Morgunblaðið - 20.07.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULI 1977
13
þeirrar spurningar, hvað er
mengun? Menn nota þetta orð
mjög frjálslega og sjaldnast án
þess að gera sér fulla grein
fyrir þvi hvað þeir eiga við. Við
getum tekið sem dæmi, að ef
talað er um mengun frá skolp-
ræsum eins og t.d. við Reykja-
vík og Akranes, þá er henni
ekki til að dreifa hér. Því fyrsta
mannvirkið sem byggt var hér
var rotþró. Varðandi ryk og
annað, sem berast kann frá
verksmiðjunni, hefur frá upp-
hafi verið gert ráð fyrir þvi af
hálfu félagsins og samkvæmt
kröfu heilbrigðisyfirvalda að
slikt verði ekki til að valda
óþægindum. Verða þvi sett upp
sérstök hreinistæki, sem hindra
að þessi efni berist út og þó svo
að eitthvað færi út, þá er það
ekkert hættulegt. Ég er búinn
að starfa í málmiðnaði í 13 ár og
veit að það er yfirleitt meiri
„mengun", og þá hef ég orðið
innan gæsalappa, i annarskon-
ar fyrirtækjum en þessari verk-
heldur búi þeir i nágranna-
sveitum hennar en nefna má að
17 kilómetrar eru til Akraness
frá verksmiðjunni.
STALÞIL REKIÐ A MEIRA
dvpi en aður
Byggingaframkvæmdir við
höfn á Grundartanga eru í
höndum starfsmanna Hafnar-
málstofnunar en höfnin er
byggð fyrir hafnarnefnd
Grundartanga, sem að standa
sveitarfélögin f nágrenninu og
Borgarfjarðarsýsla. Er gert ráð
fyrir að jafnframt þvi, sem
þarna verður aðstaða til losun-
ar og lestunar á hráefnum og
framleiðsluvörum járnblendi-
verksmiðjunnar, verði þarna
aðstaða til uppskipunar á vör-
um til dreifinar um Vesturland
og annað, sem henta þykir.
Járnblendifélagið stendur þvi
ekki að hafnargerðinni en hins
vegar er gert ráð fyrir að verk-
Július sagði að það, sem einn-
kenndi þessa hafnargerð væri
mikið dýpi í höfninni en þar
verður 120 metra viðlegukant-
ur með 7,5 metra dýpi og eiga
þar að geta lagzt að allt að 3500
þúsund tonna skip. Við enda
hafnargarðsins verður 55 metra
viðlegukantur með 10 metra
dýpi. Fram kom að ekki hefur
fyrr verið rekið niður stálþil á
jafnmikið dýpi hér á landi áð-
ur, en hæðin á stálinu, sem rek-
ið verður niður á Grundartanga
verður 20 metrar en mest hefur
verið rekið niður 14 metra hátt
stálþil. — Þetta krefst stærri og
meiri tækja en að öðru leyti er
vinna við þessa höfn ekki frá-
brugðin vinnu við aðrar hafnir,
sem byggðar hafa verið hér á
landi síðustu árin.
Nú vinna 38 manns við
hafnargerðína og sagði
Guðmundur að litlar breytingar
yrðu á fjölda starfsmanna
nema þá helzt þegar dýpkunar-
skip kæmu á staðinn. A næst-
Mannvirki járnblendiverksmiðjunnar koma til með að sjást vfða að úr Hvalfirðinum, þegar þau verða
að fullu risin og eru reyndar þegar farin að sjást langt að. Húsið, sem stóri byggingarkraninn stendur
við, eru svokaliaðir daggeymar en þeir eiga I framtfðinni að rfsa upp f 40 metra hæð en eru nú orðnir
16 metra háir. I þessum daggeymum verður geymt það hráefni, sem verksmiðjan notar á hverjum
degi. Ofan á ofnhúsið koma hreinsitæki verksmiðjunnar.
smiðju. Það mættu margir lita
sér nær og þá kannski ekki sizt
á ýmsum verkstæðum. Bara af
þvi að þetta er stóriðja — þá
gleymist mengun á litlum
viðnnustöðum, sagði Guðlaug-
ur.
STARFSFÓLK BUl EKKI
VIÐ VERKSMIÐJUNA
Lóð verksmiðjunnar, sem nú
er unnið að þvi að girða, er
tæpir 16 hektarar og þar eiga
að rísa mannvirki verksmiðj-
unnar en hafnarmannvirkin á
Grundartanga eru utan girðing-
arinnar, enda ekki eingöngu
ætluð til að þjóna flutningum i
tengslum við verksmiðjuna.
Vinnubúðir starfsmanna eru
einnig utan girðingar en gett er
ráð fyrir að þær vinnubúðir
standi aðeins meðan á byggingu
verksmiðjunnar stendur.
Ætlunin er að þeir rúmleg 150
starfsmenn, sem koma til með
að starfa við verksmiðjuna,
þegar tveir ofnar hennar hafa
verið teknir í notkun, verði
ekki búsettir við verksmiðjuna,
smiðjan setji þar upp löndunar-
krana og færibönd til flutninga
á hráefni og að sögn Guðlaugs
Hjörleifssonar, staðarverkfræð-
ings félagsins, er ætlunin að
þessi búnaður verði settur nið-
ur seinni hluta næsta sumar.
Ut á uppfyllingu nýju hafnar-
innar hittum við Guðmund
Hjartarson, verkstjóra, og Júli-
us Anórsson, tæknifræðing,
sem hefur eftirlit með fram-
kvæmdunum á vegum
Almennu verkfræðistofunnar,
sem hannað hefur höfnina.
Sanddæluskipið Perlan var að
losa efni í uppfyllingu hafnar-
garðsins þegar okkur bar að en
efninu er dælt upp úr Hvalfirði
og því hæg heimatökin. Ur
landi er ekið efni ofan á fylling-
una. Guðmundur verkstjóri
I sagði að í sumar væri ætlunin
að reka niður 255 metra langt
stálþil, aka ætti fyllingu í
hafnargarðinn og dýpka inn í
höfninni. Þá verður einnig reist
90 fermetra vöruskemma. A
næsta ári verður lokið frágangi
á höfninni s.s. köntum, lýsingu
og lagnir settar niður.
unni er Nýi-Gretti væntanlegur
á staðinn til að grafa upp þar
sem sprengt verður.
BYGGINGARKOSTNAÐUR
VERKSMIÐJUNNAR
16.6 MILLJARÐAR
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Morgunblaðið fékk hjá
forsvarsmönnum Járnblendi-
félagsins, er áætlaður heildar-
byggingarkostnaður verk-
smiðjunnar 450 milljónir
norskra króna eða um 16,6
milljarðar islenzkra króna.
Ekki lágu fyrir upplýsingar um
fyrir hversu mikið fé verður
unnið á þessu ári. Kostnaður
við hafnargerðina á Grundar-
tanga er áætlaður milli 500 og
600 milljónir króna og í fjárlög-
um þessa árs eru veittar 250
milljónir króna til verksins.
Að sögn Steingrims Arason-
ar, verkfræðings hjá Hafnar-
málastjórn, fara framkvæmdir
i ár eitthvað fram úr þessum
250 milljónum en ekki sagðist
hann geta sagt um hversu mik-
ið það yrði.
sprang
Eftir
Arna Johnsen
Sfmon Vaughan
Jónas Ingimundarson
Taka léttu lögin
á Vesturlands- og
Vestfjarðaróli
Sigríður Ella Magnúsdóttir
óperusöngkona, Simon
Vaughan óperusöngvari og Jón-
as Ingimundarson pianóleikari
halda í tónleikaferð um Vestur-
land og Vestfirði nú i vikunni
og verða fyrstu tónleikarnir á
Logalandi í Borgarfirði i kvöld
kl. 21.30. Þar verður vígt nýtt
hljóðfæri, flygill sem heima-
menn hafa keypt, en Jónas mun
vigja hljóðfærið og siðan syngja
Sigríður Ella og Simon við und-
irleik Jónasar.
Á föstudagskvöld halda þau
tónleika i Stykkishólmi kl. 9 i
félagsheimilinu og á Patreks-
firði verða þau kl. 9 á laugar-
dagskvöld. Siðustu tónleikarnir
i þessari ferð veróa á sunnu-
dagskvöld kl. 9 i samkomusal
Menntaskólans á Isafirði, en
Eddu hótelin starfrækja heima-
vistina yfir sumartimann.
Þau Sigriður Ella og Simon
flytja eingöngu tónlist af létt-
ara taginu í þessari tónleika-
ferð, syngja úrval af léttum vin-
sælum lögum, innlendum og
erlendum eins og t.d. sólseturs-
ljóð og Carmen.
Sigriður Ella er löngum
landskunn fyrir söng sinn og
m.a. vakti hún mikla athygli
fyrir túlkun sina á Carmen i
Þjóðleikhúsinu. Sigríður Ella
er búsett í Bretlandi um þessar
mundir en kemur heim til
Islands með jöfnu millibili til
þess að halda tónleika og kenna
söng. Á þessu ári hefur hún
m.a. haldið tónleika í Banda-
rikjunum og Kanada.
■ Simon Vaughan hefur að
undanförnu sungið i þremur
óperum i Bretlandi, Papageno :
Töfraflautunni i London og sið
ast söng hann gamanhlutverk í
óperettu eftir Offenbach. Hlaut
hann mjög góða dóma fyrir
túlkun sina i brezkum blöðum.
Jónas Ingimundarson var
skólastjóri Barnamúsíkskólans
s.l. vetur og stjórnandi Karla-
kórsins Fóstbræðra. Hann er
Framhald á bls. 18.
Sigríður Ella í
ströngu tónleikahaldi
SIGRlÐUR Ella Magnúsdóttir
óperusöngkona mun standa í
ströngu tónleikahaldi á megin-
landi Evrópu i haust. I septem-
berlok mun hún syngja á tvenn-
um tónleikum í Belgíu á alþjóð-
legri listahátíð í Brussel og
Gent. Er um að ræða 20 ára
afmæli þessarar viðurkenndu
og þekktu listahátíðar og sér-
lega til hennar vandað i tilefni
afmælisins. Þykir þessi hátið
ein sú virðulegasta í Evrópu, en
þangað koma heimsþekktar
hljómsveitir og söngvarar. M.a.
má nefna Arleen Augér frá
Bandarikjunum, kunna sópran-
söngkonu, og bassann Stafford
Dean frá Bretlandi.
Þá hefur Sigriði Ellu verið
boðið að syngja í útisöngleika-
höll i Verona á Italiu i haust, en
söngleikahöllin sem er æva-
gömul tekur 20 þús. gesti i sæti.
Þá mun Sigriður Ella taka
þátt i keppni i ljóðasöng i Bret-
landi í september, en til keppn-
innar voru valdir 40 söngvarar
úr hópi hundruða sem sóttu
um. A þessum tónleikum er
skylt að syngja lög eftir
Schubert og Benjamin Britten.
Kvaðst Sigríður vonast til að
geta fengið Ölaf Vigni Alberts-
son sem undirleikara á þeim
tónleikum.
Góð verðlaun eru í boði á
ljóðatónleikunum og nema
fyrstu verðlaun kr. 700 þús.
Sigríður Ella hefur verið hér
heima að undanförnu i sumar-
leyfi og viku af leyfinu eyddi
hún i Vestmannaeyjum við að
raddþjálfa Kirkjukór Vest-
mannaeyja. „Söngkennsla er
mitt hjartans mál“, sagði
Sigríður Ella í stuttu samtali,
en ég hef ekkert getað fengizt
við kennslu í vetur, „það er svo
skemmtilegt að komast i tengsl
við sönggleðina hjá áhugafólki.
Þar kemur fram sá tónn sem oft
vill tapast i atvinnumennsk-
unni“.
Sigriður EUa Magnúsdóttir