Morgunblaðið - 12.10.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1977
Bilsby Skurvogne A-S
Induslrihakkrn 1. SennHöse. 26.'10 Taaslrup.
Danmark. Talsimi 09-02-99 47 0K
Slarfsfólksva^nar. skrifslofuvannar.
ibúöarvaj’nar. ueynisluvannar. hmnla*tisvaunar.
(ióöfúsleua biöjið uni upplvsinuapósa.
Albert Loschnig og Lennart Hedin. Ljósm. Ól.K.M.
Nýja postulakirkjan leit-
ar fótfestu hér á landi
FYRIR nokkru voru staddir hér á
landi tveir sendimenn kirkju-
deildar er nefnist Nýja postula-
kirkjan. Lennart Hedin og Albert
Loschnig, en annar þeirra, Hedin,
hefur koinið einu sinni áður hing-
að til lands. Hafa þeir í h.vggju að
koma hingað aftur eftir nokkrar
vikur. Einu sinni hafa þeir hoðað
til fundar og voru þeir spurðir
hvaða árangur það hefði borið:
— Við auglýstum einn sunnu-
daginn fund á Hótel Loftleiðum
og þangað komu milli 20 og 30
manns og erum við ekki óánægðir
með það, sögðu þeir félagar. Við
erum í sambandi við 20 manns
hér sem hafa sýnt þessari kirkju
áhuga og því erum við sannfærðir
um að hægt verði að koma á deild
Nýju postulakirkjunnar hér á
landi, en okkur þykir mjög vænt
um íslendinga.
Þeir Hedin og Loschnig sögðu
að Nýja postulakirkjan væri upp-
runnin i Englandi árið 1835 og
hefði hún breiðst nokkuð hratt út
og er t.d. þriðja stærsta kirkju-
deild i Þýzkalandi. Stjórn
kirkjunnar er þannig byggð upp
að æðsti maður hennar er
nefndur aðalpostuli og situr hann
i Sviss. Síðan eru aðrir starfs-
menn, s.s. svæðapostuiar.
biskupar, öldungar, prestar og
boðendur, djáknar og
diakonissur. Um kenningu
hennar höfðu þeir þetta að segja:
— Nýja postulakirkjan b.vggir
að öllu le.vti á orðum Krists, eins
og þau er að finna í Mattheusar-
guðspjalli 28. kafla, þar sem hann
segir að við eigum að fara og
gjöra allar þjóðir að lærisveinum
og kenna þeim að halda allt það er
hann hefur boðið. Þetta er vel
skipulögð kirkja og ekki er á
ferðinni neitt ofstæki og ekki
nein tilfinningasemi.
Nýja postulakirkjan hefur náð
útbreiðslu m.a. á Norðurlöndun-
um, Bretlandi, Hollandi, Frakk-
landi, Þýzkalandi og Sviss og
sögðust þeir félagar vera bjarts-
ýnir á að ná fótfestu einnig hér-
lendis, þeir hefðu eiginlega sér-
staka köllun tii að sinna Islandi.
Þeir koma frá kirkjúdeildinni í
Kanada, en eru hér á eigin
vegum. Lennart Hedin og Albert
Loschnig sögðu að af þessum
20—30 manna hópi. sem þeir
hefðu náð sambandi við
hérlendis, væru 3 sem vildu
leggja hönd á plóginn við að
stofna þessa kirkjudeild hér á
landi.
Sinfónían tekin til við vetrarstarfið
Sinfóníuhljómsveit Islands hélt fyrstu tónleika sina á vetrardagskránni í Háskólabíói s.i. fimmtudags-
kvöld, en undanfarnar vikur hefur hljómsveitin gert vfðreist um landið og farið í hljómleikaferð til
Færeyja. A þessum fyrstu tónleikum léku Guðný Guðmundsdóttir, Hafliði Hallgrímsson og Philip
Jenkins einleik, en stjórnandi var Páll P. Pálsson. A efnisskránni voru eingöngu verk eftir Beethoven,
Coriolan forleikur, þríkonsert fyrir fiðlu, celló, pianó og hljómsveit og sinfónía nr. 4.
Öllum þeim, sem sendu mér kveðjur og árnaðar-
óskir á áttræðisafmæ/i mínu 16. september sl.
faeri ég alúðarþakkir.
Vilhjálmur Þ. Gíslason.
L
Óttinn við
lýðræðið
Magnús Ólafsson, for-
maður SUF, ritar hug-
vekju á SUF-síðu Tímans,
nýverið, þar sem hann
fjallar m.a. um lýðræði og
almenningsáhrif á fram-
boð stjórnmálaflokka.
Magnús segir m.a.:
„Fátt óttast kommún-
istar meir en lýðræðið. Á
þeim bæ vilja forustu-
mennimir að öllum hlut-
um sé ráðið á þann veg
sem flokksforustan vill á
hverjum tíma. Þar má
ekki spyrja hinn almenna
flokksmann álits á fram
gangi mála nema nokkuð
sé vist að svörin falli
flokksforustunni i geð.
Þvi er ekki að undra,
þótt alþýðubandalags-
menn finni prófkjörum og
skoðanakönnunum flest
til foráttu, og muni hvergi
viðhafa þá aðferð við val
sinna frambjóðenda i
næstu alþingiskosning-
um, enda er hætt við að i
einstaka tilfelli yrðu nið-
urstöður ekki i anda
flokksforustunnar ef próf-
kjör yrði viðhaft.
Alþýðubandalagsmenn
hafa þegar tilkynnt um
röðun efstu sæta á fram-
boðslistum flokksins við
næstu alþingiskosningar i
nokkrum kjördæmum.
Ákvörðun sem að sögn er
tekin á þingum flokksins i
kjördæmunum, en engin
skýring hefur þó á þvi ver-
ið gefin hvers vegna var
ekki jafnframt raðað i
neðstu sætin. Skýringin
skyldi þó ekki vera sú að
flokksforustan fyrir sunn-
an hefði raðað i efstu sæt-
in og sú röðun verið sam-
þykkt með lófataki á kjör-
dæmisþingi. Siðan á að
eftirláta flokksmönnum i
kjördæminu að raða i
neðri sætin, sem áhrifa-
laus eru með öllu."
ið og þannig vilja harð-
linukommarnir að það
verði.
í öðrum stjórnmála-
flokkum hér á' landi en
Alþýðubandalagi á per-
sónukjör þingmanna si-
fellt meiri og meiri hljóm-
grunn. Ungir menn úr
þremur stjórnmálaf lokk
um, Framsóknarflokki, Al-
þýðuflokki og Sjálfstæðis-
flokki hafa ályktað um
nauðsyn þess að gjör-
breyta hér kosningafyrir-
komulaginu þannig að
kjósendur velji sina þing-
menn eftir persónum en
séu ekki neyddir til að
kjósa lista, sem flokksfor-
ustan á hverjum stað hef-
ur ákveðið og engu þar
um hægt að breyta."
Harðlínu-
kommar og
skrautblóm
Enn segir formaður
ungra framsóknarmanna:
„Ein af ástæðunum fyr-
ir þvi að alþýðubandalags-
menn óttast persónukjör
þingmanna er sú, að þeir
óttast að harðlinukommar
hverfi þá smám saman af
þingi. Þeir eigi ekki jafn
miklu fylgi að fagna og
þeir alþýðubandalags-
menn, sem eigi eru jafn
róttækir. Slíkt getur
flokksforustan alls ekki
hugsað sér. Hún vill hafa
harðan róttækan kjarna,
sem öllu stjórnar, en i
kringum þá má vera nokk-
ur hirð, nokkurs konar
skrautblóm, góð til at-
kvæðaveiða, en að mestu
áhrifalaus innan flokks-
ins. Þannig hefur það ver-
Forneskju-
flokkur
Hugleiðingum sínum
lýkur Magnús Ólafsson á
þessa leið:
„Meðan sú skipan
kosningalaga hefur ekki
verið tekin upp, þá eiga
flokkamir ekki aðra
möguleika til að fá álit
sinna kjósenda á röðun
frambjóðenda en efna til
skoðanakannana eða
prófkjörs. Sú leið hefur
þegar verið farin hjá fram-
sóknarmönnum í einu
kjördæmi fyrir væntanleg-
ar alþingiskosningar, og
ákveðið er að viðhafa þá
aðferð i þremur öðrum
kjördæmum. Sömu sögu
er að segja úr hinum
flokkunum.
En alþýðubandalags-
menn halda fast við sinar
gömlu venjur og láta fá-
mennar klíkur raða fram-
bjóðendum á sina lista. Á
þeim bæ er týðræðinu
ekki fyrir að fara, nema þá
einungis i skálaræðum
foringjanna. Og við val
frambjóðendanna er þess
vandlega gætt að harð-
linumennirnir séu hæfi-
lega margir i öruggum
sætum, en siðan er ýms-
um skrautblómum, svo
sem skáldum og leikurum
raðað þar í kring. Þannig
er munstrið fullkomið.
Skrautblómin sjá um at-
kvæðaveiðarnar, en harð-
linumennirnir ráða ferð-
inni á stjórnmálasviðinu."
Lýðræðis-
flokkarnir —
og sá öndverði
Það sem einkum vekur
athygli i þessari hugleið-
ingu hins unga framsókn-
armdnns er sú staðreynd,
að æskulýðssamtök allra
lýðræðisflokkanna: Al-
þýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðis-
flokks, náðu samstöðu
um stefnumiðun, til auk-
ins valfrelsis og lýðræðis i
kosningum hér á landi.
Ungliðar i Alþýðubanda-
laginu skárust hins vegar
úr leik. Þeir halda fast við
fornar flokksvenjur: mið-
stýringu flokksklíkunnar
og taglhnýtingu fjöldans.
Það er lítil von á breyting-
um til hins betra i þessum
forneskjuflokki — þegar
jafnvel ungliðar eru svo
langt að baki líðandi
stundar. Þeir hafa orðið
„strandaglópar"; ekki i
gærdeginum, heldur i
löngu horfinni tið.
Stykkishólmur:
Gardeigendur taglstíf a
hesta í görðum sínum
St.vkkishólmi, 6. október.
NOKKUR átök hafa átt sér
stað í Stykkishólmi undan-
fariö milli eigenda sauö-
fjár og hesta annars vegar
og skrúðgarðaeigenda hins
vegar.
Svo mikil harka er nú komin í
málió aö gareigendur hyggjast fá
lögfræðing til liðs við sig, eftir að
ekki fékkst úr því skorið með
fyrirspurn til yfirvalda hvort
sauðfjárhald væri bannað i bæn-
um. Undanfarið hafa garðeigend-
ur þurft að þola mikinn ágang
bæði sauðfjár og hrossa i görðum
sínum og eru sumir garðar að
heita má ónýtir, þessu telja garð-
eigendur sig alls ekki geta unað
og hyggja á aðgerðir.
Þá segja garðeigendur þaö stað-
reynd að hestar kauptúnsbúa sem
eru nú um 100 talsins vaði
umhirðulausir inn á lóðir í bæn-
um og valdi þar óbætanlegum
skemmdum. í þessu sambandi
hefur harkan gengið svo langt að
garðeigendur hafa taglstíft hesta
til minningar um heimsókn
þeirra í garöana.
Nýtt heimavistarhús vid
Gagnfræðaskóla Sauðárkróks
GAGNFRÆÐASKOLI Sauðár-
krðks var settur nýlega og nú í
upphafi skólaársins var tekið í
notkun nýtt heimavistarhúsnæði.
Er það herbergjaálma með 14
tveggja manna herbergjum, íbúð
húsvarðar og bráðabirgðaaðstöðu
f.vrir mötuneyti. Þá er þar einnig
dagvistunaraðstaða nemenda,
sem búsettir eru utan bæjarins.
Þetta nýja heimavistarhúsnæöi
er ætlað nemendum Gagnfræða-
skólans og Iðnskóla Sauðárkröks.
Við skóiasetningarat-hofmna
flutti skólastjóri, Friðrik Mar-
geirson, ræðu og afhenti frú
Ragnhildur Helgadóttir skólanum
að gjöf málverk af kjörföður
sínum, sr. Helga Konráðssyni,
sem jafnframt þvi að vera sóknar-
prestur á Sauðárkróki i rúm 20 ár,
þar til hann féll frá árið 1959, var
stofnandi og skólastjóri Gagn-
fræðaskóla Sauóárkróks. Segir i
frétt frá bæjarstjórn Sauðárkróks
að sr. Helgi hafi haft mikil af-
skipti af hvers konar menningar-
málum, en málverkiö gerði Sig-
urður KignrðssofK----------------------
Innilegar þakkir til allra þeirra er glöddumig með
heimsóknum, gjöfum og kveðjum á áttræðis
afmæli mínu þann 29. september s. I.
Ég bið guð að b/essa ykkur.
Dagbjört Andrésdóttir,
frá Sviðnum.
Q CATEHPILLAR
Til sölu
D6C jarðýta með rifkló, árgerð 1 971
D7F jarðýta með rifkló árgerð 1 974.
Óskum eftir vinnuvélum*á söluskrá.
VELADEILL
HEKLA hf
Laugavegi 170-172,- Sími 21240