Morgunblaðið - 19.06.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.06.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNI 1977 3 Hjúkrunarfræðingaskorturinn: Of f áir útskrifast og starfsævin of stutt SKORTUR á hjúkrunarfræðing- um í sjúkrahúsum landsins hefur mjög verið í deiglunni undanfar- ið. Forráðamönnum stærstu sjúkrahusanna, Borgarspítalans og Landspítalans, ber saman um að rætur þessa skorts megi rekja til IIjúkrunarskóla íslands, sem menn'ti alltof fáa hjúkrunarfræð- inga á ári hverju. Þó séu það ekki húsnæðismál skólans sem séu or- sök þess heldur sé þvf borið við að kennara vanti við skólann. Bæði Ilaukur Benediktsson og Georg Lúðvfksson, framkvæmdastjórar Borgarspftalans og ríkisspítal- anna, töldu þó þessa skýringu ófullnægjandi. Ólafur Ólafsson landlæknir, formaður skóla- nefndar Hjúkrunarskólans, viðurkenndi hins vegar að þetta væri ein ástæðan fvrir hjúkrunar- fræðingaskortinum en benti jafn- framt á að starfsævi fullmennt- aðra hjúkrunarfræðinga væri óvenju stutt hér á landi. Haukur Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, sagði í samtali við Morgunblaðið að ljóst vær að flöskuhálsinn í þessum efnum væri menntunar- mál hjukrunarfræðinga. Ástæðan væri þó ekki aó skortur væri á kennsluhúsnæði, heldur að hæfir kennarar fengjust ekki að skólan- um. Þetta heföi verið viðbáran siðasta áratug eða svo, en Haukur sagðist naumast geta tekið þessa fyrirbáru sem góða og gilda öllu lengur. Haukur sagði ennfremur að undir eðlilegum kringumstæð- um ætti flöskuhálsinn að vera aðstaða sjukrahúsanna til að taka við nemum til verklegs náms, en til þess hefði þó aldrei komið þar eð þau hefðu hingað til auðveld- lega getaö annað þeim fjölda nema sem verið hafa í skólanum hverju sinni. Georg Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri ríkisspítalanna tók i sama streng. Hann kvað vafa- laust vera ýmsar samtvinnaðar ástæður fyrir hjúkrunarfræöinga- skortinum en menntunarmál Hjúkrunarskólans væru þar ein höfuðástæðan, þ.e.a.s. hversu fáir hjúkrunarfræðingar eru úlskrif- aðir úr honum. Skorti á hæfum kennurum væri þar kennt um, en það yrði að teljast alls ófullnægjandi skýring. Úr því aö unnt væri að útvega kennara fyrir læknadeild Háskólans væru alls engin rök fyrir því að ekki væri hægt að sjá Hjúkrunar- skólanum fyrir nógu kennaraliði og nú væri hlutfalliö þannig að hjúkrunarskólinn útskrifaði milli 80 til 90 nemendur á ári en lækna- deildin 150. Þegar hins vegar í sjúkrahúsin kæmi þyrfti hins vegar 3—4 hlúkrunarfræöinga á móti hverjum lækni, svo hlutfall- ið í menntuninni væri mjög öfug- snúið. Georg sagði ennfremur að nú lengi hefði ástandiö verið svo að hjúkrunarfræðingar hefðu hrein- lega verið á uppboði og svo lengi sem hann myndi þá hefðu ekki verið setnar allar stöður hjúkrunarfræðinga sem heimilaðar væru við ríkisspítal- ana. Þessi skortur hefði komið mjög mismunandi niður á sjúkra- húsunum, því að hjúkrunar- fræðingarnir sæktu til hinna eftirsóknarverðari stofnana. Þetta hefði t.d. valdið því aö á Kleppi hefði um eitt skeið legið við að loka þyrfti deildum sökum skorts á hjúkrunarliði og ástandið væri enn mjög slæmt á elli- heimilunum. Morgunblaðið bar þessi mál undir Ólaf Ólafsson landlækni, sem jafnframt er formaður skóla- nefndar Hjúkrunarskóla íslands. Ólafur sagði, að skortur á hjúkrunarfræðingum væri ekki eingöngu íslenzkt vandamál heldur einnig vandamál víða á Norðurlöndum, en engu að siður væri það staðreynd að heilbrigðis- þjónustunni hér héldist mun verr á hjúkrunarfólki en gerðist í öðr- um löndum og mætti nefna könnun fyrir fáeinum árum sem sýndi að hér væri meðalstarfsævi aðeins um 7 ár. Ólafur sagði þvi og tók sem dæmi aö ef maður væri með belg af vatni, sem læki, þá væri engin lausn i því til að halda vatninu á honum að halda áfram að hella á hann vatni heldur yrði að reyna að komast fyrir lekann. Með einhverjum ráöum yrði að vinna ða því að lengja starfsævi hjúkrunar- fræðinganna og finna ástæðurnar fyrir þvi aö hann væri svo stuttur sem raun bæri vitni. Olafur sagöi, að til að mynda væru mun betri heimtur á hjúkrunarliðum og meina- tæknum. Skýringanna hlyti þvi að einhverju leyti að vera að leita i iaunakjörum, og einnig hinu að starfiö væri vafalaust mjög erfitt MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Hjúkrunarfélagi íslands vegna skrifa í fjölmiðlum um að fyrirsjáanleg sé lok- un deilda á sjúkrahúsum sakir skorts á hjúkrunar- fræðingum. í frétta- tilkynningunni segir m.a. um ástæðurnar. Þar sem fram hefur komið i fjölmiðlum að undanförnu að lokun deilda á sjúkrahúsum stafi af skorti á hjúkrunarfræðingum, vill stjórn Hjúkrunarfélags ís- lands taka fram eftirfarandi: Ástæður fyrir umræddum skorti eru margar m.a. mikið og vaxandi vinnuálag, óhagkvæmur vinnutimi, skortur á barnagæslu, kennaraskortur I hjúkrunar- skólunum og svo það sem e.t.v. vegur þyngst á metunum að hjúkrunarstarfið er vanmetið til og krefjandi, sérstaklega hja þeim er störfuðu t.d. við elli- heimilin, enda væri skorturinn á hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarliði lang mestur þar. Hjúkrunarfræðingar hefðu yfir- leitt ekki jafnvel enföldustu hjálpartæki á nýjustu elli- heimilum og alit hlyti þetta að hafa í för með sér að slíkar stofn- anir freistuðu ekki hjúkrunar- fræðinga til starfa. Taldi Óiafur þvi augljóst, að með einhverju móti yrði að finna leiðir til að létta undir með hjúkrunarfólki á slíkum stofnunum, og gat hann þess að rætt hefði veriö um að fá læknastúdenta meir til starfa við slikar stofnanir en verið heföi. Ólafur staðfesti áð skortur væri á kennurum við Hjúkrunarskólann, en kvað þó hafa verið reynt að gera átak í þeim málum undan- farið, m.a. með auknum og hærri styrkjum til fólks sem vildi sér- mennta sig með kennslu fyrir augum. Miles Parnell sýnir í Sólon Islandus Laugardaginn 11. júnl opnaði Miles Parnell sýningu á teikning- um sínum f Gallerf Sólon íslandus og stendur hún til 25. þ.m. Parnell er fæddur árið 1953 i Derby á Englandi. Hann stundaði listnám við St. Martin’s College of Art og Leicester Art School og lauk þaðan BA prófi árið 1975. Að loknu námi kenndi hann við Nottingham College of Art, en vann jafnhliða að teiknun og myndskreytingum. 1 april s.l. fluttist hann til Islands og hefur unnið hér við auglýsingateiknun. Allar myndir Parnells á þessari sýningu eru unnar hér á landi. Myndirnar eru gerðar með goauche-litum, vaxlitum, vatnslit- um, bleki og penna. Parnell kvaðst ekki vinna i neinum ákveðnum stil heldur gera mynd- irnar undir áhrifum frá ýmsum hlutum i umhverfinu, t.d. tónlist. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu. • • Oryggi og ánœgja í Útsýnarferðum Pantið áðuren þærseljast upp Verðið hvergi hagstæðara. Hjúkrunarfélag íslands: Lokun deilda neyðar- úrræði en rétt aðgerð launa miðað við starfssvið, ábyrgð, menntun o.s.frv. Má í því sambandi minna á að u.þ.b. þriðj- ungur starfandi hjúkrunarfræð- inga á Reykjavíkursvæðinu höfðu sagt lausum störfum sínum fyrri hluta þessa árs af framangreind- um orsökum. Stjórn HFÍ lítur ástandið alvar- legum augum og telur að úrbóta sé brýn þörf. Stjórnin álítur lok- un sjúkradeilda algjört neyðar- úrræði en telur þó að til réttra aðgerða sé gripið. Með þeim er hægt að draga úr vinnuálagi þeirra, sem eru i starfi og þar með tryggja að sú þjónusta sem innt er af höndum verði svo góð sem sjúklingar eiga rétt á. Þetta er auðvitað æskilegra, en að ætla sjúkrastofunum að halda uppi fullri starfsemi yfir sumar- orlofstimann án þess að fyrir hendi sé starfsfólk sem hæft er til þeirrar þjónustu, sem þar á að veita. AUSTURSTRÆT! 17, S/MI26611

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.