Morgunblaðið - 15.10.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÖBER 1977
13
Grjótaþorp er upphaf og
kjarni Reykjavíkur. Það
kemur vel í ljós í sögulegri
könnun og merkilegri út-
tekt á byggingarsögulegu
gildi húsanna og ástandi
þeirra, sem unnið hefur
verið á vegum borgar-
minjavarðar. Hér á síðunni
birtast myndir af nokkrum
húsanna, sem enn standa,
og sögu þeirra, eins og hún
er rakin í skýrslunni.
Hugmyndir um breyting-
ar á svæðinu hafa verið
uppi allt frá 1927 án þess
að komast í framkvæmd.
Þess vegna hafa nýbygg-
ingar ekki verið reistar á
einstökum lóðum og mörg
gömlu húsanna því fengið
að standa. Nú er þessi
skýrsla gerð og lögð fram
til að auðvelda borgaryfir-
völdum ákvarðanatöku um
hvað verður um Grjóta-
þorpið í nýju skipulagi, í
ljósi breyttra viðhorfa til
minja og gamalla húsa.
Um byggingarnar sjálfar
segir m.a.: „Auk þeirra sér-
stæðu bygginga eins og
Vinaminnis Mjóstrætis 3,
Fjalakattarins (Aðal-
strætis 8), verzlunarhús-
anna í Aðalstræti 2, er þar
fjöldi húsagerða . . . Er
margbreytni húsanna í
sjálfu sér vottur og um leið
ávöxtur sögu svæðisins."
Mjóstræti 4
1885 Egill Gunnlaugsson tómthúsmaður
1896 Lauritz Jörgensen málari
1906 Vigfús Jósefsson skipstjóri
1935 Þorsteinn Tómasson trésmiður
1954 Reykjavíkurborg
Húsið var reist 1885 af Agli Gunnlaugssyni.
Átti hann hálfa Arabæjarlóð. Stóð Arabær sem
var tvíbýli, þar sem nú er Mjóstræti 2.
Húsið er járnvarið timburhús, kjallari, ein hæð og
ris með porti. Ein íbúð er í öllu húsinu, þvotta-
hús og því um líkt í kjallara. Inngönguskúr er á
vesturhlið hússins. Þrískiptir gluggar hafa verið
settir á framhlið en fáar aðrar breytingar hafa verið
gerðar.
Húsið er lítið og snoturt og lætur lítið yfir sér.
Ber að varðveita það sem dæmi um góð híbýli alþýðu-
fólks. Tómthúsmaður reisti það fyrir sig sama ár
og Vinaminni var byggt. Vestan hússins er girtur
grasblettur með grenitrjám.
Grjótagata 4
1797 Frú Mikaelsen
1812 Benedikt Gröndal yfirdómari
1830 Cristian Jacobsen kaupmaður
1852 Helga Egilsson ekkja
1855 Elin Thorsteinsson ekkja
1892 Einar Pálsson smiður
1902 Stefán Eiríksson myndskurðarmaður
1973 Reykjavíkurborg
Á lóðinni stóð "Skálinn", torfhús sem var svefnskáli
innréttinganna. Benedikt Gröndal yfirdómari mun
hafa látið rífa bæinn og byggja hús, "Gröndalshús".
Einar Pálsson snikkari reif það 1896 og byggði þar
hús sem enn stendur. Einar var kunnur trésmiður í
bænum og byggði m.a. Iðnaðarmannahúsið (Iðnó) 1897.
1900 - 1920 var Stefán -Eliríksson með teikniskóla og
verkstæði í kjallaranum og tók sonur hans við verk-
stæðinu.
Húsið er járnvarið timburhús, tvær hæðir, kjallari og
lágt ris. íbúð er á hvorri hæð og bókbandsvinnustofa
í kjallaranum. Allar hliðar hússins eru jafnar og
er það sjaldgæft. Gluggar og hurðir á hæðum hafa
haldist óbreytt. Herbergjaskipan lítið brevtt. Öt-
skurður hefur verið á vindskeiðum en er nú horfinn.
Reykháfur er fjarlægður.
Ekki eru önnur hús á lóðinni en stór tré í garðinum og
rimlagirðing.
Húsið er ómissandi. Það er bæði heillegt og á sér
sess í sögu íslenskrar myndlistar því margir smiðir
og listamenn lærðu þar hjá Stefáni Eiríkssyni hinum
oddhaga. Æskilegt væri að útskurður yrði settur aftur
á vindskeiðar þegar húsið yrði lagfært. Girðingu
vantar um garðinn sem gæti orðið mjög fallegur.
Aöalstræti 2
1780 Konungsverslunin danska
1790 Siinchenberg kaupmaður
1820 Bjarni Sívertsen kaupmaður og riddari
1830 Wellejus kaupmaður
1853 Robert Peters Tærgesen kaupmaður
1865 Waldemar Fischer kaupmaður
1907 H.P. Duus kaupmaður
1930 P.L. Mogensen lyfsali
1948 Verslunin Geysir
Þar stóðu áðut hús konungsverslunarinnar, sem flutt
voru í land, þegar verslunin var flutt úr Örfirisey
árin 1779-80. Fyrir konungsversluninni var Johan
Chr. Súnchenberg, sem jafnframt var yfirmaður inn-
réttinganna. Þegar konungsverslunin var seld keypti
Sunchenþerg hana og var hann fyrsti og helsti útlendi
kaupmaðurinn í Reykjavík. Lét hann reisa faktors-
ibúð fyrir sunnan krambúð sína (Aðalstræti 4) en áður
hafði hann búið í aðalhúsi innréttinganna (Bergmanns-
stofu, Aðalstræti 9). Eftir lát Sunchenbergs var
ekki verslað að staðaldri í húsunum. Árið 1827
keupti þau Wellejus, danskur kaupmaður og rak þar
verslun nokkur ár. T853 keypti Robert Peters Tærge-
sen húsin, lét rífa þau og byggja nýja búð 1855, sem
stendur enn við Aðalstræti. Var Tærgesen dugnaðar-
maður mikill og var kosinn í fyrstu bæjarstjórn í
Reykjavík 1848.
Árið 1865 keypti Waldemar Fischer kaupmaður húsin og
rak þar verslun um langt skeið. Lét hann reisa mörg
geymsluhús á lóðunum báðum megin Fischersunds.
Fischer fluttist til Kaupmannahafnar, en faktorar
hans stýrðu versluninni, unni þar ýmsir menn sem síðar
urðu kunnir kaupmenn og má þar nefna Þorlák O. Johnson
og Guðmund Olsen. Arið 1907 keypti H.P. Duus verslunina
og lét hann enn byggja við húsin og var þar síðar Ingólfs-
Apótek. Undanfarna áratugi hefur húsið verið i eigu
verslunarinnar Geysis sem þar er. Lengstum var íbúð á
efri hæð hússins og bjuggu þar ýmist eigendur eða
faktorar, en nú er verslunin í öllu húsinu.
Húseignin skiptist i tvö meginhús, framhús, sem er gafl-
sneitt og snýr út að Aðalstræti og bakhús. Er framhús
tvær hæðir og ris og á bakhúsi er ris með porti, en
lægri byggingar tengja þau saman. Öll húsin sem eru
timburhús, hafa verið múrhúðuð og hafa bæði fyrir-
komulags- og útlitsbreytingar verið gerðar á þeim.
Verslun er á allri jarðhæðinni og hafa stórir sýningar-
gluggar verið settir þar. A efri hæð framhúss hefur
gluggum verið breytt og sumum á vesturhlið bakhúss..
Þegar húsið var múrhúðað, hafa allir listar og glugga-
skraut, sem áður prýddu húsið, verið fjarlægð.
Húsin eru,ómissandi vegna sögu sinnar, legu og gerðar.
Á staðnum hefur einna lengst verið verslað í Reykjavík,
enda var hér aðálathafnasvæðið. Byggingarnar eru
dæmigerð verslunarhús, framhúsið eitt það elsta í
bænum og með fyrstu tvílyftu húsunum þar. Húsin eru
stór og sjást víða að og eru því stór hluti af mið-
bæjarmynd Reykjavíkur. Þau eru tengd húsunum nr. 3
við Vesturgötu og mynda þau samstæða heild á mótum
Vesturgötu og Aðalstrætis. Ásamt bakhúsum Aðal-
strætis 4 móta þau götumynd Fischersunds sem er ein-
stæð. Við útlitsbreytingar hefur heildarsvipur fram-
hússins og hliði^, sem veit að Vesturgötu, breyst
mjög. Væri æskilegt að færa útlit húsanna í eldra
horf, sem samræmdist gerð þeirra.
Séd niöur Fichersund
Verslun Duus Aöalstræti
2, eitt fyrsta tvílyfta hús-
íö á iandinu. 1903. (Ábs).