Morgunblaðið - 11.06.1977, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 11.06.1977, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1977 21 eftir RAGNAR BORG Það verður fundur hjá Mynt- safnarafélaginu í dag kl. 2.30 í Templarahöllinni. Á uppboð- inu eru, aðallega fslenzkir og danskir peningar, margir danskir einseyringar og auk þess Heimaeyjapeningurinn sem danskir myntsafnarar létu slá 1973. Nokkrir seðlar eru einnig á uppboðinu, þar á með- al norskur 100 króna seðill frá 1934 og krónu seðill íslenzkur frá 1921. Þetta verður seinasti fundur hjá Myntsafnaraféiag- inu á þessu starfsári. Fundir hef jast að nýju í september. Mynt og fornleifafræðingar hafa lengi velt því fyrir sér hvenær peningar voru fyrst teknir í notkun í heiminum. Ég hefi áður haldið því fram hér í þáttunum, að elztu peningarnir hafi verið slegnir i Lydiu (þar sem nú er Tyrkland) á dögum Gygesar konungs, eða um 685—652 árum fyrir Krist. Voru peningar þessir úr elektr- um, en það er náttúrleg blanda af gulli og silfri. í gömlum kínverskum ritum er því haldið fram að þar í landi hafi verið peningakerfi allt frá árinu 2356 f.Kr. Elztu kín- versku peningarnir, sem tekist hefir að ákvarða aldur á eru frá því um 770 f.Kr. Eru þetta hinir svonefndu spaða peningar. í íran fundust árið 1972 silfur- stangir, sem notaðar hafa verið sem einhvers konar peningar. Eru þær líklega frá um 760 f.Kr. Þyngstu peningarnir, sem slegnir hafa verið eru sænskir 10 dala peningar frá árinu 1644. Var hver peningur 19,7 kíló. Allmikill munur á þeim og flotkrónunni okkar. Krónan okkar. er þó ekki léttasti pen- ingurinn, sem sleginn hefir ver- ið þvi árið 1740 voru slegnir silfur peningar i Nepal sem voru milli 0.008 og 0.014 gr. og flotkrónan er 0,61 gr. British Museum í London. Ætli verðgildi peningsins væri ekki nálægt tveim milljónum króna, miðað við gullverð í dag. Hæsta söluverð á gömlum peningi var fyrir 10 drökmu silfurmynt frá Aþenu. Árið 1974 voru greiddir 314.000 doll- arar fyrir þennan pening á upp- boði í Ziirich í. Sviss. Hæsta söluverð á myntsafni vár greitt fyrir La Vere safnið í Reno i Nevada í janúar 1976. Fengust fyrir safnið, en í því voru 407.000 silfur dollarapeningar, 7 milljón og 300 þúsund dollar- ar. Stærsti fjársjóður, sem fundist hefir í jörðu, fannst ár- ið 1814 í Modena á ítalíu. Fund- ust þá 80.000 gullpeningar sem grafnir hafa verið þar í jörð um árið 37 f.Kr. Sá peningur, sem hefir haft hæst verðgildi er áreiðanlega 200 Mohur peningurinn sem sleginn var árið 1654 fyrir ind- verskan fursta. Var peningur- inn úr gulli og var 2177 grömm á þyngd. Eina þekkta eintakið af þessum pening hvarf árið 1820 í Patna í Bihar fylki, en afsteypa af peningnum er til I Dansleikur helgarinnar i ÁRNESI Haukar íklassaformi eftir nýafstaðna hljómplötuupptöku. A réttunni— (skömmu síðar) Munið, 10 tær uppí loft. Sætaferðir frá BSÍ, Selfossi. Þorlákshöfn, Laugarvatni. U.F.G. Einn sjaldgæfasti og dýrasti peningur sem sleginn hefir ver- ið á seinni tímum. Brezkur crown peningur Játvarðar 8. Þessi peningur var sleginn árið 1937, árið sem krýna átti Ját- varð. Hann afsalaði þó brezku krúnunni áður en hann varð krýndur, fyrir bandarfsku kon- una Mrs. Simpson. Komust pen- ingarnir því aldrei 1 umferð. Þessi peningur er tryggður fyrir hálfa milljón dollara. » | || lll^gggKjgag Silil Skóflu eða spaðamynt frá Kfna. Þessi peningur er frá 1. ái undi f.Kr. Hvaða peningar eru þeir elztu og hverjir eru dýrastir? E|G]E]E]E]E]E]E]E]B]G]E]E]E]E]G]G]E]G]B)Q1 B1 B1 B1 51 51 51 Si0ul Bingó kl. 3 í dag. Aðalvinningur vöruúttekt fyrir 25.000.— kr. B1 51 51 B1 51 51 E]E]E|E1E]E]E1E1E]E]E1E1E1E]E1E1E]E]E1G1E] The Incredibles í ROCK N ROLLstuði í kvöld. Sætaferðir frá B.S.I. The fan club. JÓNAS ÞÓRIR SPILAR í KVÖLD. Hellubíó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.