Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977
3
LUDWIG Lugmeier hélt þvf staðfastlega fram við fyrstu yfirheyrsl-
ur aðfaranðtt sfðasta iaugardags að hans rétta nafn væri John
Michael Waller. Hann væri frskur f húð og hár aðspurður um þau
miklu fjárráð, sem hann hefði, svaraði hann þvf til að peningarnir
væru afrakstur viðskipta f Suður-Amerfku. Er hann mætti sfðan
fyrir Sakadómi Reykjavfkur á laugardagskvöld, þar sem f jallað var
um gæzluvarðhaldskröfu rannsóknarlögreglustjóra, sagði hann sitt
rétta nafn vera Ludwig Lugmeier. Hafði hann þá reyndar fyrr um
kvöldið gert boð eftir starfsmönnum rannsóknarlögreglunnar og
kvaðst vilja breyta sfnum fyrri framburði.
Komu þessar upplýsingar
fram á fundi með fréttamönn-
um í gær, en þar greindi Hall-
varður Einvarðsson, rannsókn-
arlögreglustjóri, frá rannsókn
málsins, sem nú er lokið hér á
landi. Svaraði hann spurning-
um fréttamanna ásamt þeim
Nirði Snæhólm, yfirlögreglu-
þjóni, Ivari Hannessyni og
þýzku rannsóknarlögreglu-
mönnunum Dieter Ortlauf og
Karl-George Heinz.
Eftir að Lugmeier hafði
breytt sínum fyrri framburði
um nafn og hvernig hann
komst yfir féð, viðurkenndi
hann fyrir dómi að hafa komið
hingað til lands 2. marz siðast-
liðinn og flutt með sér 300 þús-
und mörk. Hefði hann fyrst
geymt féð á íverustöðum sin-
um, Hótel Esju og íbúðinni að
strokufangi án heimilisfangs,
skyldi sitja í allt að 20 daga, en
eigi lengur en til kl. 17 þann 17.
ágúst n.k.
Frá þvi á föstudagskvöld hef-
ur verið unnið sleitulaust að
rannsókn á máli Lugmeiers og
auk íslenzku rannsóknarlög-
reglumannanna fylgdust þeir
Ortlauf og Heinz með rann-
sókninni frá þvi á þriðjudags-
kvöldið. Er rannsókninni á máli
Lugmeiers nú lokið hér á landi
og barst rannsóknarlögreglu
rikisins bréf frá saksóknara i
gær þess efnis að áherzla skuli
lögð á að visa þýzka afbrota-
manninum úr landi svo fljótt
sem auðið sé. Gögn og eignir
um mál mannsins hér á landi
skuli afhent v-þýzkum yfirvöld-
um. Þá barst Rannsóknarlög-
reglu einnig bréf í gær frá
Ilallvarður Einvarðsson, rannsóknarlögreglustjóri, situr fyrir enda borðsins og gerir grein fyrir
rannsókn máls Ludwigs Lugmeier hér á landi. Til hægri eru þeir tvar Hannesson og Njörður
Snæhólm, en til vinstri þýzku lögreglumennirnir Ortlauf og Heinz (Ijósm. RAX).
Æsilegum eltingarleik lauk
fyrir tilviljun í Reykjavík
Dúfnahólum 4 i Breiðholti, en
siðan flutt féð austur á Þing-
velli. Hefði hann geymt það þar
í benzínbrúsa í hellisskúta.
Hefði hann viðurkennt að féð
væri hluti þýfis, sem hann
hefði komizt yfir í vopnuðu
ráni i Frankfurt i V-Þýzkalandi
árið 1973. Væru 300 þúsund
mörkin eftirstöðvar hans hluta
fjárins, en hann og félagi hans,
Linden, hefðu skipt þýfinu til
helminga. Mestum hluta pen-
inganna kvaðst Lugmeier hafa
eytt í ferðir sinar um heiminn
og flótta undan lögreglunni,
uppihald og við spilaborð i ýms-
um löndum.
Lugmeier tókst að forðast
vestur-þýzku lögregluna og
Interpol þar til síðla árs 1974,
en þá var hann handtekinn í
Mexíkó og fluttur til V-
Þýzkalands. Rannsóknarlög-
reglumennirnir Ortlauf og
Heinz, sem hér eru til að fylgj-
ast með rannsókninni og munu
fylgja Lugmeier utan, sóttu
hann þá til Mexikó. Rannsókn
máls þeirra Lugmeiers og
Linden var mjög umfangsmikil
og erfið og drógust réttarhöldin
því á langinn.
Þann 4. febrúar 1976, meira
en ári eftir að Lugmeier var
fluttur frá Mexikó, tókst hon-
um siðan að strjúka úr réttarsal
í Frankfurt. Duldist hann
fyrstu 2 mánuðina eftir flótt-
ann í Bæjaralandi og lifði þá á
stundum sem útlagi. Siðan
dvaldi hann að mestu í Eng-
landi og þá aðallega í London.
Vegabréf það sem hann hafði
undir höndum komst hann yfir
i janúarmánuði síðastliðnum og
var það hrein fölsun. Nafnið
John Michael Waller var til-
búningur hjá rithöfundinum,
eins og Lugmeier titlaði sig. A
þvi vegabréfi hafði hann m.a.
ferðazt til Bahamaeyja, Iran og
að sjálfsögðu Bretlands, en
þangað fór hann héðan 10. júní
og dvaldi þar til að kvöldi 28
júli sl.
Er rannsóknai lögreglunni
bárust gögn og upplýsingar frá
Interpol og lögreglunni i V-
Þýzkalandi var unnt að sann-
reyna að upplýsingar þær sem
Lugmeier hafði gefið og voru
þær hinar sömu. Var siðastlið-
inn sunnudag kveðinn upp
gæzluvarðhaldsúrskurður um
að Ludwig Lugmeier, þýzkur
t þetta vegabréf Lugmeiers hafa tollverðir frá ýmsum löndum sett stimpil sinn athugasemdarlaust.
Illuti peninganna sem Lugmeier kom með hingað til lands. Mest eru þetta þýzk mörk, en einnig ensk
pund, tyrkneskar Ifrur og mynt frá Ekvador, en þangað mun Lugmeier hafa ætlað flytja og hafði m.a.
spurzt fyrir um hversu mikið fé það kostaði að flytja bfl og búslóð þangað með Eimskipafélaginu.
Dómsmálaráðuneytinu þar sem
segir á grundvelli þess að
Lugmeier hafi komið hingað til
lands á fölsuðu vegabréfi skuli
honum visað úr landi og verði
það gert eigi sfðar en 7. þ.m.
Skal rannsóknarlögregla rikis-
ins sjá um að Lugmeiers sé
hæfilega gætt. Fylgir Ivar
Hannesson Þjóðverjanum utan
en á flugvellinum i Frankfurt
verður maðurinn kontinn i
hendur V-Þjöðverja, s(>m þá í
rauninni handtaka hann að
nýju.
I ljós hcfur komið að Lugmei-
er hefur eytt um 23 þúsund v-
þýzkum mörkum hér á landi og
hefur það fé farið í ýmsa hluti,
t.d. bil, húsaleigu i 6 mánuði,
húsgögn og fleira.
Mun Lugmeier hafa ætlað að
fara héðan af landi brott aðfar-
arnótt laugardagsins, en var
tekinn nokkrum tímum áður en
hann hefði stigið um borð i
flugvélina. Upphaflega ætlaði
Lugmeier að dvelja hér i lengri
tima og jafnvel að setjast hér
að. Er hann kannaði með stofn-
un fyrírtækis hér eða með kaup
á jörð, komsl hann hinsvegar að
því að það yrði ekki gert nema
að lögregluyfirvöld kæmust í
málið.
Astæðan fyrir þvi að hann
kom upphaflega til landsins
sagði hann vera þá að honum
fannst orðið of heitt um sig i
Englandi og vildi því reyna eitt-
hvað nýtt. Vegabréf það sem
hann hafði undir höndum er
hann kom hingað hafði hann
komizt yfir i janúar á þessu ári.
A því hefði hann m.a. ferðazt til
Suður-Ameriku, Bahama-eyja,
Englands og svo Islands.
Lugmeier hefur hins vegar
farið mun viðar frá þvi að hann
frandi síðara ránið i V-
Þýzkalandi 1973. Ilefur hann
stungið niður fa>ti i, auk fyrr-
greindra landa, Sviss, Frakk-
landi, Spáni, Bandaríkjunum
og Mexíkö, þar sem hann var
tekirtn 1974. Auk þess hefur
hann þrfvegis komið til V-
Þýzkalands frá þvi hann strauk
i febrúar 1976, en aðeins gert
þar stuttan stanz i hvert skipti.
1 flestum þessara landa hafði
lögreglan i V-Þýzkalandi ein-
hvern pata af Lugmeier, en
ævinlega er þeir kontu á stað-
inn var Lugmeier á bak og burt.
Æsilegum eltingarleiknum
lauk því ekki fyrr en í Reykja-
vik á föstudagskvöldið i síðustu
viku. Varþað fyrir hálfgerða til-
viljun að Þjóðverjinn var tek-
inn hér. Filtarnir tveir sem létu
lögregluna vita um mikil aura-
ráð Bandaríkjamannsins frá
trúlega góð laun fyrir gliigg-
skyggni sína. Þó vildi Hall-
varður Einvarðsson rann-
sóknarlögreglustjóri ekki stað-
Framhald á bls IX.