Morgunblaðið - 06.08.1977, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.08.1977, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977 Hér fer á eftir þriðja viðtalið við borgarfulltrúa Sjálfstæ ð isflokksins. Að þessu sinni er spjallað við Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúa og formann félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar. 0 Tveir milljarðar til félagsmála. Sp.: Félagsmálaþættir í fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar eru orðnir fyrirferðarmiklir, Markús; hvern veg skiptist þetta fjármagn á einstök viðfangsefni? Sv.: Fjárhagsáætlun Reykjavik- urborgar fyrir liðandi ár gerir ráð fyrir rúmlega 2000 milljóna króna á útgjaldaliðum „Félagsmála“. Ríflega helmingur þessa framlags eru lögbundin, eða á annan hátt bundin gjöld, til ýmiss konar sjóða: sjúkrasamlags, atvinnu- leysistryggingasjóðs, lífeyrissjóðs starfsmanna borgarinnar — eða Stgrfsemi Félagsmálastofnunar Reykjavikur er margvísleg og fjölbreytt — og engin leið að tína til alla þræði hennar í örstuttu spjalli. 0 Dagvistunarmál Sp.: Dagvistunarmál eru þjón- ustuþáttur, þar sem erfitt er að fullnægja eftirspurn. Hvern veg standa þau mál nú, Markús Örn? Sv.: Rétt er það — á þessu sviði eru mörg verkefni óleyst. Ekki hefur enn reynst unnt að sinna eftirspurn frá öllum þeim aðilum, sem forgangsrétt hafa að dagvist- un fyrir börn sín, einstæðum for- eldrum, námsfólki og öðrum, sem búa við sérstakaar aðstæður. Alls REYKJAVÍKURBORG: FÉLAGSMÁLAÞÆTTIR BORGARSAMFÉLAGSINS til áhugasamtaka, sem borgin styrkir, eins g bindindissamtaka, hjálparsveita og annarrar starf- semi, sem m.a. flokkast undir ör- yggismál og almannavarnir. Und- ir félagsmálin heyra m.a. svo ólík- ir þættir sem heimilishjálp, starf- semi upptökuheimila, stofnana fyrir áfengissjúklinga, tóm- stundastarf aldraðra, mæðra- heimili og fjárhagsaðstoð — og síðast en ekki sizt niðurgreiðslur vegna dvalar barna á dagheimil- um og leikskólum borgarinnar eða í einkadagvistun. 0 Félagsmálaráð og félagsmáiastofnun Sp.: Vilt þú í stuttu máli gera lesendum Morgunblaðsins grein fyrir starfsemi Félagsmálastofn- unar? Sv.: Félagsmálaráð er skipað 7 mönnum, kjörnum af borgar- stjórn. Ráðið heldur fundi viku- lega á vetrum og hálfsmánaðar- lega á sumrum, tekur stefnumót- andi ákvarðanir, sinnir stjórn Fé- lagsmálastofnunar og staðfestir afgreiðslu fjölda mála, er snerta einstaklinga og fjölskyldur, allt að 30 til 40 i hverri viku. Aðalstöðvar Félagsmálastofn- unar eru í Vonarstræti 4 en útibú, fyrir Breiðholtshverfin, erð að Asparfelli 12. Stofnunin skiptist í þrjár aðaldeildir: 1. Fjármála- og rekstrardcild. 2. Fjölskyldudeild: Hún er þrí- skipt eftir borgarhlutum. Megin- áherzla er lögð á fjölskylduvernd (varnaðarstarf og endurhæfingu fjölskyldna, er deildin hefur með að gera). Ráðgjöf skipar verðug- an sess í þeirri viðleitni. 3. Sérdeildir: Þar undir koma Heimilishjálp (t.d. við aldrað fólk f heimahúsum eða í forföllum húsmóður um stundarsakir); Húsnæðisdeild (er annast úthlut- un á rúmlega 700 íbúða leiguhús- næði borgarinnar í samráði við fjölskyldudeild eða ellimáladeild. Deildin gerir og tillögur um út- hlutun söluíbúða á vegum borgar- innar.) Þá er sérdeild er annast málefni aldraðra (velferðarmál þeirra, málefni einstakra skjól- stæðinga, ráðgjöf, fyrirgreiðslu i heimahúsum og hefur milligöngu um vistun og fjárhagsaðstoð vegna dvalar á elli- og hjúkrunar- heimilum. Deildin hefur og um- sjón með tómstundastarfi aldr- aðra og hefur samvinnu við þá aðila, sem að málefnum aldraðra vinna). eru nú á biðlistum úr þessum hópum hátt i 500 börn á dagheim- ili ( heils dags gæzla) og 1200 á leikskóla (Vi dags gæzla). Þrátt fyrir þessa þörf var okkur uppá- lagt með reglugerðarákvæðum stjórnvalda að fækka plássum i þessum stofnunum um 90 á skömmum tima. Ákvæðin voru sniðin eftir Norðurlandastaðli en framkvæmd hér á mun skemmri aðlögunartíma en gert var annars staðar. Verður þetta að teljast ótímabær „lúxus“ miðað við allar aðstæður. Já, þú spurðir um stöðu þessara mála. Hér í Reykjavík eru nú um 8700 börn, 5 ára og yngri. Þar af eru 1195 á dagheimilum og 1812 á leikskólum, samtals 3007 eða 34,3% heildarfjöldans. Auk' þess eru 645 á fjölskyldudaghcimilum eða 7.5% til viðbótar. Og af því að við berum okkur gjarnan saman við Norðurlöndin í málum sem þessum, þá má geta þess að sam- bærileg tala frá Helsingfors er 31%, Ósló 32% og Kaupmanna- höfn 53%. Hjá nágrannaþjóðum hefst leikskóli við 3ja ára aldur en hér 2ja ára. í Kaupmannahöfn hefur þessi árangur náðst m.a. vegna þess að barnafólki fækkar þar stöðugt og um 25% borgarbúa eru ellilífeyrisþegar. Margir telja að Sviar standi vel að vígi i þess- um málafiokki. í Stokkhólmi eru dagvistunarplássin 20.000 á opin- berum dagvistarstofnunum en á biðlistum 14.000 börn. Sem dæmi • um kostnaðarhlið málsins má nefna að áætlaður stofnkostnaður fyrir 68 barna dagheimili hér er um 100 m.kr. — eða 1.5 m. kr. á barn, er vistun fær. Stofnkostnaður við leikskóla er mun minni. Átlaður kostnaður við 114 barna leikskóla er 55 m. kr. Ríkinu ber að greiða 50% stofnkostnaðar lögum samkvæmt. Hér er um miklar fjárhæðir að ræóa í stofnkostnaði og rekstri. Óraunhæft er því að gera kröfur um heildarúrlausn i einni svipan. Uppbyggingin verður háð efnum og aðstæðum — en mín skoðun er sú að hraða beri lausn fyrir for- gangsflokka, þar sem þörfin er brýnust. Rekstur dagheimila greiðist að 35 hundraðshlutum með vist- gjaldi er foreldri greiðir, um 14.000 krónur á mánuði. Mismun- inn, eða 65 hundraðshluta, greiðir Reykjavikurborg. Kostnaðarhluti foreldra í rekstri leikskóla er hins vegar 60%, borgarinnar 40%. Nú er unnið að byggingu nýs Markús Orn Antonsson, borgar- fulltrúi og formaður félagsmála- ráðs Reykjavíkurborgar. Myndin er tekin á 50 ára afmælishátfð Heimdallar FUS Reykjavfk sl. vor. Sextfu leigufbúðir fyrir aldraða að Norðurbrún 1 (fremst á mynd- inni) — en Austurbrún 6 eru 69 feigufbúðir fyrir aldraða og ein- stæð foreldri. dagheimilis við Suðurhóla í Breið- holti III og tveir leikskólar voru nýlega teknir í notkun í Breið- holtshverfum. Þá er verið að undirbúa byggingu nýs dagvist- unarheimilis i Vesturbænum. Það verður boðið út á næstunni. I áætlun er bygging tveggja stofn- ana (dagheimili/leikskóli — blandað) i Breiðholti I og II. Alls mun borgin verja um 150 m.kr. vegna framkvæmda i dagvist- unarmálum á líðandi ári. 0 Aðstoð við aldraða. Sp.: Hvern veg er varið aðstoð við aldraða í heimahúsum? Þjón- usta við aldraða hefur vaxið hröð- um skrefum á allra siðustu árum. Kostnaður vegna heimilisaðstoðar við aldraða, sem dvelja i eigin- eða leiguíbúðum, var um 112 m.kr. á liðnu ári og verður sýni- lega miklu hærri i ár. Það starfa að jafnaði 240 konur við þessa þjónustu og í fyrra nutu hennar 1000 heimili. Með hliðsjón af þvi að þessi þjónusta getur sparað mikla fjármuni i stofn- og rekstrarkostnaði elliheimila eða sjúkrastofnana, mætti ríkið koma til móts við borgina, kostnaðar- lega, varðandi þennan þjónustu- þátt, sem er almennt góður kostur i öldrunarþjónustu, og stuðlar að því að roskið fólk getur lengur en ella dvalið á eigin heimilum, ef það kýs að hafa þann háttinn á. Hlutfall aldraðra, einstæðra foreldra og fólks, sem þarf félags- legrar aðstoðar við, er mun hærra hér í Reykjavík en annars staðar á landinu. Reykjavíkurborg hefur gert meira á þessu sviði en sveit- arfélög yfirleitt, sem e.t.v. veldur því, að fólk leitar í ríkara mæli hingað. Hér er sennilega auðveld- ara að fá ódýrt leiguhúsnæði hjá sveitarfélaginu en annars staðar og Her á fólk völ á fjölbreyttari atvinnu sem er við þess hæfi. Þessi sivaxandi þörf fyrir félags- lega aðstoð í Reykjavík veldur stjórnendum borgarinnar vissum áhyggjum. Æskilegast er að fé- lagsleg þjónusta dreifist betur um landið allt. Hér gildir sama lög- málið og um dreifingu atvinnu- tækifæra og annars, er stuðlar aó „byggðajafnvægi". Byggðir út um land verða að taka sfrí félagsmál miklu fastari tökum — sumar hverjar— en gert hefur verið og horfast i augu við staðreyndir um félagslegar þarfir, sem kunna að vera fyrir hendi hjá sveitungum, er aðstoðar þurfa við. Varðandi íbúðabyggingar i þágu aldraðra vísa ég til viðtals við Albert Guðmundsson borgar- fulltrúa í Morgunblaðinu sl. laug- ardag, þar sem þeim þætti öldrun- arþjónustu eru gerð góð skil, sem og samþykktar um 7Í4 af heildar- útsvörum i þágu aldraðra. Nú er unnið að byggingu tveggja dvalar- heimila fyrir aldraða á vegum framkvæmdanefndar.sem Albert er formaður fyrir. Auk þess er verið að byggja á vegum félags- málaráðs stórhýsi með leigu- íbúðum fyrir aldraða við Furu- gerði. Þar verða 74 íbúðir, svipað- ar þeim, sem áður hafa verið byggðar við Austurbrún og Norð- urbrún. • Stiklað á stóru. Sp. Sumt sumt af þvf, sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.