Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNl 1977
39
Stýrimanna-
skólanum slit
ið í 86. sinn
STÝRIMANNASKÓLANUM I
Reykjavtk var í lok mal slitið t 86.
sinn. Skólastjóri, Jónas Sigurðs
son, gaf f upphafi skólaslitanna
yfirlit yfir starfsemi skólans á liSn-
um vetri og stundaSi 191 nem-
andi nám þegar flestir voru, og var
auk þess 3. stigs deild á Akureyri.
Tvær stúlkur luku prófi 1. stigs.
önnur f Reykjavfk, Sigrún Svav-
arsdóttir frá Djúpavogí, og hin á
ísafirSi Áróra Jóhannsdóttir, en
hún stundaSi jafnframt nám f
Menntaskólanum á ísafirSi og tók
sjómennsku sem valgrein. SagSi
Jónas SigurSsson. skólastjóri, aS
skólinn hefSi haft samvinnu um
þetta við M. í.. að nemendur sem
hefSu áunnið sér tilskilinn sig-
lingatfma gætu tekið sem valgrein
1. stigs nám Stýrimannaskólans.
Alls luku 66 nemendur námí 1.
stigs, einnig 66 nemendur prófi 2.
stigs, 3. stigs prófi 2 7 og þrir stýri-
menn á varðskipum tuku prófi 4
stigs Efstur á prófi 3. stigs var
Tómas Már isleifsson, 9.33 og
hlaut hann verðlaunabikar Eimskipa-
félags íslands, farmannabikarinn.
Örnólfur Ásmundsson var efstur á
2 stigs prófi, 9 57, og hlaut hann
Öldubikarinn, verðlaunabikar Öld-
unnar. Átta nemendur luku bæði
prófi 1. og 2 stigs. Þá voru veitt
bókaverðlaun úr Verðlaunasjóði- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
skólastjóra.
Skólastjóri ávarpaði nemendur og
óskaði þeim til hamingju með prófið
og þakkaði hann einnig gjafir, sem
gestir höfðu fært skólanum, en hann
sagði að það væri sérlega ánægju-
30 ára nemendur Stýrimannaskólans færðu skól-
anum málverk eftir Svein Björnsson, en hann var
einn úr þeirra hópi. Ljósm. Kristinn.
legt hversu margir af eldri nemend-
um hefðu heimsótt skólann við þessi
skólaslit.
Af hálfu 30 ára nemenda talaði
Haraldur Gíslason og færðu þeir
skólanum málverk eftir Svein
Björnsson, sem var einn úr þeirra
hópi. Markús B Þorgeirsson, sem
lauk prófi fyrir 25 árum, minntist
Þorsteins Kr Þórðarsonar, kennara
skólans, og færði skólanum minn-
ingargjöf um hann.
Orð fyrir 20 ára nemendum hafði
Eyjólfur Eysteinsson. Þeir gáfu pen-
inga í tækjasjóð skólans.
Nemendur úr 2 C fyrir 15 árum
færðu skólanum peningagjöf til
minningar um tvo bekkjarfélaga
sína, Sævar R Ingimarsson og
Sævar Jónsson Auk þess sendi
móðir Sævars Ingimarssonar, Sigur-
laug Sveinsdóttir, Akureyri minning-
argjöf um son sinn.
Ásgeir Ásgeirsson talaði af hálfu
10 ára nemenda Þeir færðu tækja-
sjóði skólans peningagjöf
Svavar Davíðsson, forstjóri Klifs
h f , færði skólanum nýtt reykköfun-
artæki. Gefendur eru að jöfnu fram-
leiðendur tækjanna, Fenzy & Cie,
Montreuil — Paris, og Klif h.f.
Reykjavík
Tvær stúlkur luku prófi 2. stigs
Sýnishom af smlðisgripum á handavinnusýningu nemenda f FlúSaskóta.
Ljósm. Sig. Sigm.
Flúðaskóla slitið
Syðra-Langholti, 28 maí.
FLÚÐASKÓLA var slitið föstudaginn
20. mar en t vetur stunduðu 174
nemendur nám við skólann f 10
bekkjardeildum. Gagnfræðaprófi
luku 22 nemendur en grunnskóla-
prófi 23. Kennarar við skólann voru
13. þar af 8 f fullu starfi.
Nemendur Flúðaskóla eru úr Hruna-
mannahreppi og eldri árgangar úr
Gnúpverja- og Skeiðahreppi auk sjö
nemenda úr Biskupstungum. Flestum
er nemendunum ekið daglega til skól-
ans en nokkrir voru t heimavist. Við
skólaslitin voru veitt verðlaun fyrir góð-
an námsárangur, sem gefin voru af
ýmsum aðilum Þá var að venju sýning
á handavinnu nemenda. Skólastjóri
Flúðaskóla er Bjarni H. Arsnes
Sig Sigm
Fyrstu kjörsviðsnemar Gagnfræðaskólans f Vestmannaeyjum útskrifuðust úr
6. bekk fyrir skömmu. Skólinn hefur tvö kjörsvið, verzlunar- og hjúkrunar- og
uppeldisfræðslu. Verzlunarkjörsvið samsvarar verzlunarskólaprófi, en hinar
greinarnar veita rétt t.d. beint f hjúkrunarnám. Á myndinni eru 6. bekkingar
ásamt tveimur kennurum skólans. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir.
Fiat 125 Ptil afgreiðs/u strax
Athugasemd
Herra ritstjóri.
í blaði yðar hinn 28. maí
segir, að „ Hallgrímskirkja"
hafi verið „flutt f Vindáshlfð
frá Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd". Vegna þessarar
fréttar vil ég undirritaður
leyfa mér að upplýsa eftirfar-
andi:
Kirkjan í Vindáshlið, sem Saurbæjar-
söfnuður á Hvalfjarðarströnd gaf
K F.U K. fyrir 20 árum, eftir að Hall-
grimskirkja I Saurbæ hafði verið reist
og vigð, bar aldrei nafn séra Hall-
grims Kirkjuna lét séra Þorvaldur
Böðvarsson reisa árið 1 8 78. og verður
hún því 100 ára á næsta ári. í öllum
skýrslum, visitaziugjörðum og embætt-
isbókum Saurbæjarprestakalls er kirkja
þessi nefnd Saurbæjarkirkja, svo sem
verið hafði um allar kirkjur i Saurbæ,
þar til minningarkirkjan var byggð. sú,
er nú stendur. Tillaga um minningar-
kirkju séra Hallgríms i Saurbæ kom
fyrst fram á héraðsfundi Borgarfjarðar-
prófastsdæmis árið 1916, og var þá
þegar gert ráð fyrir þvi, að hún bæri
nafn séra Hallgríms. Núverandi kirkja
er eina kirkjan hér, sem borið hefur
heitið Hallgrimskirkja.
Með þökk fyrir birtinguna
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd,
1 júnl 1977
Jón Einarsson, sóknarprestur.
I I HámarkshTaði 155 km, Q Bensíneyðsla
um 10 litrar per 100 km ~ Krajtbremsur
með diskum á öllum hjólum ~ Radial —
dekk ,__Tvöföld framljós með stillingu .
Læst benzinlok Bakkljós Rautt Ijós i
öllum hurðum Teppalagður ” Loftræsti-
kerfi Öryggisgler 2ja hraða miðstöð
2ja hraða rúðuþurrkur Rafmagnsrúðti-
sprauta Hanzkahólf og hilla Kveikjari
Litaður baksýnisspegill L Verkfærataska
Gljábrennt lakk Ljós i farangurs-
geymslu 2ja hólfa karborator Syn-
kromeseraður girkassi . Hituð afturrúða
Hallanleg sætisbök Höfuðpúðar
AdeÍnStia ffiSóO'-
til öryrkja kr.
Leitid upplýsinga
sem fyrst.
FIAT EINKAUMBOO A ISLANDI
Davíd Siííurdsson hf
SIÐUMULA 35, simi 85855