Morgunblaðið - 19.06.1977, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JUNÍ 1977
27
Tónlistarhátíð Norræns
æskufólks í Reykjavík:
„Fjölbreytt hátíö
menningarlegs
skuttogara”
52 nútímaverk og eldri verk
0 „ViS viljum auka skilning
og kynna nútímatónlist hér
heima með því að halda hér
tónlistarhátiðina Ung Nor-
disk Musik dagana 20.—26.
júní með um það bil 200
tónlistarmönnum frá íslandi
og öðrum Norðurlöndum,"
sagði Guðmundur Hafsteins-
son formaður íslandsdeildar
Tónlistariðju norræns æsku-
fólks í samtali við Mbl. „Það
hafa margir sýnt góðan skiln-
ing og hjálpsemi við þessa
framkvæmd," sagði Guð-
mundur, „en það hafa einnig
ýmis Ijón verið á veginum,
sérstaklega á sviði fjármála.
Við fengum m.a. 4 millj. kr. í
styrk frá Norræna menning-
armálasjóðnum og á þann
hátt er um gjaldeyrisöflun að
ræða fyrir þjóðina, þvf ella
hefðu þessir peningar farið
eitthvað annað. Við getum
því kallað þessa fjölbreyttu
hátíð menningarlegan skut-
togara til gjaldeyrisöflunar og
tónlistarkynningar. ísland
hefur sem sagt möguleika á
að stuðla að því að verða sér
úti um góð tónskáld til þess
að afla gjaldeyris fyrir þjóð-
ina."
45 ný tónverk eftir ung
norræn tónskáld verða flutt á
hátíðinni, þar af 5 íslenzk, en
einnig verða flutt þekkt og
viðurkennd verk. Auk kunnra
gesta, munu ýmsir íslenzkir
tónlistarmenn taka þátt í tón-
listarvikunni, 100 manna
norræn sinfónluhljómsveit
ungs fólks mun leika, en alla
dagana verða bæði tónleikar
og fyrirlestrar fyrir almenning
og einnig eru æfingar opnar
þeim sem vilja.
íslendingar, 1 5 tónlistarmenn, tóku
fyrst virkan þátt í þessu samstarfi
Norðurlandanna 19 74 í Piteaa f Sví-
þjóð og hafa verið virkir þátttakendur
síðan Komið hefur J Ijós, að mikil
gróska hefur orðið i tónsmiðum hjá
yngri tónskáldum á íslandi, og hefur
UNM samstarfið átt sinn þátt í þeirri
þróun auk kynningar íslenzkra tón-
skálda erlendis.
Að þessu sinni verða um 200 þátt-
takendur frá öllum Norðurlöndunum
tónskáld, hljóðfæraleikarar, fyrirlesarar
o.fl.
Eitt þekktasta tón-
skáld Bandarfkjanna
Þá kemur tónskáldið George Crumb
og fiðluleikarinn Paul Zukofsky á
Bandarfkjunum George Crumb er eitt
þekktasta tónskáld Bandaríkjanna um
þessar mundir Hann er prófessor við
háskóla Pennsylvaniu-fylkis Crumb
mun halda tvo fyrirlestra meðan á
hátíðinni stendur en einnig leiða um-
ræður um verk ungu tónskáldanna
Þrjú verk verða flutt eftir tónskáldið
Black Angels, fyrir strengjakvartett,
Four Nocturnes, fyrir fiðlu og píanó og
Echoes of Time and the River, fyrir
hljómsveit
Flytur nútíma-
tónlist og kynnir
Fiðluleikarinn Paul Zukofsky hefur
getið sér heimsfraegð fyrir flutning nú-
tlmatón|isar Hann er mjög eftirsóttur
jafnt sem fiðluleikari og fyrirlesari um
nútlma leiktækni
George Crumb
Paul Kukofsky
Per Lyng
Námskeið I nútlmastrengjaleik verð-
ur haldið á hátlðinni og mun Zukofsky
stýra þvl Þar mun hann stjórna og
útskýra með tilliti til forms. túlkunar og
strengjatækni, nokkur þekkt strengja-
verk úr tónbókmenntum nútlmans
Auk þess mun hann taka þátt I flutn-
ingi nokkurra verka sem einleikari og
stjórnandi
Af öðrum liðum hátlðarinnar er það
að segja. að seft verður á laggirnar
nemendahljómsveit sem I verða hljóð-
færaleikarar frá öllum Norðurlöndun-
um Hún mun æfa 2 verk eftir ung
norræn tónskáld ásamt þremur nú-
tlmatónverkum eftir þrjú meiriháttar
tónskáld, þá Kryzysztof Penderecki fr
Póllandi. George Crumb og ítalann
Giacinto Scelsi
Auk George Crumb og Paul Zu-
kofsky munu fjórir aðrir tónlistarmenn
halda fyrirlestra á hátlðinni Hans
Abrahamsen, Hans Gefors og Svend
Aaquist Johansen munu fjalla um
serialisma og frjálsar tónsmlðar Þor-
kell Sigurbjörnsson ræðir um islenzka
tónlist
52 tónverk flutt
Á hátlðinni verða flutt 52 verk:
UNG NORCSSK MISIK
FESTIVAL
mvkjaMk
V 1977 /
w-
20.4-2i
Stjórn tslandsdeildar Tónlistariðju norræns æskufólks: Frá vinstri, Karólfna Eirfksdóttir, Bergljót
Jónsdóttir, Þorsteinn Hauksson og Guðmundur Hafsteinsson. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M.
hljómsveitarverk, kammerverk, kór-
verk, elektrónísk verk og einleiksverk
Hvert land leggur til flytjendur að þeim
kammerverkum sem þaðan hafa borist,
svo fremi unnt sé,
Að viðbættum einum tónleikum
samnorrænu sinfóníuhljómsveitarinnar
mun Sinfóníuhljómsveit íslands leika á
tvennum tónleikum Auk verka yngri
tónskáldanna verða þar m a flutt verk
eftir íslenzku tónskáldin Atla Heimi
Sveinsson, Jón Ásgeirsson og Pál P
Pálsson til kynningar á tónlist eldri
fslenzkra tónskálda
Stjórnendur samnorrænu sinfóníu-
hljómsveitarinnar munu verða Norð-
maðurinn Per Lyng og Paul Zukofsky
Páll P Pálsson stjórnar Sinfóníuhljóm-
sveit íslands
Þrfr kórar munu koma fram á hátfð-
inni. þ.e.
Kór Tónlistarskólans í Reykjavfk,
stjórnandi Marteinn Hunger Friðriks-
son Kór Menntaskólans í Hamrahlíð.
stjórnandi Þorgerður Ingólfsdóttir,
Haslev Gymnasiums Kor, stjórnandi
Hans Krarup
Þau verk eftir ung íslenzk tónskáld
sem á hátíðinni verða flutt eru:
Guðmundur Hafsteinsson — Kon-
sert Kantata (f. hljómsveit og 3 karla-
raddir)
Hjálmar Ragnarsson — Movement
for String Quartet (f strengjakvartett)
Jónas Tómasson — Sónata fyrir
fagott og sembal
Snorri S Birgisson — Quintet (f 2
flautur, 2 klarinett og píanó)
Þorsteinn Hauksson — 17 júní.
1 944, No 3 (f segulband)
Alls verða haldnir níu tónleikar á
ýmsum stöðum í borginni Háskóla-
bíói, Þjóðleikhúsinu, Kjarvalsstöðum,
Neskirkju, Hamrahlíðarskóla. Norræna
Húsinu og Háteigskirkju
Dagskrá tónleikanna verður auglýst
jafnóðum
Jæja,loksins cpnp
er hún komin oour
Höfum til sýnis og afgreiðslu, með stuttum fyrirvara, CASE 580 F traktors-
gröfur, á mjög hagstæðu kynningarverði.
Komið, skoðið, reynið og sannfærist um hina tæknilegu yfirburði CASE 580 F.