Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGtJST 1977 Fáni er dreg- inn að hún, Rabb frá Grænlandi, eftir Inaeborq Einarsson Sleðahundarnir gegna mikilvægu hlutverki í lífi Grænlendinga. Frá Christiansháb. Nýtízku byggingar hafa lífa verið reistar Verið að flá hrein- dýr. Hin sérstæða stelling mannsins fremst á myndinni er einkennandi fyr- ir Grænlendinga, þannig eru t.d. flest- ar steinstytturnar þeirra látnar vera. Myndin neðst í hægra horni er tek- in við skólaslit, en þá klæðast börnin sínu fegursta, þ.e. þjóðbúningnum. Hinir fornu Eskimóar í Grænlandi eiga í útliti og menningu rætur sínar að rekja til steinaldarfólksins í Asíu og meira en 10.000 ár aftur í tímann, og lifðu svo til óbreyttu lífi þar til fyrir um 250 árum, þegar fyrstu trúboðsstöðvarnar voru settar á fót víðs vegar um Græn- land, ýmist af þýzkum eða dönskum trúboðum. Það er ekkert, sem bendir til þess, að búseta Islendinga í nokkur hundruð ár hafi haft nein áhrif á menningu Eskimóa. Jafnvel um síðustu aldamót voru í Thule og kringum Angmagsalik Eskimóar sem höfðu aldrei haft samband við hvita menn. Það eru þess vegna næstum óskiljanlegar breytingar, sem nú- lifandi Grænlendingar eru aldir upp við, og það er ekki undarlegt, að undirniðri sé djúp gjá milli dansks og grænlenzks hugsunar- háttar. Við upplifðum það í fyrsta skipti í einni af löngu gönguferð- um okkar út með ströndinni í Narsaq í S-Grænlandi. Við rák- umst þar á veiðimann, sem sat á kletti með stöngina sína, og þegar við spurðum hann, hvað hann væri að veiða, svaraði hann: „Það veit ég ekki.“ Því það gat hann auðvitað ekki sagt til um, fyrst hann hafði ekki veitt neitt ennþá. Hugsanleg bollalegging um það, hvað hann mundi e.t.v. veiða var fyrir hann jafnfráleit eins og svar hans var fyrir okkur. En svo byrj- aði hann að segja okkur frá því, að faðir hans hefði verið „stor- fanger" — mikill veiðimaður á kajak, og að heimili hans hefði áður fyrr verið á þessum stað. Og hann sýndi okkur, hvar selurinn var dreginn á land og fleginn. „Ef... ef“ — „Imara“ Fari maður niður f kjörbúð K.G.II., Konunglegu grænlenzku verzlunina, og spyrji, hvort þeir hafi „Grönlandsposten“, þ.e. grænlenzkt blað, sem kemur út á grænlenzku og dönsku einu sinni f viku, þá er mjög algengt að þeir svari: „Nei“. — „Er hann ekki kominn?" „Nei“. „Kemur hann á morgun?“ „Imara“ — kannski, segja þeir svo með feimnislegu brosi, af þvf að það vita auðvitað allir, að hann kemur á morgun, ef þyrlan flýgur, ef það er pláss og ef það er þá munað eftir að taka pakkann með um borð f Godtháb. Svo hvers vegna þessi óþolin- mæði? Ég hitti skipstjórann, sem hafði tekið að sér að sigla með lækninn í heilsugæzluferð til einnar af fjarliggjandi byggðum næsta morgun kl. 9. „Jæja,“ sagði ég, „við erum að fara til Ikamiut á morgun." „Imara" — kannski, segir hann. Það getur svo margt gerzt áður en að morgundeginum kemur. — Gamlir Islendingar hefðu sagt: „Ef guð lofar". Svo hugsar fólk, sem lifir í nánu sam- bandi við náttúruna og er algjör- lega háð henni. Hér norðanlega í Grænlandi er hundasleðinn ennþá mikið notað- ur og ómissandi tæki á veturna. Þegar sleðaekill kemur að sérlega brattri brekku eða einhverju öðru erfiðu yfirferðar stanzar hann, leysir hundana frá sleðanum, kveikir á primusnum, sem alltaf er meðferðis og býr til te. Þegar hann hefur lokið við að drekka te og reykja eina pipu er hann tilbú- inn til hvers sem er. Við mundum aftur á móti reyna að ljúka því af og síðan hvíla okkur, en þeir vita af reynslu margra kynslóða, að það þýðir ekkert að nota síðustu kraftana, því að það er enginn til að hjálpa til, ef eitthvað óvænt kemur fyrir. „Ég svaf yfir mig“ Öþolinmæðin i Dönum og að heimta að ákveðnir hlutir séu framkvæmdir á ákveðnum tima er eiginlega óskiljanlegt fyrir marga Grænlendinga. En þeir hafa uppgötvað, að það er ein setning, sem fær Dani til að gef- ast upp og hætta að heimta skýr- ingar á öllu mögulegu og það er: „Eg svaf yfir mig.“ Skóladrengur sem mætir ekki í læknisskoðun eða starfsfólk i rækjuverksmiðjunni, sem mætir ekki daginn eftir skemmtikvöld segir: „Ég svaf yfir mig.“ Og ung stúlka, sem er sagt að koma á ákveðnum tíma vegna fóstureyð- ingar, sem hún hefur sjálf krafizt og mætir fyrst nokkrum dögum seinna svarar lika, þegar hún er spurð: „Eg svaf yfir mig.“ Kæru- leysi, hugsar maður þá. En hver veit nema áhyggjur eða óákveðni kunni að vera raunveruleg ástæða fyrir því, að hún kom ekki. Ef til vill hefur það verið barátta milli nýs og gamals hugsunarháttar, samanber aðra 17 ára stúlku, sem kom til læknisins til þess að láta leggja lykkju. Þau komu sér sam- an um, að hún skyldi koma aftur næsta dag, en það liðu margar vikur, áður en hún kom og hún skýrði frá þvi, að foreldrar henn- ar hefðu verið mikið á móti þvi, að hún hefði ekki ennþá sýnt fram á, að hún væri frjósöm og gæti eignazt barn. Hún sagði lika, að foreldrar hennar ættu erfitt með að aðlagast nýjum hugsunar- hætti, aðarefni og á sjúkrahúsinu er dreginn fáni að hún, þegar barn er fætt, svo að allur bærinn geti glaðzt með móðurinni. Veiðimannseðlið Veiðimannseðlið er ekki langt undan hjá mörgum. Stöðvarstjór- inn í rafstöð á S-Grænlandi hefur mjög duglegan vélstjóra i starfi. En þegar vorar og selurinn birtist grípur hann órói. Fyrsta árið fékk hann fri i 2 vikur til þess að fara á veiðar — og sást ekki aftur fyrr en eftir 6 vikur og bað ákaft um að fá vinnuna aftur, sem hann og fékk. Næsta ár endurtók sama sagan sig, svo nú er það fastmæl- um bundið, að hann hefur 2 mán- uði á hverju vori, en það sem eftir er ársins gætir hann rafstöðvar- innar, svo að til fyrirmyndar er. Ef hægt væri að finna einhverja snilldarlega lausn á, hvernig unnt væri að reka nútímaþjóðfélag án

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.