Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGUST 1977
3
„Frekar hundrað
góða lesendur
en hundrað
þúsund slæma"
HÉR Á landi er nú stadd-
ur sænskur rithöfundur
og bókmenntagagnrýn-
andi við „Aftonbladet“,
Bernt Rosengren að
nafni, en hann hefur gef-
ið út tíu bækur; skáldsög-
ur ljóðabækur, leikrit
o.fl.
Bernt Rosengren er
fertugur að aldri og býr í
Stokkhólmi. Morgunblað-
ið ræddi við Rosengren
um daginn um hann
rænna aöstæöna til þess aó geta
komið þessum bókum á alþjóö-
legan markaó. Ef meira sam-
starf væri á milli Noröurland-
anna á þessu sviði væri hægt að
nýta sameiginlegan markað
þeirra til sölu bóka frá öllum
Norðurlöndunum og þyrfti þá
ekki að firra bókmenntaverk
norrænum séreinkennum til
þess að það borgaði sig að gefa
þau út.
„Merkilegt þetta með
eintakafjöldann“
— Það er merkilegt þetta
með eintakafjöldann. Hér á Is-
Rætt við sænska
rithöfundinn
og bókmennta-
gagnrýnandann
Bemt Rosengren
sjálfan og bókmenntir
yfirleitt.
„Verðum að sporna
gegn Kókakóla-
menningunni"
— Ég fékk styrk frá rithöf-
undasamtökunum i Svíþjóð til
að fara hingað, ég hef skrifað
mikið um Norðurlönd og ferð-
ast um þau öll nema tsland,
þess vegna kom ég hingað til
vikudvlaar, en vonir standa til
þess að ég geti haft íbúðaskipti
við íslenzkan rithöfund i um
mánaðartíma nú á næstunni og
þá kem ég aftur með fjölskyld-
una.
— Það eru einkum tvær
ástæður fyrir þvi að ég er
ákveðinn að koma hingað aftur.
í fyrsta lagi held ég að það sé
gott að vera rithöfundur hér,
það er miklu auðveldara að ná
sambandi við fólk hér en í Sví-
þjóð. I öðru lagi er það svo sú
hugsjón mín að efla samstarf
Norðurlanda á sviði menn-
ingarmála. Kókakóla-
menningin streymir yfir
Norðurlönd og við verðum að
sameina krafta okkar til þess að
sporna gegn henni. Annars töp-
um við hinum sérstöku
norrænu einkennum á menn-
ingu okkar og það má alls ekki
verða.
— Það er nú svo að stórveld-
in ráða mestu i menningarmál-
um, sem öðrum málum, en ef
Norðurlöndunum tekst að sam-
eina krafta sína held ég að við
gætum myndað eins konar
menningarlegt stórveldi.
— Það kemur einnig til, að
það er orðið þannig i Sviþjóð að
minnsta kosti að útgefendur
vilja helzt gefa út bækur, sem
bera engin séreinkenni nor-
landi koma skáldsögur ú i 1200
— 2000 eintaka upplagi og i
Svíþjóð, sem er margfalt fjöl-
mennara land, er upplagið á
skáldsögum það sama. Ef það
ætti að taka mið af fólksfjölda
ættu skáldsögur í Sviþjóð að
koma út i u.þ.b. 20 þúsund ein-
tökum
— Annars er þetta svolitið
villandi, þvi að í Svíþjóð er það
þannig að ef bók selst i þúsund
eintökum, má reikna með að 16
þúsund manns lesi hana. Það
eru bókasöfnin sem þarna
koma inn i myndina. Þau eru
mjög mikið notuð í Svíþjóð, sér-
staklega af unga fólkinu, sem
ekki hefur efni á að kaupa bæk-
ur.
— Það má þó ekki einblína
um of á eintakaf jöldann, það er
ekki hægt að dæma um gæði
bóka eftir sölu þeirra.
— Hvað sjálfan mig áhrærir
vil ég frekar að hundrað manns
lesi bók eftir mig og verði fyrir
miklum áhrifum af lestrinum,
heldur en að hundrað þúsund
manns lesi hana sér til afþrey-
ingar.
— Það er alls ekki slæmt að
vera rithöfundur i Sviþjóð
núna. Það hefur batnað mjög
mikið siðustu áratugi. Það er
búið að taka upp launagreiðslur
fra rikinu til viðurkenndra rit-
höfunda og margir rithöfundar
lifa eingöngu á ritstörfum. Það
hefur einnig mikið að segja i
þessu sambandi að rithöfunda-
samtökin eru ákaflega öflug og
reka til dæmis eigið útgáfu-
fyrirtæki.
— Rithöfundar verða nú
fljótt mjög þekktir i Sviþjóð, en
hins vegar eru þeir einnig mjög
fljótir að gleymast ef lítið heyr-
ist frá þeim. Ef rithöfundur
Framhald á bls. 19
Útsýnarferð sólskinsferð með kostakjömm
Símapantanir: 20100—27209
Skrifstofutími. 09.00—1 7.30
AUSTURSTRÆTI 17. II. HÆÐ.
Afríka/Tanger-
Granada, Sevill?
Cordoba, Malaga,
Nerja-hellarnir, Tívolí,
Burrow-safari o.fl.
Brottför vikulega
á sunnudögum.
Tveggja daga ferð
til ANDORRA
- Barcelona, Montserrat,
ofl.
Brottför vikulega
á föstudögum.
Feneyjar - Flórens
- Gardavatn - Verona
Dolmiti-alparnir,
J úgóslavía / Austurríki
og fl
Brottför vikulega
á miðvikudögum.
Geysifjölbreytt úrval skoðunarferða
Frá Frá Frá
Costadel Sol Costa Brava Lignano
NU
fer hver að verða síðastur
að komast í Útsýnarferð
á þessu sumri