Morgunblaðið - 29.10.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977
Listkynning
á Akranesi
Akranesi, 28. október.
LISTASAFN íslands efnir til list-
kynningar í Bókhlöðunni á Akra-
nesi, laugardaginn 29. október kl.
15. Ólafur Kvaran listfræðingur
kynnir og sýnir litskuggamyndir
um upphaf afstraktlistar á Is-
landi. Listkynning þessi fer fram
á vegum bæjarstjórnar Akraness
sem hefur falið bókasafnsstjórn
framkvæmd hennar. _ júifux.
Flugleiðir
Framhald af bls. 40
vera fyrir félagið að sinna hinum
Norðurlöndunum til að byrja
með. Astæðan fyrir þvi að banda-
riska flugráðið styddi nú að
Northwest tæki við flutningunum
til Norðurlanda af PanAm væri
sú fyrst og fremst að um 85—90%
farþeganna væru fluttir með flug-
vélum SAS og þessu væri því
aðallega stefnt gegn því félagi.
Bandarikjaforseti á nú eftir að
staðfesta ákvörðun flugráðs i
þessu efni en hann tekur endan-
lega ákvörðun um þetta atriði.
Kvaðst Sigurður fastlega reikna
meó að ákvörðun hans yrði á
þessa sömu lund. Hins vegar
ítrekaði Sigurður að hann óttaðist
ekki ýkja mikið að áætlunarferðir
Northwest-félagsins myndu valda
Flugleiðum verulegu tjóni heldur
stafaði Flugleiðum mun meiri
hætta af ástandinu hér innan-
lands. Kvaðst hann þar fyrst og
fremst eiga við hin tiðu verkföll
hér á landi, þau hefðu orðið sex á
sl. ári og nú fyrir skemmstu hefðu
Flugleiðir siðan orðið fyrir barð-
inu á verkfalli opinberra starfs-
manna, sem skaðað hefði álit
félagsins mjög út á við.
Leifur Magnússon, aðstoðar-
flugmálastjóri sagði að ekkert
erindi hefði borizt til flugmála-
stjórnar frá Northwest-félaginu
enn sem komið væri, en hins
vegar væri í gildi milli Islands og
Bandaríkjanna samningur um
gagnkvæmt áætlunarflug milli
landanna. PanAm hefði haft flug-
leyfið hingað fram til þessa en
ekki nýtt það undanfarin ár.
— Jötunn
Framhald af bls. 40
þeirra framkvæmda. Sagði
Jóhannes að Hitaveitan hefði
lagt fram ósk um 24% hækkun
á gjaldskrá í byrjun þessa
mánaðar en ekki fengið nema
15% hækkun. Afleiðingin er
sú, aðra þarf stórlega niður
fjárhagsáætlun fyrirtækisins.
— Rafmagn
hækkar
Framhald af bls. 40
Varðandi hitaveitur sagði Krist-
mundur að heimiluð hefði verið
hækkun heímtaugargjalda hjá
hitaveitu Suðurnesja og hitaveitu
Siglufjarðar var heimiluð 25%
gjaldskrárhækkun frá og með 1.
nóvember.
r
— Israelsmenn
afnema höft
Framhald af bls. 1
minni en tækifærin sem opnuð-
ust.
Auk fjölmargra hafta sem verð-
ur létt af innflutningi og útflutn-
ingi verða höft á kaupum á er-
lendum gjaldeyri svo að segja af-
numin, svo og skattar á ferðum til
útlanda. Hingað til hafa tsraels-
menn aðeins getað fengið óveru-
legt magn af erlendum gjaldeyri
og orðið að greiða þóknun til að fá
hann.
Ehrlich sagði á blaðamanna-
fundi að ráðstafanirnar yrðu til
þess að þeir milljarðar dollara
sem voru geymdir I erlendum
bönkum mundu streyma aftur til
tsraels og að Israel yrði fjármála-
miðstöð síns heimshluta.
Með þessum ráðstöfunum er
sagt skilið við þá haftastefnu sem
ríkisstjórnir Verkamannaflokks-
ins hafa fylgt síðan 1948. Fjár-
málaráðherrann sagði að ráðstaf-
anirnar yrðu til að draga úr skrif-
finnskubákninu, spáði því að tsra-
elsmenn sem söfnuðu að sér
gjaldeyri erlendis mundu senda
hann heim, sagði að erlend aðstoð
mundi aukast og spáði þvi að
gjaldeyrisbirgðir tsraelsmanna
mundu aukast.
— Mannrán
Framhald af bls. 1
deild í morðum vestur-þýzka sak-
sóknarans Siegfried Bubacks og
bankastjórans JUrgen Ponto auk
ránsins á dr. Sehleyers.
Caransa er 61 árs gamall af por-
túgölskum Gyðingaættum brauzt
áfram af eigin rammleik og auðg-
aðist á fasteignaviðskiptum eftir
heimsstyrjöldina. Hann faldist
ásamt Eiku konu sinni á stríðsár-
unum og lifði af ofsóknir nazista
gegn hollenzkum Gyðingum. Fyr-
ir tilviljun birtist mynd af honum
í morgun í De Telegraaf þar sem
hann sát ásamt öðrum kunnum
gestum í veizlu sem var haldin til
að fagna sigri Hollendinga gegn
Belgum er tryggir þeim þátttöku-
rétt' í úrslitum heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu.
Sjónvarvottur hringdi í lögregl-
una til að tilkynna að fimm menn
hefðu stungið manni inn í rauða
bifreið og ekið á brott. Þetta gerð-
ist gegnt Amstel-hótelinu sem
Caransa átti um tíma á árunum
eftir 1960. Sjónvarvotturinn sagði
ekki til nafns og lögreglan reyndi
að hafa upp á honum I dag. Næt-
urvörður hótelsins sá hvað gerðist
en tilkynnti það ekki að sögn tals-
manns þess.
Þegar lögreglan kom á vettvang
voru árásarmennirnir á bak og
burt en veski og skilríki Caransa
fundust á götunni. Talsmaður
fjölskyldunnar sagði að Caransa
væri góð skytta en bæri aldrei
byssu og hefði ekki lffvörð.
— Klefar með
stálveggjum
Framhald af bls. 1
málsins og þess hefur verið
krafizt að hann segi af sér.
Flokkur kristilegra demó-
krata (CDU) hyggst leggja til
að fundir borgarskæruliða og
lögfræðinga þeirra verði hler-
aðir. Stjórn sósíaldemókrata er
því andvíg þar ,sem það brjóti
gegn mannréttindum.
Stjórnin bar fram frumvarp
sem miðar að því að herða eft-
irlit með vopnum og hraða rétt-
arhöldum f málum skæruliða.
Stjórnarandstaðan hvatti til
frekari ráðstafana til að auka
vald lögreglunnar, bæla niður
mótmælaaðgerðir og auka sekt-
ir fyrir að hvetja til ofbeldis.
Talsmaður CDU, Alfred
Dregger, sagði að starfsandi
fangavarða hefði vægast sagt
ekki batnað við þá framkomu
sem föngum hefði verið sýnd til
þessa. „Stutt er siðan þeir
fengu i heimsókn fræga heim-
spekinga sem héldu blaða-
mannafundi á eftir,“ sagði
hann.
Willy Brandt fv. kanslari
sagði að Vestur-Þjóðverjar
berðust gegn „blóðugri ógnar-
öld“ og hefðu unnið mesta sig-
ur sinn með frelsun gislanna í
Lufthansavélinni. Atburðirnir í
Stammheim-fangelsi var alvar-
legasta áfallið að hans dómi.
Talsmaður lögreglunnar
sagði f dag að hún hefði fengið
13.000 ábendingar um dvalar-
staði 16 skæruliða sem eru eft-
irlýstir vegna morðsins á dr.
Schleyer. Hann vildi ekki segja
hvort árangur hefði náðst i leit-
inni.
— Slippstöðin
Framhald af bls. 2
Að sögn Stefáns er enn ekki
búið að taka ákvörðun um hvaða
vélar og tæki fara um borð i skip-
ið né hvenær það verður tilbúið,
en á hinn bóginn virtist ekki
vanta kaupendur og vildu margir
kaupa.
Slippstöðin er nú langt komin
með skip fyrir Þórð Öskarsson á
Akranesi, og er það systurskip
Guðmundar Jónssonar, verður
það skip líklega afhent um næstu
áramót. Þá er byrjað á togara
fyrir Magnús Gamalielsson á ÓI-
afsfirði, en sá togari á að vera
tilbúinn fyrir áramót 1978—1979.
Sagði Stefán Reykjalín, að Slipp-
stöðin þyrfti nú að ganga frá nýj-
um smíðasamningi fljótlega, þar
sem verkefni fram I tímann
mættu ekki ná til skemmri tíma
en til eins árs.
— Fangar
náðaðir
Framhald af bls. 1
glæpamenn og hryðjuverka-
menn,“ sagði Mikulic.
Þar með virðist ekki eiga að
náða útsendara samtaka erlendra
andstæðinga sem nokkrum sinn-
um hafa komið til Júgóslavíu á
siðari árum. Verið getur að náð-
unin nái til rithöfundarins
Mihajo Mihajlovs sem var dæmd-
ur i sjö ára fangelsi 1957 fyrir
fjandsamlegan áróður.
Óvíst er hvort náðunin nái til
Rússahollra andófsmanna eins og
Vladimir Dapcevic sem var
dæmdur í ævilangt fangelsi í
fyrra fyrir samsæri gegn rikinu.
Hann er belgiskur ríkisborgari og
hélt því fram að útsendarar júgó-
slavnesku leynilögreglunnar
hefðu rænt sér í Rúmeníu.
I apríl sagði annar júgóslavne-
skur kommúnistaleiðtogi, Vladi-
mir Bakaric, að náðun pólitiskra
fanga væri í athugun, en hann
lagði áherzlu á að um innanlands-
mál væri að ræða og stjórnin i
Belgrad mundi ekki beygja sig
fyrir erlendum þrýstingi. Sakar-
uppgjöf sem var veitt í maí náði
ekki til pólitískra fanga.
— Þrýstingur
frá Carter
Framhald af bls. 1
reynt að hafa samvinnu með Suð-
ur-Afríkumönnum og viður-
kenndi hlutverk þeirra í tilraun-
um til að finna lausn á Rhódesíu-
málinu.
t aðalstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna reyndu fulltrúar vestrænna
ríkja í kvöld að fá fulltrúa Afríku-
ríkja til að styðja sex mánaða
bann við allri vopnasölu til Suður-
Afríku, en Afríkuríkin vilja bæði
varanlegt vopnabann og efna-
hagslegar refsiaðgerðir.
Vestræn ríki, fyrst og fremst
Bandarikin, Bretland, Frakkland
og Vestur-Þýzkaland, eru enn
ekki reiðubúin að beita algerum
refsiaðgerðum samkvæmt áreið-
anlegum heimildum. Þau vonast
til að fá Afríkuríkin til að fallast á
vægari aðgerðir sem eru þó harð-
ari en vestræn ríki hafa hingað til
getað fallizt á.
— Æfir út í
frumvarpið
Framhald af bls. 3.
ókunnugleika nefndarmanna á
starfsemi hljómsveitarinnar og
sinfóniuhijómsveita yfirleitt.
„Það má t.d. nefna að eftir
langa baráttu tókst okkur í Sin-
fóníuhljómsveitinni að fá þvi
framgengt að árið 1970 var vinnu-
skylda okkar í Þjóðleikhúsinu
felld út úr samningnum, þannig
að öll sú vinna sem við innum af
hendi í leikhúsinu er greidd auka-
lega. Nú gerir hins vegar frum-
varpið ráð fyrir að þessi vinnu-
skylda verði sett á aftur, þannig
að við teljum að þetta gangi þar
með þvert á gildandi samninga
okkar og í röksemdafærslu okkar
höldum við þvi fram að þetta sé
algjört einsdæmi að lagafrum-
varp skerði með þessum hætti
gildandi kjarasamning," sagði
Gunnar.
Þá sagði 'Gunnar að samkvæmt
frumvarpinu væri gert ráð fyrir
við hana störfuðu allt að 65 hljóð-
færaleikarar, Þar með væri búið
að binda í lögunum fjölda hljöð-
færaleikara, og væri'Þetta heldur
furðuleg vinnubrögð þegar þess
væri gætt að samkvæmt hefð-
bundnum skilgreiningum á sin-
fóníuhljómsveitum væri gert ráð
fyrir að hljóðfæraleikarar þyrftu
að vera töluvert fleiri en sett há-
mark í frumvarpinu og þar með
væri með lagaboði nánast komið i
veg fyrir að hér á landi yrði unnt
að koma upp fullskipaðri sin-
fóníuhljómsveit.
— Afköst
Framhald af bls. 3.
því í aðalatriðum sjálfstæð fram-
leiðslulina þannig að ef eitthvað
bilar er í flestum tilfellum hægt
að halda framleiðslu áfram með
hálfum afköstum.
1 verksmiðjunni er notuð mjöl-
skilvinda í stað pressu, en mjöl-
skilvindan á að vera hentugri við
vinnslu viðkvæms hráefnis, eins
og það er um tima á sumarvertíð.
Hliðstæð tæki hafa IitiIIega verið
reynd í þessum tilgangi hjá Fisk-
iðjunni h.f. i Keflavik og hjá silar-
verksmiðju rikisins i Siglufirði.
ÖIl teiknivinna var unnin á
verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen s.f., af Sigurði Sigfússyni
vélaverkfræðingi, Finnboga
Höskuldssyni tæknifræðingi og
Ólafi Erlingssyni byggingarverk-
fræðingi. Rafhönnun h.f. sá um
rafmagnsteikningar. Arkitekt
hússins er Rögnvaldur Johnsen.
Byggingarframkvæmdir annað-
ist Trésmíðaverkstæði Jóns Frið-
geirs Einarssonar. Vélsmiðja Bol-
ungarvíkur h.f. sá um uppsetn-
ingu véla og tækja og innlenda
smiði, en yfirverkstjóri var örn
Jóhannsson vélvirki. Rafmagns-
verkstæði Guðjóns Bjarnasonar
sá um rafbúnað. Verksmiðjustjóri
er Ragnar Pétursson.
Við stækkun og endurbætur
verksmiðjunnar var mikil áhersla
lögð á að verksmiðjan skilaði sem
bestri nýtingu og má nú segja að
full nýting fáist á hráefninu.
Segja má að það hái mjög verk-
smiðjurekstrinum, að aka þarf
hráefninu, þ.e. tugum þúsunda
tonna, 1.5 km. leið í þrær verk-
smiðjunnar. Það er því mjög að-
kallandi að hafnarskilyrði verði
bætt þannig að löndunarbryggja
sem fyrirhuguð er í námunda við
verksmiðjuna verði byggð. Það er
ekki kostnaðarsöm framkvæmd
þar sem Iokið er við byggingu ytri
garða hafnarinnar. Að loknum
þeim framkvæmdum geta loðnu-
bátar athafnað sig í öllum veðrum
í höfninni, og hægt verður að
dæla hráefninu beint úr lestum
skipanna í þrær verksmiðjunnar.
Einnig verður þá unnt að dæla
lýsi og mjöli beint um borð í
flutningaskip."
Að lokum sagðist Jónatan Ein-
arsson forstjóri hjá Einari Guð-
finnssýni h.f. vonast til þess að
verksmiðjan mætti eiga þátt í því
að efla enn atvinnulíf I Bolungar-
vík, jafnframt því að þessi fjár-
festing mætti skila þjóðarbúinu
margfaldri þeirri upphæð sem
farið hefur í fjárfestinguna, um
leið og hann þakkaði þeim sem
unnið hafa við framkvæmdir svo
og þeim sem veitt hafa fyrir-
greiðslu og sýnt þessu máli skiln-
ng. — Gunnar.
— 150 tann-
læknar
Framhald af bls. 3.
Halli Hallssyni og Thyra Lofts-
syni, en frumkvöðullinn var
Brynjúlfur, hann samdi fyrstu
lög félagsins og siðreglur. Einn-
ig samdi hann frumdrög að lög-
um um tannlækningar, en
fyrstu lögin um tannlækningar
eru frá 14. júni 1929.
Á blaðamannafundi sem
helztu forsvarsmenn félgsins
efndu til kom fram að tilgangur
félgsins við stofnun hafi verið
þrenns konar; að vera stéttar-
og hagsmunafélag fyrir tann-
lækna, að auðvelda félgsmönn-
um að fylgjast með nýjungum á
sviði tannlækninga og viðhalda
þekkingu þeirra. 1 seinni tíð
hefur svo bætzt við þessi atriði
fræðsla fyrir almenning, en
hún er nú stór þáttur félags-
starfseminnar.
Þegar Tannlæknafélagið var
stofnað var stéttin fámenn. Eft-
ir að Tannlæknadeild Háskóla
ísiands tók til starfa fjölgaði
hins vegar ört í stéttinni og eru
félagsmenn í dag 167, þar af
starfa um 150 hér á landi. Kon-
ur eru 13 á félagaskrá, en að-
eins þrjár þeirra starfa sjálf-
stætt. Flestir eru tannlæknar í
Reykjavík, eða um 100, en i
seinni tíð hafa fleiri og fleiri
tannlæknar setzt að úti á lands-
byggðinni. Talið er nauðsynlegt
að einn tannlæknir sé á hverja
þúsund íbúa þjóðfélags, svo
enn vantar á að fjöldinn sé
nægilegur.
Jón Sigtryggsson
heiðursfélagi T.F.l.
1 tilefni timamótanna I sögu
Tannlæknafélags Islands hefur
stjórn þess ákveðið að gera pró-
fessor Jón Sigtryggsson að
heiðursfélaga félagsins. A
blaðamannafundinum sagði
Sverrir Einarsson formaður
T.F.I. að Jón væri með réttu
faðir nútímatannlækninga á Is-
landi. Hefði hann mótað Tann-
læknadeild Háskóla Islands frá
upphafi og fram til dagsins í
dag.
Jón Sigtryggsson er fæddur á
Akureyri 10. apríl 1908. Varð
stúdent frá MA 1931, cand.phil.
frá Hl 1932 og cand.med við Hí
1937. Lauk síðan tannlækna-
prófi við Tannlæknaskólann i
Kaupmannahöfn 1939. Hóf
tannlæknastörf í Reykjavík
1941, skipaður dósent í tann-
lækningum við læknadeild Há-
skóla tslands 1944, og pröfessor
i sömu deild frá 1950.
Núverandi stjórn Tann-
læknafélags Islands skipa þeir
Sverrir Einarsson, Ölafur G.
Karlsson, Haukur Filippusson,
Ingólfur Arnarson og Sigurjón
Ólafsson.
Góður árangur
skólatannlækninga
A blaðamannafundinum kom
fram nokkur gagnrýni á tolla-
mál, en tannlæknarnir segja
svonefnda „lúxus“ tolla vera á
flestu því sem til tannlækninga
þarf, efni og tækjum. Þá gagn-
rýndu tannlæknarnir að Trygg-
ingastofnun rikisins hefði ekk-
ert aðhafst i fræðslumálum
varðandi tannvernd, þrátt fyrir
tilskipanir þar um, og sögðu
stofnunina nú „liggja á 5
milljón króna sjóði" sem ætlað-
ur væri til þessa. Þá kom fram
að frangur hefur verið nokkuð
góður af skólatannlækningum.
Þegar þær hófust árið 1966
hefðu verið rúmlega 10
skemmdar fullorðinstennur i
hverju 12 ára barni, en sam-
kvæmt skýrslum væru þær nú
komnar niður í færri en 5.
— Messur
Framhald af bls. 7
GARÐAKIRKJA Fermingar-
guðsþjónusta kl. 10 árd. Séra
Sigurður H. Guðmundsson.
KAPELLA St. Jósefssystra I
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Gunnþór Ingason.
FRtKIRKJAN I Hafnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Ingólf-
ur Guðmundsson lektor prédik-
ar. Kaffisala Kvenfélagsins fer
fram að messu lokinni og hefst
kl. 3 í Góðtemplarahúsini. —
Sjá grein annars staðar i blað-
inu. Séra Magnus Guðjónsson.
VlÐlSTAÐASÓKN Barnasam-
koma í Viðistaðaskóla kl. 11
árd. Séra Sigurður H. Guð-
mundsson.
NJARÐVIKURPRESTAKALL
Barnaguðsþjónusta i Stapa kl.
11 árd. Barnaguðsþjónusta i
Innri-Njarðvikurkirkju kl. 1.30
siðd. Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA Messa
kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA Messa ki.
2 siðd. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA Guðs-
þjónusta kl. 2 siðd. Sóknar-
prestur.
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
siðd. Sungin verður „Franska
messan“ sem flutt var á Egils-
stöðum við upphaf síðustu
prestastefnu. Altarisganga.
Séra Björn Jónsson.