Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNl 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977
21
KR tók flugið svo um munaði
EFTIR slaka byrjun f 1. deildar
keppni íslandsmótsins í knatt-
spyrnu í sumar og rýra upp-
skeru í fyrstu ieikjum sfnum,
fékk KR-iiðið heldur betur upp-
reisn á laugardaginn er það sigr-
aði Akureyrarliðið Þór 6—0 í
leik á Laugardalsvellinum. Má
mikið vera ef þessi sigur — sá
stærsti sem unnizt hefur f 1.
deildar keppninni í ár — verður
ekki til þess að gefa KR-ingum
byr undir báða vængi, en eftir
það sem á undan var gengið var
ekki nema von að heldur væri
farið að dofna yfir liðinu.
Það verður hins vegar að segjast eins
og er að stórsigur KR-inga á laugardag-
inn stafaði ekki af frábærun leik liðsins,
heldur miklu fremur af því hve andstæð-
ingarnir voru slakir. Þórsliðið lék þenn-
an Ieik án tveggja beztu manna sinna,
Gunnars Austfjörðs og Sigurðar Lárus-
sonar, sem báðir voru í leikbanni og voru
Norðanmenn gjörsamlega heillum
horfnir í leiknum — léku oftast eins og
slakt annarrar deildar lið, einkum þó
eftir að miður tók að ganga. Lá við borð
að KR-ingar gætu á tíðum gert það sem
þeim hentaði, það var ekki einu sinni
barátta í Norðanmönnum.
En vissulega gerðu KR-ingar margt
laglegt í þessum leik og þó sérstaklega
einn leikmaður liðsins, Hálfdán Örlygs
son, sem bar höfuð og herðar yfir aðra
leikmenn á vellinum. Hann skoraði sjálf-
ur eitt marka KR-inga með stórglæsilegu
skoti og átti mestan þátt í öllum hinum.
Fór allt saman hjá Hálfdani í þessum
leik: hraði, dugnaður, lagni við að kom-
ast framhjá andstæðingnum og síðast en
ekki sízt góðar og nákvæmar sendingar á
samhverja. Var hann einkar laginn við
að brjóta sér leið upp kantinn, draga til
sín einn eða tvo Þórsara og senda siðan
knöttinn fyrir markið nákvæmt til
þeirra KR-inga sem voru í minnstri
gæzlu.
Það var rétt í upphafi leiksins sem
Þórsarar höfðu áhuga og börðust og þá
voru þeir lika betra liðið á vellinum.
Náðu þeir nokkrum sinnum skemmtileg-
um sóknum upp hægri kantinn, en
enginn þeirra gaf þó af sér verulega
hættulegt marktækifæri. Til að byrja
með voru einnig sóknaraðgerðir KR-inga
fremur hættulitlar — þær gengu upp
miðjuna, þar sem Þórsvörnin þjappaði
sér saman og átti oftast auðvelt með að
hreinsa frá. Á fyrstu 35 mínútum leiks-
ins áttu KR-ingar raunverulega lítið
fleiri en þrjú upphlaup, en höfðu skorað
úr þeim öllum. Bærileg nýting það!
Mörkin sem KR-ingar skoruðu í fyrri
hálfleik komu þannig:
1:0. Hálfdan Örlygsson dró til sín tvo
varnarmenn og sendi síðan knöttinn inn
í eyðu við markteigslínuna til Vilhelms
Fredriksen sem átti auðvelt með að
skora.
KR - Þór 6:0
Texti: Steinar J. Lúðvfksson
Mynd: Friðþjófur Helgason
________________________________
2:0. Hálfdan örlygsson 'tók horn-
spyrnu. var hann fljótur að átta sig á
möguleika sem bauðst og sendi knöttinn
yfir þvögu Þórsara og KR-inga beint til
Barkar Yngvasonar sem var óvaldaður
og skoraði.
3:0. Enn einu sinni skapaði Hálfdan
vandræði hjá Þórsvörninni. Hann lék
upp kantinn og inn undir markið. Áttu
flestir von á þvi að hann reyndi sjálfur
að skjóta, en þess í stað renndi hann
knettinum til Ottós Guðmundssonar sem
var í dauðafæri og gæzlulaus, þannig að
eftirleikurinn var honum ekki erfiður.
í seinni hálfleik var auðséð að Þórsar-
ar höfðu gefið upp alla von að ná stigi í
leik þessum, og gáfu eftir á öllum víg-
stöðvum. Sóttu KR-ingar mun meira í
hálfleiknum og gekk bærilega að skapa
sér tækifæri.
4:0. Hálfdan brauzt í gegnum Þórs-
vörnina og sendi á Vilhelm sem var í
góðu færi og skoraði hann örugglega.
5:0. Mark þetta kom eftir hornspyrnu.
Vörn Þórs hafði góða möguleika á að
hreinsa, en mistókst og knötturinn barst
til Hálfdans sem skoraði með góðu skoti.
6:0. Skömmu fyrir leikslok var Hálf-
dan enn á ferð upp kantinn og sendi
síðan nákvæma sendingu fyrir til Arnar
Óskarssonar sem kom á fullri ferð og
skoraði með fallegum skalla.
Ekkert vafamál er að margt gott býr í
KR-liðinu og þessi sigur verður örugg-
lega til þess að betur gengur en áður að
ná því bezta fram. Margir leikmannanna
eru hinir lögnustu með knöttinn og hafa
gott auga fyrir því sem er að gerast á
vellinum. Vörn liðsins virkar einnig hin
traustasta, með Ottó Guðmundsson sem
bezta mann, en vert er þó að taka fram
að ekki mæddi mikið á henni í þessum
leik. En leiðan vana hafa KR-ingar sem
þeir þyrftu að uppræta, og er þar um að
ræða óþarfa spörk til andstæðinganna,
ef þeir komast fram hjá þeim. Máttu
KR-ingar vissulega teljast heppnir í leik
þessum að Magnús V. Pétursson dómari
brá ekki nema einu sinni gula spjaldinu
á loft.
Undirritaður telur óhugsandi að fella
neinn dóm um Þórsliðið eftir leik þess-
um. Það var vitað mál að Gunnar Aust-
fjörð er sá máttarstólpi í vörn liðsins,
sem það getur ekki verið án. Allur leikur
liðsins að þessu sinni var mjög fálm-
kenndur og óöruggur, og furðulegt var
hve leikmennirnir misstu fljótt móðinn.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild
Laugardalsvöllur 4. júní
URSLIT: KR—ÞÓR6:0 (3:0)
Mörk KR: Vilhelm Fredreksen á 12.
mín. og á 50 . min., Börkur Yngvason á
17. mín., Ottó Guðmundsson á 34. mln.,
Hálfdan Örlygsson á 60. mín. og Örn
Óskarsson á 85. mín.
Áminning: Vilhelm Fredreksen fékk
gula spjaldið fyrir háskaleik.
Áhorfendur: Um 350
isiandsmótia 1. delld
Uætta við mark Þórs sem oftar f lefknum.
Háloftaspyrnur og hlaup
MÖGULEIKAR Framara á að
blanda sér I baráttuna á toppnum
I 1. deildar keppni íslandsmóts-
ins I knattspyrnu minnkuðu enn
verulega á laugardaginn, er liðið
tapaði fyrir Breiðabliki á Kópa-
vogsvellinum. Úrslit leiksins
urðu 4:1 fyrir heimamenn, en
ekki er hægt að segja að þær tölur
gefi rétta mynd af gangi leiksins,
sem lengst af var tiltölulega jafn.
Heldur var leikur þessi slakur
hvað knattspyrnu varðar, en góð
barátta var I báðum liðunum,
einkum þó Breiðabliksmönnum,
sem gáfu aldrei þumlung eftir og
voru ákveðnir og fljótir á knött-
inn.
Eirfkur Þorsteinsson skorar jöfnumark Vfkings úr vftaspyrnu.
HART BARIZT A MIÐJUNNI
LEIKUR Akurnesinga og Víkinga á Skipaskaga á laugardaginn varð
ekki sú skemmtun, sem áhorfendur höfðu vænzt. Miðjubarátta setti
svip sinn á leikinn og fátt var um falleg tilþrif við mörkin. Heima-
menn voru öllu aðgangsharðari við mark andstæðinganna og Pétri
Péturssyni tókst að skora gott mark I fyrri hálfleik, sem virtist ætla að
duga til sigurs. En tveimur mfnútum fyrir leikslok var Óskari Tómas-
syni brugðið innan vítateigs og skoraði Eirfkur Þorsteinsson jöfnunar-
mark Vfkingas örugglega úr vftaspyrnunni. Leikmenn Vefkings kvört-
uðu undan vellinum að leik loknum, töldu hann alltof gljúpan á
stórum köflum á miðjunni. Kann þetta að hafa dregið úr gæðum
leiksins ásamt mjög sterkum hliðarvindi.
Vindurinn var eiginlega ská-
halt á völlinn og höfðu Skaga-
menn vindinn heldur í bakið í
fyrri hálfleik. Tóku Víkingarnir
hraustlega á móti andstæðingun-
um og varð úr hin grimmasta bar-
átta um miðbik vallarins, mikið
um hlaup og spyrnur. En sára-
sjaldan barst boltinn lengra en að
vítateig liðanna nema þá lang-
skot, sem höfnuðu annaðhvort í
öruggum höndum markvarðanna
Diðriks og Jóns eða föru framhjá.
Gerðist bókstaflega ekkert mark-
vert fyrstu 40 mínúturnar ef
undan er skilin bókun Jóhannes-
ar Bárðarsonar fyrir að sparka f
Jón Alfreðsson.
IA - Víkingur 1:1
Texti og mynd:
Sigtryggur Sigtryggsson.
varnarmenn Vfkings aðeins tökin
á framherjum Akurnesinga og
fengu þeir þrjú ágæt tækifæri,
sem ekki þó nýttust. Fyrst skall-
aði Kristinn Björnsson yfir af
stuttu færi. Síðar átti Kristinn
skot að marki, Diðrik varði en
missti boltann frá sér út f teiginn.
Karl Þórðarson kom á fullri ferð
en Diðrik varði laust skot hans.
Enn síðar átti Árni Sveinsson
skot hátt yfir þegar tómt markið
blasti við.
Einn þáttur leiksins voru lang-
spyrnur út fyrir völlinn og niður
á Langasand. Bætti dómarinn af
þessum sökum rúmum þremur
mfnútum við seinni hálfleikinn.
Þegar ein mínúta var komin fram
yfir venjulegan leiktíma voru
þeir Björn Lárusson og Óskar
Tómasson að kljást um boltann
rétt innan vítateigslfnu Akraness.
Óskar sleit sig lausan frá Birni,
sem ekki vildi gefa eftir sinn hlut
heldur reyndi að ná til boltans en
tókst þá ekki betur upp en svo að
hann skellti Óskari flötum. Dóm-
arinn stóð þarna hjá og dómur
hans var hárréttur. Vítaspyrna,
og úr henni skoraði Eiríkur Þor-
steinsson af öryggi. Við markið
var eins og Vfkingar vöknuðu til
lifsins og sóttu þeir af hörku tvær
síðustu mfnúturnar. Munaði
minnstu að Víkingarnir skoruðu á
lokasekúndunum en það hefði
vissulega verið óréttlæti á hæsta
stigi ef þeir hefðu hirt bæði
stigin.
Ef á heildina er litið var þetta
jöfn barátta, þar sem varnirnar
voru sterkasti hiuti liðanna.
Akurnesingar höfðu aftur á móti
á að skipa betri framherjum og
því áttu þeir fleiri marktækifæri.
Var þar fremstur í flokki Pétur
Pétursson, sem virðist vaxa með
hverjum leik. Auk hans voru þeir
Jón markvörður og miðjumenn-
irnir Jóhannes og Jón beztu menn
liðsins. Hjá Vfkingi voru Diðrik,
Magnús og Helgi sterkustu. menn
varnarinnar en í framlínunni var
Óskar Tómasson sá eini, sem eitt-
hvað kvað að.
Dómari var Arnar Einarsson og
dæmdi hann mjög vel, var án vafa
bezti maðurinn á vellinum.
ÍSTUTTU MÁLI:
Akranesvöllur 4. júnf, íslands-
mótið 1. deild, Akranes-Víkingur
1:1 (1:0).
Mark Akraness: Pétur Pétursson
á 41. mínútu.
Mark Vfkings: Eiríkur Þorsteins-
son úr vítaspyrnu á 91. mínútu.
Áminning: Jóhannes Bárðarson,
gult spjald. Áhorfendur: 916.
Strekkingsvindur var í Kópa-
vogi á laugardaginn og stóð eftir
vellinum. Kusu heimamenn að
leika undan vindi í fyrri hálfleik,
og sóttu þeir þá öllu meira. En
yfirbragð leiksins varð strax dálít-
ið stórkarlalegt. Mikið var um
háar og Iangar spyrnur og þá
kylfa látin ráða kasti hvort knött-
urinn hafnaði hjá samherja eða
mótherja. Heldur voru það
Blikarnir sem reyndu að leika
kanttspyrnu, en Framararnir
voru grimmir í vörninni og náðu
jafnan að hreinsa, áður en hætta
skapaðist við mark þeirra.
Sóknarlotur Fram byggðust hins
vegar á þvf einu að senda knött-
inn hátt fram völlinn, þar sem
Sumarliða Guðbjartssyni var falið
að vinna úr sendingunum.
Skallað að marki Fram.
UBK - Fram 4:1
Texti: Steinar J. Lúðvfksson
Mynd: Friðþjófur Helgason
Auðveldaði þetta vitanlega
Breiðabliksmönnum vörnina,
enda voru það fá hættuleg færi
sem Fram átti í hálfleiknum.
Þrjú mörk voru skoruð f fyrri
hálfleik og var ekki unnt að setja
neinn fegurðarstimpil á þau. Á
23. mfnútu ætlaði einn leikmanna
Fram að senda knöttinn til Árna
markvarðar, en tókst ekki betur
til en svo, að Ólafur Friðriksson
komst inn í sendinguna og skor-
aði, 1:0 fyrir Breiðablik.
Á 35. mfnútu jafnaði Fram.
Rúnar Gfslason brauzt þá upp
kantinn og sendi síðan knöttinn
fyrir markið. Ólafur Hákonarson,
markvörður Breiðabiiks, átti
ævintýralegt úthlaup, og var því
vfðs fjarri er einum leikmanna
Fram tókst að pota knettinum til
Sumarliða Guðbjartssonar, sem
var vel staðsettur og skoraði.
Tveimur mfnútum fyrir lok
hálfleiksins náðu Blikarnir aftur
forystu, og nutu til þess góðrar
aðstoðar Ásgeirs Elfassonar, sem
hreinlega lagði knöttinn fyrir fæt-
ur Heiðars Breiðf jörðs innan víta-
Á 40. mínútu var dæmd óbein
aukaspyrna inn í vftateig Víkings
og var það ein af örfáum um-
deilanlegum ákvörðunum ágæts
dómara leiksins, Arnar Einars-
sonar. Skapaðist mikil hætta við
mark Vfkings en varnarmönnum
tókst að spyrna boltanum frá.
Hann barst aftur í áttina að marki
Vfkings til Péturs Péturssonar,
sem var eflaust eina 4—5 metra
fyrir innan varnarvegg Víkings,
þótti sú augljósa ragstaða færi
framhjá línuverðinum. Pétur
brunaði í átt að markinu og skaut
en Diðrik bargaði meistaralega í
horn. Karl Þórðarson tók horn-
spyrnuna frá hægri og gaf vel inn
í teiginn og áður en undirrituðum
hafði gefizt ráðrúm til að smella
af ljósmynd, hafði Pétur Péturs-
son rifið sig upp fyrir varnar-
menn Vikings og skallað boltann
af hvflfkum krafti að hann hrein-
lega söng í netinu. Stórglæsileg
tilþrif þessa pilts, sem á bókað
landsliðssæti, jafnvel strax f sum-
ar, ef hann ræktar iþrótt sfna af
alvöru.
Seinni hálfleikurinn gefur ekki
tilefni til mikilla skrifa. Sama
barátta var f leiknum og mark-
tækifæri teljandi á fingrum ann-
arrar handar. Fyrsta sæmilega
tækifæri Víkings kom á 15. mín-
útu seinni hálfleiks þegar Viðar
Elíasson átti skot hárnákvæmt
framhjá. Undir lokin linuðu
FYRfTI TONNINN GAF FALSVONIR
ÍBK - ÍBV 1:0
Texti:IIermann Kr. Jónsson
Mynd:Sigurgeir Jónasson.
ÞAÐ VORÚ ekki liðnar tvær
mfnútur af leik ÍKK og ÍBV á
laugardaginn þegar boltinn lá í
neti Eyjamanna. Langsending
kom fram völlinn og Ómar
Ingvarsson sprelti úr spori á
eftir boltanum. náði valdi á
honum, vatt sig laglega fram-
hjá Fríðfinni Finnbogasyni,
miðverði ÍBV, og Ómar skoraði
með föstu og öruggu skoti sem
Páll Pálmason átti ekki nokkra
möguleika á að verja.
Þessi góða byrjun á þungum
og slæmum grasvellinum i
Keflavfk gaf vonir um fjörugan
leik og mörg mörk. En þetta
voru falsvonir einar og leikur-
inn náði aldrei þvf lagi sem
fyrsti tóninn gaf tilefni til. Það
er oft talað um leiki hinna glöt-
uðu tækifæra og þessi leikur
fellur þar undir nema hvað
tækifærin voru algjörlega glöt-
uð — fyrir utan mark Ómars og
gott skot Valþórs Sigþórssonar
I þverslá Keflavíkurmarksins f
fyrri hálfleik voru engin færi f
leiknum þess virði að ónáða sig
við að skrá þau niður. Þess kon-
arleikurvar þetta.
Keflvikingar léku undan
strekkingsvindi f f.h. og þeir
voru mun meira með boltann
fyrstu 20 mfn. en án þess að
skapa sér nein teljandi tæki-
færi. Eyjamenn voru mjög
óöruggir þessar mfn. en þeím
tókst að svamla á móti og ná sér
aðeins á strik seinni hluta hálf-
leiksins, en þeim gekk enn verr
en Keflvfkingum að skapa sér
færi, þangað til á síðustu min.
hálfleiksins er Valþðr skaut f
þverslána.
Þegar Eyjamenn fengu vind-
inn í lið með sér f s.h. náðu þeir
upp þungri sókn en með engum
árangri. Keflvfkingar skutu inn
einni og einni skyndisókn, en
færin — segi ég enn — akkúrat
engin. Leikurinn fór mest fram
á vallarmiðjunni og þar var
hlaupið og sparkaó út og suður.
Mikið var um allskonar pústra
og stimpingar en ágætur dóm-
ari leiksins, Guðmundur
Haraldsson, sá um að ekki var
farið yfir mörkin f brotum. Það
er kannski táknrænt fyrir
þennan leik, að Guðmundur
dómari var bezti maður vallar-
ins.
Lengra mál er ekki vert að
hafa um leik IBK og IBV, hann
gaf ekki tilefni til mikilla útlist-
inga eða upptalninga á spenn-
andi eða skemmtilegum atvik-
um. Því miður.
Keflvfkingar ættu nú að hafa
endanlega þaggað niður í þeim
röddum sem voru með hrak-
spár um liðið I upphafi mótsins.
Jafnt og þétt innbyrða þeir stig-
in og þau eru orðin 9 eftir 6
leiki. Leikgleði og barátta eru
helztu einkenni liðsins og það
var ekki að merkja í þessum
leik að þeir sðknuðu Ólafs
Júlíussonar, sem sat af sér leik-
bann. Liðið var mjög jafnt
nema hvað Gísli Torfason var
áberandi bezti maður liðsins.
Gfsli er sérlega laginn við að
gera sér vinnuna á vellinum
auðvelda, „les“ vel i leikinn ug
lætur boltann um puðið.
Það er ákaflega erfitt að átta
sig á Eyjaliðinu. Það er vel
skipað leikmönnum og hefur
sýnt mjög góða knattspvrnu f
flestum leikjum sinum í vor, en
liðið hefur ekki skorað mörk
siðan f fyrsta leiknum gegn
Fram — fjórir leikir f röð án
þess IBV skorar mark. Nú er af
sem áður var er Eyjamenn voru
flestum öðrum fremri við að
skora mörk í 1. deild. Að visu
hefur framlfna liðsins orðið
fyrir mikilli blóðtöku, fyrst örn
f KR og sfðan Sigurlás á sjúkra-
hús. Kannski lagast þetta með
afturkomu Sigurlásar. ÍBV var
meira með boltann á laugardag-
inn I Keflavik en úrvinnsla
sóknaraðgerða liðsins var sorg-
lega léleg og því fór sem fór.
Bezti maður liðsins var Vaiþór
Sigþórsson. Það ber ekki mikið
á honum en hann er mjög vax-
andi leikmaður.
i stultu máli: Keflavkurvöll-
ur 4. júnf. ÍBK — ÍBV 1—0
(1-0)
Mark ÍBK: Ómar Ingvarsson
á 1. mfn.
Áminning: Magnús
Þorsteinsson ÍBV fékk gult
spjald. Ahorfendur: 1051.
teigsins. Heiðar þakkaði þetta
góða boð og sendi knöttinn i
markhornið fjær, án þess að Árni
ætti möguleika að verja.
Flestir áttu von á því að Fram-
arar hresstust f sejnni hálfleik, er
þeir höfðu goluna með sér. En
það var öðru nær. Spyrnur þeirra
voru um of stórkarlalegar til þess
að skapa hættu, og Breiðabliks-
menn voru einnig ákveðnir og
gáfu þeim litinn tima til athafna.
Lengst af i hálfleiknum var leik-
urinn mjög þófkenndur og frem-
ur leiðinlegur á að horfa.
Upp úr miðjum hálfleiknum
skipti Þorsteinn Friðþjófsson,
þjálfari Breiðabliksmanna, einum
varamanni liðsins, Vigni Baldurs-
syni, inná. Hafði hann ekki verið
nema nokkrar mínútur inni á
vellinum er hann komst f færi og
skaut stórglæsilegu skoti. Hafnaði
knötturinn í markhorninu uppi,
algjörlega óverjandi. Þetta skot
Vignir var tvfmælalaust það lang-
fallegasta sem þessi leikur bauð
upp á.
Þegar leiktíminn var að renna
út bættu Blikarnir svo enn um
betur. Jón Orri Guðmundsson
hafði þá betur i þófi sem var í
vitateig Framara og náði að skjóta
lausu skoti. Árni hafði hlauþið út
út markinu og var því vfðs fjarri
er knötturinn rúllaði í markið svo
rólega, að áhöld voru hvort hánn
færi alla leið.
Bæði Fram og Breiðablik eiga
að geta leikið mun betur en þau
gerðu i Kópavogi á laugardaginn.
Framliðið á þó við greinileg
vandamál að strfða vegna meiðsla
leikmanna. Þannig var Pétur
Ormslev, einn bezti sóknarleik-
maður Fram að undanförnu, ekki
með að þessu sinni, Sumarliði
virtist ekki ganga heill til skógar
og Eggert varð að fara snemma
haltrandi útaf. Við þetta bættist
svo að Ásgeir Elíasson og Jón
Pétursson hafa engan veginn náð
sér á strik ennþá.
1 STÚTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild
Kópavogsvöllur 4. júni
Úrslit: Breiðablik - Fram 4—1
(2—1)
Mörk BreiðabIiks:Ólafur
Friðriksson á 23. minútu, Heiðar
Breiðfjörð á 42. minútu, Vignir
Baldursson á 81. min. og Jón Orri
Guðmundsson á 88. mín.
Mark Fram: Sumarliði Guðbjarts-
son á 35. mín.
Áminning : Engin
Áhorfendur: 586