Morgunblaðið - 20.07.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1977
25
félk í
fréttum
Og þá var
kátt í
höllinni,
höllinni...
+ Það er fátt sem
kemur Elísabetu
drottningu úr
jafnvægi, en þeg-
ar Mark Philips
tengdasonur
hennar kemur
fyrstur í mark á
hesti sínum verð-
ur hún að Iáta
gleði sína í ljós.
Frænku hennar,
lady Sarah Arm-
strong Jones,
lætur sér fátt um
finnast.
Forsætisráð-
herran fyrr-
verandi orð-
inn kaupmaður
+ Nguyen Cao Ky, fyrrverandi
forsætisráðherra í Suður-
Vietnam, og kona hans, Dang
Guyet Mai, eru orðin kaup-
menn. Þau eiga kjörbúð f út-
borg Los-Angeles, Norwlak, þar
sem þau selja svöngum og
þyrstum Bandaríkjamönnum
mat og drykk.
wimm
Um 50 tonn af málningu fara á
Eiffelturninn sjöunda hvert ár
+ Þegar Eiffelturninn i
París var reistur f tilefni
heimssýningarinnar 1889
reiknuðu menn með a8
hann gæti staðið í 20 ár.
Mörgum fannst hann Ijótur
og skírðu hann „klunna-
legu beinagrindina." En
Eiffelturninn stendur enn
og á hverju ári fara um það
bil 25.000 ferðamenn upp i
topp á turninum til að njóta
útsýnisins. Það er meiri
ferSamannafjöldi en bæði
Frelsisstyttan i New York
og Parthenon-musteriS i
Aþenu geta státað af. Það
kostar líka þó nokkuð að
halda turninum við. Fyrir-
tæki sér um það verk fyrir
Parisarborg og sjöunda
hvert ár þarf að mála hann,
en til þess þarf hvorki meira
né minna en 50 tonn af
málningu. Þessa dagana er
verið að skipta um lyftu i
turninum. Gamla lyftan var
drifin áfram með vatni og
það vildi frjósa á vetrum, en
sú nýja gengur fyrir raf-
magni svo nú geta Parisar-
búar og ferðamenn komist
upp i topp á Eiffelturninum
hvernig sem viðrar.
— Edinborg
Framhald af bls. 23
f jallið þitt. Að vísu ekki hátt,
aðeins 250 m, en mæðir þig
samt, og til kosts verður það að
teljast, að fjallið rís upp úr
miðri borg. — Viljir þú tennis,
— útreiðar, — sund, — skiða-
ferðir, þá er allt þetta til staðar
hér. Sértu náttúrudýrkandi,
hafir yndi af hesti fyrir kerru
eða kind á beit í garði, þá er
vinin þín hér, — gróðurinn, —
margbreytileikinn er slíkur, að
gestur úr norðri á ekkert orð,
er spannar það allt. 870.000 tré,
það segir ekki mikið, en þegar
þau taka að heilsa vordögum
með rauðum, gulum og hvítum
blómum, þá fellur gesturinn i
stafi og finnur, hve hlað hans
hefir verið þröngt, heimur hans
smár. Og þegar granninn tók að
sá tómatfræjum við húsgaflinn,
þá beit hann sig í fingur til þess
að sannfærast um að þetta væri
vökumynd, ekki draumur. —
Hafir þú ánægju af búðarrápi
þá eru hér götur sem eiga sér
fáar likar.
AFREKt SKIPULAGI
Undrandi stara menn á snilli
og framsýni hins 23 ára gamla
arkitekts, James Craig, sem
1767 vann það afrek að skipu-
leggja hinu nýju borg þannig,
að enn flykkjast hingað skipu-
lagsfræðingar til þess að læra
og stæla. Hugsaði þér 1767, þeg-
ar kerrur voru dregnar af klár-
um um krákustigu óskipulegrar
byggðar, — viðast hvar í heim-
inum, að þá skuli hinum unga
manni hafa hugkvæmzt að hafa
göturnar svo breiðar, að i dag,
1977, geta 6 til 7 bifreiðar keyrt
um þær hlið við hlið, og þó
verið afgangur fyrir breið-
göngustígi við hús, og skraut-
reinar eftir miðjum strætum.
Edinborg á honum það lika að
þakka, að við þessar breiðgötur
eru gróðurreitir, þar sem lúnir
menn geta horfið á vit kyrrðar
og hvíldar. Undarlegt að kom-
ast að þvi, að iðnaður getur
þrifizt án þess að vera hreykt á
fegurstu staði borgar. Að baki,
og í skjóli, eru athafnasvæðin,
og virðast dafna mæta vel. Sam-
kvæmt neytendakönnunum,
brezkum, þá er verðlag hér
lágt. Sjálfur hefi ég lítið vit á
slíku, og enn síður eftir að hafa
rekizt á hluti hér í búðum fyrir
6—7 þúsundir aðeins, sem ég
greiddi kaupmanninum minum
heima með 60 þúsundum fyrir f
fyrra. Það er list að skrifa fakt-
úrur, og fyrir þá snilld að krefj-
ast stærri sneiðar af þjóðar-
köku en skussar hljóta fyrir
venjuleg streðverk.
TAKTSTIGI
VIÐ LlFIÐ
Liggi þér reiðinnar ósköp á,
þá hættu þér ekki til Edinborg-
ar, hér er alltof margt sem get-
ur tafið þig: Merkilegar bygg-
ingar, stærðar söfn, kalla á at-
hygli þina timum saman, —
jafnvel sakleysisleg stytta af
hundi tefur þig, meðan þú ert
að kynnast sögu þessa tryggðar-
trölls, sem dæmt var fyrir flæk-
ing, af borgaryfirvöldum, —
eignaðist prófast að vini sem
lausnargjaldið greiddi, og gat
því, með hjálp bakara eins,
gætt grafar húsbónda síns i 14
ár. Stoltir sýna Skotar styttu
Greyfriars Bobby, en lækka
róminn, er þeir tjá, að það var
amerisk hefðarfrú, sem hreifst
svo af sögu dýrsins, að hún lét
gera styttu af hundinum,
tryggð hans til lofs. Sértu „ég á
réttinn bílstjóri“, þá mun hin
hljóða og tillitssama umferðar-
menning Skotanna reynast þér
illskiljanleg. Hafir þú gaman af
að berjast við staðreyndir, sem
þú ræður ekki við, þá berðu
saman tímatöflu strætisvagna
og úrið þitt.
I hverju eru töfrar þinir
fólgnir, Edinborg? Kannske þvi
helzt, að hér finna menn æfing-
arvöll til taktstiga við lifið
sjálft.
Sumarbústaða
og
húseigendur
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR, ALLSKONAR
Handsláttuvélar
Garðslöngur og tilh.
Slöngugrindur. Kranar
VATNSÚOARAR
Garðkönnur, Fötur
Hrífur. Orf. Brýni.
Eylands-ljáir.
Greina og grasklippur.
Músa- og rottugildrur.
Handverkfæri, allskonar
Kúbein. Járnkarlar.
Jarðhakar. Sleggjur
M úraraverkfæri,
Málningog lökk
Bátalakk. Eirolía
Viðarolía, Trekkfastolía.
Pinotex, allir litir
FERNSIOLÍA
Tjörur, allskonar
Kítti, allskonar
Vírbustar, Sköfur
Penslar. Kústar. Rúllur.
Polyfilla-fyllir
Polystrippa-uppleysir
Polyfilla — Cementwork
sement og sandblanda
ÚTI-GRILL
Gas-ferðatæki
Olíu-
f e rða p rím u sa r
Vasaljós. Raflugtir
Oliulampar. Steinolia
Plastbrúsar 10 og 25 Itr.
til viðgerða semment og
sandblanda
Vængjadælur
Gólfmottur
Slökkvitæki
Asbest-teppi
Brunaslöngur
Björgunarvesti
Árar—Árakefar
Bátaspil
Bátalanternur
Bátadælur
Bátabaujur
Silunganet og slöngur
Silunga- og laxalínur
Önglar. Pilkar
ÁL-STIGAR
Sólúr
Islenzkir fánar
Allar stærðir.
Fánalínur. Húnar
Fánalinu-festingar.
Ullar-
nærfatnaður
„Stil-Longs"
Vinnufatnaður
Regnfatnaður
KLOSSAR
Gúmmístígvél
Vinnuhanzkar
Ánanaustum
Simi 28855