Morgunblaðið - 20.07.1977, Síða 12

Morgunblaðið - 20.07.1977, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULI 1977 Járnblendi- verksmiðjan á Grundartanga rís: VERSKMIÐJUHÚSIÐ KEMUR I STYKKJUM FRA NOREGI Staðarverkfræðingur og umsjónarmaður framkvæmd- anna af hálfu járnblendifélags- ins er Guðlaugur Hjörleifsson, verkfræðingur. Er hann full- trúi og forsvarsmaður félagsins gagnvart þeim verktökum, sem að framkvæmdunum vinna. Guðlaugur er ekki með öllu ókunnugur framkvæmdum sem þessum, því um 13 ára skeið var hann forstjóri Landssmiðjunn- ar og annaðist þá m.a. fram- kvæmdir á vegum Síldarverk- smiðja ríkisins en einnig hefur hann unnið við byggingar virkj- ana hjá Rafmagnsveitum ríkis- ins. Við hittum Guðlaug að máli í nýreistu skrífstofuhúsnæði Járnblendifélagsins á staðnum en félagið hefur nýverið flutt skrifstofur sinar að Grundar- tanga. Fyrst var Guðlaugur spurður um að hvaða fram- kvæmdum væri nú unnið að á vegum félagsins á Grundar- tanga? — Nú eru hér á svæðinu þrir verktakar. Istak hefur með höndum steypuvinnu við ofn- hús, daggeyma og undirstöður fyrir verksmiðjuhúsið, sem verður að mestu leyti stál- grindahús. Stálgrindahúsið verður reist á vegum norsks fyrirtækis, Kværner Brug a/s, en stálgrindin verður smiðuð í Noregi en sett upp i samvinnu við fyrirtækin Hamar h/f, Héð- ín h/f, Stjálsmiðjuna h/f og Þorgeir og Ellert h/f á Akranesi. Þriðji verktakinn er Berg h/f sem er samsteypa nokkurra verktakafyrirtækja á Akranesi og vinna þeir hér að uppsetningu girðingar um- hverfis lóðina. — Gert er ráð fyrir að um miðjan ágúst verði búið að steypa upp það mikið af dag- geymunum og undirstöðum fyr- ir stálgrindahúsið að uppsetn- ing þess geti hafizt. Stykkin í stálgrindina eru byrjuð að koma til landsins og fjórir starfsmenn frá norska fyrir- tækinu eru komnir hingað til að undirbúa uppsetningu húss- ins. Þá hefur einnig verið byggt hér skrifstofuhúsnæði fyrir Islenzka járnblendifélagið og mötuneyti fyrir alla starfsmenn á svæðinu. Þetta eru hvorugt varanlegar byggingar en koma sjálfsagt til með að standa hér eitthvað fram yfir að byggingu verksmiðjunnar verður lokið. Nú er einnig haldið áfram við gerð vinnubúða, sem hófst í fyrra og um mánaðamótin verð- ur hér svefnaðstaða fyrir rúm- lega 200 manns. Auk þess er nú verið að reisa 260 fermetra félagsheimili fyrir starfsfólk. 200 MANNS VIÐ VINNU A GRUNDARTANGA UPP UR ARAMÓTUM — Á svæðinu hafa að undan- förnu verið við vinnu milli 80 og 100 manns en starfsfólk við hafnargerðina er ekki með í þessari tölu. Starfsfólki hér fer fljótlega að fjölga og væntan- lega verður það flest upp úr áramótum, þegar vélaniður- setning hefst. Þá er ráðgert að hér verði um eða yfir 200 manns. Af öðrum framkvæmd- um, sem unnið verður að í sum- ar og ég hef ekki nefnt, er bygging lagerhúsnæðis, ýmsar Þeir stjórna vinnu við gerð hafnar á Grundartanga. Guðmundur Hjartarson verkstjóri til vinstri á ntyndinni og Júllus Anórsson tæknifræðingur. I baksýn má sjá hvar sanddæluskipið Perlan er að losa efni I hafnargarðinn. Fyrri ofn af tveimur í notkun í byrjun árs 79 — hinn 1/2 ári síðar Á GRUNDARTANGA við Hvaifjörð er nú að rísa járnblendiverk- stniðja tslenzka járnblendifélagsins h.f., en ráðgert er að fyrri ofn verksmiðjunnar af tveimur verði tekinn f notkun á fyrsta ársfjórðungi ársins 1979 og sá seinni einu og hálfu ári síðar. Þegar hefur verið skipt um jarðveg á byggingarsvæði verk- smiðjunnar og er nú unnið að byggingu ofnhúss, hráefnisgeyma og undirstaða fyrir sjálft verksmiðjuhúsið, sem verður að mestu stálgrindahús. Þá er einnig unnið að gerð hafnar á Grundar- tanga, sem byggð er á vegum Borgarfjarðarsýslu og sveitarfél- aganna í nágrenni Grundartanga. Mogunblaðsmenn heimsóttu Grundartanga fyrir helgina og ræddu þar við starfsmenn. Hér á eftir veiður greint frá stöðu framkvæmda á Grundartanga en sfðar birtast viðtöl við fleiri starfsmenn. Guðlaugur Hjörleifsson staðarverkfræð- ingur. GLEYMUM MENGUN A LITLUM VINNUSTÖÐUM VEGNA STÓRIÐJU Guðlaugur sagði að þeir hefðu haft mjög gott samstaf við nágranna verksmiðjunnar og það væi*i ekkert undan sam- býlinu við þá að kvarta og er við vikum talinu að umræðum um hugsanlega mengunar- hættu frá verksmiðjunni, sagði Guðlaugur: — Við Verðum fyrst að spyrja lagnir innan svæðisins og undirstöður fyrir aðrar bygg- ingar og búnað sem hér á að rísa. — Starfsfólk hér kemur mik- ið úr nágrenninu, Skilmanna- hreppi og Akranesi en um helmingur starfsfólksins hefur hér viðlegu og eru aðkomu- menn. Þeir, sem búa i nágrenn- inu fara til og frá vinnu kvölds og morgna. Það er ætlunin að bygging verksmiðjunnar verði nær eingöngu framkvæmd af íslendingum og nú eru hér ekki aðrir útlendingar en þessir fjórir menn á vegum Kværner auk örfárra tæknimanna, sem koma að utan. Verksmiðjuhúsið á Grundartanga verður stálgrindahús og eru nú þegar komin um 600 tonn af efni I húsið. Eins og sjá má er hvert stykki vendilega merkt og eftir þeim er húsinu raðað saman stykki fyrir stykki. Hringurinn á myndinni er undirstaða undir annan ofn verk- smiðjunnar. Þá má einnig sjá hvar verið er að steypa undirstöð- ur fyrir verksmiðjuhúsið. Grein: Tryggvi Gunnarsson Myndir: Ragnar Axelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.