Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGUST 1977 41 fólk í fréttum + Hinni fögru prinsessu af Mónakó, Carolinu, virðist vera margt til lista lagt. Hún hefur frá því hún var barn að aldri lagt stund á ballett og ætlaði sér hér fyrr á árum að verða ballettdansari. En síðar ákvað hún að leggja stund á ýmislegt annað. Hún stundar nám í Sorbonne í París, þar nemur hún lögfræði, sálarfræði og hagfræði. En hún hefur ekki lagt ballettskóna á hilluna. Hún æfir sig þrisvar í viku og kennarinn er ekki af lakara taginu, en hún er Guislaine Thesmar ein frægasta ballerína Frakka um þessar mundir. Og það verður ekki annað sagt en að Carolina taki sig vel út. Foreldrarnir fæla börnin frá skólunum + MaSur heitir Wolfgang Knörzer og er háskólakennari I Þýzkalandi. Á námsárum slnum dreymdi Knörzer oft draum einn; var þaS ævínlega sami draumurinn. Hann var á þá leiS, aS Knörzer var staddur úti á skólalóS, en bak viS súlu eSa stólpa stóS gamli skóla- stjórinn hans og hafSi gætur á honum. „Ég var meS lifiS I lúkun- um, þvi mér fannst hann hafa staSiS mig aS einhverju voSa- legu," segir Knörzer. „En ég hafSi ekki hugmynd um hvaS þaS var. . ." MartröS þessi fylgdi Knör- zer eftir, aS hann lauk námi. Tiu árum eftir, aS hann hætti i skóla var hann enn aS dreyma sama drauminn. AS visu er hann laus viS draum- inn núna — enda kominn á fimmtugsaldur. En upp úr þessum draumförum fór hann aS reyna aS grafast fyrir um orsakir þess, sem mjög er algengt. aS börnum stend- ur ótti af skólum og þau kviSa námi og skólagöngu. Til þess arna spurSu Knörzer og félagar hans nærri fjögur þúsund barna og unglinga. ÞaS kom i Ijós, aS oftast er ótti og kviði barnanna að miklu leyti sök foreldra þeirra. Það er einkum metnaðargirnd foreldra, sem veid- ur. Því fastar. sem foreldrar leggja að börnum sinum i námi og eink- unnakappi, þeim mun liklegra er að börnin verði gripin ótta, kviða og almennri taugaveiklun. 40% barnanna, sem spurð voru, sögðu sem svo. aS „foreldrum þeirra þætti bara vænt um þau, ef þau stæSu sig vel i skólanum". Þar af leiSandi óttuSust bömin skólann og námiS. ÞaS var athygli: vert, aS þetta sögSu bæSi börn, sem gekk upp og ofan i námi, og þau sem oftast eSa alltaf fengu háar eink- unnir. Nú er þaS gamalkunnur vandi sálfræSinga. aS margir foreldrar eigna sér námsárangur barna sinna, ef svo má aS orSi komast. Gangi barni illa þykir foreldrunum sem þeir séu minni menn fyrir vikiS, en gangi barninu vel þykir foreldrunum aftur á móti, sem þeir hafi afrekaS eitthvað! En það er áreiðanlegt, að börnum væri meiri hjálp að foreldrum slnum I námi, ef þeir legðu niður þetta viðhorf. Aldrei er við góðu að búast, ef foreldrum þykir smán að þvi, að barni þeirra gengur illa I námi. Ekki er llklegt, að slikir foreldrar fari að barninu með nærgætni og reyni að uppræta meinið, sem veldur; trúlegra er. að þeir álasi barninu og leggi enn fastar að þvl en áður. Þeir áfellast barnið fyrst og fremst, en auk þess sjálfa sig — og ekki bætir úr skák, er þeir áfellast einnig kennara barnsins. Þvi meiri, sem keppnisharkan er, þeim mun verr fara börnin. Og það er eitt meðal annars. sem á þau leggst. að þau eru alveg hjálp- arvana. „Börnin finna það á sér, að þau hafa ekki gott af þessari einkunnasamkeppni, sem þau eiga helzt að vinna til að „gleðja foreldra sina", — en þau geta ekkert við þvi gert," segir Wolf- gang Knörzer. Ekki auðveldar það börnum skólavistina, að flestum þeirra leiðist, og má telja vist, að leiði standi börnum ekki siður fyrir þrif- um i námi en ótti og kvtði. Það er bæði námsefni i skólunum, svo og heimilin, sem valda þessu. Hér áður fyrr lærðu börn mikið heima fyrir. f skólanum var troðið i þau þurrum fróðleikskomum i stórum stil — en heima hlutu þau hag- nýta reynslu bæði i leik, og i starfi, ýmist ein, með öðrum börn- um eða með foreldrum sinum. En nú er það af sem áður var. Nú orðið sitja börn á skólabekk i átta stundir á dag og allan timann er haldið að þeim, jafnt og þétt, hundleiðinlegum. samhengislitl- um fróðleik, sem ekki kemur dag- legu lifi þeirra i lengd eða bráð neitt við, að þvi er séð verði. Þegar börnin koma svo heim úr itroðslunni er þar ekkert til mót- vægis. Foreldrarnir vinna ekki heima við, heldur einhvers staðar úti i bæ og algengt er. að börn komist svo á unglingsár, að þau hafi aldrei nokkurn tima komið á vinnustaði foreldra sinna, viti jafn- vel tæpast hvað þeir starfa. Börn- in verða að hafa ofan af fyrir sér sjálf, og þar sem athafnamögu- leikar utan húss eru heldur litlir, i stórborgum til að mynda (umferð o.s.frv.). verður endirinn oft sá. að börnin kveikja á sjónvarpinu og sitja þegjandi við það fram undir háttatima. Bezt væri, ef hægt væri að veita börnunum þá reynslu i skólunum, sem þau fá ekki lengur heima hjá sér. En það getur aldrei orðið nema kennsluháttum verði breytt mjög og kennurum veitt frjálsræði meira en nú er. — DÖRTE VOLAND. Kamabær tllJÓHDtlLD Fyrir 2 plötur ókeypis buröargjald. Fyrir 4 plötur 10% afsláttur og ókeypis buröargjald. Nýjar athyglisverðar plötur Yes: Going for the One. • Flestum ber saman um að þetta sé besta plata sem Yes hafa gert, og það eru ekki lítil meðmæli. Emotions: Rejoice. Fyrst voru það Surpreams, síðan Three Degrees og nú eru það Emotions sem leika sama leikinn. Lag þeirra „Best of My Love" og þessi LP-plata tröllríður nú öllum vin- sældarlistum og diskotekum. Frábær soul/disco plata. Burton Cummings: My Own Way to Rock. Þessi fyrrverandi söngvari Guess Who og núverandi uppáhalds söngvari Robert Plant, er hér með plötu sem inniheldur hvorki jassrokk, countryrokk, tæknirokk né ... heldur bara hreint og ómengað rokk. Peter Tosh: Equal Rights. Ásamt Bob Marley stofnaði Peter Tosh, Wailers. Þó leiðir hafa skilið gnæfa þessi tvö nöfn yfir aðra sem ástunda reagge tónlist. Maynard Ferguson: Conquistator. Vinsældir þessarar plötu hafa að undan- förnu farið langt út fyrir raðir jassunnenda. Enda lag af henni „Theme from Rocky" orðið geysi vinsælt. Meðal gesta á plötunni eru George Bemson. Vinsælar plötur Pop/Rokk Spilverk þjóðanna: Sturla Abba: Arrival PrúSuleikararnir: The Muppet Show Smokie: Greatest Hits Manhattan Transfer. Comming Out 20 Gamlir góðir: 20 Great Heartbreakers 20 Laufléttir: Hit Action 10CC: Deceptive Bends Supertramp: Even in the Quitec*' .^nts Supertramp: vVhat Crisis? SupertranV^-rime of the Century? Peter Framton: l-^-m in you Leo Sayer: Endless flight Judas Priest: Sin After Sin Heart: Little Queen Disco/Soul Shalamar: Uptown Festival Donna Summer: I Remember Yesterday Detroit Emmeralds: Fell the Need C.J. & co: Devils Gun Isley Bros: Go for Your Guns JoeTex: Bump&Bruises Tina Charles: Rendevouz Karnabær — hljómdeild Laugavegi 66 Glæsibæ Austurstræti 22 S. 28155 S. 81915 S. 28155.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.