Morgunblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977
23
Landsþing Landssambands slökkviliðsmanna:
Alyktar að stofnaður skuli
skóli fyrir slökkviliðsmœn
FIMMTA þing Landssambands
Slökkviliðsmanna var haldið dag-
ana 8.—9. október s.l. að Hótel
Esju. Formaður sambandsins, Ár-
mann Pétursson, setti þingið og
þakkaði Gunnari Thoroddsen
félagsmálaráðherra og Ölafi G.
Einarssyni alþingismanni fyrir
þátt þeirra í endurskoðun laga
um hrunavarnir og brunamál.
Þá tók Gunnar Thoroddsen til
máls og ræddi m.a. um nauðsyn
þess fyrir bæi og sveitarfélög að
hafa vel þjálfað og vel útbúið
slökkvilið til taks. Nokkrir aðrir
tóku til máls og m.a. flutti Rúnar
Bjarnason slökkviliðsstjóri í
Reykjavik erindi.sem nefndist
Samstarf slökkviliða á höfuð-
borgarsvæðinu.
Miklar umræður urðu um
öryggismál slökkviliðsmanna og
var skipuð nefnd til að vinna að
r
Arleg ljósaperu-
sala Lionsmanna
í Garðabæ og
Bessastaðahreppi
LIONSKLUBBUR Garðabæjar og
Bessastaðahrepps verður nú um
helgina með sína árlegu ljósa-
perusölu. Verður ágóðanum nú
sem áður varið til ýmiss konar
líknar- og menningarmála.
Meðal nýrra verkefna, sem haf-
in eru, má nefna aðstoð við starf-
semi vistheimilisins á Vífilsstöð-
um. Þar er unnið mjög veigamikið
starf við meðhondlun fólks, sem á
við áfengisvandamál að stríða.
því í samráði við stjórnvöld að
koma á skóla fyrir slökkviliðs-
menn.
Mývetningar í
viðbragðsstöðu
MWETNINGAR eru um þessar
mundir að búa sig undir viðbrögð
vegna næstu hrinu á Kröflusvæð-
inu, að því er Jón Illugason odd-
viti tjáði Morgunblaðinu í gær.
Var í gærkvöldi haldinn borgara-
fundur á vegum Almannavarna-
ráðs. þar sem Páll ^Einarsson,
jarðeðlisfræðingur, m.a. kynnti
jarðfræðilegar aðsta'ður á svæð-
inu. Einnig var í gær gerð tilraun
með neyðarsímakerfið I Mývatns-
sveit, og tókst hún vel í flestu
tilfelli. Landris heldur áfram á
svæðinu með jöfnum hraða en að
öðru le.vti er þar fremur kyrrt.
Verið er að skipa um borð i skip
erlendis rörum, sem komið gætu
að notum við hraunkælingu i Mý-
vatnssveit, ef þar skyldi brjótast
upp jarðeldur, Vegna útskipunar
á þessum rörum, þurfti aðili hér á
landi að ná símasambandi við
Danmörku og óskaði eftir því að
fá heimild til að hringja. Verk-
fallsverðir hjá Pósti og síma
veittu hins vegar ekki umbeðna
heimild.
Flugleiðir
í þýzkum
sjónvarpsþætti
um ódýr fargjöld
KVIKMYNDATÖKUFLOKKUR
frá þýzka sjónvarpinu Saar Rund-
funk hefur lokið við töku kvik-
myndar um Flugleiðir þar sem
fjallað er um lágu fargjöldin yfir
Atlantshaf. Rauði þráðurinn í
myndinni er um það hvers vegna
fólk fljúgi með Laker frá London
í leiguflugi þegar önnur félög
bjóða jafn hagstæð farfjöld í
áætlunarflugi og er þar sérstak-
lega beint augum að Flugleiðum.
Samkvæmt upplýsingum Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa
Flugleiða þá barst skrifstofu
Flugleiða í Frankfurt fyrirspurn í
siðustu viku frá Saar Rundfunk
um Atlantshafsflugið, en þeir
höfðu þá eftir athugun komizt að
þeirri niðurstöðu að fargjöld
Flugleiða frá Luxemburg til New
York eru svipuð og fargjöld Lak-
ers frá London þegar búið er að
bæta við kóstnaði við að komast
til London auk ýmissa ákvæða
sem fylgja leigufluginu.
Sveinn sagði að þessi kvikmynd
væri gerð fyrir dagskrá I í þýzka
sjónvarpinu fyrir útsendingar á
fimmtudagskvöldum þegar fjall-
að væri um mál sem væru ofar-
lega á baugi, en að jafnaði munu
um 25 millj. manna sjá þáttinn.
Sveinn fór til Luxemborgar í fyrri
viku til þess að aðstoða þýzku
sjónvarpsmennina. Þar tóku þeir
myndir af tveimur lendingum
Flugleiðaþotu, en á leiðinni til
íslands mynduðu þeir síðan flug-
freyjur við störf í flugvélunum og
í Keflavík mynduðu þeir lend-
ingu með því að vera frammi í
flugstjórnarklefanum. Kvað
Sveinn sjónvarpsmennina hafa
verið mjög ánægða með þá þjón-
ustu sem þeir fengu við verk sitt.
Síðan var haldið áfram til New
York þar sem mynduð var aðstaða
ýmissa flugfélaga, en aldrei aðrar
flugvélar en vélar Flugleiða.
M.a. verða í þættinum upplýs-
ingar um Lufthansa og Pan
Ameriean.
INNLENT
Hlutavelta Kvennadeildar
S.V.F.Í. í Reykjavík
Slysavarnakonur með hina f jölmörgu vinninga í sérstöku skyndihappdrætti.
fyrir allt sem gert er til varnar
þeim, þá þýðir ekki að slaka
neitt á, heldur berjast áfram af
öllu afli. En eins og allir vita þá
þarf að gera meira, og allt kost-
ar peninga. Nú leita þær enn á
náðir Reykvíkinga og treysta
því, að þeir komi sem flestir á
hlutaveltuna á sunnud. 16. okt.
Hefst hún kl. 2.00 i Iðnaðar-
mannahúsinu við Hallveigar-
stig. A hlutaveltunni verða eng-
in núll, allir fá eitthvað. Svo i
einu horninu verða þær með
skyndihappdrætti, þar verða
margir góðir vinningar. Einnig
verða boðnir lukkupakkar,
Vonast þær til þess að borgar-
búar láti ekki verkfall og
strætisvagnastopp aftra sér frá
þvi að koma á hlutaveltuna, og
um leið freista þess að fá marga
góða hluti fyrir lítinn pening,
um leið og þeir Ieggja sinn
skerf til slysavarna i landinu.
(Fréttatilk.vnning frá
Kvennadeild SVFI.).
Afli á úthaldsdag eykst hjá togurunum:
Meðalskiptaverðmæti hjá
GuðbjörguíS 1120 þús. kr. á dag
ÞRÁTT fyrir stærri möskva,
fleiri friðuð svæði og tal um
minnkandi fiskgengd og ýmsar
aðrar takmarkanir á sókn ís-
lenzka togaraflotans, þá hefur
meðalafli þeirra pr. úthaldsdag
aukizt töluvert á þessu ári miðað
við sama tíma í fyrra. Meðalafli
minni skuttogara hefur verið 9,5
lestir á dag á þessu ári, en í fyrra
var meðalaflinn 8,7 lestir. Meðal-
afli stærri skuttogara er nú 12.3
lestir en var í fyrra 11.0 lestir.
Kemur þetta fram í yfiriiti't
Landssambands ísl. útvegsmanna
um aflamagn, aflaverðmaúi og út-
haldsdaga togaranna frá 1. janúar
s.l. til 15. september s.l.
Þrir skuttogarar eru með yfir 1
milljón kr. skiptaverðmæti pr. út-
haldsdag, allir af minni gerð. Eru
það Guðbjörg ÍS, þar er maðal-
skiptaverðmætið kr. 1.120.000,
Júlíus Geirmundsson ÍS með kr.
1.064.000 og Bessi ÍS með kr.
1.033.000 á dag. Guðbjörg er jafn-
framt aflahæsti skuttogari á land-
inu yfir þennan tima, og er heild-
araflinn 3.723 lestir og brúttó-
verðmæti kr. 309.097.000.
Harðbakur EA er með hæsta
meðalskiptaverðmæti á úthalds-
dag af stærri skuttogurum, eða
989.000 kr., þá kemur Svalbakur
EA með 927,000 og þvi næst Ögri
RE með 892.000 kr.
Guðbjörg ÍS er ennfremur með
mestan meðalafla á úthaldsdag,
14.8 lestir, og tveir næstu togarar
af minni gerð eru Júlíus Geir-
mundsson ÍS með 13.9 lestir og
Bessi ÍS með 13.6 lestir. Vigri RE
er með mestan meðalafla stærri
skuttogara eða 14.7 lestir, þá
kemur Ögri RE með 14.5 lestir og
þá Harðbakur EA með 13.7 léstir.
Hjá stærri skuttogurum er
meðalskiptaverðmæti á kíló hæst
hjá Sléttbaki EA kr. 73.80 á kíló,
Svalbakur ‘EA hefur fengið þr.
73.70 á kíló og Kaldbakur EA kr.
72.30 á kiló, eh allt eru þetta
togarar Utgerðarfélags Akureyr-
mga.
Bjartur NK er með hæsta
meðalskiptaverð á kíló af minni
skuttogurum eða kr. 79.40, þá
kemur Ólafur Bekkur ÓF með kr.
79.30 og Rauðinúpur ÞH með kr.
77.00.
Þorsteinn Viggósson sagði m.a.
við opnunina: ,,Við högum inn-
kaupum þannig að allt er sam-
valið — ef kona ætlar að fá sér
kjól þá á hún um leið að geta
fengjð hér viðeigandi skó og
tösku í stað þess að þurfa að leita
dyrum og dyngjum að því sem
með þarf til að ná heildarsvipn-
um.
Vegna álagningarreglna hér á
tslandi eru þær vörur, sem hér
fást, ódýrari en í nágrannalönd-
unum, enda þótt flutningskostn-
aður sé töluverður, en ég hef
komist að þeirri niðurstöðu að til
þess að trygéja að alltaf sé nægi-
legt vörumagn i verzluninni sé
nauðsynlegt að flytja vörurnar
hingað í flugi."
Það vakti athygli á tízkusýn-
ingunni á Hótel Holti að MoonS-
fötin voru öllu litskrúðugri en is-
lenzkar konur klæðast alla jafna.
Þorsteinn kvaðst þeirrar skoð-
unar að þær væru smám saman að
láta af íhaldssemi i sambandi við
litaval, „enda veitir ekki af i
akammdeginu", sagði hann.
Þorsteinn Viggósson ásanit Maríu
VYaltersdóttur í hinni nýju tízku-
verzlun.
Marteinn Viggósson, bróðir
Þorsteins, og María Waltersdóttir
munu veita Moons-verzluninni
forstöðu, en sjálfur ætlar Þor-
steinn að sjá um innkaupin ásamt
Nellie og Peter Kops, sem hafa
Norðurlandaumboð fyrir Moons,
og reka verzlun með sama nafrii i
Kaupniannahöfn.
Næstkomandi sunnudag 16.
okt. verða Slysavarnafélags-
konurnar í Re.vkjavík með sína
árlegu hlutaveltu. Þær hafa
undanfarinn mánuð unnið baki
brotnu við að safna munum á
hlutaveltuna. Eru þær búnar að
koma víða við f verzlunum og
öðrum fyrirta>kjum hér í borg-
inni og eins og alltaf áður
hefur þeim verið tekið fádæma
vel.
Eru þær ákaflega þakklátar
öllum þeim, sem stutt hafa þær
í þessari stærstu fjáröflun
þeirra á árinu.
Kvennadeildin hér i Reykja-
vík hefur alltaf verið sterkasta '
stoð Slysavarnafélagsins í fjár-
öflun til slysavarna i iandinu.
Hafa þær unnið ómetanlegt
gagn með dugnaði sínum og
áhuga á þessu góða málefni.
Kvennadeildin hefur núna gert
stóra pöntun á plastspelkum til
notkunar í alvarlegum slysatil-
fellum, sem gefa á til
Stóll frá Módelhúsgögnum sem
gefinn var sem vinningur.
björgunarsveita SVFÍ viðs-
vegar um landið. Þá hefur hún
einnig veitt bjsv. Ingólfi i
Reykjavik styrk til kaupa á
björgunarbúnaði.
Nú þegar sl.vsum fjölgar þrátt
Moons — ný tízkuverzl-
un í Þingholtsstræti
I fyrradag var opnuð ný tízku-
verzlun í Reykjavík. Eigandi
verzlunarinnar er Þorsteinn
Viggósson, sem mörg undanfarin
ár hefur verið við veitingarekstur
í Kaupmannahöfn. 1 hinni nýju
verzlun, sem er til húsa í
Þingholtsstræti 1, verða seldar
tízkuvörur, sem nær eingöngu
eru ítalskar, að mestu leyti frá
fyrirtækinu Moons.
S.I. þriðjudag var haldin tízku-
sýning í Hótel Holti til kynningar
á vörum þeim, sem seldar verða i
Moons. Verzlunin leggur áherzlu
á að hafa á hoðstólum bæði dag-
og kvöldklæðnað, yfirhafnir og
skófatnað.