Morgunblaðið - 07.08.1977, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGUST 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
breyttu ekki aðeins ásýnd jarðar-
innar, skipulagi hlutanna, þeir
breyttu einnig hugarfari manna.
Um enga aðra einstaklinga aðra
er hægt að segja, að þeir hafi
breytt hjartalagi manna. Sigur-
konungar og stjórnmálafrömuðir
hafa ekki umbreytt hugarþeli
fólks, þeir hafa í besta falli aðeins
breytt kjörum þess um stundar-
sakir. Vísindamenn og heimspek-
ingar hafa breytt viðhorfum
manna, en þess eru engin dæmi,
að þeir hafi gert þá að betri og
hamingjusamari mönnum. En
áhrifin af orðum meistarans frá
Nazaret eru slík, að enn í dag
snerta þau hjörtu milljóna
manna, hvaða þjóðum, kynstofn-
um eða flokkum, sem þeir til-
heyra. Hið sama gildir um
Múhammeð og aðra trúarbragða-
höfunda. Að ætla þessum boðend-
um sannleikans allt hið illa, sem
fylgjendur þeirra hafa framið f
þeirra nafni, ber aðeins vitni and-
legri formyrkvun. Ef faðir kennir
barni sfnu að elska og leggur allt í
sölurnar til að innræta því grand-
varleik, væri þá sanngjarnt að
áfellast föðurinn, ef barnið henig-
ist til glæpa síðar á ævinni? Væri
ekki sönnu nær, að barnið hafi
hafnað forsjón og handleiðslu
föðursins og snúið við honum
baki?
Trúarbrögðin snúast einmitt
um það að gera menn að betri og
um leið farsælli verum. Þegar
þau megna þetta ekki lengur, þá
er lifandi upprunalegur andi
þeirra horfinn og Iffsmagn þeirra
þorrið. Af þessum sökum endur-
nýjar Guð trú sína, sem í kjarna
sínum er hin sama allstaðar og
grundvallarlögmál hennar er
kærleikur — ekki helgislepja eða
uppgerðarástúð, heldur hlýr og
lifandi áhugi fyrir öllum mönn-
um, sem vakinn er af þvi afli
einu, að sami Guð hefur skapað
alla menn og forsjón hans skfn,
eins og sólin, á þá alla jafnt.
Eðvarð T. Jónsson,
Hringbraut 69,
Keflavík."
0 Um lestrar-
kennslu
Móðir:
— Mig Iangar að fá um það
vitneskju hvort einhvers staðar sé
hægt að fá kennslu fyrir barn sem
á í lestrarörðugleikum. Er til ein-
hver kennari sem tekur að sér að
kenna börnum með lestrarerfið-
leika, þ.e. á öðrum vettvangi en í
skólunum.
Eftir því sem Velvakandi hefur
komizt næst er ekki um neinn
kennara að ræða sem hefur einka-
tíma í lestri fyrir slfk börn, en
hins vegar hafa verið starfandi
við barnaskólana í Reykjavfk og
ef til vill víðar kennarar sem hafa
slíka sérkennslu með höndum. Ef
hins vegar einhver vissi til þess
að hægt væri að fá aðstoð í þessu
máli væri' vel þegið að fá um það
upplýsingar, en það væri e.t.v.
hægt að fá um það upplýsingar í
skólunum hvaða kennarar hafa
þessa sérkennslu með höndum og
leita til þeirra með beiðni um
einkatfma.
Þessir hringdu
% Rauðhettumótið
og vandamál
foreldra
Undir ofangreindri fyrir-
sögn hefur borizt bréf, sem bréf-
ritari segist skrifa að gefnu til-
efni:
„Mikið var gert til þess að vekja
athygli unglinga á Rauðhettumót-
inu. En það eru skiptar skoðanir
um ágæti slíkra móta. Vildi ég
segja frá vandamáli ungra
stúlkna, sem fóru á mót þetta með
mikilli tilhlökkun. I rútunni á leið
til móts höfðu þær orðaskipti við
ókunnuga pilta sem þær sfðar
báðu aðstoðar við að tjalda. Þegar
þær áttuðu sig sfðar fundu þær
ekki piltana né heldur farangur
sinn, en eitthvað höfðu þau orðið
viðskila um stund. Koma þær alls-
lausar til baka í lok mótsins, og
hafði einhver greiðvikinn piltur
lánað þeim tjaldið sitt. Ekkert af
farangrinum hefur fundizt, en
hann var m.a. nýtt tjald og svefn-
pokar.
Ekki mun það nægja að hafa
heimilistryggingu til að fá bætt
tjón sem þetta og er þvf um
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á Ólympíuskákmótinu í Haifa í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra L. Bronsteins, Argentinu,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Ligterinks, Hollandi
ip % ’fiZjPSZ mm mk
^Sb| i m i
i mm pl Éi n wk
m i Él A Hi ■
Ij Ujj wá wm u
ip w_ ff Jl wrn w n
& H wm il & j§
gp ÉH gp ÆM l
20. Rh6+! Svartur gafst upp.
Staða hans er vonlaus eftir bæði
20. . . gxh6, 21. Df5 — e4, 22. Bxe4
— Kg7, 23. Dxh7+ — Kf6, 24. Hh3
og 20. .. Kh8, 21. Rxf7 + — Kg8,
22. Rxd8 — Hxf3, 23. gxf3.
áhættu að ræða í sambandi við
mót þessi.
Ýmislegt annað i sambandi við
mötið, t.d. mikill drykkjuskapur
og svall, vekur athygli og fólk
veltir því fyrir sér hvernig það sé
með skátafélögin i því efni. Ekki .
verður þetta sagt um öll mótin og
t.d. munu fjölskyldumótin ekki
hafa haft þessi vandamál. En það
er víst ekki eins spennandi fyrir
unglingana að fara á þau mót,
enda sögð fámenn.
Kristinn Þórðarson."
HÖGNI HREKKVÍSj
Högni hrekkvísi! Láttu sírenutakkann eigasig!
83? SIGGA V/öGA £ VLVtWi
Útsala
Okkar vinsæla útsala hefst mánudagsmorgun.
Góðar vörur, lágt verð.
IÐA, Laugavegi 28.
Glæsilegu hertogahúsgögnin
ttfcty
Nýkomið
Ekki bara skápasamstæður
heldur einnig fáanlegur fjöldi
annara glæsilegra muna
Old Charm verður ekki lýst með
orðum — Komið og skoðið
aldrei meira úrval.
DUNA
Síðumúla 23 - Sími 84200