Morgunblaðið - 19.06.1977, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JUNl 1977
18
íW ' < »1 IBUKfif vi 'JmJmgr \ \ W4*;m t-.Jn 5 Jf
míjk í ■ *■ Wf M Jmam. *
éw ■ |§ ^ j W w' llllPl 4 J§
0 Nemendur í Kársnesskóla efndu í lok skólaárs-
ins til sýningar í skólanum á ýmsu er snerti starf
þeirra á liðnu skólaári. Var tilefni einkum það að
skóiinn átti 20 ára afmæli hinn 22. febrúar s.I. og
sagði Gunnar Guðmundsson skólastjóri, að ákvæðið
hefði verið að minnast þess m.a. með þessum hætti.
Á sýningunni gat að lfta ýmis verkefni er nem-
endur höfðu unnið að um veturinn og sagði Gunnar
að nokkuð hefði verið um svokallaða vettvangs-
fræðslu, að nemendur hefðu heimsótt fyrirtæki og
stofnanir ásamt kennurum ogsíðan sett upp sýn-
ingu og greint frá hvernig starfsemi viðkomandi
fvrirtækja og stofnana fór fram. Var m.a. farið f
heimsókn í tvö dagblöð, Morgunblaðið og Þjóðvilj-
ann, Mjólkursamsöluna, Þjóðleikhúsið, Þjóðminja-
safnið og fór einn hópur nemenda í hverja stofnun,
en það voru einkum 11 ára börn, sem fóru í þessar
heimsóknir. Allir nemendahóparnir fóru sfðan í
náttúrugripasafnið.
Þá var einnig nú við skólaslitin efnt til skemmt-
■
N emendur Kársnesskólalíta
í fyrirtæki og stof nanir
unar fyrir foreldra og börnin og sagði skólastjór-
inn að allir árgangar barnaskólans, 6—12 ára börn,
hefðu undirbúið þá skemmtun og að yngstu ár-
gangarnir, 6 og 7 ára börnin, hefðu verið ótvíræðar
stjörnur þeirrar skemmtunar.
Gunnar Guðmundsson, skólastjóri Kársnesskóla,
sagði að þessi vettvangskennsla að fara út f fyrir-
tæki og stofnanir og setja síðan árangurinn upp í
sýningu eftir að búið er að vinna úr öllum gögnum,
væri mjög fróðleg fyrir nemendur, þá gæfist þeim
tækifæri til að sjá hlutina, sem í kringum þá væru,
eins og t.d. dagblöðin, innan frá, hvernig unnið
væri að gerð þeirra og þetta væri reyndar ekki
síður fróðlegt fyrir kennarana. Myndirnar sem hér
fylgja tók Ólafur K. Magnússin á sýningunni í
Kársnesskóla á dögunum.
v.f Forum IM ,
* fc*.
V%atrv f. oo. ~
------y*