Morgunblaðið - 06.08.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. AGUST 1977
25
fclk f
fréttum
+ Það getur komið fyrir alla að detta á afturendann. Jafnt aðalsfólk, sem aðra. En það eru án alls efa
ekki allir, sem geta tekið þvf jafn vel og Mark Phiiip eiginmaður önnu Bretaprinsessu. Ohappið varð á
veíðreiðum f Englandi ekki alls fyrir löngu. Hestur Marks hrasaði og báðir fengu þeir ókeypis bað,
öllum til mikillar skemmtunar. Og ekki sfst knapanum, sem lagðist á jörðina á eftir til að hella úr
stfgvélunum sfnum, eins og sést á meðfyigjandi myndum.
+ Leikarinn frægi, Marlon Brando hefur neyðst
til að fá sér tvo stóra varðhunda til að fá frið f
svefnherbergi sínu. Hann hefur hvað eftir ann-
að orðið fyrir truflunum af ókunnugu fólki um
miðjar nætur. Ekki ails fyrir löngu kom maður
til hans og vildi tala við hann um Guð. Og það er
ekki óalgengt að ungar stúlkur komi í heiinsókn
til hans. En nú hefur hann sem sagt fengið sér
varðhunda, svo vonandi fær hann svefnfrið á
næstunni. Það er ekki alltaf tekið út með sitj-
andi sældinni að vera frægur.
+ Hvort scm þið trúið þvf eða ekki þá er þetta
mynd af mæðgum. Og hvor skiidi vera móðirin
og hvor dóttirin? Jú, móðirin er vinstra megin
og heitir Barbare Bell, og dóttirin heitir
Traycey, þær halda sér f svona góðu formi með
því að spila tennis á hverjum degi. Og hver segir
sfðan að aidur og fegurð fylgist ekki að?
Minning:
Stefán Árnason
„Stefán Árnason er dáinn“, var
sagt i simann. — Skjótt skipast líf
og dauði. Fyrir skömmu hringdi
hann sem oftar til mín, og hafði á
orði að skreppa til borgarinnar og
líta inn, — en kvaðst þó vera
óþægilega slappur, og varla
þekkja sjálfan sig. — En sjálfs
hans voru þó gamanyrðin og
glensið. Það var honum svo eigin-
légt, að vel tryði ég að hann hefði
kvatt þetta lifssvið okkar með
gamanyrðum, og heilsað nýju með
spaugi. — Ekkert hefði verið
Stefáni eðlilegra en að heilsa með
góðum brandara, þótt skammt
væri í alvöruna, undir gamninu.
Stefán fallinn i valinn. — Hann
skákar þvi ekki oftar til mín
tóbaksdósunum, eða bregður sér i
gervi kunnra borgara til að setja
glaðan svip á liðandi stund, eins
og hann gerði svo oft.
Og Stefán þylur manni ekki
famar sögulegan fróðleik. En af
honum átti hann drjúgan skerf i
andans fórum, og óþrjótandi
kímni. Og hann naut þess að
miðla öðrum af hvoru tveggja,
eins og við átti hverju sinni.
Stefán var margslunginn og
forvitnilegur maður, sem hér
verður aðeins minnzt i fáum
kveðjuorðum, við þau þáttaskil,
sem orðin eru. I menningarlífi
Vestmanneyinga var hann virkur
þátttakandi um áratugi, og þeir
munu minnast hans, eins og vert
er.
Stefán var aldinn að árum,
nærri hálfniræður. En til skamms
tíma gætti þess lítið. Hann hlóð á
sig árum, en ekki elli. Ellina vildi
hann sniðganga og forðast, og
honum tókst það. Hann var kvik-
ur á velli, og ungur i fasi, og hafði
sveigjanleika til að blanda geði
við alla aldursflokka. — Hann
varð aldrei gamall, þótt ár væru
mörg að baki.
Stefán var lengi
yfirlögregluþjónn í Vestmanna-
eyjum, og hefur sjálfsagt þjónað
þvi hlutverki með sóma. En eftir-
minnilegri mun hann þó flestum
á fjölum leikhússins. Og trúað
gæti ég, að nú muni margur sakna
þess, að kvikmyndafilmunni var
ekki falið að geyma hann i hlut-
verkum, sem hann var rómaður
fyrir. Og vel hefði sjónvarpið
mátt eiga þar hlut að.
Stefán var skaftfellskur að ætt
og uppruna. En ungur flutti hann
ti Eyja, festi þar rætur og var
meðal þeirra, sem lengst settu
svip á bæinn. Og lengi mun
standa met hanns sem kynnis á
„þjóðhátið" Eyjamanna, þar hafði
rödd hanns hljómað yfir hálfa
öld. Og ég held, að hann hafi
vonað, að svo myndi verða nú, er
hátíðin flyzt á ný í dalinn fagra.
En þar mun styrk rödd hans ekki
hljóma framar. En þar mun hans
minnzt af þeim, er við tekur hlut-
verki hans, og setur sinn svip á
hátiðina, og Eyingar eiga um
marga góða að velja. En Stefán
mun samt ekki gleymast.
Stefán hefur nú lifað „Dauð-
ann“, sem vakti honum engan
ótta, — öllu fremur forvitni.
í rauninni hygg ég, áð hann
hafi vitað? er hann hringdi til min
síðast, að „Dauðinn“ biði á næsta
leiti, en þó líklega eilitið fjær, —
minnsta kosti hinum megin hátíð-
arinnar, sem hann bjóst við að
taka þátt i, — með efahreim þó.
— Grunur? Vissa?
Stundum vitum við, án þess að
vita, hvernig við vitum.
Og að lokum þakka ég Stefáni
löng kynni, og margar
ánægjustundir, — ég óska honum
góðrar ferðar — áfram.
Marteinn M. Skaftfells.
— Systurnar sjö
Framhald af bls. 13
oliuneyzlulöndum Vörn ollufélaganna
við slikum ásökunum er sú að þau hafi
ekki möguleika á sllku þar sem yfir-
völd, bæði I framleiðslu og neyzlurlk-
inu fylgist með verðinu Ef eitt land
kaupir ollu á of lágu verði hlýtur sölu-
landið að snúast öndvert á móti .
Skoðanakannanir vlða um heim eftir
ollukreppuna, sýndu að almenningur
kenndi oliufélögunum frekar um hana
en olluútflutningsríkjunum Margar rik-
isstjórnir gripu I taumana til að tak-
marka vald ollufélaganna, sumar með
þvi að reyna að semja beint við olíu-
framleiðslulöndin um ollukaup og síð-
an skyldu byggðar rikisreknar oliu-
hreinsunarstöðvar og dreifingarnet.
Þessi áform hafa hins vegar engu
breytt. Alþjóðlegu oliufélögin ráða
ennþá mestu á hinum vestræna mark-
aði Systurnar sjö stjórna ennþá oliu-
skipaflotunum, olluhreinsunarstöðvun-
um, vlsindarannsóknum, tækni og
dreyfingu.
Brezki blaðamaðurinn Anthony
Simpson hefur skrifað bók sem heitir
Systurnar sjö, og fjallar hún um ofan-
greint efni.
í Kópavogi vantar heimilisaðstoð sem allra
fyrst. Húsnæði og fæði á staðnum. Upplýsingar
ísíma: 43262.
Rýmingarsala
vegna breytinga.
Jólavörur, dúkaefni, ámálaður strammi, Og
mikið af pakkningum. Bætum nýjum vörum
við daglega.
íarmgrðaurrzlmriit
irla
Snorrabraut 44.