Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.08.1977, Blaðsíða 37
1 Allar ljósmyndif: Kristinn Ólafsson. Aðalhlutverk á ljósmynd- um: Gfsli Rúnar Jónsson. og hann orðar það ( samtali við Slagbrand og leikur ekki færri en 37 einstaklinga. „Það fðr varla minni tfmi f að undirbúa og taka myndirnar en að semja efnið á plötuna sjálfa," sagði Gfsli. „Það gat tekið þrjá — f jðra daga að saf na saman mun- um, búningum og öllu tilheyr- andi til að gera myndina sem eðlilegasta og sfðan að finna stað til að taka myndina. Þarna sjást til dæmis gamlir braggar; tvo þeirra fann ég uppi f Mosfells- sveit og einn á vinnusvæði Vega- gerðarinnar. Gömlu bflana fékk ég hjá félögum Fornbflaklubbs- ins sem var einmitt stofnaður um það leyti sem myndatökurnar fðru fram. Við fðrum ekki eftir neinum Ijðsmyndum, nema f sam- bandi við hárgreiðslu kvenfðlks- ins, að öðru leyti eru uppstilling- arnar okkar eigin hugmyndir. Ungur Ijðsmyndari, Kristinn Ólafsson, tðk myndirnar og stðð sig með mikilli prýði.“ Og svo er það tðnlistin. „Það var dálftið mikið mái,“ segir Gfsli. „Það eru svo voðalega fáir sem halda upp á gömlu 78 snún- inga plöturnar. t fyrstu náði ég helzt í nýlegar endurútgáfur á vinsælustu lögum Mills bræðra, Ink Spots og annarra slfkra, en svo komst ég yfir dálftinn slatta af 78 snúninga plötum hjá f jðrum aðilum og það er engin lýgi, að ég hef hlustað á hátt i 800 78 snún- inga plötur — og af þeim valdi ég sjö lög. Þessí lög voru nefnilega flest svo „vemmileg" og næstum leiðinleg, megnið sykursæt leðja. Eg varð að velja úr þau skemmti- legustu og jafnvel fara aftar f tfmanum, til dæmis f AI Jolson. Hvað framsetninguna snertir þá verð ég að viðurkenna, að ég er undir áhrifum frá Spike Arm- strong Jones og það er smálykt af honum á plötunni.“ Uppbygging plötunnar er þann- ig, að vfðast hvar á milli laga heyrist f útvarpsþulnum Jðni, sem les fréttir og tengir efnið þannig saman og skýrir það. Með- al þeirra sem syngja lögin eru braskarar, bðndi, bárujárnssmið- ur, brezki hermaðurinn Fred Porno sem syngur um heimþrána, brezki-officerakvartettinn, Hawaiitrfðið, Astandssystur, sjálfstæðishetjan Lýður O. Jepp- esen og fleiri. Þá heyrist tðnlist úr kvikmyndinni „Astkona háls-, nef- og eyrnalæknisins", þar sem aðalhlutverk eru f höndum leik- aranna David Dandruff, Gary Garlick, Sally Seafood og Red Skeleton. Auk þess heyrist stef úr rússneskri aukamynd, en báðar myndirnar voru sýndar f Nova- bíði, að þvf er kemur fram á plötuumslaginu. Platan er væntanleg á markað um næstu mánaðamðt og hún mun bera heitið: „Blessað strfðið sem gerði syni mfna rfka — Gfsli Rúnar Jðnsson lofsyngur her- námsárin." I lok samtalsins spurði Slag- brandur Gfsla um næsta verk- efni: „Eg ætla eiginlega.ekki að halda áfram svona plötugerð. Þetta er svo rosaleg vinna þegar maður stendur að þessu öllu sjálf- ur. Ég ætla núna að taka mér gott sumarfrf eftir allt puðið, en hvað sfðan tekur við veit ég varla. Síðastliðinn vetur var ég við kennslu og leikstjðrn hjá nem- endum Menntaskðlans við Tjörn- ina og ég gæti vel trúað að ég héldi slfkum störfum áfrarn." E.S. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er Gfsli Rúnar Jðns- ' son nú farinn utan til Englands og mun hafa í hyggju að gista á hðteli f baðstrandarbænum Torquay — en eins og sjðnvarps- áhorfendur muna, átti hðtel Tindastðll (Fawlty Towers) ein- mitt að hafa verið f Torquay. Aha! Kannski ætlarGísli Rúnar að leita nýrra hugmynda á þeim slððum! Þeir sem leggja saman tvo og tvo, fá áreiðanlega út 4.80 (með söluskatti)! MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGOST 1977 37 Bandarfski herinn kemur til Islands f stað þess brezka. Og hver skyldi þetta nú vera? .Skyldi setuliðinu leiðast á tslandi?' Þýzki konsúllinn handtekinn á hernámsdaginn. Fjallkonan f félagsskap Breta og Kana. Ur bandarfsku stðrmyndinni „Astkona háls-, nef- og eyrna- læknisins": Gary Garlick og Sally Seafood. Söngflokkurinn „Astandssystur' Jðn útvarpsþulur. Fred Porno, ðbreyttur hermaður, saknar mömmu sinnar. ,Brezka hervaldið og fslenzka þjððin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.