Morgunblaðið - 29.10.1977, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977
39
Fjögur valin til keppni á
EM í Alpagrehm í vetur
ÁKVEÐIÐ hefur veriö ao senda fjora íslenzka keppendur á Evrópu-
meistaramótið í Alpagreinum skíðamanna, sem haldiö verður f
Austurrfki f febrúar á næsta ári. Þau sem Skfðasambandið hefur valið
eru Steinunn Sæmundsdóttir, Sigurður Jónsson, Haukur Jóhannsson
og Tómas Leifsson.
Steinunn Sæmundsdóttir
dvelur um þessar mundir við æf-
ingar á ítalíu með norska lands-
liðinu. Hefur henni verið boðin
þátttaka i tveimur FlS-mótum f
Noregi og hafa Norðmenn látið
þau orð falla að Steinunn sé sízt
lakari en norsku landsliðs-
stúlkurnar.
Sigurður Jónsson meiddist í
baki í lok siðasta keppnistímabils
skíðmanna og í sumar varð hann
fyrir því óhappi að detta af vinnu-
palli og tóku bakmeiðslin sig þá
upp. Hefur Sigurður enn ekki get-
að hafið æfingar eins og hann
hafði ráðgert, hann er því enn hér
á landi, en ekki við skíðaæfingar f
Mið-Evrópu.
Um helgina heldur skíðaforyst-
an haustþing sitt og fer það fram
á Akureyri. Þess má einnig geta
að nýlega var haldið hér á landi
þing norrænu skíðasambandanna.
Áfall fyrir gönguíþróttina -
Magnús og Haukur fótbrotnir
TVEIR af fremstu skíða-
göngumönnum íslendinga
fótbrotnuðu fyrir nokkru
síðan og geta þeir því ekki
byrjað æfingar eins fljótt
og nauðsynlegt hefði verið
fyrir þá. Þeir Magnús
Eiríksson, Siglufirði og
Haukur Sigurðsson, Ólafs-
firði, voru í sérflokki
göngumanna í fyrravetur
ásamt Halldóri Matthías-
syni, en þar sem tveir hinir
fyrrnefndu urðu fyrir
þessu áfalli hefur Halldór
nokkurt forskot á þá. Að
því er fregnir herma brotn-
uðu þeir báðir við knatt-
spyrnuiðkanir.
Þeir Halldór og Magnús
höfðu verið valdir til þátt-
töku í Evrópumeistaramóti
í göngu, sem fram á að fara
í Lahti í Finnlandi i vetur.
Bendir allt til þess að
Magnús verði af þeirri ferð
vegna óhappsins. Magnús
sigraði i 30 km göngu og í
tvíkeppni á síðasta lands-
móti, en Haukur varð
þriðji bæði í 15 og 30 km
göngu og er mjög vaxandi
göngumaður.
NOKKRIR islenzku landsliðsmannanna I handknattleik fvlgjast með leik Dana <>« Svia I gærkvöldi o«
virðist hrifning þeirra ekki vcra sérlega mikil. Efst sitja þeir Kristján Sigmundsson og Þorbergur
Aðalsteinsson, i miðjunni Bjarni Guðmundsson og Jón fyrirliði Karlsson, í fremstu röð Olafur
Benediktsson, Jón Pétur Jónsson, Geir Hallsteinsson og Bjarni Jónsson — fyrrverandi landsliðsmað-
ur. Islendingar mæta Dönum I dag og hafa tvær breytingar verið gerðar á liðinu frá leiknum við
Noreg, Ólafur Benediktsson kcmur inn fyrir Gunnar Einarsson og Arni Indriðason fyrir Þorbjörn
Jensson. (Ijósm. RAX).
Jafntframan af, en síð-
an öruggur danskur sigur
JSÍ með
haustmót
FYRSTA júdómót vetrarins,
haustmót Judósambands Islands,
fer fram i Iþróttahúsi Kennarahá-
skóla Islands á morgun, sunnu-
daginn 30. október og hefst það
kl. 14.00.
Mót þetta er punktamót og er
öllum heimil þátttaka í þvi. Keppt
verður i sjö þyngdarflokkum og
er búizt við þátttöku allra beztu
júdómanna landsinS i mótinu.
Dregið í
Englandi
DREGIÐ hefur verið um það
hvaða liö leika saman í sextánliða
úrslitum ensku deildarbikar-
keppninnar. Fór drátturinn þann-
ig:
Arsenal — Hull
Bolton — Leeds
Bury/Millwall — West Bromwich
Ipswich Town — Manchester
City/Luton
Liverpool — Coventry
Notthingham Forest — Aston Villa
Sheffield Wed. — Middles-
brough/ Everton
Wrexham — Swindon/
Portsmouth.
VIÐUREIGN Svfa og Færeyinga í Norðurlandamótinu I handknattleik gat ekki farið nema á einn veg.
Svfar hlutu að sigra, þar sem öðrum megin á vellinum var lið, sem alltaf hefur verið meðal beztu
handknattleiksþjóða heims, hinum megin byrjendur f íþróttinni. Úrslitin urðu þau að Svfar skoruðu 34
mörk, Færeyingar 15. t leikhléi var staðan 19:7.
Byrjuðu Svíar leikinn f gær- þeir að slaka á og náðu ekki eins mjög skemmtilega og voru Færey-
kvöldi af miklum krafti, komust í miklu forskoti og upphafið benti ingarnir á stundum alls ekki með
3:0, síðan 10:1 og 13:2, en þá fóru til. Léku Svíarnir oft á tíðum í leiknum. Má segja að liðin hafi
19 marka sigur Svía
— og gatverið stærri
NORÐMENN komu á óvart i fyrri hálfleiknum á móti Dönum f
Norðurlandamótinu i handknattleik í gærkvöldi. Var leikurinn þá
mjög jafn og staðan 11:10 fyrir Dani í leikhléi, en f seinni hálfleiknum
sigu Danir fram úr og sigruðu örugglega 20:15. Var leikurinn á köflum
mjög skemmtilegur á að horfa fyrir sárafáa áhorfendur, en á milli
villur, ótfmabær skot og óþarfa harka.
Eftir þessum leik að dæma eiga
íslendingar möguleika á að sigra
Danina i dag, en hæpið er að
sigurinn verði nægilega stór til að
tsland komist i úrslitaleikinn á
morgun til að svo fari — þarf að
verða mikil breyting 'á íslenzka
liðinu.
Jafnt var á flestum tölum i fyrri'
hálfleiknum upp i 9—9, en þá
gerðu Danir tvö mörk á móti einu
norsku og i leikhléi var staðan
11:10. I seinni hálfleiknum hljóp
mikil harka i leikinn og leystist
hann upp á köflum. Verður að
segjast eins og er að islenzku
dómararnir þeir Hannes Þ. Sig-
urðsson og Karl Jóhannsson, voru
ólikir sjálfum sér að þessu sinni,
ósamkvæmir sjálfum sér og seinir
að taka ákvaróanir.
Norðmönnum tókst ekki að
skora mark i seinni hálfleiknum
fyrr en 14 minútur voru af leik-
tímanum, en Danir höfðu þá skor-
að tvivegis. Kom síðan sá leikkafli
Dananna, sem gerðu út um leik-
inn, þeir breyttu stöðunni úr
13:11 í 17:11 og var þá gert út um
leikinn, þó 10 mínútur væru eftir.
Munurinn á liðunum varð síðan
fimm mörk, 20:15 eins og áður
sagði. Virtist það ekki koma að
sök þó dönskum leikmönnum
væri visað af velli i seinni hálf-
leiknum i 4x2 mínútur, en Norð-
mönnum aðeins í tvær minútur.
Var athyglisvert að sjá hve hreyf-
anlegir Danirnir voru þegar þeir
voru færri og hve vörnin fylgdi
vel boltanum.
Beztu leikmenn liðanna i
þessum leik voru markverðirnir,
Mogens Jeppesen hjá Danmörku,
Morgan Juul og Björn Steive í
norska markinu. Allir sýndu þeir
markvörzlu eins og hún bezt ger-
ist, en höfðu einnig fyrir framan
sig góðar varnir lengst af leikn-
um.
Af útileikmönnum liðanna voru
Michael Berg og Erik Pedersen
beztir, ásamt Thor Munkager í
fyrri hálfleiknum. Af norsku leik-
mönnunum voru Gundem og
Gjerde einna beztir.
leikið sitt hvora íþróttina.
Er lið Svíanna trúlega bezta lið-
ið í Norðurlandamótinu, en þó
skal ekkert um það fullyrt, þar
sem andstæðingurinn var það
slakur að sænska liðið verður
ekki dæmt af þessum leik. Varla
fá Svíarnir heldur mikla mót-
spyrnu í leiknum gegn Finnum á
Akranesi i dag, þar sem þessi tvö
lið eru f allt öðrum gæðaflokki en
Svíarnir. Það verður ekki fyrr en
í úrslitaleiknum að Svfarnir þurfa
að taka á, en þá mæta þeir annað
hvort Dönum eða Islendingum.
Beztir í liði Svia í gærkvöldi
voru Claes Ribendahl og Sven
Ake Frick, en liðið virtist jafnt i
leiknum við Færeyingana og
fengu byrjendur í sænska lands-
liðinu að spreyta sig i gær. Léku
hvorki þeir Bobba né Björn And-
erson með liðinu i gærkvöidi.
Af Færeyingunum er Eyðfinn-
ur Egholm skástur, en Jogvan
Moerk barðist einnig vel.
IVIörk Svíþjóðar: Bengt Hakan-
son 6, Ingemar Anderson 5, Claes
Ribendahl 6, Bengt H:nson 5,
Dan Erikson 3, Sven-Ake Frick 3,
Lars Göran Jönson 3, Thomas
Augustsson 1, Basti Rasmussen 1,
Göran Gustafsson 1.
Mörk Færeyinga: Eyðfinnur
Egholm 4, Sverri Jacobsen 3,
Jogvan Moerk 3, Hanus Joensen
3, Jonny Joensen 1.
—áij.
amót karla í
mmm
] |T§ rj 1 | |T|||
mmméMmm
Kl. 14:00 Finnland — Svíþjóð á Akranesi
Kl. 16:00 ísland — Danmörk í Laugardalshöll
KOMIÐ OG SJÁIÐ SPENNANDI LEIKI
NU VINNUM VIÐ DANINA
Handknattleikssamband íslands