Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977 33 fclk í fréttum + Þennan þrifalega náunga sáum við oft f sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Hann heitir William Conrad og lék ieynilögreglu- manninn „Cannon“ f samnefndum sjón- varpsþáttum. Hann hefur nú nær ein- göngu snúið sér að auglýsingamyndum. Hann auglýsir m.a. slökkvitæki f amerfska sjónvarpinu. „Mér er sama hvaðan gott kemur,“ segir Conrad. „Ég fæ þetta vel borg- að og ég vil gjarnan kenna fólki hvernig á að slökkva — ekki þorsta — heldur eld í heimahúsum.“ • • Olhestar + Vagnhestar eru orðnir nær óþekkt fyrirbæri á tslandi, en á götum Kaupmannahafnar má sjá þeim bregða fyrir, þótt það gerist nú æ sjaldgæfara. Calsberg-verksmiðjurnar dönsku eiga enn 16 hesta og flestir þeirra sem komið hafa til Kaupmannahafnar hafa áreiðan- lega séð þessa stóru hesta draga vagn hlaðinn ölkössum um götur borgarinnar. Hann hefur þrjá lífverði + Leikarinn Telly Savals, „Kojak“, þorir ekki að sýna sig á götum New York án þess að lffverðirnir þrír fylgi honum. Á sfðastliðnu ári hótaði hann kvikmyndafélaginu CBS, sem myndar „Kojak“ þættina, að segja upp samningnum vegna þess að honum lfkaði ekki and- rúmsloftið f Hollywood. Hann setti það sem skilyrði að þætt- irnir yrðu framvegis teknir upp f New York. Og kvik- myndafélagið varð að beygja sig fyrir kröfum „Kojak“. Flutningurinn til New York kostaði nokkkra tugi milljóna, en það var ekki aðal vandamál- ið, heldur öryggi Telly Savalas. Þegar útisenur eru teknar hóp- ast aðdáendur leikarans að f hundraðatali og af þeim sökum hafa margir metrar af filmu eyðilagst þvf ýmsir hafa tekið að sér aukahlutverk sem ekki voru f kvikmyndahandritinu. Lffi hans hefur einnig verið ógnað oftar en einu sinni og af þeim sökum eru Iffverðirnir þrfr aldrei langt undan. Þrátt fyrir þetta hefur ekki heyrst ennþá að CBS hyggist flytja eftur til Hollywodd með upp- tökurnar á „Kojak". + Fyrrverandi forsætisráöherra Breta Sir Harold Wilson er hér I góðum félagsskap. ÞaS er enginn annar en froskurinn Kermit úr PrúSuleikaraþætti sjónvarpsins. Sir Harold veitti Kermit og „pabba" hans, Jim Henson tvenn verSlaun. Önnurfrá sjónvarpsstöS og hin frá rithöfundafélagi og Kermit var kjörinn „efnilegasta karlpersóna ársins." Borgfirðingafélagið efnir til landgræðsluferðar laugardaginn 18. júnf. Farið verður að Arnbjargarlæk og Kolstöðum. Upplýsingar i sfmum 36276 Þorkell, 86444 Svav- ar og 41979 Ásta. Þétttaka tilkynnist fyrir 9. júnf. Stjórnin. Lóðaúthlutun Sveitarstjórn Kjalarneshrepps hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um lóðir undir ein- býlishús, raðhús og iðnaðarhús í nýskipulögðu byggðahverfi í landi Grundar i Kjalarneshreppi. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Verkfræðistofunni Ráðgjöf, Bolholti 4, Reykja- vík, sími 85720 á skrifstofutíma og hjá oddvita Kjalarneshrepps, Fólkvangi sími 66100 á mánudögum og föstudögum kl. 2 — 5 e.h. Fyrri umsóknir um lóðir verður að endurnýja. Umsóknarfrestur er til 15.júní. Sveitarstjórn. gfenwood ÞUBRKABI Auöveldur aö staðsetja. Auðveldurf notkun. AuSveldarþvottadag.nn. nvtoodw^^ » iv®m «,nl skráþurrt, sem ganga Z,« 68.300-1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.