Morgunblaðið - 07.08.1977, Síða 47

Morgunblaðið - 07.08.1977, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. AGÚST 1977 47 Dágóð bleikju- veiði í Þing- vallavatni AÐ undanförnu hefur veriö dágóð bleikjuveiöi í Þingvalla- vatni að sögn þeirra, sem Morgun- blaðið hefur rætt við. Hafa bænd- ur, sem veiðirétt eiga i Þingvalla- vatni sagt að veiðin sé nú nokkru betri en undanfarin ár. Sem dæmi má nefna að Guðmundur Ólafsson á Skálabrekku hefur lagt 7 net í vatnið og fengið um 50 bleikjur að meðaltali í vitjun. Voná nætur- kuldum BUAST má við næturkulda næstu nætur, en á daginn er spáð mikl- um hita. Mjög hægur vindur verð- ur um allt land. Á Suð- vesturlandi verða skúraleiðingar, en bjart á milli. En Norðlending- ar og fólk á Austurlandi fær væntanlega bjart og gott veður. Vaxandi starf- semi hjá USVS UNGMENNASAMBAND V- Skaftfellinga hefur starfað með meiri blóma siðustu ár en áður og er félagið greinilega að rétta úr kútnum á sviði íþrótta- og félags- mála. Sambandsþing USVS var háldið fyrir nokkru og var vel sótt af aðildarfélögunum. Merkasta mál þingsins var stórfelld breyt- ing á lögum sambandsins. Hefur héraðssambandið ráðið til sin framkvæmdastjóra, Jón Júlíus- son. (Ur fréttatilkvnningu fráUSVS). — Carter Framhald af bls. 1 andi aðstæður nema beinar greiðslur til 23.4 milljóna styrk- þega — sem er um 10 af hundraði þjóðarinnar — tæpum 28 millj- örðum dala. — Friðrik Framhald af bls. 48 komandi ríkja. Fulltrúar þess- ara sambanda eiga í reynd erfitt með að skilja hvernig fulltrúar sjálfstæðu samband- anna geta haft aðra skoðun á málum en þá sem stjónvöld hafa. Þeir verða að halda fram stefnu sinna stjórnvalda, hvort sem það er þeim ljúft eða leitt. Þessi ólika uppbygging skák- sambandanna er út af fyrir sig ekki svo erfitt vandamál, þegar um er að ræða hrein fagleg mál á skáksviðinu. En um leið og farið er að hreyfa einhverjum stórpólitiskum og viðkvæmum málum, þá springur þetta allt i loft upp“. — Eins og gerðist á þessu aukaþingi? „Já.“ — Nú hafa þær raddir heyrzt að þetta aukaþing hafi verið upphafið aó endalokum FIDE? „Það er ósköp eðlilegt að menn hugsi sem svo. Þvi hvers vegna að takmarka umræðurn- ar við hörundslit manna? Er ekki mönnum líka mismunað eftir pólitfskum skoðunum og trúarbrögðum? Er þá ekki rök- rétt að halda þessu áfram og taka fyrir ástandið í Chile, á Filippseyjum, í Austantjalds rikjum og svo framvegis. „Ég held að með þessu auka- þingi hafi verið farið inn á braut, sem hlýtur að leiða til sundrungar innan FIDE, ef menn ætla að halda hana áfram“. — Þú telur þá ekki að mælir- inn hafi fyllzt í Luzern? - „Það á eftir að koma i ljós. Skáksambönd i V-Evrópu, sem upphaflega stofnuðu FIDE og hafa veriö í sambandinu allar götur siðan 1924 sum hver, eru auðvitað orðin þreytt á þessu. En hvað sem því liður, þá held ég nú að þetta aukaþing í Luzern hafi orðið til góðs að því leytí að það hefur þjappað sam- an þessum skáksamböndum, sem vilja gera stjórnmálin út- læg úr störfum FIDE, og sýnt þeim fram á að nú dugar ekki lengur að koma á FIDE-þing óundirbúinn og sjá bara til, hvað að höndum ber. Það er nú ljóst, að þessi sambönd verða að standa saman og undirbúa sina afstöðu til að geta komið fram sem ein heild, þegar á hólminn er komið. Jafnframt hef ég það á til- finningunni, að þetta þing verði til þess að Sovétmenn endurmeti afstöðu sína Þeir hljóta að vilja halda áfram að hafa samband við V- Evrópulönd á skáksviðinu, því þegar allt kemur til alls, þá eru Sovétríkin evrópskt land í skák- legum skilningi." — Hver eru áhrif þessa þings á framboðsmál þín? „Enda þótt þetta aukaþing / minningu: Jóns A rnasonar Eitt sinn orðaði Þorsteinn Erlingsson ósk um eftirmæli með þessum hætti: „mig lángar, að sá enga lýgi þar finni, sem lokar að sfðustu bókinni minni.“ Nú hefur verið skrifað seinasta blaðið i bók Jóns Arnasonar al- þingismanns frá Akranesi og bók- inni iokað. Hafi hann einhvern- tíma alið með sér sömu ósk og Þorsteinn mun eflaust mál manna nú að hún hafi rætzt og vel það. Því þótt kjölurinn og kápan hafi vissulega verið af vönduðustu gerð, var innihaldið þó hálfu merkilegra. Það var góður pappír' í bókinni hans Jóns og siðurnar þéttskrifaðar með einörðu dreng- lyndi og vinfestu. Hún verður ekki lögð til hliðar að loknum lestri og henni verður ekki gleymt. Henni verður búinn stað- ur meðal beztu minninganna, þar sem ekkert rykfellur, — með virð- ingu og þakklæti. Jónfna og Sigþór Sigurðsson. Alþjóðaskáksambandsins hafi ekki haft jákvæð áhrif á mig, þá ætla ég ekki að láta þau hafa úrslitaáhrif á framboð mitt. Það stendur eftir sem áður, enda er nægur timi til stefnu og línurnar hljóta að hafa skýrszt betur, þegar kemur fram á næsta ár, en vissuiega mun ég nota tímann til að gera það upp við mig, hvort Alþjóðaskáksam- bandið er svo langt leitt að því verði ekki viðbjargað. Ég tók þá ákvörðun að bjóða I mig fram til forsetastarfs FIDE vegna þess að mig langar til að láta eitthvað gott af mér leiða fyrir skákmenn og skákina sjálfa. Þessi löngun min er óbreytt". — Nú hafa heyrzt um það raddir, að ef FIDE snúi ekki við blaðinu verði afleiðingin sú að stofnað verði sjálfstætt skák- samband I Vestur-Evrópu? „Þessar raddir hafa heyrzt og auðvitað er þetta raunhæfur möguleiki, ef menn komast að þeirri niðurstöðu að FIDE sé ekki viðbjargandi'*. — En hvað með hagsmuna- samtök atvinnuskákmanna? „Það mál hefur mikið verið rætt og til þess getur auðvitað komið, hvernig sem skák- sambandsmálin skipast. Slik samtök myndu fyrst og fremst einbeita sér að hagsmunum at- vinnuskákmannanna, þannig að þau gætu alveg verið til við hliðina á skáksamböndum og einhverjum samtökum þeirra". — fj- — Prinsar og prinsessur Framhald af bls. 1 hafa sloppið úr stofufangelsi í Addis Ababa. Það var talsmað- ur sænsku ríkisstjórnarinnar, sem skýrði frá þessu f gær- kvöldi. Hann vildi ekkert láta uppskátt um hvernig fólkið hefði komizt undan. Hér er um að ræða 4 prinsa og 6 prinsessur á aldrinum 10—20 ára, sem komu til Svi- þjóðar fyrir hálfum manuði. Flúðu þau frá Addis Ababa til Nairóbí, þar sem þau snéru sér til sænska sendiráðsins og báð- ust hælis. Var samstundis orð- ið við i beiðni þeirra. Bráða- birgðadvalarleyfi þeirra gildii í 45 daga. — Bros og... Framhald af bls. 19 ætluðust til þess að ég undirritaði samning þennan og ég sagði nei. Ætlizt þið til þess að ég vinni fyrir þessum tfu þúsund dollurum eða eru þetta verðlaun? Þeir gátu ekkert sagt. Síðan átti ég að fljúga til New York og þar beið min sjónvarpið og slíkt kærði ég mig ekki um. Ég breytti þvi nafni mínu og tók aðra vél til New York og hitti kunningja mina þar. For- eldrar minir fengu þá skeyti þess efnis að ég væri týnd og mamma sagði þá: „Nei, hún er ekki týnd“. Hún hefur fengið leið á þessu. „Mikið er hún venjuleg“. Ég hef nefnilega aldrei verið neitt uppnumin hvorki af starfi minu né útliti og gert mér full- komlega ljóst að brosið dugir skammt, svo og ytra útlit. Sálin, viijaþrekið og persónan verður að fylgja á eftir. Hafi maður ekki persónu á bak við myndrænt eða fallegt andlit, getur maður alveg eins gerzt gleiðikona og það verða margar, þ.e. þær, sem hafa bara útlitið. Mér verður alltaf minnisstætt eitt rigningarsumar, sem ég var stödd á tslandi mörgum árum eft- ir á ég var kosin ungfrú alheimur. Þá var sýnd kvikmynd frá keppn- inni,- sem aukamynd í bió. Ég fór með vinkonu minni, þvi ég hafði aldrei séð kvikmynd af þessu sjálf. A meðan á myndinni stóð, heyrði ég fólk segja i kringum mig: Almáttugur hvað hún er fall- eg. I hléinu virðist það svo hafa spurzt út að ig væri stödd í saln- um. Kona á bekk fyrir framan mig leit þá við, horfði beint á mig | og sagði: Hún er bara ekki neitt, neitt. Mikið er hún venjuleg. Ég hló og mér er sama. Ef fólk vill horfa á mig og gagnrýna mig þá má það það. Eg horfi á annað fólk, virði það fyrir mér og ég gagnrýni þeð.“ „Mér finnst ég enn eiga margt ólært og ógert. Kannski hefur pabbi rétt fyrir sér að ég uppgötvi ekki heimilið fyrr en á elliheimil- inu. Ég held það væri bezt að ég klikkti út með þvf að giftast Is- lenzkum sjómanni. Þá sæi ég hann kannski ekki nema einu sinni í mánuði . ..“ OG GUÐRUN B. hlær. —HÞ Höfum fyrirliggjandi hina viðurkenndu Lydex hljóðkúta í eftirtaldar bifreiðar: Audi 10OS-LS ..................... Austin Mini ...................... Bedford vörubila ................. Brorico 6 og 8 Cyl ............... Chevrolet fólksbila og vörubfla .. Datsun diesel — 10OA — 120A — 1200— 1600— 140— 180 . Chrysler franskur ................ Citroen GS ....................... Hljóðkútar aftan og framan ..... Hljóðkútar og púströr .....HljóSkútar og púströr ..... HljóSkútar og púströr .....HljóSkútar og púströr ..... HljóSkútar og púströr ..... HljóSkútar og púströr ..... HljóSkútar og púströr Dodge fólksbfla........................ HljóSkútar og púströr D.K.W. fólksbfla ...................... HljóSkútar og púströr Ffat 1100 — 1500 — 124 — 125 — 127 — 128 — 131 — 132 ......... HljóSkútar og púströr Ford amerfska fólksbfla ............... HljóSkútar og púströr Ford Consul Cortina 1 300 og 1600 ..... HljóSkútarog púströr Ford Escort............................ HljóSkútar og púströr Ford Taunus 12M — 1 5 M — 1 7M — 20M HljóSkútar og púströr Hillman og Commer fólksb og sendibflar .... HljóSkútar og púströr Austin Gipsy jeppi ...........*........ HljóSkútar og púströr International Scout jeppi ............. HljóSkútar og púströr Rússajeppi GAZ 69 ..................... HljóSkútar og púströr Willys jeppi og Wagoneer .............. HljóSkútar og púströr Range Rover.............. HljóSkútar framan og aftan og púströr jeepster V6 .......................... HljóSkútar og púströr Lada .................................. HljóSkútar og púströr Landrover bensfn og diesel ........... HljóSkútar og púströr Mazda 616 ............................ HljóSkútar og púströr Mazda 818............................. HljóSkútar og púströr Mazda 1300 .............................HljóSkútar framan Mazda 929 ..............................HljóSkútar fr. og aft. Mercedes Benz fólksbfla 180 — 190 200 — 220 — 250 — 280 ................ HljóSkútar og púströr Mercedes Benz vörubfla ............... HljóSkútar og púströr Moskwitch 403 — 408 — 412 ............ HljóSkútar og púströr Morris Marina 1,3—1,8 ................ HljóSkútar og púströr Opel Rekord og Carnavan .............. HljóSkútar og púströr Opel Kadett og Kapitan ............... HljóSkútar og púströr Passat ............................... HljóSkútar fr. og aft. Peugeot 204—404— 504 ................. HljóSkútar og púströr Rambler American og Classic .......... HljóSkútar og púströr Renault R4 — R6—R8—R10—R12—R16 HljóSkútar og púströr Saab 96 og 99 ........................ HljóSkútar og púströr Scania Vabis L80— L85— LB85 L110—LB110—LB140 ....................HljóSkútar Simca fólksbfll ...................... HljóSkútar og púströr Skoda fólksbfll og station ........... HljóSkútar og púströr Sunbeam 1250—1500—1600............... HljóSkútar og púströr Taunus Transit bensfn og diesel ...... HljóSkútar og púströr Toyota fólksbfla og station .......... HljóSkútar og púströr Vauxhall fólksbfla ................... HljóSkútar og púströr Volga fólksbfla ........................Púströr og hljóSkútar Volkswagen 1200—K70—1300 og 1 500 og sendibfla................ HljóSkútar og púströr Volvo fólksbfla ...................... HljóSkútar og púströr Volvo vörubfla F84—85TD—N88—F88 N86—F86—N86TD—F86TD og F89TD HljóSkútar Púströraupphengjusett í flestar gerðir bifreiða. Pústbarkar flestar stærðir. Púströr í beinum lengdum IVs" til 3Vz" Setjum pústkerfi undir bíla, sími 83466. Sendum í póstkröfu um land allt. Bifreiðaeigendur athugið að þetta er allt á mjög hagstæðu verði og sumt á mjög gömlu verði. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ ÁÐUR EN ÞÉR FESTIÐ KAUP ANNARS STAÐAR. Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. Skeifan 2, simi 82944.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.