Morgunblaðið - 29.10.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ny lUAjTj&fUMiiJU
veruleg breyting á þágildandi lög-
um um byggingarsamvinnufélög
(lög nr. 36/1951). 1 eldri lögunum
var heimild til fjármálaráðherra
til að veita ríkisábyrgð á lán til
ibúðabygginga er byggingarsam-
vinnufélög taka til að endurlána
félagsmönnum. er b.vggja á þeirra
vegum. Ábyrgðarheimild þessi er
eldri en lögin frá 1952 og mun
upphaflega hafa verið veitt til að
fullnægja kröfum hinna elztu lif-
eyrissjóða um tryggingu fyrir
ibúðalánum og jafnframt til að
auðvelda byggingarsamvinnufé-
lögum að selja skuldabréf á opn-
um markaði. Þegar þetta gerðist
var það tízka að greiða fyrir láns-
útvegun til framkvæmda. er veita
átti einhvers konar forgang. með
veitingu ríkisábyrgðar. Eflaust
hefur þessi ríkisábyrgð átt þátt i
að auðvelda mönnurn ibúðabygg-
ingar á árunum eftir siðari heirns-
styrjöld og frani á sjöunda tug
aldarinnar. Reynslan sýndi þó
fljótt að veðtrygging lána. svipuð
og krafist var til baktr.vggingar
rikisábyrgð. er fullnægjandi
trygging fyrir lánveitanda.
Þegar verulegur skriður komst
á stofnun lifeyrissjóða að frum-
kvæði verkalýðsfélaga og þeir
sjóðir fóru einnig að veita lán til
ibúðabyggínga, sóttust þeir ekki
eftir rikisábyrgð og nokkrir iíf-
eyrissjóðir, sem áður höfðu kraf-
ist hennar, hurfu frá því. Með
lögunum frá 1973 var ætlast til að
hér yrði gert hreint borð og hætt
að veita ríkisábyrgð á ibúðalán
einstaklinga, að því einu undan-
skildu að fyrir íbúðir. sem fallið
höfðu undir lögin frá 1952 fyrir
árslok 1973. skyldu þau gilda
áfram. Til þess að svo mætti verða
þurftu þeir lífeyrissjóðir. er enn
kröfðust rikisábyrgðar. að breyta
lánareglum sínum i það horf að
kröfur um veðtr.vggingu yrðu
svipaðar og kröfur fjármálaráðu-
neytis um baktryggingu fyrir rik-
isábyrgð.
Lífeyrissjóður sjómanna. sem
starfar eftir lögum mjög hliðstæð-
um lögum Lífeyrissjóðs starfs-
manna rikisins. breytti lánaregl-
um sínum í þessa átt að verulegu
leyti, en nokkrir lífeyrissjóðir op-
inberra starfsmanna kröfðust
áfram rikisábyrgðar á sarna hátt
og áður. Þá gerist það sem furðu
vekur að fjármálaráðuneytið veit-
ir þessa rikisábyrgð með tilvisun
til heimildar i lögurn nr. 36/1952
sem búið var að fella úr gildi. að
öðru leyti en þvi er áður segir um
ibúðir, ér voru skráðar á vegum
b.vggingarfélaga um áramótin
1973—1974. F.vrsta grein í lögum
um rikisábyrgðir (nr. 37/1961) er
þannig: ..Rikissjóður má aldrei
takast á hendur ábyrgðarskuld-
bindingar nema heimild sé veitt
til þess i lögum." Fáfróðum verð-
ur nú á að spyrja: Hvers virði er
rikisábyrgð. sem veitt er með til-
visun til heimildar i lögum sem
búið er að fella úr gildi? Og hver
er ávinningur lifeyrissjóðanna og
lántakenda þeirra?
Aður var þess getið að lifeyris-
sjóðir verkalýðsfélaga og stofn-
ana telja ríkisábyrgð óþarfa og
byggja þar á reynslu sem drepið
var á áður. Lánþegar verða hins
vegar að greiða tvöfalt til þrefalt
rneira í kostnað \ ið lántökur fyrir
utan timaeyðslu og fvrirhöfn við
snúninga milli fleiri afgreiðslu-
staða. Innheimtukerfi og bókhald
fyrir ríkisábyrgðarlánin er tvöfalt
miðað við bein veðlán og kostnað-
ur að sjálfsögðu vel til samræmis
við það. Sú mötbára við afnánti
umræddrar ríkisábyrgðar. að lög-
in urn lifeyrirsjóði opinberra
starfsmanna leyfi þeim ekki að
lápa eftir sömu reglum um trygg-
ingar og ö-rum lifeyrissjöðum. er
léttvæg þegar það liggur fyrir að
Lífeyrissjóður sjómanna. sem lýt-
ur nálega samhljóða lagaákvæð-
urn urn tryggingar fyrir lánurn.
hefur breytt sinum lánaregium i
þessa átt án þess að að hafi verið
fundið. En jafnvel þótt svo væri
að einhverja lagfæringu þyrfti á
lögum sjóðanna til samræmis við
lögin frá 1973 þá er ekki að efa að
Alþingi samþykkti slikt ef unt
væri beðið.
Hér hefui' verið bent á eitt
dænii þar sem eitthvert hjól i
„Kerfinu" stendur fast. Ekki skal
leitt getum að því að sinni á
hverju stendur og mun raunar
ekki þurfa að fræða ráðuneytis-
stjórann um það. en það skal við-
urkennt að Jön Sigurðsson var
hlynntur lagabreytingunni 1973
og er liklega siður en svo hrifinn
af þróun þessara niála siðan. En
það er eins og góður vilji ein-
stakra embættismanna hrökkvi
skammt þegar „Kerfið" er annars
vegar að „þvælast fyrir".
Björn Jónsson.
1339 — 4776“
Morgunblaðið 1
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
Skúlagata
Uppiýsingar í síma 35408
Úrvals steikur
Lambalæri
kr. kg. 772
Svínahryggur
kr. kg. 2150
Svínalæri
kr. kg. 1250
Svínabógur
kr. kg 1250
Nauta Roast
kr. kg. 2180
Folaldabuffsteik kr. kg 1500
Kálfasteik kr. kg. 690
% Umgerð og
ökuhraði
Hjalli Einarsson:
— Mér finnst menn hiusta
alltof lítið á allar þær jákvæðu
ábendingar og tillögur. sem alltaf
eru að koma frarn varðandi urn-
ferðarreglur og þá á ég við borg-
arstjórnarmenn. umferðarráð og
fleiri slíka aðila. en ábendingar
hélt ég væru einmitt til þess falln-
ar að styrkja og bæta umferðar-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A alþjóðiega skákmótinu í
Cienfuegos á Kúbu í sumar kom
þessi staða upp í skák Sovétbú-
anna Dorfmans og Romanishins,
sem hafði svart og átti leik. Síð-
asti leikur hvíts var 13. Kgl —
hl? ?
13. ..Bxf3 + !I Hvítur sá sig til-
neyddan til þess að gefast upp.
Eftir 14. Bxf3 — Be5 verður hann
hreinlega mát. Ekki oft sem menn
af sömu styrkleikagráðu og Dorf-
man eru mátaðir i svo fáum leikj-
um.
menninguna. 1 Mbl. i dag
(fimmtudag) er t.d. verið að
benda á það af lögregluþjónum.
að hraðinn sé alltof mikili í borg-
inni miðað við aðstæður. en það á
bara alltaf við. ekki bara sérstak-
ar aðstæður á haustin. Að mínu
áliti má akstur í miðbænum i
Reykjavik ekki vera hraðari en
30—35 og 40—45 á þessum svo-
kölluðu hraðbrautum. t.d. þar
sem ekki er von á gangandi fölki.
Bílarnir þurfa ákveðna vegalengd
til að stöðva sig og þvi má öku-
hraðinn ekki vera of mikill. Þetta
allt er alvörumál og yfirvöld hafa
ei leyfi til að hlusta ekki á ábend-
ingar borgaranna.
SKAMNIDEGIÐ
kallar
ÁAUKNA AÐGÆZLU
HOGNI HREKKVÍSI
/0-4 © 1977
McNaufht Syad., Ibc.
Allt klárt fvrir enska fótholtann — sé ég!
Opið tilhádegis ídag laugardag
I
VIÐTALSTÍMI |
Alþingismanna og ^
borgarfulltrúa ^
Sjálfstæðisflokksins x
í Reykjavík f
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Háaleitisbr. 1 á laugardög-
um frá klukkan 1 4:00 til 1 6:00. Er þar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 29. október verða til viðtals:
Ragnar Júlíusson, borgarfulltrúi,
Sigríður Ásgeirsdóttir, varaborgarfulltrúi.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU