Morgunblaðið - 19.06.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.06.1977, Blaðsíða 21
félk f fréttum + Það hefur verið heldur hljótt um Ginu Lollobrigidu upp á síð- kastið en nú segist hún vera ástfangin og hér á myndinni er hún með sínum heittelskaða. Hann heitir prins Adan Zartorisky en það fylgdi ekki sögunni hvar hann er prins. En hvað sem því líður virðast þau vera ánægð hvort með annað. + Leikarinn Jack Nieholson er umkringdur aðdáendum hvert sem hann fer og Ijós- mvndarar eru alltaf á hæl- unum á honum. Kitt sinn er hann var f veislu þurfti hann að bregða sér frá eins og geng- ur og gerist. Um leið og hann stóð upp frá borðinu þustu Ijósmyndararnir á eftir hon- um. Jack sneri sér brosandi við og sagði: „Afsakið herrar mínir, en þangað sem ég ætla nú fer meira að segja kon- ungurinn sjálfur aleinn." + Leikarinn Charlton Heston, sem orðinn er 53 ára, er að missa sjónina. Hann hefur leitað til sérfræðinga vfða um heim en þeir eru sammála um að aðeins kraftaverk geti forð- að honum frá að verða blindur. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNl 1977 21 Styrktarfélag aldraðra í Hafnar- firði berst höfðingleg gjöf Olaffa Valdemarsdóttir afhendir Kjartani Jóhannssyni, formanni Styrktarfélags aldraðra í Hafnarfirði, gjöfina. Á sameiginlegum fundi stjórna félaganna hinn 23. maf s.l. afhenti frú Ólafía Valde- marsdóttir, fvrsti formaður Húsmæðraskólafélagsins, gjöf- ina, sem alls er að fjárha'ð 1.389.416,- krónur og veitti Kjartan Jóhannsson, formaður Styrktarfélagsins gjöfinni við- töku. I frétt frá Stjórn Styrktar- félagsins segir að það kunni gcfendum alúðarþakkir fvrir þessa höfðinglegu gjöf og meti mikils þá viðurkenningu á starfi félagsins sem f gjöfinni felist. + Ilúsmæðraskólafélag Hafn- arfjarðar gaf nýlega Styrktar- félagi aldraðra f Hafnarfirði allar eignir sfnar, um 1.4 millj. króna, til eflingar félagsstarfi Stvrktarfélagsins. Húsmæðra- skólafélagið var stofnað árið 1942 f þeim tilgangi að vinna að byggingu húsma'ðraskóla í Hafnarfirði, og hafa félagskon- ur aflað fjár með merkjasölu m.a. Með tilliti til breyttra að- stæðna hefur stjórnin ákveðið að hætta starfsemi félagsins og láta eignir þess renna til Styrktarfélags aldraðra f Ilafn- arfirði. + Filipe krónprins, sonur Jóhanns Karls konungs Spánar, var nýlega gerður að heiðurs-hermanni í „Minningar-herdeildinni" í Madrid og við það tæki- færi var þessi mynd tekin af rfkisarfanum. Ólafur Kristánsson. skólastjóri HéraSsskólans aS Reykjum, afhendir nemend um skfrteini sfn. Héraðsskólanum að Reykjum færð vegleg bókagjöf í BYRJUN maí var slitið héraðsskól- anum að Reykjum í Hrútafirði að viðstöddum gestum. Skólinn starfaði í 5 ársdeildum frá 1.—5. bekk og tóku 136 nemendur próf við skól- ann. Skólastjóri gerði grein fyrir skólastarf inu s.l. vetur og var i fyrsta sinn i vetur kennd verkleg sjóvinna og siglingafræði, en 12 nemendur stunduðu nám i þeim greinum. Sjö nemendur tóku próf i siglingafæði og öðlast þvi rétt til skipstjórnar á 30 lesta bátum þegar þeir hafa öðlast tilskilinn aldur og siglingartima. Margt gesta var við skólaslitin í tilefni af því að afhent var formlega að gjöf einkabókasafn dr. Valdemars J. Eylands, sem í eru á þnðja þúsund bindi og margt dýrmætra bóka Hefur því verið komið fyrir í skólahúsnæðinu og var það sr Bragi Friðriksson sem afhenti giöfinj þar sem dr Valdemar gat ekk: verið viðstaddur Eir;mg hefur verið tekið í notkun nýtt skólahús, að nokkru frá s.l. hausti, en viðbót smám saman um veturinn eftir því sem verkinu miðaði Það er alls 1000 fermetrar með 6 kennslustofum bókasafni, samkomusal, skrifstofum. kennarastofu og vinnuherbergi kenn- ara o fl og gerði skólastjóri grein fyrir byggingunni við skólaslitin. Menntamálaráðherra, Vilhjálmur Hjálmarsson, flutti ávarp og lýsti hið nýja skólahús tekið í notkun Einnig þakkaði hann bókagjöfina og minntist dr Valdemars J Eylands Dómsmála- ráðherra, Ólafur Jóhannesson, talaði af hálfu þingmanna Norðurlandskjör- dæmis vestra og talaði hann til nem- enda Aðrir sem tóku til máls voru Helgi Tryggvason og Þórður Skúlason og að lokmni athöfninni þágu gestir veitingar í skólanum og kynntu sér bókasafnið go hið nýja skólahúsnæð;. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: Yfir- gengi VERÐTRYGGÐ miðað við inn- SPARISKÍRTEIIMI RÍKISSJÓÐS: Kaup- lausnar- verð | gengi pr. Seðla- kr. 100,- aankans. 1966 2. flokkur 1701 96 1 3.6% 196 7 1 flokkur 1600.02 328% 1967 2 flokkur 1589.67 22 8% 1 968 1. flokkur 1389.66 13 3% 1968 2 flokkur 1307.22 1 2 6% 1969 1 flokkur 976.69 12 7% 1970 1 flokkur 898.79 32.3% 1970 2. flokkut 661 21 12 9% 1971 1 flokkur 625.63 315% 1972 1 flokkur 545.32 12 9% 1972 2 flokkur 470.63 1 973 1. flokkur A 365.73 1973 2 flokkur 338.06 1974 1 flokkur 234 80 1975 1 flokkur 191.95 1975 2 flokkur 146.49 1976 1 flokkur 139.42 1976 2 flokkur 1 13 22 HLUTABRÉF: Hvalur HF Sölutilboð óskast Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF: 1973-C 313.29 (10% afföll) 1975-G 133.99 (10% afföll) VEÐSKULDABREF: 1 árs fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (20% afföll) 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (36% afföll) 5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (45% afföll) HLUTABRÉF: Hafskip HF Kauptilboð óskast Árvakur HF Kauptilboð óskast íslenskur Markaður hf. Kauptilboð óskast PJÁRPEJTinCARPÉIAG ÍJIAnÐJ HP. VERÐBRÉFAMARKAÐUR Lækjargötu 1 2 - R (Iðnaðarbankahúsiriu) Simi20580. Opiðfrá kl. 13.00 til 16 OOalla virka daga EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.