Morgunblaðið - 29.10.1977, Síða 10

Morgunblaðið - 29.10.1977, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977 UTIÐINN TIL ALDRAÐS FÓLKS í SA Drottinn minn dýri, tók maðurinn mynd af mfér?“ sagði Ingibjörg Hannesdóttir, 84 ára, sem hér er með Kominn er nú fólks á fund fagna skemmtiræðum kannski ég fái kennslustund í kristilegum fræóum. Einn aldurhni«inn (O.Þ.) Sú nýbreytni hefur verid tekin upp f safnaðarheimili Bústaða- kirkju að ellilffeyrisþegar hafa einn dag í viku aðstöðu til alls slags tómstundaiðkana. Það er safnaðarráð Bústaðasóknar undir forystu sóknarprestsins, séra Ólafs Skúlasonar, og formanns, Aslaugar Gfsladóttur, sem kom þessari starfsemi af stað hinn 5. október sl. Hvern miðvikudag klukkan 2 streymir því hópur aldraðs fólks í safnaðarheimili Bústaðakirkju og eyðir deginum með fólki á sínu reki. Sumir dunda sér við handa- vinnu, flos, krosssaum. hekl og prjón undir forystu handavinnu- kennarans Magdalenu Sigurþórs- dóttir. Aðrir spila á spil eða ein- faldlega rölta um, fá sér kaffi og rabba við náungann. Morgunblaóið brá sér í stutta heimsókn sl. miðvikudag og spjallaði við nokkra þeirra, sem verja miðvikudeginum f safnaóar- heimilinu, en þeir eru að sögn sóknarprestsins um fimmtíu að maðaltali. Klukkan var að ganga fimm, þegar Mbl. bar að garði og þó nokkrir farnir heim. Samt var glatt á hjalla, fjörugar umræður og kliður. „UNGA FÓLKIÐ VILL EKKERT MEÐ OKKUR HAFA“ Við borð eitt sátu fjórir menn og spiluðu vist. „Á að gera þessa starfsemi upptæka?“ spurði einn þeirra snaggaralega og hló við. Þeir voru uppteknir af spila- mennskunni og vildu ógjarnan láta trufla sig. Þegar blm. skrifaði niður nöfn þeirra í flýti, glotti annar í kampinn og sagði: „Þ skrifar næstum eins vel og Jónas frá Hriflu.“ Hann kvaðst heita FIosi Jóns- son, fyrrum bóndi og kennari. „Já, og allt mögulegt, sem of langt yrði upp að telja". Spilafélagar hans voru þeir Gunnar Jónsson, sem vann við innrömmun, Eggert Benónýsson áður útvarpsvirki og Jón Hermóðsson, sem reri norður á Ströndum áður en hann hóf störf í Trésmiðjunni Viði, þar sem hann starfaði í 20 ár. Eggert kvað þessa starfsemi ágæta, þvi þarna gæfist tækifæri að blanda geði við fólk, sem ekki hefði þekkzt áður. „Ég er einn á báti og því einmana,“ sagði Jón. „Unga fólkið vill ekkert með okk- ur hafa — maður verður að vera einn, þangað til maður drepst.“ „Kaffið er nú verulega gott hér,“ sagði Eggert, sem kvaðst ekki vera svo einmana því hann ætti nú konu. „Það skiptir sér enginn af manni, eins og von er,“ hélt Jón áfram. „Það er heldur ekki hægt að búast við þvi. Unga fólkið í dag er allt annar flokkur." „Ungt fólk og gamalt fólk á litla samleið. Það veróur bara þreytt hvert á öðru,“ sagði Eggert. „Það er rétt,“ bætti Flosi við. „í sveitinni í gamla daga var þessu öðruvísi háttað. Þá voru fleiri verkefni að fást við en færri tóm- stundir.“ „Já, í dag er vinnan of einhliða, fólk er þreytt og hefur minni tíma aflögu,“ sagði Eggert og Gunnar bað þess að safnaðar- safnaðarráðs Bústaðakirkju. ráði Bústaðasóknar yrði þakkað fyrir framtak sitt f þessum mál- um. Eiginkonu Flosa bar að i þess- um svifum. Hún heitir Ingibjörg Hannesdóttir og ber aldurinn mjög vel, öll sín 84 ár. „Drottinn minn dýri, tók maðurinn mynd af mér? Almáttugur, á hún að birt- ast í blöðunum?" Ingibjörg og Flosi koma ætíð gangandi til safnaóarheimilisins. „Þetta er indælt," sagði hún. „Maður endurnýjast við að hitta þetta góða fólk. Annars hef ég verió með góðu fólki alla mína ævi. Nei, nei, ég er ekkert að spila á spil hér. Mér er það alveg nóg að fá tækifæri til að ræða við fólkið." „EINU SINNI BIRTIST EFTIR MIG VÍSA I MORGUNBLAÐINU“ Upphafstafirnir Ó.Þ. standa fyrir Ólafur Þorkelsson. Hann orti ofanskráða vísu um starfsemi aldraða fólksins i Bústaðakirkju. „Ég var orðinn 24 ára þegar ég byrjaði að yrkja. Um daginn var ég á gangi og var lágskýjað mjög. Orti ég þá þessa vísu: Aslaugu Gfsladóttur formanni „En livað skyin liggja lágt levna augum sólarbjarma Þó skai lundin leika dátt Ijúfum undir bragarvarma.** Ég er ekkert skáld. En það birt- ist samt einu sinni eftir mig vísa i Morgunblaðinu. Hún var um hann Lárus Salómonsson" og Ólafur bendir á mann sem situr „Ég byrjaði að yrkja 24 ára gam- all.“ Ólafur Þorkelsson. María Jónadóttir faðmar að sér Björgu Árnadóttur. Lengst til vinstri eru Magdaiena Sigurþórsdóttir handavinnukennari og Magnea Finn- bogadóttir handavinnukennari. „Veit ekki hvemig veturhn hef

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.