá Ingu og Kristjáni.
Árni prófastur Þórarinsson og
Elísabet Sigurðardóttir, kona
hans, áttu einnig um margra ára
bil heimili sitt að Smáragötu 3,
hjá Ingu og Kristjáni. Þangað
kom meistari Þórbergur og ritaði
eftir fyrirsögn prófastsins eina
merkustu ævisögu, sem rituð
hefur verið á íslenzka tungu. Ævi-
saga Árna prófasts Þórarinssonar
er ein skær perla í bókmenntum
landsins.
Heimili þeirra Ingu og
Kristjáns, hvort sem það var í
Bárugötu 5, Smáragötu 3, að í
sumarbústað þeirra vestur í Dal
við Straumfjarðará, þá voru öll
þessi heimili jafnan „reist um
þjóðbraut þvera“.
Marga bar að garði og allir voru
gestir leiddir til stofu og boðnir
velkomnir með hlýju handtaki og
heitu hjarta.
Inga var ættfróð með afbrigð-
um og hafði frábæra minnisgáfu,
sem hún hélt næstum óskertri til
hins síðasta.
Börnin þeirra Ingu og Kristjáns
eru Árni, aðalræðismaður
Hollands, kvæntur Kristine Eide
og eiga þau 4 börn og eru barna-
börnin 5, og Elín, sem gift var
Magnúsi R. Magnússyni, fram-
vkæmdastjóra, og eiga þau 3
dætur og 1 barnabarn. Fóstur-
dætur þeirra voru Áslaug Sig-
urðardóttir, gift Guðmúndi Árna-
syni, verzlunarmanni frá Stóra-
Hrauni, og Elsa Pétursdóttir, gift
Einar Benediktssyni, sendiherra í
París.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\n;LVSIN(ÍA-
SÍMINN KR:
22480
öllum þessum aðstandendum,
svo og systkinum Ingu og systkin-
um Kristjáns flyt ég einlægar
samúðarkveðjur frá mér og fjöl-
skyldu minni.
Bragi Eiríksson.
Vegna mistaka við birtingu
þessarar minningargreinar í blað-
inu um helgina, er minningar-
greinin birt aftur. Eru aðilar
málsins beðnir afsökunar á hin-
um leiðu mistökum.
— Flotkrónur og
fjaðrafok
Framhald af bls. 14
grein, að ég finn mig knúinn til að slá
ofur lítinn varnagla í því sambandi.
Ég veit, að seðlabankastjóri er hinn
ágætasti hæfileikamaður og skörungur
í embætti. Vera má, að á stundum jaðri
orð mín hér við útúrsnúning í hans
garð, þótt ekki væri það ætlunin Mér
þykir raunar sennilegt, að seðlabanka-
stjóri hafi engu minni taugar til
íslenska gjaldmiðilsins en ég eða hver
annar, sem lætur sig málið yfirleitt
einhverju varða
Það, að hafa seðlabankastjóra að
eins konar skotspæni fyrir hál.-
kæringinn hér, er sjálfsagt þessi gamla
árátta að gefa skít I smámuni og
hengja svo bakara fyrir smið, ef svo vill
verða Bakarinn í þessu tilfelli er þá
seðlabankastjórinn, en smiðurinn
verðbólgan og skemmdarverk hennará
íslenska myntkerfinu sl. þrátíu ár
Enginn má heldur skilja orð mín svo
að ég telji mig sendan af máttarvöld-
unum til að kenna stjórnendum
landsins framkvæmd hugsanlegrar
breytingar á íslenska myntkerfinu, og
að ég haldi, að ef mín nyti ekki við, þá
kæmist þetta aldœi í kring
Það, sem fyrir mér vakir, er einungis
að vegja athygli sem flestra á því
hversu tiltölulega auðveld umrædd
breyting yrði í framkvæmd. hvað aðal-
atriði snertir Ég tel þetta þeim mun
meiri þörf, sem mér segir svo hugur,
að margir kunni að verða til þess að
mikla fyrir sér og öðrum ímyndaða
flókna og erfiða framkvæmd
Hvort sem framkvæmdin verður
eitthvað í líkingu við það, sem hér
hefur verið imprað á, allt öðru vísi eða
alls ekkj nein, tel ég mig hafa sýnt fram
á, að hún yrði a.m k. ekki erfiðari eða
fíóknari en hér hefur verið rakið, svo
lengi sem það ekki verður leiðrétt.
Komi það hins vegar í Ijós, að þetta
verði allt ennþá einfaldara, þá er vel.
Öldin okkar er vissulega tími
óróleikans og sviptinganna, ekki síður í
peningamálum en á öðrum sviðum.
Þegar höfð er í huga verðbólgan, sem
geysað hefur á íslandi frá stríðslokum,
hlýtur það að liggja í augum uppi, að
ef myntkerfið okkar ætti að teljast
viðunandi án lagfæringa í dag, þá hlyti
það að hafa verið stórbilað 1947
Engum getur þó blandast hugur um,
að þessu er alveg öfugt fanð Það er
myntkerfi dagsins i dag, sem er sjúkt
og geggjað Við eigum að taka á okkur
rögg og lækna það og horfa ekki í
nokkrar krónur í lækniskostnað
Við stöndum andspænis þvi að taka
afstöðu til þess, hvort framtíð íslenska
gjaldmiðilsins á að snúast um flot-
krónur og fjaðrafok, eða hvort við
tökum í taumana með skynsamlegum
hætti og endurnýjum myntkerfið jafn-
framt því að gera stefnumótun
varðandi slikar lagfæringar eftir
þörfum um langa framtíð
Hér er allt að vinna en engu að tapa
Ræðum málið frá öllum hliðum.
Tökum síðan saman höndum og reis-
um gömlu góðu krónuna og íslensku
aurana til vegs og virðingar á ný
Megi forsmán flotkrónunnar hið
fyrsta frá oss víkja.