Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 7. AGOST 1977 23 EINRÆÐI ...Hver á að erfa Kim? 9 Kim II Sung, „hinn dáði og ást- sæli" leiðtogi Norður-Kóreumanna, hefur verið við völd í rúm 30 ár og stjórnað styrkri hendi allan tímann. En nú er hann tekinn að reskjast (þó ekki nema hálfsjötugur) og farinn að heilsu: hann er með æxli á hálsi og auk þess þjakar hann nýrnabólga og of hár blóðþrýstingur. Hann er þess vegna farinn að svipast um eftir heppilegum eftirmanni sinum. Hann leitar ekki langt yfir skammt því hann mun ætla syni sinum að erfa rikið. En ekki eru allir sáttir við þá fyrirætlan, og kann að draga til tið- inda á Kóreuskaga áður langt liður, ef Kim heldur fast við hana. Ekki er þessi erfðastefna i Norður- Kóreu sótt til annarra kommúnista- rikja, heldur virðist Kim ætla að fara að fornum sið Asiumanna og koma upp „konungsætt". í ýmsum Asiu- löndum riktu sömu ættirnar öldum saman. Það er svo sem engin furða, að Kim kæri sig ekki um óvandabund- inn eftirmann. Hann hefur það i . huga hversu fór um orðstír Stalins að honum látnum. Og Kim kærir sig sizt um það, aðeftirmenn hans dæmi hann glæpamann. Ætlar hann nú að tryggja sig gegn þvi. Hefur hann efnt til mikillar fjölskyldudýrkunar og sett fjölmiðla til þess að afla syni sinum, hinum væntanlega arftaka, nauðsynlegrar ástsældar. En til vara og styrktar hefur hann skipað eina 1 3 nána vandamenn sina i mikils- verð embætti i rikisstjórninni og flokknum. í fyrstu æltaði Kim yngri bróður sínum, Kim Young Ju, að taka við. En Kim Young Ju er nú kominn af léttasta skeiði (hálfsextugur) og ekki heilsugóður. Auk þess er talið að hann hafi hvorki hörku né vit til starfans. Kim Chong H, sonur leið- togans, er hins vegar á bezta aldri, hvað svo sem er um hitt. Hann er ekki nema hálffertugur, og gæti þess vegna rikt jafnlengi og faðir hans. Pyongyang, höfuðborg Norður- Köreu, hefur þótt heldur litlitil borg og tilbreytingarsnauð. En nú hefur hún um nokkurt skeið verið skreytt eins og stórhátíð væri i vændum. Það hanga nú flennistórar myndir af rfkisarfanum uppi á öðrum hverjum húsvegg. Kim Chong II er hinn þrif- legasti maður, þéttur ó velli, smá- friður og búlduleitur, myndast vel i lit, og þykir hin mesta bæjarprýði að veggmyndunum af honum. . En auk þessarar Ijósmyndakynningar hafa spakmæli og orðskviðir riksiarfans birzt i dögum oftar i blöðunum ásamt með vísdómsorðum föður hans. Eru spakmæli sonarins prentuð bláu striðsfréttaletri, en spakmæli föður- ins rauðu. Fyrir skömmu birtist og i timariti norður-kóreanska hersins mynd af Kim Chong II og myndatext- inn „Ungur leiðtogi". Loks hefur afmælisdagur hans. 25. febrúar, ver- ið gerður almennur frídagur um land allt, eins og afmælisdagur föður hans. Það er greinilegt, að Kim II Sung þykir bráðliggja á. Sonur hans skal verða ástmögur þjóðarinnar, og það i hvelli! Þetta óðagot hefur mælzt misjafnlega fyrir og illa meðal margra gamalla valdamanna. Það hefur lika valdið margs kyns vand- ræðum i efnahags- og utanrikismál- um til dæmis að nefna. Rikið hefur safnað erlendum skuldum i óhófi (þær nema orðið 2000 milljónum dollara). Norður-kóreanskir dipló- matar hafa orðið uppvísir að eitur- lyfjasölu, áfengis- og tóbaksbraski erlendis. Og þá er þess að minnast. að tveir bandarískir tiðsforingjar voru myrtir með öxum i Panmunjon i fyrra. Er allt þetta talið eiga rætur að rekja að einhverju leyti, til streitunn- ar um rikiserfðirnar. Fregnir hafa borizt af því, að búið sé að skipa unga og harðsnúna kommúnista i mörg embætti, sem varfærnari og hófsamari menn gegndu áður. En þeir af eldri kyn- slóðinni, sem enn halda embættum sinum munu kviðnir og vita ekki gerla hvað um þá verður. Það er talið, að friðsamleg kynslóðaskipti í stjórn landsins verði varla á skemmri tima en sjö árum. Ef Kim II Sung fellur frá áður en þau eru komin i kring, og einhverjir risa upp á móti syni hans gæti það valdið miklu uppnámi í landinu. Og þá yrði strax hætt við striði milli Norður- og Suð- ur-Kóreu. Væntanlega beitir Kim Chong II þeirri röksemd fyrir sig, ef á þarf að halda, og vel getur farið svo, að hún dugi honum til valda. En annars er ekki gott að vita til hverra ráða hann kann að gripa. Hann er sagður nokkur ofsamaður; sú saga hefur m.a. komizt á kreik, að hann hafi fyrirskipað „axarmorðin" i Panmunjon, sem fyrr var getir. ...Nú, Kim eins og geta má nærri! “radiomiðun— Grandagarði 9, Pósthólf 1355, Reykjavík, sími 23173 K®DEN sjálfvirkar LORAN- c 9erð LR -777 V Þetta er nýjasta tegund af Loran-C, frá hinum þekktu Koden verksmiðjum J Þetta er myndavélin fyrir yður! <■»-» %J %j er lika i se YASHICAmVR er ný 35 mm. vél með sjálfvirkri Ijósstillingu og innbyggðu rafmagnsflassi. Tekur afbragðs myndir bæði úti og inni. aðeins 33.960 kr. Ljóssterk linsa f. 2.8/38 mm. Hraði 1/60—1/250 sek. Sjálfvirk Ijósstilling 250 flassmyndir á sömu rafhlöðu Auðveld fjarlægðarstilling Innan við 400 gr. að þyngd Lítið inn — við erum á 3 stöðum í borginni, til þess að spara yður sporin. HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI — GLÆSIBÆ — AUSTURVERI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.