Morgunblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977
5
Tryggvi
Olafsson
sýnir í SUM
TRYGGVI Ólalsson lislmálari
opnadi sýningu í jGallerf SÚIVI
vió Valnsslíginn, 15. þ.ni. A
s.vningunni eru niálverk, svo og
fáeinar klippim.vndir. Svningin
liefur gengið ágællega og a<V
sókn veriö góð. Sýningin er op-
in inilli kl. 2—19 síðd. og lýkur
henni nú uni helgina.
Dagskrá um kvikmyndir
og börn í Norræna húsinu
Fræðslufundur
snyrtisérfræðinga
HINN árlegi fræðslu- og
skeninitifundur Félags fslenskra
snyiTisérfræðinga verður haldinn
á Ilólel Siigu, Súlnasal, á niorgun,
sunnudag. klukkan 15.00.
Aðaláherzla verður lögð á förð-
un og fatnað fyrir konur, einnig
verður fjallað um notagildi
snyrtivara og sýnd notkun þeirra.
Þá verður kynnt nýjung í andlils-
meðferð. AUir eru velkomnir
meöan húsrúm leyfir.
DAGSKRA uni börn og kvik-
myndir verður í Norræna húsinu
um helgina. Að dagskránni
standa Bókavarðafélag Islands,
Félag bókasafnsfræðinga ásamt
nokkrum kennara- og fóstrunem-
um í samvinnu við Norræna hús-
ið. Þetta er í þriðja skipti sem
þessi félög beita sér fyrir umræð-
uni um börn og barnamenningu.
Tveir erlendir fyrirlesarar
munu hafa framsögu um efnið.
Sigurbergur GK sjó-
settur eftir breytingar
í GÆRMORGUN var sjó-
settur í skipasmíðastöó-
inni Bátalóni í Hafnarfirði
m.b. Sigurbergur GK 212,
eftir að honum hafði verið
breytt í tveggja þilfara
skip og verður nú 300—350
burðartonna.
Er báturinn nú útbúinn
með skuttogbúnaði, flot-
vörpuvindu og höfuðiínu-
mæli. Þessi búnaður gefur
möguleika á því að vera
með loðnu-, spærlings- eða
kolmunnatroll, jafnhliða
því að vera með loðnu og
síldarnót. Skipið var tekið
inn í verkstæðishús Báta-
lóns h.f. 29. ágúst s.l. og
hefur þá breytingin tekið
rétt tvo mánuði.
þær Lise Roos kvikmyndagerðar-
maður og gagnrýnandi við danska
dagblaðið Information, og Anja
Paulin kvikmyndaráðgjafi við
Svenska filminstitutet i Stokk-
hólmi. í tengslum við dagskrána
verða sýndar kvikm.vndir fyrir
börn og unglinga í Tjarnarbíó
sent hér segir:
Lisa i Undralandi og Atta á
eyðiey verða sýndar laugardaginn
nk. kl. 14 og 15.45, kvikmyndin
Uppreisnin á sunnudag kl. 14 og
15.45 og Vestu hress á fimmtudag-
inn 3. nóvember kl. 17. Aðgangur
er ókeypis.
Fyrirlestrarnir í Norræna hús-
inu hefjast kl. 16 báða dagana og
flytur Anja Paulin fyrirlestur
sinn á laugardag og Lise Roos
erindi sitt á sunnudag.
Er þetta í annað sinn,
sem Bátalón gerir stór-
breytingu á þessu skipi.
Um áramótin 1973—’74
var skipið tekið inn í hús og
lengt um fjóra metra, en á
árinu 1975 var sett í það ný
vél. Eigandi skipsins er
Sigurbergur h.f. í Hafnar-
firði.
Pétur Hannesson
Pétur Hannesson endur-
kjörinn formaður Óðins
Aðalfundur Málfundafélagsins
Óðins var haldinn fimmtudaginn
27. okt. Pétur Hannesson, formað-
ur félagsins, flutti skýrslu stjórn-
ar fyrir s.l. ár, en síðan fór fram
stjórnarkjör. Var Pétur endur-
kjörinn formaður og aðrir í stjórn
voru kosnir: Þorvaldur Þorvalds-
son, Kristján Guðbjartsson,
Gústaf B. Einarsson, Jón
Kristjánsson. Ragnar Eðvarðsson,
Þórólfur Þorleifsson, Þórir Valdi-
marsson, Gunnar Sigurðsson,
Hans Þorsteinsson, Hannes Sigur-
jónsson og Pétur Kr. Pétursson.
Stjórnin skiptir síðar með sér
verkum
Geir Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, flutti yfir-
gripsmikla ræðu um efnahags- og
kjaramál. Siðan svaraði hann fjöl-
mörgum fyrirspurnum fundar-
manna. Skýrði hann m.a. stöðu
þjóðarbúsins, þegar núverandi
rfkisstjórn tók við og rakti þróun
þeirra mála.
Bjarni Magnússon, fráfarandi umdæmisstjóri Kiwanis á Islandi,
afhendir Ólafi Jenssyni umdæmisstjóra tákn embættisins, fundarham-
ar og bjöllu, við stjórnarskiptin. Bjarni B. Asgeirsson, forseti Evrópu-
deildar Kiwanis var viðstaddur athöfnina.
Umdæmisstjóraskipti
hjá Kiwanis á íslandi
STJÓRNARSKIPTI urðu i um-
dæmisstjórn Kiwanis á tslandi
30. september sl. Bjarni Magnús-
son, útibússtjóri, lét þá af stiirf-
um umdæmisstjóra og við tók
Ólafur Jensson, framkvæmda-
st jóri.
A umdæmisþingi Kiwanishreyf-
ingarinnar í vor var ákveðið að
halda K-dag 29. október og helga
hann málefnum geðsjúkra.
Nú starfa hér á lándi 32
Kiwanisklúbbar og eru félagar
þeirra tæplega 1200. Fulltrúar is-
lands hafa gegnt æðstu embætt-
um innan Evrópuhreyfingar
Kiwanis. Á þvi starfsári, sem nú
er að ljúka, hefur Bjarni B.
Ásgeirsson verið Evrópuforseti
hreyfingarinnar og fulltrúar ís-
lands i Evrópustjórninni á næsta
ári verða Eyjólfur Sigurðsson,
Bjarni Magnússon og Ólafur Jens-
son.
CHEVROLET
NOVA
Ótrúlegt en satt!
í sparaksturskeppni BÍKR fór Chevrolet Nova, 8 cyl. 305 cu.in.
sjálfskiptur, 39,56 km á 5 ltr. af bensíni, sem jafngildir 12,64 ltr. eyðslu á
100 km. og varð nr. 2 i sínum flokki.
Þetta dæmi sannar fullkomlega að tæknimönnum G.M. hefur tekist að
gera þennan stóra bíl ótrúlega sparneytinn.
Nú er ’78 árgerðin komin og er enn á sama hagstæða verðinu.
Oft var þörf en nú er nauðsyn að tryggja sér bíl strax fyrir næstu
hækkun. Chevrolet Nova-mest seldi ameríski bíllinn á íslandi.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900