Morgunblaðið - 20.07.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
158. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. JULI 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter fagnar
áætlun Begins
Washington, 19. júll. Reuter.
CARTER forseti og Menachem Begin, forsætisráðherra Israels, viður-
kenndu við upphaf tveggja daga viðræðna f dag að þá greindi á um
stefnuna i Miðausturlöndum en hétu þvf að leysa ágreininginn.
Begin ræðir við Carter um fsraelska friðaráætlun sem hann skýrir
frá opinberlega á morgun.
Að loknum viðræðum Carters
og Begins í dag var sagt í Hvita
húsinu að friðartillögur Begins
lýstu „framsýni" og væru þess
virði að Arabaríkin athuguðu
þær. Sagt var að þeir hefðu verið
sammála um nauðsyn þess að
stefnt yrði að því að boðað yrði
fljótlega til nýrrar ráðstefnu i
Genf.
Jafnframt sagði ísraelska sjón-
varpið i kvöld að Begin muni
segja Carter forseta að Israels-
menn séu reiðubúnir til óbeinna
friðarviðræðna við Araba ef ekki
geti orðið af ráðstefnu í Genf.
Hægri-
stjórní
Ankara
Ankara, 19. júlí. Reuter.
SULEYMAN Demirel, tilvonandi
forsætisráðherra, sagði f kvöld að
hann hefði komizt að samkomu-
lagi við samstarfsflokka sfna um
myndun nýrrar hægristjórnar.
Hann hyggst afhenda Fahri
Moruturk forseta ráðherralista
sinn annað kvöld.
Demirel sagði af sér eftir kosn-
ingarnar í síðasta mánuði og
sósíaldemókratinn Bulent Ecevit,
leiðtogi stærsta þingflokksins, tók
við, en minnihlutastjórn hans
beið ósigur í atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsingu.
Auk þess sagði israelska sjón-
varpið í kvöld að Begin muni
Framhald á bls. 18.
Poppari
í heróín-
aðgerð
Toronto, 19. júlí. Reuter.
KEITH Richard, gítar-
leikari úr Rolling
Stones, dvelst í geð-
sjúkrahúsi í New York
þar sem hann er í aðgerð
vegna heróínneyzlu.
Lögfræðingur
Richards, Austin
Cooper, skýrði frá þessu
fyrir rétti í Toronto þar
sem hann var handtek-
inn og ákærður fyrir að
hafa undir höndum
heróín og kókain í febrú-
ar.
Ákveðið var að aðrar
undirbúningsvitnaleiðsl-
ur færu fram 2. desem-
ber til að ákveða hvort
fyrir lægju nægar
sannanir til að stefna
Richard fyrir rétt. Hann
var látinn laus á sínum
tíma gegn 25.000 dollara
tryggingu.
Lítið gert úr
áætlun Smiths
London, 19. júlí. Reuter.
BLÖKKUMANNALEIÐTOGAR
og aörir andstæðingar Ian Smiths
forsætisráðherra fordæmdu í dag
og gerðu Iftið úr ákvörðun hans
um að efna til kosninga.
1 Rhódesíu sagði Abel
Muzorewa biskup að fyrirætlanir
Smiths væru „dauðadæmdar frá
byrjun" og séra Ndabaningi
Sithole kallaði áform hans „að-
ferð til að tefja fyrir“. Við þessa
nienn vill Smith semja.
í Dar Es Salaam kallaði Robert
Mugabe kosningarnar „mark-
leysu“ og i Lusaka sagði Joshua
Nkomo: „Við ætlum að flæma
þennan mann burtu og okkur skal
takast það.“ Þessir menn eru leið-
togar „Föðurlandsfylkingarinn-
ar“ sem flestir skæruliðar fylgja
að málum.
Hjá Sameinuðu þjóðunum sagði
formaður nýlendunefndarinnar,
Salim Ahmed Salim frá Tanzaníu,
að kosningarnar væru „herbragð
hvítu stjórnarinnar til að við-
halda yfirráðum sinum yfir land-
inu“.Andrew Young, sendiherra
Bandarikjanna, kvað kosningarn-
ar „tiigangslausar".
David Owen, utanríkisráðherra
Breta, kvaðst telja að kosningarn-
Framhald á bls. 18.
Carter forseti tekur á móti Begin forsætisráöherra við
Hvíta húsið.
Callaghan
vildi fregna
af viðræð-
um Geirs og
Schmidts
Bonn, 19. júlí. AP.
HELMUT Schmidt
kanslari hringdi í dag í
James Callaghan, forsætis-
ráðherra Breta, og skýrði
honum frá ferð sinni til
Kanada, Bandaríkjanna og
tslands.
Callagan hafði sérstak-
lega áhuga á niðurstöðum
viðræðna Schmidts við
Geir Hallgrímsson, for-
sætisráðherra íslands, að
því er talsmaður stjórnar-
innar, Klaus Boalling
skýrði frá.
Símtalið stóð í um 30
mínútur.
Teng skipaður í öll
fyrri embætti á ný
Peking. 19. júll. Reuler.
TENG Hsiao-ping,
aðstoðarforsætisráðherr-
ann sem róttækir steyptu
Teng Hsiao-ping
af stóli i valdabaráttunni í
fyrra, hefur verið skipaður
aftur í öll fyrri embætti
sín að því er skýrt var frá á
veggspjöldum í Peking í
dag.
Tvö tuttugu metra stór vegg-
spjöld með tilkynningu um
endurreisn Tengs voru fest upp í
norðurhverfi Peking. „Við fögn-
um einlæglega og styðjum þá
ákvörðun miðstjórnarinnar að
skipa félaga Teng Hsiao-ping í
stöður varaformanns flokksins,
varaforsætisráðherra, varafor-
mann hermálanefndarinnar og
forseta herráðsins," stóð á vegg-
spjöldunum.
Veggspjöldin virtust njóta opin-
bers samþykkis og engin tilraun
var gerð til að rifa þau niður.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
Methiti gerir usla
í Norður-Ameríku
New York, 19. júlf. Reuter.
METHITI gerði usla í Norður-
Amerfku í dag, búpeningur
drapst, fen þurrkuðust
upp.járnbrautarteinar svign-
uðu og menn komust f vont
skap.
Hitinn í New York mældist
um 38 gráður á celsíus sjöunda
daginn f röð og yfirvöld gerðu
ráðstafanir til að spara vatn.
Eldsvoði sem varð 200 manns
að bana í Brooklyn og virðist
hafa stafað frá fkveikju hefur
vakið ugg um afleiðingar sem
vatnsskortur getur haft.
Slökkviliðsmenn segja að ann-
ar slfkur eldsvoði geti haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar ef
vatnsskortur geri vart við sig.
Lögreglan flýtti sér að gera
ráðstafanir til að koma i veg
fyrir gripdeildir i líkingu við
það sem gerðist eftir myrkvun-
ina í síðustu viku.
Veðurfræðingar segja að ekk-
ert bendi til þess að hitinn
lækki að minnsta kosti ekki i
þessari viku.
I Detroit lögðu
hreinsunarmenn niður
þar sem viðræður þeirra við
Framhald á bls. 18.
sorp-
vinnu
ins kvaðst ekkert hafa um málið
að segja. Ungur maður sem var
staddur þar sem veggspjóldin
voru fest upp var að þvi spurður
hvort fréttin væri opinber. Hann
sagði á ensku. „Þetta eru mjög
góðar fréttir. Við höfum lengi átt
von á þessu.“
Ymislegt hefur bent til þess að
undanförnu að endurreisn Tengs
stæði fyrir dyrum og að háttsettir
valdamenn hafi setið á fundum.
Framhald á bls. 18.
Vietnam
fær aðild
Ncw York, 19. júlí. Reutcr.
Bandaríkjastjórn lét í dag
af andstöðu sinni gegn að-
ild Víetnams að Sam-
einuðu þjóðunum og sam-
þykkti tillögu Öryggisráðs-
ins um að Allsherjarþingið
samþykki inngöngu lands-
ins í samtökin.
Hingað til hefur Bandaríkja-
stjórn beitt neitunarvaldi gegn
umsóknum Vietnams um aðild,
siðast í nóvember, þar sem stjórn
landsins stæði ekki við ákvæði
stofnskrárinnar og héldi leyndum
upplýsingum um týnda banda-
ríska flugmenn.
I maí samþykktu Víetnamar á
fundum i Paris að veita frekari
upplýsingar um flugmennina og
seinna tilkynnti Bandaríkjastjórn
að hún mundi ekki lengur berjast
gegn aðild landsins að SÞ.