Morgunblaðið - 20.07.1977, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULI1977
29
Tj /-»
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
r\y njArmn
veldisbæinn í Þjórsárdal. Eftir að
ákveðið var að sá bær yrði byggð-
ur. Og er þá auðvitað sjálfgefið að
allir hlutaðeigandi aðilar sjái um
varðveizlu hans og geymslu. Þó
raunsanna mynd geti bærinn tæp-
lega gefið en þó mun vera farið
þar eins nærri réttu lagi og mögu-
leikar eru á, og eftir því sem
Islendingasögur greina frá um
húsaskipan á dögum landnáms-
ins. En hvernig sem við lítum á
þetta mál er það virðingarvert
framtak þeirra sveitarfélaga er að
því stóðu. Og ber landsmönnum
öllum að þakka það og virða.
Þessi fámenni sérkredduhópur
torfusamtakanna ætti að láta sér
nægja að hafa fyrir augum Al-
þingishúsið og Menntaskólann, en
báðar munu þessar byggingar
vera hannaðar, eins og nú er sagt,
af dönskum byggingarmeisturum
og eru hin prýðilegustu og
fegurstu hús að öllu lyeti. Og bera
danskri byggingalist gott vitni.
Skiptir þá ekki máli þó undan
beri rottuholur torfuhúsanna, því
engar sögulegar minjar hafa þau
að geyma er nokkurs eru verðar.
Hið eina rétta í þessu máli er að
menntamálaráðherra ásamt borg-
aryfirvöldum taki saméiginlega
þá ákvörðun að hreinsa alla húsa-
kofana burtu af lóðinni. Svo á að
byggja á þessari ágætu lóð nýtt og
glæsilegt stjórnarráðshús, er taki
mið af byggingarstíl Menntaskól-
ans og myndi slík bygging stór-
auka á fegurð miðborgarinnar öll-
um borgarbúum til ánægju.
En auðvitað myndi sérkreddu-
hópurinn yggla brúnir og belgja
sig allan upp af andlegu ger-
púlveri i svipuðum dúr og hópur-
inn á Arnarhólstúninu forðum tið
þegar bygging Seðlabankahússins
var hafin. Og ætlaði þá allt vit-
laust að verða i þessu fámenna
landi okkar norður við dumbshaf-
ið. En öll sík viðbrögð nú getum
við látið lönd og leið.
Lokaorð. I stuttu máli sagt er
nýsmíði Bernhöftshúsarústanna í
sama formi og þau áður voru ekk-
ert annað en undarlegar skoðanir
fámenns hóps, og er öfgaskoðun-
um þessa fólks bezt lýst með öfug-
mælavisu Bjarna Jónssonar,
Borgfirðingaskálds, frá 16. öld:
„Gott er að láta salt í sár
og seila fisk með grjóti
bezt er að róa einni ár
í ofsa veðri á móti.“
Þorkell Hjaltason."
Það eru greinilega ekki allir á
éitt sáttir með hvað eigi að gera
við „Torfuna" og ef til vill liggur
aðalágreiningurinn í þvi hvort
menn álita húsin sem skemmdust
af eldinum þess virði að þau verði
varðveitt í upprunalegri mynd
eða bara einhver hús, gömul og
dönsk, sem hafa engar sögulegar
minjar að varðveita. Stundum
getur e.t.v. verið erfitt að velja
um hvað beri að varðveita af eldri
húsum og hvað ekki og það væri i
framhaldi af þessu fróðlegt að
heyra skoðanir fólks á þeirri hyg-
mynd bréfritara að reisa nýtt
stjórnarráð á Bernhöftstorfunni.
Þessir hringdu . . .
0 Bæn um sól
Jóhann Siggeirsson:
—Mig langar að koma með
smá hugmyndir um tvennt sem ég
hefi verið að hugleiða að undan-
förnu. Ég hef síðustu 2—3 helgar
hlustað á presta og hef líka komið
í Fíladelfiu og þar er fallegur
söngur. En það sem ég vildi fá áð
nefna hér að hvort menn gætu nú
ekki sameinast um að biðja Guð
og Jesúm Krist um að sólin skini
nú dálitið á okkur hér á Suður-
landinu. Þetta er bæn manns sem
er búinn að vera hér í nærri 70 ár
og væri þakklátur fyrir að aðrir
sem vildu, tækju þátt í þessari
bæn með honum.
% Bæn fyrir
krónunni
Hitt atriðið sem ég vil fá að
nefna hér er varðandi krónuna
okkar, en islenzka kronan er svo
lágt skráð i dag að það er nærri
þvi verið að ganga af henni
dauðri. Krakkarnir eru farnir að
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Skák þeirra Taborovs, sem
hafði hvitt og átti leik, og Sturua
á eldra unglingameistaramóti
Sovétríkjanna í ár, er gott dæmi
um hversu óhentugt það getur oft
verið að láta drottningu valda
léttari mann.
21. Rd5! (21. Ra2 — Dxb2 22.
Bxe7 — Dxa2 var ekki nærri því
eins afgerandi) exd5 22. c3 —
I)c5 23. b4 — Dxc3 24. Bxf8 og
hvitur vann skiptamun og skák-
ina.
henda henni, þeim finnst hún
vera hálfgert drasl. Mér fyndist
fræðandi að geta fengið svör frá
einhverjum af öllum þeim banka-
mönnum, sem til eru í landinu,
svör eða upplýsingar um hvort
krónan okkar sé endanlega að
falla i valinn. Er hreinlega verið
að ganga af krónunni dauðri spyr
ég bara aftur?
Þessum beiðnum Jóhanns er
hér með komið á framfæri og
þetta með krónuna er ef til vill
mál sem fleiri vildu tjá sig um.
HÖGNI HREKKVÍSI
þessum stór-hópferðum!
Frá aðalfundi Vinnufélag8 iðnaðarmanna:
Ráðgerir rekstur jám-
iðnaðarfyrirtækis
FYRIR nokkru var haldinn í
Reykjavík aðalfundur Vinnu-
félags iðnaðarmanna og segir f
frétt frá félaginu að rekstur þess
hafi á síðasta ári gengið allvcl.
Söluvelta var yfir 100 m. kr. og
var veltuaukning frá árinu
1975—’76 268%. Félagið rak á
síðasta ári rafvirkjaverkstæði f
Reykjavfk, Sauðárkróki, Kópa-
skeri og f Hafnarfirði, en þar rek-
ur félagið einnig raftækja-
verzlun. Stefnir félagið að þvf að
koma starfsemi sinni á sem vfðast
um landið og samþykkti aðal-
fundurinn að skrásetja rafmagns-
fyrirtæki á Raufarhöfn.
Öll rafmagnsverkstæði
félagsins starfa undir fyrirtækja-
nafninu Rafafl og eru fastir
starfsmenn milli 30 og 40 og náðu
verkefnin til allra greina rafiðn-
aðar. Stærsta verkefnið var að
annast allar raflagnaframkvæmd-
ir við Kröfluvirkjun og hefur
félagið þar að auki alla verk- og
ræknistjórnun á framkvæmdum
sinum við virkjunina og er það i
fyrsta skipti sem islenzkum raf-
verktaka er falið það við virkjana-
gerð.
Á fundinum var samþykkt að
stofna deild i fyrirtæki Rafafls í
Reykjavik til þjónustu við
almenning varðandi hvers kyns
viðhaldsþjónustu á raflögnum og
raftækjum. Verður þessari þjón-
ustu komið á innan tíðar.
Á aðalfundinum nú var lögum
félagsins breytt til samræmis við
breytingar á lögum um samvinnu-
félög, sem samþykkt var á siðasta
Rafvirki frá Rafafli við töfluteng-
ingu ( stöðvarhúsinu við Kröflu,
en Rafafl annast allar raflagna-
framkvæmdir þar.
alþingi. Starfar félagið nú í einni
deild, en ekki í tveimur eins og
áður, og er starfsemi-þess nú ekki
lengur bundin við atvinnurekstur
i rafiðnaði, heldur er markmið
þess að hefja starfsemi i flestum
greinum iðnaðaf. Nafni félagsins
var breytt ó fundinum til sam-
ræmis við þetta og heitir félagið
nú Framleiðslusamvinnufélag
iðnaðarmanna. Gekk þegar inn á
fundinum hópur járniðnaðar-
manna enda var samþykkt að
hefja undirbúning að starfrækslu
fyrirtækis í járniðnaði.
Björk Axelsdóttir setur afmælishófið.
Kvenfélagið Einingin 50 ára
FYRIR nokkru hélt Kvenfélagið
Einingin á Höfðakaupstað upp á
50 ára afmæli sitt, en félagið var
stofnað hinn 27. marz 1927. Náði
það upphaflega yfir allan hinn
forna Vindhælishrepp og sátu I
fyrstu stjórn félagsins; Emma
Jónsdóttir, Spákonufelli, for-
maður, Björg K:rlsdóttir Bernd-
sen, Skagaströnd. ritari, og Karla
Helgadóttir, Ásbergi, gjaldkeri.
Fljótlega voru stofnuð sérfélög
í sveitunum og á stefnuskrá
félagsins hefur verið að vinna að
ýmsum menningar- og mannúðar-
málum, og efla ýmis konar fram-
farir kvenna á sinu félagssvæði.
Hefur félagið m.a. tekið þátt i
byggingu félagsheimilis, gefið
tæki til læknisbústaðar og barna-
skóla, prjónað neyðarfatnað á 70
sjómenn o.fl.
Afmælishóf var haldið í félags-
heimilinu Fellsborg og var öllum
Skagstrendingum og fleirum
boðið til kaffidrykkju. Formaður
félagsins, Björk Axelsdóttir, setti
hófið og minntist nokkurra atriða
úr sögu félagsins og síðan var
sögu þess gerð ýtarlegri skil í
samantekt Elisabetar Arnadóttur
ritara félagsins, sem 3 félagskon-
ur fluttu. Þá voru fluttar margar
ræður og sungið og bárust
félaginu margar gjafirr-
Tvær konur, Guðrún Helga-
dóttir, K^rlsskála, sem er ein af
stofnendum félagsins og Halldóra
Pétursdóttir, Höfðakoti, voru
gerðar heiðursfélagar. Daginn
eftir afmælishófið var öllum
börnum og unglingum boðið
súkkulaði og kökur i félags-
heimilinu Fellsborg og segir i
frétt frá félaginu að þessi
afmælishátið hafi veri hin
ánægjulegasta og kann stjórnin
öllum beztu þakkir fyrir gjafir og
heillaóskaskeyti.