Morgunblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977
7
„Skæruliðar”
Þjóðviljans
ÞaS er rík ástæSa til aS
vekja athygli i frétt i
ÞjóSviljanum i fyrradag af
óhugnanlegum atburSi i
Hamborg i Vestur-
Þýskalandi. Fréttin er
höfS eftr Reuter og er
upphaf hennar — vel aS
merkja i búningi ÞjóSvilj-
ans — á þessa leiS:
„Mannræningjar
slepptu í dag úr haldi fjög-
urra ára gömlum frænda
vestur-þýsks skæruliSa,
sem var myrtur 1975. . ."
Þá segir aS lausnargjald-
iS, sem ræningjarnir
fengu, hafi numiS sem
svarar 87 milljónum is-
lenskra króna.
Og enn heldur þjóSvilj-
inn áfram sögunni, og
skal enn vitnaS i blaSiS
orSrétt:
„Dreng þessum. Felix
Wessel, var haldiS föngn-
um i viku aS sögn lögregl-
unnar. MóSir hans er syst-
ir Ulrichs Wessel. eins af
sex skæruliSum er réSust
á vestur-þýska sendiráSiS
i Stokkhólmi 1975 og var
myrtur þar."
Fregn ÞjóSviljans af
þessum ófrýnilega glæp
er óhugnanleg í tvöföld-
um skilningi.
Vestur-þýzka sendiráðiS i Stokkhólmi brennur. —
„Skæruliðar" voru þarna á ferð að sögn Þjóðviljans — og
einn þeirra var „myrtur "
I fyrsta lagi eru mann-
rán, og barnsrán þó alveg
sérstaklega, einn svivirSi-
legasti verknaSurinn sem
nú er stundaSur af hálf-
sturluSum öfgamönnum
hvort heitir til vinstri eSa
hægri og sem einatt
fremja óhæfuverkiS i
nafni „mannúSarinnar".
í öSru lagi leggur is-
lenska kommúnistablaSiS
nú spilin á borSiS og sýnir
svo aS ekki verSur um
villst hverjum augum þaS
litur ofbeldismennina, aS
þvi tilskildu aS visu aS
„málstaSurinn" sé þvi
þóknanlegur.
Blóðbað
Þegar hryðjuverka-
mennirnir, sem Þjóðvilj-
inn vísar til, ruddust gráir
fyrir jámum inn í vestur-
þýska sendiráðið i Stokk-
hólmi urðu málalok þau
meðal annars að tveir
sendiráðsmanna voru lif-
látnir á staðnum af
„skæruliðum" Þjóðvilja-
manna.
Frétt Morgunblaðsins
af atburðinum degi síðar
hefst á þessa leið:
Sænskir lögreglumenn með
eitt fórnarlamba „skæru-
liða'' Þjóðviljamanna Kon-
an var gísl hryðjuverka-
mannanna sem drápu tvo
af samstarfsmönnum
hennar.
Stokkhólmi, Bonn, 25.
apríl. NTB — AP —
REUTER: Lögreglan
iStokkhólmi leitar nú
hugsanlegra vitorðs-
manna hryðjuverkamann-
anna sex, sem um há-
degisbilið í gær réðust til
inngöngu i v-þýska sendi-
ráðið i borginni, tóku tólf
starfsmenn þess gísla,
drápu hermálafulltrúa
þess og verslunarfulltrúa
og sprengdu bygginguna
svo Í loft upp um mið
nættið i nótt eftir að
stjórn V-Þýskalands hafði
hafnað kröfum þeirra. . .
Herr Wessel
En takið nú eftir
hvernig frásögnin af
ódæðinu verður á máli
Þjóðviljans: í fyrsta lagi
titlar hann hryðjuverka-
mennina „skæruliða",
þ.e.a.s. velur þeim það
nafnið sem nánast má
heita sæmdarheiti þar
sem undirokaðir berjast í
raun og veru fyrir rétti
sinum. Og i annan stað
heitir það á máli Þjóðvilj-
ans að fyrrnefndur Ulrich
Wessel hafi verið „myrt-
ur" « sendiráðinu í Stokk-
hólmi. (Hann framdi
sjálfsmorð en hinir fimm
voru handteknir.)
Ulrich Wessel „lét ekki
lifið" með öðrum orðum
né heldur „féll" hann i
átökunum um sendiráðs-
bygginguna, þar sem
hann sat ásamt félögum
sinum með byssuna í baki
sendiráðsfólksins. Ekki al-
deilis! „Skæruliðinn"
Herr Ulrich Wessel var
fórnarlambið! Hann var
„myrtur" segir Þjóðvilj-
inn i inngangi fréttar sinn-
ar á fimmtudag. Herr
Ulrich Wessel var „einn
af sex skæruliðum sem
réðust á vesturþýska
sendiráðið i Stokkhólmi
1975 og var myrtur þar".
Fréttafölsun
Engum dylst vitanlega
að þótt Þjóðviljinn beri
fréttastofu Reuters fyrir
þessari frásögn, þá er
orðalag hennar ýmist
skælt eða falsað frá upp-
hafi til enda. Hvort heldur
mannræningjar og mann-
dráparar kenna sig við
„vinstri" eða „hægri",
heiðrar Reuter þá ekki
Framhald á bls. 24.
GUÐSPJALL DAGSINS:
Jóh. 4.: Konungsmaðurinn.
LITUR DAGSINS:
Grænn (áknar vöxt. Einkuni
vöxt hins andlega lífs.
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11
árd. Séra Þórir Stephensen. —
Ný messuklæði tekin í notkun.
Messa kl. 2 síðd. Séra Hjalti
Guðmundsson.
HATEIGSKIRKJA Guðsþjón-
usta kl. 11 árd. Guðfinna Dóra
Ólafsdóttir syngur einsöng.
Séra Tómas Sveinsson. Messa
kl. 2 síðd. Séra Arngrímur Jóns-
son.
KIRKJA ÓHAÐA safnaðarins
Messa kl. 2. síðd. Fermingar-
börn eru beðin að mæta til
spurninga í dag kl. 1.30. Séra
Emil Björnsson.
SUNNUDAGASKÓLI KFUM,
Antmannsstfg 2b, fyrir öll börn
kl. 10.30 árd.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2
siðd. Séra Frank M. Halldórs-
son. Bænaguðsþjónusta kl. 5
siðd. Séra Guðmundur Óskar
Ólafsson.
HALLGRlMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Lesmessa n.k. þriðju-
dag kl. 10.30 árd. Beðið fyrir
sjúkum. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
LANDSPlTALINN Messa kl.
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
FELLA- og IIÓLASÓKN Barna-
samkoma í Fellaskóla kl. 11
árd. Guðsþjónusta í skólanum
kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjartar-
son.
GRENSASKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Organisti Jón G.
Þórarinsson. Séra Halldór S.
Gröndal.
SELTJARNARNESSÓKN
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
félagsheimilinu. Séra Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
BÚSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Fundur í Æsku-
lýðsfélaginu kl. 8.30 síðd. Séra
Ólafur Skúlason.
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í
skólanum kl. 2 síðd. Séra Guð-
rnundur Þorsteinsson.
FRlKIRKJAN Reykjavik.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Organisti Sigurður ísólfs-
son. Séra Þorsteinn Björnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Sunnudagaskólinn kl. 11 árd. i
Breiðholtsskóla. Guðsþjónusta í
Breiðholtsskóla kl. 2 siðd. For-
eldrar fermingarbarna 1978
sérstaklega hvött til að koma.
Séra Lárus Halldórsson.
HJALPRÆÐISHERIN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
síðd. Lautinant Arvid Evju.
FlLADELFlUKIRKJAN
Safnaðarguðsþjónusta kl. 2
síðd. Athugið aðeins fyrir
söfnuðinn. Almenn guðsþjón-
usta kl. 8 siðd. Guðmundur
Markússon.
DÖMKIRKJA KRISTS KON-
UNGS, Landakoti. Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 siðd. Alla virka
daga er íágmessa kl. 6 sfðd.,
nema á laugardögum, þá kl. 2
sfðd.
ELLI-og HJÚKRUNAR
HEIMILIÐ Grund. Messa kl. 10
árd. Séra Lárus Halldórsson
messar.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2
slðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grimur Grimsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Séra Árelíus Níelsson. Guðs-
þjónusta kl. 2 siðd. Ræðuefni:
Þegar brjóstsins eldur lemst til
ösku í haglstormum hins krefj-
andi lífs. Einsöngur: Elisabet
Erlingsdóttir. Orgel: Jón
Stefánsson. í stól: séra Sig.
Haukur Guðjónsson. Sóknar-
nefndin.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árd. Messa
kl. 2 siðd. Fermingarbörn boðin
velkomin. Vænzt er og þátttöku
foreldra þeirra. Sóknarprestur.
KARSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Séra Arni
Pálsson.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarghólastíg kl.
11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 2 síðd. Séra Þor-
bergur Kristjánsson.
MOSFELLSPRESTAKALL.
Lágafellskirkja. Fjölskyldu-
messa kl. 2 siðd. Séra Birgir
Ásgeirsson.
Framhald á bls. 22
Hjartan/egar þakkir til allra, sem á einn og
annan hátt glöddu mig á 90 ára afmæli mínu
19. okt. s/.
Guð blessi ykkur öl/.
Pétur Jónasson,
Suðurgötu 9,
Sauðárkróki.
Kvenfélagið
Hringurinn
heldur handavinnu- og kökubazar að Hallveig-
arstöðum í dag laugardaginn 29. október kl. 2.
Allur ágóði rennurtil Barnaspítalans.
Til sölu í dag laugardag:
Peugeot 404, 7 manna stationvagn árgerð '73.
Peugeot 504, fólksbill árgerð '72.
Peugeot 404, fólksbíll árgerð '71.
Datsun 100 A fólksbíll árgerð '75.
Hillman Hunter sjálfskiptur fólksbíll árgerð '70
Dodge Weapon árgerð '55.
HAFRAFELL HF. — VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
Kynnist hinum
viðurkenndu frönsku
snyrtivörum sem unnar
eru úr jurtum frá
XJvetlvoclwL.
á sýningu Félags
íslenzkra
snyrtisérfræöinga
að Hótel Sögu,
Súlnasal á morgun kl. 3
Sölusýning
Sölusýning á handavinnu vistmanna Arnarholts
Kjalarnesi, verður haldin að Hallveigarstöðum
sunnudaginn, 30. okt. frá kl. 13.00—19.00.
Margt fallegra og góðra muna, t.d. gólfteppi,
málverk, útsaumur, leikföng og margt fleira.
Geðdeild Borgarspitalans
i Arnarholti.