Morgunblaðið - 20.07.1977, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULI1977
■ olMAR
jO 28810
car rental 24480
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
LOFTLEIDIR
T* 2 1190 2 11 38
Ef ég kemst
einhvemtíma
úr þessu, þá
er það fyrsta
sem ég geri,
það er að sjá
BingoLohg.
lauqarAs
B I O
Slmi32075
Neyðarvama-
starf RKÍ
liggur fyrir
EGGERT Ásgeirsson, framkvæmda
stjóri Rauða kross íslands, skýrði út í
samtali við Morgunblaðið í gær hið
nýja neyðarvarnaskipulag á vegum
Rauða krossins, sem nú liggur fyrir.
Upphaf þessa var að árið 1974
gerðu Almannavarnir og Rauði kross
íslands með sér samkomulag um
þátt RKÍ í almannavörnum Undan-
farið hefur samkomulagið verið
endurnýjað á grundvelli fenginnar
reynslu, sem hafa verið þær hjálpar-
aðgerðir, sem þessir aðilar hafa haft
samvinnu um.
Jafnframt hefur verið gefið út skipu-
lagsrit og lítil handbók fyrir alla þá
aðila sem taka þátt í og vinna að
þessum verkþætti og einnig fyrir þá,
sem vinna með samtökunum Er þar
átt við almannavarnanefndir og opin-
bera aðila
Að sögn Eggerts Ásgeirssonar er hér
um nokkur þáttaskil að ræða, sem hafa
kostað bæði mikinn tíma og fyrirhöfn
margra manna
Það var ekki fyrr en 1976 sem
neyðaráætlanir deilda RKÍ fóru að taka
á sig ákveðna mynd Var þetta skipu-
lag rætt á fundum RK-deilda á höfuð-
borgarsvæðinu í árslok en skipulag í
smærri atriðum var síðan til umræðu á
fundum lykilmanna hverrar deildar Nú
liggur fyrir skipulag neyðarvarnanna,
eins og mælt hefur verið með að því
verði fyrir komið Er skipulagið útskýrt
allítarlega, bæði sem heildarskipulag
og sem minnislistar fyrir hvern verk-
þátt i bæklingi þeim sem Rauði
krossinn hefur gefið út um neyðar-
varnarstarfið Hverjum minnislista í
bæklingnum fylgir svo nokkur útskýr-
ing.
Sumar deildir eru að vísu það
smáar, að sögn Eggerts, að óhætt ætti
l Framhald á bls. 22
útvarp Reykjavlk
AIIÐMIKUDKkGUR
20. júlf
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir k. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ystugr. dagbl.), 9.00 og 10.00
Morgunbæn kl. 7.50
Morgunstund barnanna kl.
8.00. Gunnvör Braga les sög-
una „Mömmustelpu" eftir
Ingibjörgu Jónsdóttur (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Há-
skólakórinn í Lecco syngur
Magnificat eftir Tomas Luis
de Victoria; Guido
Camillucci stj./Ferdinand
Linda leikur á orgel
Fantasfu og fúgu eftir Franz
Liszt um stef eftir
Meyerbeer.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Liv Glaser leikur pfanótón-
list eftir Agathe Backer-
Gröndahl: Ballöðu í b-moll,
„söng rósanna" og Ævintýra-
svftu op. 44/Frantisék Posta
og Dvorák-kvartettinn leika
Strengjakvintett f G-dúr op.
77 eftir Antonfn Dvorák.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SIÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Sólveig
og Halldór" eftir Cesar Mar
Valdimar Lárusson les (3).
15.00 Miðdegistónleikar
Eduard Brunner og hljóm-
listarflokkurinn Collegium
Musicum f Ziirich leika Lft-
inn konsert fyrir klarfnett og
strengjasveit eftir Jean Bin-
et; Paul Sacher stjórnar.
Nýja fílharmonfusveitin f
Lundúnum og kór flytja tón-
verkið „Pláneturnar“ eftir
Gustav Holst; Sir Adrian
Boult stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar
17.30 Litli barnatfminn
Finnborg Scheving sér um
tfmann.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagilja
Aðalsteinsdóttir.
KVÖLDIÐ
20.00 Einsöngur: Kristján
Kristjánsson syngur lög eftir
fsdlenzk tónskáld.
20.20 Sumarvaka
a. Njarðvfkurskriður
Ármann Halldórsson safn-
vörður á Egilsstöðum flytur
þriðja hluta frásögu, sem
hann skráði f samvinnu við
Andrés bónda f Snotrunesi.
b. „Hér var það, sem Grettir
bjó“
Höskuldur Skagfjörð rabbar
um Drangey.
21.00 Frá Laugardalsvelli:
Landsleikur f knattspyrnu
milli tslendinga og Svfa
Hermann Gunnarsson lýsir
sfðari hálfleik.
21.45 Kórsöngur: Þjóðleikhús-
kórinn syngur.
Söngstjóri: Dr. Hallgrfmur
Helgason.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Sagan af San
Michele“ eftir Axel Munthe
Þórarinn Guðnason les (14).
22.40 Nútfmatónlist
Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrálok.
FIM/MTUDkGUR
21. júlf
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Gunnvör Braga heldur
áfram lestri „Mömmu-
stelpu", sögu eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólf-
ur Stefánsson talar við Har-
ald Ágústsson skipstjóra og
Svein Sveinbjörnsson fiski-
fræðing um kolmunna- og
spærlingsveiðar. Tónleikar
kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Leonid Kogan og hljóm-
sveitin Fflharmonfa leika
Fiðlukonsert f D-dúr op. 77
eftir Johannes Brahms;
Kyril Kondrasjfn stj. / Há-
tfðarhljómsveit Lundúna
leikur „Amerfkumann f Par-
fs“, hljómsveitarverk eftir
George Gershwin; Stanley
Black stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
SIÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Á frfvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Sólveig
og Halldór" eftir Cesar Mar.
Valdimar Lárusson les (4).
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt
Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna innan tólf ára
aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál
Helgi J. Halldórsson flytur
þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar
Jón Gfslason póstfulltrúi
talar um Ingólfsfjall.
20.05 Einsöngur f útvarpssal:
Jón Sigurbjörnsson syngur
vinsæl erlend lög; Ólafur
Vignir Albertsson leikur á
pfanó.
20.30 Leikrit: „Gálgafrestur"
eftir Paul Osborn
(Aður útv. f nóvember
1955).
Þýðandi: Ragnar Jóhannes-
son.
Leikstjóri: Indriði Waage.
Persónur og leikendur:
Pud/ Kristfn Waage, Afi/
Þorsteinn 0. Stephensen,
Amma/ Arndfs Björnsdótt-
ir, Herra Sváfnir/ Indriði
Waage, Marcfa/ Herdfs Þor-
valdsdóttir, Evans læknir/
Róbert Arnfinnsson,
Pilbeam málflutningsmað-
ur/ Jón Aðils, Sýslumaður-
inn/ Klemenz Jónsson,
Grimes/ Baldvin Halldórs-
son.
Aðrir leikendur: Anna Guð-
mundsdóttir og Hákon
Waage.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Sagan af San
Michele“ eftir Axel Munthe
Þórarinn Guðnason les (15).
22.40 Kvöldtónleikar
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Sumarvaka kl. 20,20:
Nýjar leiðir í þáttagerð
Drangey á Skagaf irði
í SUMARVÖKU f útvarp-
inu í kvöld flytur
Höskuldur Skagfjörð,
leikari, þátt tileinkaðan
Drangey á Skagafirði.
Þegar blm. hafði sam-
band við Höskuld í gær
sagði hann að hann
reyndi í þessum þætti að
Höskuldur Skagf jörð
fara nokkuð nýjar leiðir í
gerð slíkra þátta. Sagði
hann að hann byrjaði á
því í þessum þætti að
Skagfirzka söngsveitin
syngi lagið Skín við sólu
Skagafjörður, eftir Sig-
urð Helgason og
Matthías Jochumsson.
Síðan sagðist hann fjalla
nokkuð um þetta lag og
ljóð, en hvorki Sigurður
né Matthías voru Skag-
firðingar.
Höskuldur sagði að það
hefði komið í ljós að
Matthías hefði ort kvæð-
ið í hríðarbyl og miklu
frosti. Hann sagði að
hann myndi síðan lesa
áttunda erindið úr kvæð-
inu og léki Sinfóníu-
hljómsveitin þá með. Það
erindi fjallar um
Drangey. Sagði Höskuld-
ur að hann myndi þá
fyrst fara að ræða um
Drangey, fyrst um Gretti
og Illuga en síðan um
staðhætti í eynni, og sögu
hennar, en hún var fyrr á
öldum einatt nefnd
forðabúr Skagafjarðar.
Einsöngur kl. 20,00:
Gamlar hljóðritanir Kristjáns Kristjánssonar
í KVÖLD er á dagskrá
útvarpsins þáttur þar
sem Kristján Kristjáns-
son söngvari syngur lög
eftir íslenzk tónskáld.
Þessi þáttur er raunar
safn hljóðritana af
gömlum plötum.
Kristján syngur lög eft-
ir Markús Kristjánsson,
Emil Thoroddsen,
Höskuld J. Ólafsson,
Þórarin Guðmundsson,
Inga T. Lárusson, Pál
Isólfsson og Sigfús
Einarsson. Ýmsir aðilar
annast undirleik, m.a.
Útvarpshljómsveitin,
Útvarpstríóið, Emil
Thoroddsen og Fritz
Weisshappel
Þáttur þessi hefst kl. 20.00.