Morgunblaðið - 12.10.1977, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÖBER 1977
25
+ Það er orðin föst venja hjá
Margréti Danadrottningu og
fjölskyldu hennar að eyða að
minnsta kosti tveimur vikum af
sumarleyfinu í Frakklandi. En
Henry prins er eins og kunnugt
er franskur. Fyrir nokkrum ár-
um keyptu þau höllina Cahteau
de Caix sem er frá 13. öld og'
síðastliðin þrjú ár hafa farið
fram gagngerðar endurbætur á
höllinni svo að í ár gat fjöl-
skyldan dvalið þar. Höllinni
fylgir mikið landrými og um
það hil fjórði hluti þess er vín-
akrar. Margrét drottning segir
að þessir dagar í Frakklandi
séu ómetanlegir fyrir fjölskyld-
una. Þau geti verið saman allan
daginn. engar opinherar skyld-
ur kalla, þau fara í langa
göngutúra, spila á spil og leika
badminton.
„Ég finn núna svo sárt til þess hvað mig vantar mömmu."
Valgerður Dan og Guðrún Asmundsdóttir í hlutverkum sinum í
Blessuðu barnaláni.
löppinni og aðrir leikend-
Barnalánið
flytur í Aust-
urbœjarbíó
+ Sýningar eru nú að
hefjast á nýjan leik á
„Blessuðu barnaláni” eft-
ir Kjartan Ragnarsson.
Leikurinn var sýndur
átján sinnum í Iðnó í
fyrra, ávallt fyrir fullu
húsi. Vegna aðsóknarinn-
ar var ákveðið að flytja
leikinn í Austurbæjarbíó
og verður hann sýndur
þar á miðnætursýningum
næstu laugardagskvöld.
Sú breyting verður á
hlutverkaskipan aö
Margrét Ólafsdóttir tek-
ur við hlutverki Þorgerð-
ar kerlingar af Herdísi
Þorvaldsdóttur. Börn
hennar leika Guðrún Ás-
mundsdóttir, Soffía
Jakobsdóttir, Valgerður
Dan, Ásdís Skúladóttir
og Steindór Hjörleifsson.
— Prestinn leikur Sig-
urður Karlsson, lækninn
Gísli Halldórsson. Sigríð-
ur Hagalín leikur Bínu á
»iu o;fcj'W- q s ft e. w t k 11 »•.e e u » u'ú h n e cun i
ur eru Guðmundur Páls-
son, Sólveig Hauksdóttir
og Gestur Gíslason.
Höfundur er sjálfur
leikstjóri sýningarinnar,
leikmynd gerði Björn
Björnsson, en lýsingu
annast Daníel Williams-
son. Miðnætursýningar
Leikfélags Reykjavíkur i
Austurbæjarbíói hafa
notið mikilla vinsælda,
enda hafa þar jafnan ver-
ið á ferðinni leikir af létt-
ara taginu.
(Úr fréttatilkynningu
frá LR)
Íslenzk-Ameríska félagið:
Sendiherra Bandaríkj-
anna talar á haustf agnaði
JAMES J. Biake. sendiherra
Bandaríkjanna á islandi. talar á
haustfagnaði islenzk-ameríska
félassins, sem haldinn verður að
Hótel Loftleiðum 15. október nk.
og hefst með borðhaldi kl. 20.
Islenzk-ameriska félagið hefur
um árabil haldið haustfagnaði
sem næst Leifs Eiríkssonar degin-
um, sem hefur verið lögskipaður i
Bandaríkjunum þann 9. október
ár hvert.
A þessum fagnaði mun sendi-
herrann flytja ávarp eins og fyrr
segir. Guðný Guðmundsdóttir
konsertmeistari Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands leikur einleik á
fiðlu og síðan verður stiginn dans.
David P. N. Christensen, sendi-
ráðsnautur, hefur móttöku fyrir
alla þátttakendur í Ameríska
bókasafninu kl. 18.30.
James J. Blake sendiherra Banda-
ríkjanna á tslandi.
Heraðsfundur Húna-
vatnsprófastsdæmis
Héraðsfundur Húnavatns- viðgerð á Holtastaðakirkju, og nú
prófastdæmis var haldinn á
Hvammstanga sunnudaginn 28.
ágúst í Hvammstangakirkju.
Hófst hann með messugjörð, sr.
Yngvi Þ. Arnason á Prestbakka
þjónaði fyrir altari, en sr. Hjálm-
ar Jónsson á Bólstaö predikaði.
Kirkjukórinn söng undir stjórn
Helga Ölafssonar organista.
Prófastur, sr. Pétur Þ. Ingjalds-
son, setti héraðsfundinn með
yfirlitsræðu sinni og minntist í
upphafi ræðu sinnar, Péturs
Péturssonar bónda á Höllustöðum
og Jóhannesar Norlands i Hindis-
vík er jafnan sóttu þessa fundi, en
höfðu látist á árinu. Var Pétur
nefndarmaður i sinni sveit og
héraði, en Jóhannes Norland um
áratugi kirkjuorganisti.
Þá minntist prófastur starfs í
prófastdæminu, messur voru 290,
altarisgestir 310, skirnir 94,
kirkjugestir um 12.000.
Prestbústaður á Bólstað hefur
nú verið gerður upp og hinn ný-
kosni prestur í Bólstaðarpresta-
kalli sr. Hjálmar Jónsson, hefur
sest þar að ásamt fjölskyldu sinni.
Þá hefur sú breyting orðið að
sr. Gísli Kolbeins prestur að Mel-
stað hefur flutt til Stykkishólms,
en hið forna Helgafellsprestakall
hlaut hann með lögmætri kosn-
ingu. Sr. Gísli Kolbeins þjónaði
Melstaðaprestakalli í 24 ár. Hann
er hinn röggsamasti kennimaður,
félagslyndur og rak búskap. Kona
hans, Sigriður Kolbeins, starfaði
mjög að söngmálum kirkiunnar í
prestakallinu og sem organisti og
leiðtogi í þessum málum. Þá var
heimili þeirra géstrisið og með
myndarbrag.
Afram hefur verið haldið með
stendur yfir viðgerð á hinni
merku Þingeyrarkirkju, sem
verður 100 ára á þessu ári.
Gestur fundarins var sr. Jón
Einarsson prestur á Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd, sem er for-
maður starfsháttanefndar Þjóð-
kirkjunnar en álitsgjörð hennar
er komin út i bókarformi og hefur
veriö send öllum sóknarnefndar-
formönnum. Flutti sr. Jón Einars-
son ágætt og greinargott erindi
um störf nefndarinnar og boð-
skap bókarinnar.
Urðu síðan umræður á eftir og
tóku margir til máls. Samþykkt
var að leggja þetta mál fyrir
sóknarnefndir og presta í prófast-
dæminu á komandi vetri.
Prófastur sleit fundinum með
ritningarlestri og bænagjörð.
Fundinn sóttu fimm prestar og
fimmtán safnaðarfulltrúar.
Fundarmenn hlutu ágætar viðtök-
ur hjá söknarnefnd Hvamms-
tangakirkju er veitti þeim sið-
degiskaffi og kvöldverð í félags-
heimili staðarins.
(Fréttatilk.)
Græna blómið—ævin-
týri í máli og myndum
IÐUNN hefur sent frá sér
ævintýri í máli og myndum
sem nefnist GRÆNA
BLÓMIÐ. Höfundur þess
er Róbert Guillemette.
Róbert þessi er frönskumæl-
andi. Hann er frá Normandi. Hon-
um skaut upp á Islandi fyrir sjö
árum og hafði þá fengið þá hug-
mynd að setjast í Háskóla íslands
og læra islensku. Einnig hefur
hann lagt hér stund á hin fjöl-
breyttustu störf til að vinna sér
fyrir daglegu brauði. Og síðast en
ekki sist hefur hann málaö og
teiknað.
Ævintýrið er jafnt við hæfi
barna sem fullorðinna.
• Magnús Rafnsson og Arnlin
Óladöttir sneru bókinni á ís-
lensku. Bókin er prentuð i
Hafnarprenti og bundin í Arnar-
felli.
iR K '■ W P