Morgunblaðið - 30.10.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTOBER 1977 •
OSTA- og smjörsalan hefur hafið
framleiðslu á ostum í sérstökum
pakkningum, sem ætlaðar eru
flugfélögum og gistihúsum. Ost-
inum er pakkað í litlar dósir og
enn sem komið er hafa menn að-
eins notað eina smurosttegund í
þær, en Oskar Gunnarsson, for-
stjóri Osta- og smjörsölunnar,
kvað unnt að pakka fleiri tegund-
um, ef menn hefðu áhuga á slíku.
Öskar sagði, að framleiðsla í
þessum pakkningum hefði hafizt i
sumar að ósk Loftleiða og hefði
félagið sjálft valið hvaða bragð-
efni yrði i ostinum. Þessar pakkn-
ingar eru nokkuð dýrar miðað við
innihaldið og kostar hver dós um
20 krónur, en engu að síður stend-
ur þessi framleiðsla algjörlega
undir sér, sagði Öskar.
Fyrir nokkrum árum hóf Osta-
og smjörsalan sölu á sinjöri í 15 g
pakkningum. Oskar sagði að mikil
sala væri á smjöri í þessum litlu
pakkningum og kvaðst hann ætla
að þessi tilraun með að pakka
ostum í litlar umbúðir myndi gefa
svipaða reynslu. Unnt er að nota
sömu vélasamstæður við að pakka
ostinum og í þær dósir, sem all-
lengi hafa verið á markaðinum og
taka 250 g.
ar og gáfu björgunarsveitinni
Finnbogi Arndal, til vinstri, afhendir Jóni Þórissyni sjúkrabifreiðina, sem staðsett verður f Reykholti.
Sjúkrabifreið staðsett í Reykholti:
Söfnuðu andvirði bifreiðarinn-
NÝLEGA afhenli Kiwanisklúbb-1
urinn Jiiklar í Borgarfirði
Björgunarsveitinni Ok sjúkrabif-
reið, sem keypt hafði verið fyrir
söfnunarfé og höfðu klúbhfélagai
útbúið hana til sjúkraflutninga.
Bifreiðin var síðan afhent 22.
október á hátíðarfundi í Brún i
Ba*jarsveil. Fundinn sóttu um 70
manns.
Forseti Jökla, Finnbogi Arndal,
gerði grein fyrir aðdraganda
Þetta er Sigurbergur GK 212, sem hleypt var af stokkunum nja
Bátalóni á föstudaginn eftir gagngerar breytingar, en frá þeim var
skýrt I blaðinu f gær.
Ljósm. Mbl. Fridþjófur.
~r
Attavitanámskeid
fyrir rjúpnaskyttur
ur og ferðamenn
þessa máls. Klúbbfélagar heim-
sóttu 270 heimili norðan Skarðs-
heiðar f Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu um páskaleytið í vor og leit-
uðu eftir fjárframlögum til kaupa
á sjúkrabifreióinni. Söfnuóust
með þessum hætti 1.250.000 krón-
ur, en auk þess héldu klúbbfélag-
ar dansleiki, sem gáfu í hagnað
470.000 krónur. I Andakílshreppi
voru haldin að venju töðugjöld 1
september síðastliðnum og var
þessi fagnaður heyskaparmanna
vel sóttur. Þegar upp var staðið
var i afgang 128.000 krónur og gaf
töðugjaldanefndin þá fjárhæð f
söfnunina. Þá hafa klúbbfélagar
unnið aó innréttingu, við frágang
og málningu bílsins í sumar og
haust fyrir 350.000 krónur.
Kostnaðarveró bifreiðarinnar við
afhendingu er tæplega 2 milljónir
króna. Næsta verkefni Jökla verð-
ur að kaupa snjóbíl fyrir Björg-
unarsveitina Heiðar i Mýrasýslu.
Jón Þórisson, formaður Björg-
unarsveitarinnar Oks, veitti lykl-
um bifreiðarinnar móttöku á
fundinum. Hann þakkaði klúbb-
félögum Jökla fyrir hina veglegu
gjöf og sagði hann að staósetning
fullkominnar björgunarbifreiðar
í uppsveitum Borgarfjarðar
drægi ögn úr áhyggjum fólks
vegna brottflutnings héraóslækn-
isins frá Kleppjárnsreykjum til
Borgarness.
Allmargir fundargestir tóku til
máls, m.a. Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnarfélags
íslands, sem óskaði Oki til ham-
ingju með bifreiðina og þakkaði
Jöklamönnum gjöfina. Bifreiðin
er geymd í upphituðum húsa-
kynnum, sem Ok hefur reist sér í
Reykholti í Borgarfirði.
Héraðsfundur
Rangárvalla-
EINS og undanfarin 11 ár gengst
Hjálparsveit skáta í Reykjavik
fyrir námskeiði í meðferð átta-
vita og landabréfa fyrir rjúpna-
skyttur og aðra ferðamenn. A
námskeiðunum verða einnig
veittar upplýsingar um ferðafatn-
að og ferðabúnað almennt.
Ætlunin er að halda 2 nám-
skeið, ef næg þátttaka fæst. Hið
fyrra verður dagana 2.—3.
nóvember n.k. og hið sfðara
9.—10. nóvember.
Hvort námskeið er tvö kvöld.
Fyrra kvöldið er meðferð áttavita
og landabréfa kennd og notkunin
æfó innandyra. Síðara kvöldið er
veitt tilsögn í ferðabúnaði og sið-
an farið í stutta verklega æfingu
rétt út fyrir bæinn. Þátttakendum
verður ekiö til og frá æfingasvæð-
inu í bifreióum hjálparsveitarinn-
ar. Námskeiðin verða haldin í
húsnæði hjálparsveitarinnar í
kjallara Armúlaskóla, Armúla
10—12, og hefjast bæði kvöldin
klukkan 20.00. Þátttökugjald er
1000.— krónur. Nánari upplýs-
ingar er að fá í Skátabúðinni við
Snorrabraut. Þar liggur einnlg
frammi þátttökulisti fyrir þá, sem
ætla að taka þátt í námskeiðun-
um.
Enda þótt þessi námskeið séu
einkum ætluð rjúpnaskyttum, eru
allir velkomnir, sem áhuga hafa á
að læra notkun áttavita og landa-
bréfa, eða vilja hressa upp á og
bæta við kunnáttu sína. Er at-
hygli vélsleðamanna, skíðagöngu-
manna og annarra ferðamanna,
sem ferðast um fjöll og firnindi,
sérstaklega vakin á þessum nám-
skeiðum.
Það orkar ekki tvímælis að stað-
góð kunnátta í meðferð áttavita
og landabréfs, ásamt réttum út-
búnaði, getur ráðið úrslitum um
afdrif ferða- eða veiðimanns, ef
veðrabrigði verða snögg.
Gjöf til
SVFÍ
Ritstjórar og útgáfustjóri bókarinnar f.v. David Hoy útbreiðslustjóri,
Norris McWhirter aóalritstjóri og Örnólfur Thorlacíus ritstjóri fs-
lenzku útgáfunnar.
Heimsmetabók
Guinness út-
gefín á íslenzku
HEIMSMETABOK
Guinness, er væntanleg á
markaö hérlendis á morg-
un, er það í fyrsta sinn sem
íslenzk útgáfa þessarar
bókar lítur dagsins ljós, en
áður hefur hún verið gefin
út á 16 tungumálum í um
33 milljónum eintaka.
í tilefni íslenzku útgáf-
Réttarstaða
sakborninga
ORATOR, félag laganema gengst
fyrir aimennum fundi í Lögbergi,
stofu 101 á mánudagskvöldið.
Fundarefnið verður réttarstaða
sakborninga i opinberum málum
og réttindi og skyldur verjenda í
því sambandi. Frummælendur
verða Steingrímur Gautur
Kristjánsson héraðsdómari og
Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður.
unnar boðuðu útgetendur
bókarinnar, Örn og Örlyg-
ur blaðamenn á sinn fund í
gær, en þar voru þá mættir
Norris McWhirter, annar
aðalritstjóra bókarinnar,
og útbreiðslustjórinn, Ðav-
id Hoy, en þeir eru að hefja
alheimsreisu til aó kynna
bókina um þessar mundir.
Ritstjóri íslenzku útgáfunnar er
Örnólfur Thorlaeíus, en hann og
tíu menn aðrir sáu um þýðingar
á ensku útgáfunni. Töluvert er af
íslenzku efni í bókinni og má þar
nefna að elsti sálmur sem vitað er
um er íslenzkur, er hann ortur 8.
september 1208 og heitir Heyr
himna smiður.
Fyrsta utgáfa bókarinnar kom
út 1955 og þá eins og nú útgefin af
Guinness-fyrirtækinu, sem ann-
ars er þekktast fyrir bjórfram-
leiðslu sína í Bretlandi. Bókin er
gefin út i 5000 eintökum á ís-
lenzku og kostar í verzlun 5880
krónur.
ÁRLEGUR héraðsfundur Rangár-
vallaprófastdæmis verður hald-
inn að Hvoli, Hvolsvelli, sunnu-
daginn 6. nóvember.
Fundurinn hefst með guðsþjón-
ustu í Stórólfshvolskirkju en aðal-
umræðuefni fundarins verður álit
starfsháttanefndar þjóðkirkjunn-
ar, sem sr. Jón Bjarman hefur
framsögu um.
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Slysavarnafélagi íslands:
„Frú Eiríka og Þorgrímur St.
Eyjólfsson, útgerðarmaður f
Keflavik, hafa afhent Slysavarna-
félagi Islands kr. 135 þús. frá frú
Asu Guðmundsdóttur Wright.
Skömmu fyrir andlát sitt ánafn-
aði frú Asa ákveðinni peninga-
upphæð til SVFl sem minningar-
gjöf um foreldra sína, læknis-
hjónin frú Arndisi Jönsdóttur og
Guðmund Guðmundsson, er siðast
var læknir á Stykkishólmi.
SVFl þakkar minningargjöf
þessa, er verður varið til eflingar
sjóslysavarna samkvæmt ósk gef-
andans."
Frá Vestfirðingafélaginu
AÐALFUNDUR Vestfirðingafélagsins varður haldinn að Hótel
Borg (gyllta sal) 1 dag, sunnudag 30. okt. klukkan 16. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur nýja félagsmenn.
OSTUR í litlum
neytendaumbúðum
%