Morgunblaðið - 06.08.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 6. ÁGIJST 1977
5
BRAGI Hannesson, bankastjóri
Iðnaðarbankans, opnar klukk-
an 3 í dag, laugardag, mál-
verkasýningu i Gallerý Háhól á
Akureyri. Er þetta fyrsta
einkasýning Braga, en hann tók
þátt í haustsýningu Félags
íslenzkra myndlistarmanna
sem haldin var i Norræna Hús-
inu haustið 1975 og sýndi þar
þrjár vatnslitamyndir.
Bragi málar aðallega fígúra-
tivar myndir, það er að segja
landslagsmyndir og myndir af
gömlum húsum. Margar mynd-
anna á þessari sýningu eru
landslagsmyndir að norðan.
Það er Öli G. Jóhannsson list-
málari sem rekur Gallerý Há-
hól, en Bragi brá sér norður
fyrr í vikunni til að setja upp
sýninguna.
Á sýningu hans eru 39 vatns-
litamyndir og 18 oliumálverk.
„Þaó var eiginlega tilviljun
að ég byrjaði að mála" sagði
Bragi í stuttu spjalli við Morg-
unblaðið. „Ég byrjaði að þreifa
mig áfram á þessari braut fyrir
rúmum tiu árum og hef notið
tilsagnar Hrings Jóhannesson-
ar listmálara hin síðari ár. Ég
mála alltaf að staðaldri, og fyrir
mér er listmálunin eins og að
taka sér góða bók i hönd. Það er
mjög afslappandi að koma heim
úr starfi og höndla pensilinn.
Þá þeysi ég yfirleitt út úr bæn-
um um helgar, leita út í guðs-
græna náttúruna og mála vatns-
litamyndir. Allar myndirnar,
sem eru á þessari sýningu eru
málaðar síðastliðin fimm ár og
eru til sölu að sjálfsögðu.
Balthasar hefur aðstoðað mig
við að velja myndir á sýning-
una, en bæði hann og Hringur
Jóhannesson hafa hvatt mig
mjög til þessa. Þannig að ég
held það sé tryggt að hér sé
ekki um mjög slæmar myndir
að ræða.“
Með tilliti til þess hve Bragi
byrjaði seint aö mála eða 34 ára
gamall, er hann spurður hvort
teiknun eða málun hafi lengi
átt hug hans. „Jú ég hafði lengi
áhuga á góðum listaverkum. En
sjálfur var ég ekkert sérstakur
í teikningu til dæmis í skóla.
Það voru aðallega vatnslita-
myndir Ásgríms Jónssonar,
sem vöktu áhuga minn, en á
honum hef ég mikið dálæti. Því
byrjaði ég að mála með vatnslit-
um í fristundum rnínum og
hafði gaman af að fylgjast með
hvort einhver árangur yrði. Síð-
an kynntist ég Hringi og hann
hvatti mig óspart til að halda
áfram að mála.“
Hef
enga
listamannsgriUu
Bragi Hannesson við eina mynda sinna f Gallerý Háhól á Akureyri.
„Ég hef meira gaman að því
að mála með vatnslitum heldur
en olíulitum, vegna þess að
annaðhvort heppnast vatnslita-
mynd I fyrstu tilraun eða ekki.
Þú getur ekki málað ofan i
vatnslitamynd eins og oliumál-
verk, þvi þá er ferskleikinn
sem er aðalsmerki vatnslita-
myndanna, horfinn. Þá finnst
mér þægilegt að mála með
vatnslitum en með þeim þarf að
mála mjög hratt.“
Aðspurður, hvort hann ætli
að hætta sem bankastjóri og
snúa sér alveg að málaralist-
inni, hlær Bragi og þverneitar
því. „Mér dettur ekki i hug að
hætta í þessu starfi. Ég hef
enga listamannagrillu og tekzt
ágætlega að samræma banka-
stjórastarfið listmáluninni.“
„Ég stend verr að vígi heldur
en þeir listmálarar sem fást
ekki við annað en listmálun og
þess utan skortir mig þá undir-
stöðumenntun, sem þeir hafa.
Þess vegna les ég mikið af bók-
um um listmálun og reyni að
skoða flest erlend listasöfn sem
ég hef tækifæri til.
■ Meðal listmálara er ég eins og
hinir mörgu hagyrðingar meðal
skáldanna."
Aðspurður um á hvaða list-
málurum hann hafi mest dá-
læti, svarar Bragi: „Island
hefur átt furðulega mikið af
úrvalsmálurum, en ég held ég
hafi mest dálæti á Ásgrími
Jónssyni og Gunnlaugi
Scheving."
„Af erlendum vatnslitamál-
urum hef ég mikið gaman af
Turner hinum enska en Eng-
lendingar hafa átt marga góða
vatnslitamálara, Hollendingur-
inn Jonkind málaði lika stór-
skemmtilegar vatnslitamyndir,
Framhald á bls. 29
EM í bridge:
Island vann
Sviss 15-5
lSLENZKA landsliðið I bridge
gerði sér lítið fyrir og vann Sviss f
nfundu umferð, en fyrir þann
leik var Sviss f þriðja sæti.
Ásmundur, Hjalti, Guðlaugur og
Örn spiluðu fyrri hálfleikinn og
gerðu út um leikinn. Hörður og
Þórarinn komu inn I síðari hálf-
leik sem hélzt I jafnvægi. Lokatöl-
ur urðu 15—5 fyrir Island.
Danir kunna vel við sig . á
heimavelli og vinna hvern sigur-
inn af öðrum og eru komnir í
þriðja sæti, en ítalir fylgja efstu
liðunum eins og skuggi og eru
þeir nú i fjórða sæti.
Röð efstu þjóða eftir 9 umferð-
ir:
Sviþjóð 141, ísrael 131, Danmörk
127, Italía 121, Sviss 119, Bretland
116, Noregur 107, Ungverjaland
102, Belgia 96, Pólland 96, Frakk-
land 89, Holland 89, ísland 88,
Irland 84, Júgóslavia 81, Þýzka-
land 75, Finnland 58, Austurríki
52,5, Spánn 52, Grikkland 45,
Tyrkland 37, Portúgal 27,5.
Islenzka liðið átti að spila við
Israels-meTin í gærkvöldi.
I kvennaflokki eru itölsku kon-
urnar efstar með 60 stig en Panir,
Þjóðverjar og Grikkir eru með 44
stig.
Sýna í anddyri
Norræna hússins
TVEIR Danir, myndvefnaðarkon-
an Anette Hollesen og keramík-
maðurinn Peter Tybjerg, opna I
dag sýningu í anddyri Norræna
hússins og verður sýningin opin
fram til 17. ágúst n.k. Á sýning-
unni eru sýnd ofin teppi úr ull og
fleiri efnum, krukkur í skúlptúr-
stil og skálar úr steini.
Séð yfir vöruhúsið Domus f Rvík.
KRON 40ára
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁ-
GRENNIS er fjörutlu ára I dag en það
var stofnað á fundi I Kaupþingssaln-
um i Reykjavik 6. ágúst 1937. Var
félagið stofnað upp úr Pöntunarfé-
lagi verkamanna i Reykjavik. Kaup-
félagi Reykjavikur, Pöntunarfélagi
Verkalýðs- og sjómannafélagi Kefla-
vikur og Pöntunarfélagi Sandgerðis.
Nú rekur félagið 8 matvöruverzlanir,
3 mjólkurbúðir og 4 aðrar sér-
verzlanir i Reykjavik og Kópavogi. Á
siðast liðnu ári nam velta félagsins
um 1300 milljónum króna en félagar
þess eru rúmlega 14000 og fastir
starfsmenn að jafnaði 140. Núver-
andi kaupfélagsstjóri er Ingólfur
Ólafsson.
Ingólfur Ólafsson kaupfélagsstjóri
sagði í samtali við Mbl. I gær að
afmælisins yrði ekki minnzt með nein-
um sérstökum hætti KRON er nú að
byggja stórt verzlunarhúsnæði i Kópa-
vogi og sagði Ingólfur að það væri alls
4000 fermetra húsnæði á tveimur
hæðum Væri stefnt að þvi að Ijúka
byggingu þess á næsta ári og starfsemi
í þvi ætti að öllum likindum að hefjast
seinnihluta næsta árs. — Aðrar fram-
kvæmdir eru ekki á dagskrá hjá okkur
meðan bygging hússins í Kópavogi
stendur yfir. Við höfum hins vegar
óskað eftir lóð undir stórverzlun i
Reykjavik en ekki fengið Húsnæðið i
Kópavogi er ekki nógu stórt og þvi
verður bygging verzlunar i Reykjavik
það verkefni, sem tekur við næst,
sagði Ingólfur
Leiðrétting
FÁEINAR hvimleiðar prentvillur
slæddust með í minningargrein
um Pál bónda Guðmundsson á
Baugsstöðum i b|laðinu sl. sunnu-
dag. Misritaðist þar þessi setning,
sem leiðréttist hér með en hún
átti að hljóða svona: „Baugsstaðir
voru i þjóðbraut þeirra mörgu er
sóttu verzlun austan úr sveitum
til Eyrarbakka.“
Auk matvöruverzlana rekur KRON
m a vöruhúsið Domus og verzlunina
Liverpool. Félagið hefur einnig fengizt
við sitthvað annað m.a. fiðurhreinsun.
fatahreinsun og gróðurhúsarekstur og
rekið efnagerðina Rekord Formaður
stjórnar KRON er Ragnar Ólafsson
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
THörgmnþibiþiþ
LIT-
SJÓNVÖRP
20”
í HNOTUKASSA
JAPANSKT HUGVIT
JAPANSKUR HAGLEIKUR
JAPÖNSK NÁKVÆMNI
VERÐ AÐEINS KR. 237.700,
Er með kalt einingakerfi
— Betri ending —
Fullkominn in-Line
Myndlampi — sýnir sérlega skýra
mynd
Er fyrirferðarlitiS þó það sé með Er sparneytið (aðeins 120 wött)
20" skermi. Hátalari að framan. Það er auðvelt að stilla tækið
Útsölustaðir: Vörumarkaðurinn, Ármúla 1 a Akureyri:
Reykjavlk, Gunnar Ásgeirsson h.f. Akurvík h.f.
Suðurlandsbraut 16. Glerárgötu 20.
OG HJÁ UMBOÐSMÖNNUM VÍÐA UM LAND
/
]atirm cSfygtiMon k.f.
Suðurlandsbraut 16
S. 35200.