Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977
■ |p% blMAK
lO 28810
lir* 24460
car rental
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
LOFTLEIDIR
i: 2 1190 2 11 38
FERÐABÍLAR hf.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbilar, sendibíl
ar, hópferðabílar og jeppar
Fræðslufundir
Sveinafélags
húsgagnasmiða
FRÆÐSLUNEFND Sveinafélags
húsgagnasmiöa gengst fyrir
fræðslufundum i vetur, einum í
mánuði. Viðfangsefni fundanna
verða „yfirborðsmeðferð viðar,“
sem Aðalsteinn Thorarensen, ión-
skólakennari, hefur framsögu
um. „íslenzka valdakerfið“, sem
Ólafur Ragnar Grímsson, prófess-
or, hefur framsögu um, „Fram-
leiðslusamvinnufélög iðnaðar-
manna", sem Sigurður Magnús-
son rafvélavirki talar um,
„öryggismál húsgagnaverk-
stæða“, sem Þröstur Helgason,
iðnskólakennari, talar um og á
marz-fundinum fjallar Vilmund-
ur Gylfason, menntaskólakenn-
ari, um dagblöðin og flokkana.
Ný bók um
Morgan Kane
Út er komin 6. bókin í bókaröð-
inni um Morgan Kane. Bókin heit-
ir ,,Lestaránin“ og gerist hún í
Texas 1891. Morgan Kane hefur
störf sem alríkislögregluforingi.
Hans fyrsta verkefni er að stöðva
bíræfin Iestarán sem hafa átt sér
stað og ekki hefur verið unnt að
fyrirbyggja.
Prenthúsið hefur ákveðið að í
framtíðinni komi út bók á tveggja
mánaða fresti að minnsta kosti
um Morgan Kane.
Bátar urðu að
hætta löndun
og halda sjó
Siglufirði 27. október.
ÓSKAPLEGT veður gekk hér yfir
í dag og varð að hætta löndun úr
loðnubátum vegna veðurofsans.
Lágu bátarnir undir áföllum við
ríkisbryggjurnar og héldu sumir
út á f jörðinn til þess að halda sjó.
— m.a.
25 bjargað
úr skipi
TUTTUGÚ og fimm manna áhöfn
austur-þýzks vöruflutningaskips
var bjargað í mikium sjó norður
af Bodö í gærkvöldi eftir að skip-
ið hafði lagzt flatt fyrir sjó og
vindi.
Þrettán skipverjum var fyrst
bjargað um borð í norska þyrlu.
Hinir mennirnir tólf urðu eftir í
skipinu og reyndu að koma þvi á
réttan kjöl með því að fleygja
timburfarmi þess útbyrðis en án
árangurs. Þeir voru loks fluttir
um borð í norskt rannsóknaskip.
Skipið var á leið frá höfn í
Norður-Síberiu til Austur-
Þýzkalands. Það heitir Karls-
horst, 2.547 lestir, frá Rostock.
KLUKKAN 20.30 í kvöld
eöa strax að loknum aug-
lýsingum sýnir sjónvarp-
ið þriðja þátt íslenzka
framhaldsmyndaflokks-
ins Undir sama þaki eftir
þá Björn Björnsson, Egil
Eðvarðsson ' og Hrafn
Gunnlaugsson, en þættir
þessir f jalla um erfiða og
misjafna sambúð íbúa í
fjölbýlishúsi.
Þátturinn í kvöld
nefnist Hjartagosinn og
nú bætist andiit við í
þann hóp sem leikið
hefur í fyrstu tveimur
þáttunum, en það er
Bessi Bjarnason.
Að sögn hafa þættirnir
sem þegar hafa verið
sýndir þótt nokkuð
smellnir og hefur fólk
yfirleitt haft gaman af.
Ef að líkum lætur má
búast við að svipaður
húmor verði í þætti
kvöldsins og verið hefur
hingað til. Annars er bezt
að setjast bara við
skjáinn.
Frá upptöku eins
atriðis. í íslenzka
ffamhaldsmynda-
flokknum Undir
sama þaki.
Togstreita Hinriks annars
og Elinóru drottningar hans
KLUKKAN 21.45 í kvöld sýnir
sjónvarpið bandarisku biómyndina
Gamla Ijónið, eða The Lion in
Winter, eins og myndin heitir á
frummálinu en hún var framleidd
árið 1968. Leikstjóri myndarinnar
er Anthony Harvey en með aðal-
hlutverk fara hinir kunnu leikarar
Peter O'Toole og Katharine
Hepburn.
í stuttu máli skýrir myndin frá
erjum Hinriks annars Englands-
konungs og Elinóru drottningar
hans en þau voru ekki á einu máli
um hvor sona þeirra Ríkharður
Ijónshjarta eða Jóhann landlausi.
ættí að taka við konungdómi Fyrir
leik sinn í hlutverki Elínóru hlaut
Katharine Hepburn Óskarsverðlaun
árið 1968, svo og hlutu þeir James
Goldman höfundur handrits og
John Barry leiksviðshönnuður Óskar
sama ár fyrir hlut sinn að myndinni
Anthony Harvey leikstjóri er Eng-
lendingur, fæddur í London árið
1931. Fékkst fyrst við klippingar
áður en hann sneri sér að leikstjórn.
en mynd kvöldsins er önnur myndin
sem hann stýrði
Katharine Hepburn þarf vart að
kynna, nema þá fyrir yngri áhorf-
endur. Hún er fædd 1909 í
Connecticut i Bandaríkjunum Hefur
mikinn persónuleika og þeir sem vit
hafa á telja hana með leik sínum
hafa náð því að verða ein af ódauð-
legum persónum hvita tjaldsins
Hlaut mikla frægð þegar með sinni
fyrstu kvikmynd, A Bill of Divorce-
ment (1932), en áður en hún snerj
sér að kvikmyndum hafði hún m a
leíkið á Broadway
Peter O'Toole er Breti eins og
leikstjórinn, fæddur árið 1932
Starfaði i nafnkunnum brezkum leik-
húsum áður en hann hélt til Holly-
wood, þ á m Konunglega Shake-
speare-félaginu Lék i sinni fyrstu
kvikmynd árið 1959 og varð brátt
eftirsóttur vegna sérstæðra
tjáningarhæfileika sinna Hefur
leikið i fjölda mynda.
Myndin er af Peter O'Toole og Katharine Hepburn í hlutverkum
stnum.
utvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
29. október
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir 7.30, 8.15 (og
forystugr. dagbl). 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Kristján Jónsson Ies
söguna „Túlla Köng“ eftir
Irmelin Sandman Lilius
(14).
Tilkymiingar kl. 9.00. Léit
liig milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
Barnatími kl. 11.10: Hvað
lesa foreldrar fyrir börn sín
og hvað börnin sjálf? —
Gunnar Valdimarsson stjórn-
ar tímanum og ræðir við les-
arana, Margréti Erlendsdótt-
ur, Ingva Gestsson og Jósep
Gíslason (11 ára).
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 Sigiid tönlist úr ýmsum
áttum.
Færgir söngvarar, hljóðfæra-
leikarar og stjórnendur
flytja vinsæl lög og þætti úr
tónverkum.
15.30 „Fótatak þefrra, sem
framhjá ganga“.
Smásaga eftir Harald Á.
Sigurðsson. Knútur R.
Magnússon les.
15.40 tslenzki mál. Dr. Jakob
Benediktsson flytur þáttinn.
16.20 Létt tónlist
17.00 Enskukennsla; — annar
þáttur.
t tengslum við kennsiu f
sjónvarpi. Leiðbeinandi:
Bjarni Gunnarsson mennta-
skólakennari.
17.30 Við norðurbrún Vatna-
jökuls.
Daníel Bruun segir frá rann-
sóknum sínum á Austurlandi
1901. Sigurður Óskar Pálsson
skólastjóri ies miðhluta frá-
sögunnar í eigin þýóingu.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfegnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Reykjavíkurskýrsla.
Jökuls Jakobssonar.
20.05 Píanótónleikar:
Mareelle Marcender leikur
verk cftir Joseph Jongen.
20.30 Októberdagar á Akur-
eyri 1931. Stefán Asbjarnar-
son segir frá; annar hluti.
21.00 Píanótríó nr. 3 í c-moll
op. 1 nr. 3 eftir Beethoven.
Mieezyslaw Horszovski leik-
ur á pínó, Sándor Vegh á
fiðlu oblo Caae á
sellómdl 35 „Sdal á
sænu___tökk“
smáesaga eftir Solveigu von
Schoiz, Sigurjón Gjuðjóns-
son íslenzkaói. Guðrún
Aifreðsdöttir leikkona les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
23.55 Fréttir.
Dagskrárlok.
mr
LAUGAKDAGUR
' 29. október 1977
16.30 fþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.15 OnWeGo
Enskukennsla. Annar þáttur
endurfluttur.
18.30 Rokkveita ríkisins
Hijómsveitin Celsíus. Áður
á dagskrá 2. febrúar 1977.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Undir sama þaki
tsienskur framhaidsmynda-
flokkur í sex þáttum eftir
Björn Björnsson, Egil
Fðvarðsson og Hrafn Gunn-
laugsson.
3. þáttur. H jartagosinn
Þátturinn verður endur-
sýndur miðvikudaginn 2.
nóvember.
20.55 Gyðja holdi klædd
Aströisk heimildamynd um
sérstæða gyðjudýrkun f
Nepai 1 Himalajaf jöilum.
Gyðjan nefnist Kumari.
Hún er vandlega valin úr
hópi þriggja til fjögurra ára
meybarna og tignuð, uns
hún nær kynþroska.
Þýðandi og þulur Kristmann
Fiðsson.
21.45 Gamialjónið
(The Lion in Winter)
Bandarísk bfómynd frá ár-
inu 1968.
Leikstjóri Anthony Harvey
Aðalhiutverk Peter O’Tooie
og Katharine Hcpburn.
Hinrik annar Englandskon-
ui)gur og Eiinóra drottning
hans geta ekki orðió ásátt
um, hvor sona þeirra,
Ríkarður ijónshjarta eða Jó-
hann landiausi, eigi að erfa
konungdóm.
Myndin er ekki víð hæfi
barna.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
23.50 Dagskrárlik
Undir sama þaki kl. 20.30:
Ný andlit í hópinn
Skjárinn
kl. 21.45: