Morgunblaðið - 29.10.1977, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977
Þrír leikir í 1 deild
Nú um helgina fara fram þrír
leikir í 2. deildarkeppni karla i
íslandsmótinu í handknattleik.
Verða tveir þessara leikja á Akur-
eyri, en þangaö fer lið Stjörnunn-
ar úr Garðabæ í heimsókn. Leika
Garðbæingar við KA kl. 16.00 i
dag og við Þór kl. 14.00 á morgun.
Ætla má að Akpreyrarliðin vinni
sigra í leikjunum fyrir norðan, en
sem kunnugt er álíta flestir KA
vera með bezta liðið í 2. deild að
þessu sinni. Þórsliðið hefur hins
vegar ekki keppt enn, og er því
lítið vitað um það. Er það tæplega
eins sterkt og það var í fyrra, þar
sem það hefur misst aðalskyttu
sina, Þorbjörn Jensson, yfir í
Reykjavíkurfélagið Val.
Þrióji leikurinn i 2. deild verð-
ur svo kl. 15.00 á morgun á Sel-
tjarnarnesi og leika þar Grótta og
nýliðarnir i 2. deild, HK. Eru
þessi lið jöfn að stigum, hafa bæði
hlotið tvö stig. Vann Grótta leik
sinn við Leikni og HK hefur lagt
Stjörnuna að velli. Ætti þarna að
geta orðið um tvisýnan leik að
ræða.
Auk nefndra leikja fara svo
íflf:
fram tveir leikir i 2. deild kvenna
og þrír leikir í 3. deild karla. í 2.
deild kvenna leika KA og ÍBK á
Akureyri kl. 15.00 í dag, og UBK
og ÍR leika kl. 16.15 í Garðabæ á
morgun. ÍA og Þór frá Vest-
mannaeyjúm leika í 3. deildinni á
Akranesi kl. 14.00 i dag og á morg-
un leika UBK og Þór frá Vest-
mannaeyjum kl. 15.00 i Garðabæ
og UMFA og ÍBK leika þar kl.
17.15.
Haustmót í
blaki um helgina
HAUSTMÖT Blaksambands Ís-
lands fer fram nú um helgina og
verður keppt bæði i karla- og
kvennaflokki. Fer kvennamótið
fram í Reykjavík og hefst kl.
14.00 i Hagaskólahúsinu og verð-
ur þar leikin ein hrina upp að 21
stigi, og það lið er úr sem tapar
tveimur leikjum. í kvennamótinu
taka þátt eftirtalin lið: Þróttur a,
Þróttur h, ÍA a, ÍS b, Vikingur,
Völsungur og UBK.
Karlamótið fer fram aó Laugar-
vatni 30. október og hefst það kl.
11.00. Þar verður leikió upp á
tvær unnar hrinur og það lið er úr
sem tapar tveimur. Ieikjum. í
karlaflokki taka þátt eftirtalin
lið: Þróttur a, Þróttur b, Þróttur-
öldungar, ÍS, UMFL og Mímir.
Keppt verður um bikara sem
Berry-umboðið hefur gefið og er
keppt um þá í annað sinn.
Geir Hallsteinsson aðþrengdur að
norskum varnarleikmönnum f
leiknum í fyrrakvöld. Hvað gerir
hann í leiknum á móti Dönum í
dag?
Dagskrá NM
DAGSKRÁ Norðurlandamótsins í
handknattleik um helgina verður
þessi:
Laugardagur 29. október:
íþróttahúsið Akranesi kl. 14.00
Finnland — Svíþjóð (Dómarar
Eliasen og Jensen frá Danmörku)
Laugardalshöll kl. 16.00
Ísland — Danmörk (Dómarar
Huseby og Anthonsen frá
Noregi)
Sunnudagur 30. október:
Laugardalshöll:
KI. 10.30: Leikið um
5. og 6. sæfið
Kl. 16.00: Leikið um
3. og 4. sætió
Kl. 17.30: Leikið um 1. og 2. sætið.
HAUKAR
AÐALFUNDUR handknattleiks-
deildar Hauka verður haldinn i
Haukahúsinu i Hafnarfirói i dag,
laugardaginn 29. október, og
hefst hann kl. 14.00.
Sigfús Jónsson.
Badmintonþing
ÁRSÞING Badmintonsambands
islands verður haldið sunnudag-
inn 30. október kl. 10 fyrir hádegi
í Snorrabæ, Snorrabraut 37.
----------------------------------------\
Tekst íslenzka liðinu
að koma á óvart
og vinna fimmta
sigurinn yfir Dönum?
LANDSLEIKUR ísiendinga og Dana í Laugardals-
höilinni í dag veröur 23. iandsleikur þjóðanna í
handknattleik. Hafa ísiendingar ekki keppt jafnoft
við neina þjóð, og má segja að samskipti okkar og
Dana hafi verið óslitin frá því að íslendingar tóku
að leika handknattleikslandsleiki. Okkar annar
leikur var við Dani og fór hann fram í Kaupmanna-
höfn árið 1950. Þá voru íslendingar nánast byrjend-
ur í íþróttinni og töpuðu stórt 6—20. Næsti Ieikur
sem fram fór 1959 tapaðist einnig með miklum mun
eða 16:23, svo og þriðji leikurinn sem var í heims-
meistarakeppninni 1961. Þann leik unnu Danir með
11 marka mun, eða 13:24, en allt síðan hafa leikirn-
ir oftast verið mjög jafnir, en Danir þó oftar verið
ívið sterkari, og af leikjunum 22 hafa þeir unnið 17
leiki.
Fyrsti sigurleikur íslendinga yfir Dönum verður sjálfsagl
mörgum handknattleiksunnendum minnisstæður, en sá leikur
fór fram f Laugardalshöllinni í aprfl 1968. í þeim leik fóru þeir
Geir Hallsteinsson og Jón Hjaltalfn Magnússon á kostum, og
voru gjörsamlega óviðráöanlegir. t þeim leik kom einnig fram á
sjónarsviðið ungur leikmaður, sem síðan hefur gert garðinn
frægan, Björgvin Björgvinsson.
Fyrirfram má ætla að Danir séu sigurstranglegir í leiknum í
dag. Þeir hafa að undanförnu æft allvel og m.a. tekið þátt í
hanknattleiksmótum með sterkum þjóðum, en Islendingar hafa
þvf miður ekki átt tækifæri til þess að samæfa lið sitt að neinu
riiarki. Þó er aldrei að vita hvað gerist. islenzka handknattleiks-
landsliðið hefur oft gert hvað bezt þegar við hvað minnstu hefur
verið búist af því, og er vonandi að slfkt verði upp á teningnum í
leiknum í dag.
tlrslit í fyrri landsleikjum islendinga og Dana hafa orðið sem
hér segir: 19.2 1950 Kaupmannahöfn tsland Danmörk 6:20
12.2 1959 Slagelse tsland — Danmörk 16:23
1.3. 1961 Karlsruhe Island — Danmörk 13:24
13.3 1961 Essen tsland — Danmörk 13:14
19.1. 1966 Nyborg tsland — Danmörk 12:17
2.4. 1966 Reykjavík tsland — Danmörk 20:23
6.4 1968 Reykjavík tsland — Danmörk 15:10
9.2. 1969 Helsingör tsland — Danmörk 13:17
28.2. 1970 Hagondange tsland — Danmörk 13:19
4.3. 1971 Reykjavík tsland — Danmörk 15:12
5.3. 1971 Reykjavík tsland — Danmörk 15:16
22.2. 1973 Randers tsland — Danmörk 18:18
3.3. 1974 Ehrfurt tslnad — Danmörk 17:19
5.2. 1975 Bröndby tsland — Danmörk 15:17
23.3. 1975 Reykjavík tsland — Danmörk 20:16
24.3. 1975 Reykjavfk tsland — Danmörk 19:21
12.12. 1976 Bröndby tsland — Danmörk 16:19
17.12. 1976 Reykjavfk tsland — Danmörk 23:20
18.12. 1976 Vestmannaeyjar tsland — Danmörk 16:19
19.12. 1976 Reykjavfk tsland 7— Danmörk 22:23
AGÆT HLAUPIENGLANDI
HJÁ SIGFÚSI OG
Frjálsíþróttamennirnir Jón
Diðriksson, UMSB, og Sigfús
Jónsson, ÍR. sem dvelja við há-
skólanám í Englandi hafa staðið
sig með ágætum í keppni þar ytra
f haust. Keppti Jón með skóla
sfnum f Manehester-boöhlaupinu
sem fram fór 15. október, náði þar
fjórða bezta árangri dagsins, og
Sigfús varð sfðan í fimmta sæti á
Vfðavangshlaupi norðurenskra
háskóla 22. október sem háð var f
Sheffield og er um 8 km.
„Maður er að komast á sæmi-
legt skrið með æfingarnar,“ sagði
Jón Diðriksson í spjalli við Mbl. í
gær. Sagði Jón að þeir félagar
hefðu aðeins keppt einu sinni
hvor það sem af væri hausti.
Hljóp Jón vel í Manchester-
boðhlaupinu sem er 6x2ja mílna
hlaup. Sigraði lið Newcastle-
skólans í skólakeppninni og er
upp var staðið var Jón með fjórða
bezta tima dagsins í þessu árlegá
og mikla hlaupi, hljóp á 9:33 mín-
útum. -Beztum tíma náði Ricky
Wilde frá Manchester en hann
hefur m.a. af Evrópumeistaratitli
innahúss að státa. Sagði Jón að nú
væru margir ágætir hlauparar í
skólanum og væri liðið með allra
beztu háskólaliðum á Englandi í
vetur.
„Maður er ennþá þungur á sér
og því gekk ekki betur en raun
varð á,“ sagði Sigfús um hlaup
sitt í Sheffield, en þar varð hann í
fimmta sæti í mishæðóttu 8 km
víðavangshlaupi á tímanum 27.36
JÓNI
mínútum, en sigurvegarinn hljóp
á 26.59 mínútum. Sigfús sem ver-
ið hefur við nám undanfarin ár í
Englandi varð fyrir því óláni að
stolið var í sumar úr herbergi
hans öllum bókum hans, húsgögn-
um, hljómflutningstækjum, verð-
launum, rúmfatnaði, Ijósaperu og
vaski. Höfðu einhverjir bíræfnir
bófar broíizt þar inn meðan Sig-
fús dvaldi hér heima í sumar.
Sagði Sigfús að öllu hefói verið
stolið úr herberginu, sem hægt
hefði verið að festa hendur á
meira að segja gömlum glugga-
tjöldum.
Hljóðið var annars goft í þeim
félögum. Næsta hlaup þeirra er
alþjóðlegt götuhlaup í Gateshead,
tæpir 9 km. að lengd. Ágás.